Morgunblaðið - 03.12.2009, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn
Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HARPA, sem er 27 ára og býr í Vogum á Vatns-
leysuströnd, er ein þeirra sem þurft hafa að leita
til Mæðrastyrksnefndar, hefur gert það alls fjór-
um sinnum. Hún segir það hafa verið þung spor.
En þegar hún loksins fór á staðinn hafi móttök-
urnar verið svo hlýlegar, „allir voru svo góðir við
mig“, að hún hafi eiginlega brotnað saman.
Mjög þröngt var orðið í búi hjá þeim aftur í
sumar og fékk Harpa þá að vita að þau ættu rétt á
aðstoð fjórum sinnum á ári fyrir utan jólaaðstoð.
Hún ákvað fyrir jólin í fyrra eftir samráð við
eiginmanninn að tala við prestinn í Vogunum til að
athuga hvort þau ættu rétt á einhverri jólaaðstoð
og svo reyndist vera. „Ég hafði heyrt áður um
þennan möguleika en mér fannst alltaf að ég væri
þeirra hjóna. Þau eiga alls fjögur börn, þó engin
saman en þrjú af börnunum eru hjá þeim um helg-
ar, það elsta er uppkomið.
„Maðurinn minn missti vinnuna í desember í
fyrra, fékk aftur vinnu í ágúst en var að fá að vita í
gær [þriðjudag] að í janúar yrði hann aftur at-
vinnulaus,“ segir Harpa. „Það var mjög erfitt,
Þetta var eins og högg. Við vorum farin að vona að
nú færi kannski eitthvað að rætast úr og við
myndum hafa eitthvað milli handanna, gætum
farið að gera upp vanskil sem sátu á hakanum. En
nú erum við búin að tala okkur svolítið saman og
ætlum bara að taka þetta skref fyrir skref. Við er-
um klók í að nýta hlutina, bruðlum ekki neitt og ég
kann að sauma og stoppa í föt, ég var svo heppin
að alast upp hjá ömmu minni og svo höfum við
fengið margt hjá ættingjum og vinum. Og við höf-
um svo sem aldrei verið rík.“
einhvern veginn ekki nógu illa stödd til að biðja
um þannig hjálp, svo eru tekjumörkin svo lág.
Mér finnst oft að aðrir hafi það svo miklu verra.“
Harpa hefur verið öryrki frá 18 ára aldri. Hún
býr með eiginmanni sínum í góðu leiguhúsnæði og
segir eigandann hafa sýnt þá tillitssemi að lækka
leiguna um 10 þúsund kr. vegna fjárhagserfiðleika
Voru þung spor í fyrsta sinn
Kona í miklum fjárhagsvanda segir hafa verið erfitt að biðja um mataraðstoð
en móttökurnar hjá Mæðrastyrksnefnd hafi verið einstaklega hlýlegar
Í HNOTSKURN
»Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar,Rauða krossins og Hjálparstarfs kirkj-
unnar fer fram dagana 15.-18. desember og
tekið er við umsóknum til 10. desember.
»Á úthlutunardegi er pakkað mörghundruð kílógrömmum af mat.
MARGIR eru nú svo illa staddir
að þeir eiga ekki fyrir mat.
Myndin var tekin í húsakynnum
Mæðrastyrksnefndar í Hátúni 12
í Reykjavík í gær þar sem verið
var að taka saman mat í pakka
fyrir úthlutanir gærdagsins.
Vilborg Oddsdóttir, félags-
ráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkj-
unnar, telur að um 4-5.000 fjöl-
skyldur fái úthlutað matvælum
hjá hjálparstofnunum á ári. Ekki
þurfi allar að fá aðstoð í hverjum
mánuði. Um 1.500-2.000 fjöl-
skyldur sæki þó aðstoð mánað-
arlega. „Þetta fer vaxandi frá
einum mánuði til annars.“
Hún segir bagalegt að ekki
séu til traustar upplýsingar um
fjölda þeirra sem þurfi aðstoð og
ekki séu samræmdar reglur
milli hjálparstofnana um hverjir
eigi rétt á aðstoð. Hjálparstofn-
anir hafi heldur ekki upplýs-
ingar um það hverjir þiggi að-
stoð hjá öðrum, því geti fólk í
raun og veru farið á milli og náð
sér í meiri aðföng en ætlast sé
til. Dæmin séu fá en hegðun
þeirra sem misnoti aðstoðina
komi niður á úthlutunum til ann-
arra.
Um 1.500-2.000 fjölskyldur þurfa aðstoð á mánuði
Morgunblaðið/Golli
FJÖLMARGIR
gripu í tómt þeg-
ar þeir mættu á
heilsugæslustöð
sína í bókaða
bólusetningu.
Þar sem bóluefni
hefur ekki borist
í tíma, falla allar
fyrirhugaðar
bólusetningar
niður til og með
15. desember, en þá verður bóluefni
væntanlega næst dreift til heilsu-
gæslustöðva.
Í flestum tilvikum flytjast bólu-
setningar í réttri tímaröð yfir á þá
daga þegar bólusetningar hefjast
að nýju.
Heilsugæslustöðvar á höfuðborg-
arsvæðinu létu þá ekki vita sem
pantað höfðu tíma í bólusetningu
en settu inn upplýsingar á vefsvæði
sitt. Gísli Júlíusson, yfirlæknir
heilsugæslu Grafarvogs, bendir í
þessu sambandi á að 1.800 hafi átt
pantaðan tíma, og óvinnandi vegur
hefði verið hringja í alla þá. Hann
telur hins vegar að sóttvarnarlækni
hefði borið að auglýsa umrædda
röskun með meira áberandi hætti
en gert var.
Samkvæmt upplýsingum frá öðr-
um heilsugæslustöðvum lágu sömu
ástæður að baki.
Ljóst er að mikið álag verður á
heilsugæslustöðvunum þegar bólu-
setning hefst að nýju, enda dreifast
bólusetningar sem frestast á afar
fáa daga til jóla. andri@mbl.is
Ekki látið vita að
tímar í bólusetn-
ingu frestuðust
Bólusetning við
svínaflensu.
FORSETI Alþingis, Ásta Ragnheið-
ur Jóhannesdóttir, tilkynnti þing-
mönnum það snemma í gærkvöldi
að þingfundi yrði ekki slitið fyrr
mælendaskrá tæmdist og annarri
umræðu um Icesave væri lokið. Þá
voru þrettán þingmenn á mæl-
endaskrá, og enn kl. 23.
Þegar Morgunblaðið fór í prent-
un sáu þingmenn því fram á að
fundur yrði fram á morgun, en þar
næsti þingfundur hefst kl. 10.30 í
dag. Fundir eru í tveim nefndum
Alþingis kl. 8.30.
Rætt þar til mæl-
endaskrá tæmist
„ÞETTA er í fyrsta skipti sem ég
man til þess að við höfum ekki
fengið að sjá frumvörp og ekki
fengið aðkomu að frumvörpum
sem fjalla að öllu leyti um okkar
mál sem eiga uppruna sinn hjá
verkalýðshreyfingunni eins og t.d.
atvinnuleysistryggingarnar og fæð-
ingarorlofið,“ segir Ingibjörg R.
Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ.
Miðstjórn ASÍ hélt langan fund í
gær þar sem fjallað var um til-
lögur félags- og trygginga-
málaráðherra um breytingar á
atvinnuleysisbótakerfinu og fæð-
ingarorlofi.
Einnig fór mikil umræða fram
um skattafrumvörp ríkisstjórn-
arinnar. „Við höfum mjög miklar
áhyggjur af því að umfang skatta-
hækkananna sé meira en boðað
var þegar við gerðum stöð-
ugleikasáttmálann. Við höfum
miklar áhyggjur af því hvaða áhrif
þessi mikla skattlagning kemur til
með að hafa á rekstur og skuldir
heimilanna. Okkur er mikið í mun
að þeim tekjulægri sé hlíft,“ segir
Ingibjörg.
Verkalýðsforystan gagnrýnir
breytingar sem boðaðar eru í
frumvarpinu um atvinnuleys-
istryggingarnar. „Þarna eru settar
mun ríkari eftirlitsheimildir og
auknar skyldur á atvinnuleitendur
og sömuleiðis refsiheimildir og við-
urlög. Þau voru nú töluverð fyrir.
Við viljum að sjálfsögðu ekki að
hægt sé að svindla á kerfinu en
teljum að aðalatriðið sé þjónusta
og stuðningur við þá sem leita sér
að atvinnu. Með þeim hætti sé
hægt að fækka á atvinnuleys-
isskránni,“ segir Ingibjörg.
Þá gagnrýnir ASÍ að bótaréttur
námsmanna í námshléum verði
felldur niður sem geti orðið til
þess að fólk eigi þess ekki kost að
halda áfram í námi. omfr@mbl.is
Umfang skattahækkana
meira en í sáttmálanum
Einsdæmi, að sögn
ASÍ, að fá ekki að
sjá frumvörp
Morgunblaðið/Heiðar Þór
Vinna Breytingar á atvinnuleysis-
tryggingum eru gagnrýndar.
Í HNOTSKURN
»Miðstjórn ASÍ mótmælir íályktun boðuðum breyt-
ingum á skattlagningu tekna
sjómanna
»Við gerð stöðugleikasátt-málans í vor hafi því verið
heitið að ekki yrði „gripið til
lagasetninga eða annarra
stjórnvaldsaðgerða sem hafa
bein áhrif á innihald kjara-
samninga eða kollvarpa með
öðrum hætti þeim grunni sem
kjarasamningar byggjast á.“
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MJÖG litlar breytingar hafa orðið á
fylgi flokkanna frá því október, ef
marka má nýjustu skoðanakönnun
Þjóðarpúls Gallup sem gerð var í
nóvember. Stuðningur við ríkis-
stjórnina er nánast óbreyttur. Ríf-
lega 12% segjast munu skila auðu
eða ekki greiða atkvæði.
Hátt í 6.000 manns voru spurðir
og var svarhlutfall um 70%. Sjálf-
stæðisflokkurinn er sem fyrr stærst-
ur, um 32% þátttakenda í könn-
uninni sögðust myndu kjósa flokkinn
yrði gengið til kosninga núna. 26%
sögðust myndu kjósa Samfylk-
inguna, tæplega 23% Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð og 16%
myndu kjósa Framsóknarflokkinn.
Aðeins liðlega 1% aðspurðra sagðist
myndu kjósa Hreyfinguna.
Um 47% styðja nú stjórn Sam-
fylkingar og VG en í maí, skömmu
eftir að hún var mynduð, sögðust
60% styðja hana.
Í Reykjavík mældist fylgi Sjálf-
stæðisflokks 39%, Samfylkingar
34%, VG 21% og Framsóknarflokks
5%. Í Reykjavík, Kópavogi og á Ak-
ureyri vill meirihluti aðspurðra nýj-
an meirihluta í bæjarstjórn, hlut-
fallið var 69% á síðastnefnda
staðnum. Liðlega helmingur að-
spurðra í Hafnarfirði vill sama
meirihluta og núna.
Spurt var um stuðning við að-
skilnað ríkis og kirkju og var hann
mun meiri en nokkru sinni eða 74%.
Styrkur flokkanna
nær óbreyttur
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Aðskilnaður Meiri stuðningur er við
aðskilnað kirkju og ríkis en áður.
Sjálfstæðisflokkur
stærstur en 47%
styðja stjórnina