Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Elegant og töff
dagatalsbók með
myndskreyttum
hugleiðingum.
Góð fyrir skapið
og skipulagið!
Við styrkjum
BLEIK kápa, bleikt reiðhjól og rautt hús skera
sig rækilega úr hvíta litnum sem umlykur allt
þessa dagana. Vetrarríki hefur verið á landinu
öllu, stórhríð víða og þæfingsfærð í höfuðborg-
inni. Þó að ekki sé mikill snjór í Reykjavík tefur
þó þetta litla sem er á gangstéttum og erfitt get-
ur verið að basla með barnavagninn þegar gang-
stéttir hafa ekki verið ruddar.
Heldur á að hlýna á landinu í dag þó að norð-
anátt ríki og áfram verður kalt í veðri. Þó að
kuldaboli bíti áfram er reiknað er með að létt-
skýjað verði að mestu á suðvesturhorninu í dag.
Þannig má búast við að vetrarfatnaður verði
áfram fyrir valinu þegar búist er til útivistar og
eins gott að bíllinn sé vel búin til vetrarverka.
Litadýrðin nýtur sín í skammdeginu
Morgunblaðið/Kristinn
Vetrarlegt um að litast á landinu
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÁÆTLANIR eru langt á veg komn-
ar um byggingu stórrar áburð-
arverksmiðju hér á landi. Ef þær
verða að veruleika eru nú taldar
sterkastar líkur á að henni yrði val-
inn staður í Þorlákshöfn. Fleiri
staðir hafa þó verið skoðaðir og ekki
útilokaðir, m.a. Bakki við Húsavík.
Félagið Fertil ehf. vinnur að
miklum undirbúningi verkefnisins,
sem hefur staðið yfir í hálft annað
ár og farið mjög hljótt. Íslendingar
standa að félaginu auk norsks sér-
fræðings.
„Við erum búnir að kynna þetta
fyrir yfirvöldum og höfum rætt við
orkuveiturnar og Landsvirkjun og
erum á lokahnykknum við að loka
sölu- og kaupmálum,“ segir Eggert
Guðmundsson, byggingarfræðingur
og einn af forsvarsmönnum Fertil.
Einnig hafa farið fram 2 fundir
með forsvarsmönnum lífeyrissjóð-
anna til að kynna þeim verkefnið og
kanna áhuga þeirra á þátttöku í
fjármögnun.
Áætlanirnar gera ráð fyrir að
reist yrði risavaxin verksmiðja á ís-
lenskan mælikvarða auk stór-
skipahafnar. Að sögn Eggerts gera
áætlanir ráð fyrir að framleidd yrðu
700 þúsund tonn af áburði í verk-
smiðjunni og 760 þúsund tonn af
kalíumnítrati til útflutnings en til
samanburðar er innanlandsmark-
aðurinn fyrir áburð um 80 þúsund
tonn. ,,Þetta er allt undir því komið
að við fáum orku. Það er vanda-
málið sem við stöndum frammi fyrir
í dag að við fáum ekki orku fyrr en í
fyrsta lagi árið 2014,“ segir hann.
Orkuþörf verksmiðjunnar yrði 350
MW.
Stefna á 1,4 millj. tonna framleiðslu
Hugmyndir kynntar stjórnvöldum og lífeyrissjóðum um verksmiðju til framleiðslu á 700 þús. tonnum
af áburði og 780 þús. tonnum af kalíumnítrati til útflutnings Orkuafhending ekki tryggð fyrr en 2014
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þorlákshöfn Mestar líkur eru taldar á að verksmiðjan rísi í Þorlákshöfn.
LANGMEST var á síðasta fisk-
veiðiári flutt út af óunnum afla frá
Vestmannaeyjum. Magnið dróst þó
lítillega saman frá árinu á undan,
en verðmæti útflutningsins frá Eyj-
um jókst hins vegar um rúman
milljarð. Fyrir rúmlega 20 þúsund
tonn fengust hátt í 5,7 milljarðar
króna, samkvæmt upplýsingum
Fiskistofu.
Verðmæti útflutnings frá Grund-
arfirði og Grindavík nam tæpum
milljarði frá hvorum stað en magn-
ið sem flutt var út frá Grundarfirði
var verulega meira. Aukning magns
og verðmætis á milli ára var hins
vegar áberandi frá Grindavík.
Á síðasta fiskveiðiári var fluttur
út óunninn afli á erlenda fiskmark-
aði með veiðiskipum og gámum að
verðmæti 17,8 milljarðar króna.
Verðmæti útflutts óunnins afla
jókst því um 45,5% á milli ára. Út-
flutt magn jókst úr 56.548 tonnum í
59.349 tonn eða 5%. aij@mbl.is
Óunninn afli fluttur út fyrir
5,7 milljarða frá Eyjum
Aukning í verð-
mæti og magni
frá Grindavík
Stærstu hafnirnar í útfluttum óunnum afla
20
15
10
5
0
6
5
4
3
2
1
0
Vest-
manna-
eyjar
Grundar-
fjörður
Grinda-
vík
Reykja-
vík
Eski-
fjörður
Þorláks-
höfn
Vest-
manna-
eyjar
Grundar-
fjörður
Grinda-
vík
Reykja-
vík
Eski-
fjörður
Þorláks-
höfn
Heimild: Fiskistofa
Magn
þús. tonn
2007/08
2008/09
2007/08
2008/09
Verðmæti
milljarðar kr.
KJARASAMNINGAR hafa náðst
til eins árs á milli Blaðamanna-
félags Íslands og Samtaka at-
vinnulífsins. Blaðamannafélagið
hafði áður vísað kjaradeilunni til
ríkissáttasemjara í fyrsta sinn í
aldarfjórðung.
Samningurinn, sem nú verður
borinn undir atkvæði, felur m.a. í
sér 30 þúsund kr. hækkun allra
launataxta í tveimur áföngum,
þann 1. nóvember síðastliðinn aft-
urvirkt og síðan 1. febrúar. Þá
hækka öll laun um 2,5% 1. júní.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, for-
maður Blaðamannafélagsins, seg-
ir samninginn vera varnarsigur í
erfiðu árferði; lögð hafi verið
áhersla á að hækka lægstu laun.
kjon@mbl.is
Blaðamenn
semja um kjör
til eins árs
FJÓRIR karlmenn voru handteknir í
gærkvöld eftir að þeir réðust að ein-
um í Fossvogi í gærkvöldi. Menn-
irnir voru vopnaðir loftskammbyssu.
Yfirheyrslur stóðu fram á nótt og
gerði varðstjóri ráð fyrir að mönn-
unum yrði haldið yfir nótt.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins má rekja tildrög árás-
arinnar til sambands fórnarlambsins
við fyrrverandi unnustu eins árás-
armannsins. Það fékkst ekki staðfest
hjá lögreglu en varðstjóri staðfesti
þó að mennirnir þekktust að ein-
hverju leyti.
Réðust á mann
vopnaðir loftbyssu
Miklu ræður um staðarval að
nóg framboð sé á vatni en
áburðarverksmiðjan þarf
4.000 sekúndulítra af vatni og
er Þorlákshöfn talin ákjósan-
legust í því efni. Viðræður
hafa farið fram við sveit-
arstjórn Ölfuss. Ólafur Áki
Ragnarsson, sveitarstjóri Ölf-
uss, segir að ekki muni standa
á sveitarfélaginu að leggja til
land undir starfsemina. Að
sögn Eggerts stafar nánast
engin mengun frá verksmiðj-
unni en hún muni að sjálf-
sögðu fara í umhverfismat.
Þarf mikið vatn