Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
BLAÐAMANNAFÉLÖGIN í Nor-
egi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku
lýsa í sameiginlegri yfirlýsingu yfir
áhyggjum af þróun mála á íslenskum
fjölmiðlum. Fjöldi blaðamanna hafi
verið rekinn. þ. á m. forystumenn í
Blaðamannafélagi Íslands. Sérlega
alvarleg sé staðan á Morgunblaðinu.
„Þar hafa eigendur ráðið sem rit-
stjóra fyrrum forsætisráðherra
landsins, sem var síðan seðlabanka-
stjóri þegar hrunið varð, á sama tíma
og viðkomandi sætir rannsókn vegna
þáttar hans í efnahagshruninu,“ seg-
ir í ályktuninni.
Óskar Magnússon, útgefandi
Morgunblaðsins, furðar sig á að nor-
rænir blaðamenn telji sig geta út-
hlutað tjáningarfrelsi og atvinnu-
frelsi á Íslandi.
„Því er ranglega haldið fram í
ályktuninni að ritstjóri Morgun-
blaðsins sæti einhverri rannsókn á
Íslandi. Svo er ekki. Fjölmargir hafa
gefið skýrslur fyrir rannsóknar-
nefnd Alþingis, þar á meðal blaða-
menn. Það er alrangt að halda því
fram að þessir aðilar sæti rannsókn.
Blaðamaður sem ber slíkt á borð fyr-
ir lesendur er vondur blaðamaður.“
Óskar segir að kunnugleiki hinna
norrænu blaðamanna á aðstæðum á
Íslandi orki mjög tvímælis og þeir
hafi ekki spurt um sjónarmið útgef-
anda Morgunblaðsins.
„Og spyrja má, hvað hafa þeir les-
ið mikið af fréttaflutningi frá Íslandi
og á hvaða tungumáli? Var ályktunin
samin undir áhrifum frá formanni ís-
lenska blaðamannafélagsins sem
sagt var upp störfum á Morgun-
blaðinu nýlega? Er það líklegt til
hlutleysis?
Það er ekki hlutverk blaðamanna
að ákveða hvort menn sem ekkert
hafa til saka unnið og sæta engum
rannsóknum eða ákærum, hafi heim-
ild til að starfa á fjölmiðli eða tjá sig
um málefni líðandi stundar. Nær
væri að þeir læsu beitta og gagnrýna
umfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is
og drægu svo ályktanir af verkum
manna,“ segir Óskar. kjon@mbl.is
Lýsa áhyggjum
af tjáningar-
frelsi á Íslandi
Útgefandi Morgunblaðsins furðar sig á
ályktun norrænna blaðamannafélaga
Morgunblaðið/ÞÖK
KÆRLEIKSKÚLAN 2009 var afhjúpuð við hátíðlega
athöfn í Listasafni Reykjavíkur í gær. Að þessu sinni
hlýtur Kærleikskúluna Embla Ágústsdóttir, ung
kraftmikil kona sem lætur hreyfihömlun ekki hindra
sig í að lifa lífinu til fulls og ná háleitum markmiðum
sínum í námi og starfi. Með því að miðla af reynslu
sinni og lífssýn hefur hún unnið að því að breyta við-
horfum til fatlaðra og fengið fólk til að skilja að þó
að hreyfihömlun sé sannarlega áskorun sé hún ekki
endilega hindrun eða afsökun.
Þetta er í sjöunda sinn sem Kærleikskúlan er af-
hent en fyrri handhafar hennar eru Halaleikhópurinn
(2008), Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, varaformaður
Sjálfsbjargar (2007), Ný-ung ungliðahreyfing Sjálfs-
bjargar (2006), Haltur leiðir blindan: Bjarki Birg-
isson, Tómas Birgir Magnússon og Guðbrandur Ein-
arsson (2005), Freyja Haraldsdóttir (2004), Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Íslands (2003).
Snerting eftir Hrein Friðfinnsson
Hreinn Friðfinnsson leggur nú starfi með fötluðum
börnum og ungmennum mikilvægt lið með list sinni,
en Kærleikskúlan 2009 kallast Snerting og er eftir
Hrein.
Snerting er sjöunda Kærleikskúlan, en áður hafa
Erró, Ólafur Elíasson, Rúrí, Gabríela Friðriksdóttir,
Eggert Pétursson og Gjörningaklúbburinn skreytt
kúluna.
Morgunblaðið/Heiddi
Kærleikskúlan til Emblu
Snerting Hreins Friðfinnssonar kærleiksrík
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
39
94
9