Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 36
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Viðburðafyrirtækið Jón Jónsson
fagnar brátt tveggja ára afmæli sínu
og ætlar að spenna bogann hátt í til-
efni þess. Hinn 18. desember næst-
komandi mun afmælis-fagnaðurinn
fara fram og um er að ræða stór-
glæsilega tónlistar-hátíð sem haldin
verður á þremur sviðum á Hótel Ís-
landi.
Sviðin þrjú hafa hlotið nöfn við
hæfi og kallast þau nú Jólakött-
urinn, Betlehem og Rómanskotið en
í koti Rómans munu allir knúsast og
kyssast í dyrunum undir mistilteini –
í sannkallaðri jólastemningu. Miða-
sala á hátíðina er heitir Jól Jólsson
hófst á miði.is í gær.
Fjöldi tónlistarmanna, hljóm-
sveita og plötusnúða munu koma
fram á tónlistarhátíðinni þar á með-
al Gus Gus, FM Belfast, Lúdó og
Stefán, Ben Frost, Egill Sæbjörns-
son, Feldberg, Sykur og BB & Blake.
Plötusnúðar verða m.a. Party Zone
dj’s, breakbeat.is, Margeir, Presi-
dent Bongo og Sexy Lazer.
Jón Jónsson og Jól
Jólsson í góðum fíling!
Fólk
Eftir Kristrúnu Ósk Karlsdóttur
kristrun@mbl.is
RAKEL McMahon myndlistarkona opnar sýn-
ingu sína FEED ME í versluninni Kron Kron í
kvöld kl. 20. Rakel útskrifaðist úr myndlist-
ardeild Háskóla Íslands árið 2008. Hún hefur
fengist við samsýningar og gjörninga síðastliðin
ár en hefur upp á síðkastið verið að einbeita sér
að teikningum, klippimyndum og fleiru á plex-
ígler.
„Þessi verk eru aðallega málverk unnin á
plexígler. Heildarhugmyndin að sýningunni er
einhvers konar leiðrétting á fullkomnun. Þetta
byggist á að sýna einhverja mynd af hinu mann-
lega eðli. Ef það á að líkja þessu við eitthvað má
segja að þetta minnir svolítið á Basic Instinct, en
án Sharon Stone. En það er mín túlkun, það er í
raun hægt að flokka þetta á breiðan hátt. Mér
fannst nafnið FEED ME lýsa þessari heild-
armynd vel,“ segir Rakel. Hún hefur fengist við
ýmis form listarinnar en segir sýninguna vera í
anda þess sem hún hafi fengist við áður. „Þetta
er í mínum anda og minnir margt á aðra hluti
sem ég hef verið að vinna að.“
Rakel segir margt sameiginlegt með verk-
unum á sýningunni, þó svo þau sé ólík á margan
hátt. „Ég held að maður fari yfirleitt inn á svipuð
svæði á svona sýningum þó að birtingarmyndin
sé ekki eins. Í þessu tilfelli geri ég það ekki með-
vitað.“
Sýningin stendur fram yfir jól.
Sýning sem leiðréttir fullkomnun
Morgunblaðið/Eggert
Rakel Titillinn FEED ME lýsir verkunum vel.
Designer Desember verður hald-
ið í fyrsta skipti á veitinga- og
skemmtistaðnum b5 í dag, frá kl.
18 til 21. Þetta er hönnunarpartí
opið öllum þar sem íslenskir kven-
hönnuðir koma til með að sýna
vörur sínar og selja, alls 15 þekktir
hönnuðir en meðal þeirra eru E-
label, Ann design, Kasy-design,
Emami og Nakti apinn.
Þarna verða alls kyns vörur, föt,
skór, kertastjakar og skart svo
eitthvað sé nefnt.
Gestir eru hvattir til að koma
með einhverja smáhluti innpakk-
aða og merkja t.d. „strákur, 8
ára“. Pökkunum verður komið fyr-
ir hjá þeim sem fá fáar gjafir um
jólin. Hver hönnuður mun einnig
gefa hlut úr sinni hönnun til þeirra
sem minna mega sín.
B5 verður opinn fyrir þá sem
vilja, hanastél verða í boði og Sig-
urjón Brink spilar fram eftir
kvöldi.
Íslenskir kvenhönnuðir
halda teiti á b5
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Pascal Pinon
vakti verðskuldaða athygli á liðn-
um Músíktilraunum en hún er skip-
uð fjórum ungum stúlkum; þeim Jó-
fríði og Ásthildi Ákadætrum,
Kristínu Ylfu Hólmgrímsdóttur og
Höllu Kristjánsdóttur.
Sveitin hefur verið giska iðin við
hljómleikahald eftir að Tilraun-
unum lauk og fyrir stuttu kom út
fyrsta breiðskífa sveitarinnar, sam-
nefnd henni, og er hún prýdd ellefu
lögum.
Það er Jófríður sem er lagasmið-
ur sveitarinnar og segir hún að
upprunalega hafi staðið til að negla
plötunni út strax í ágúst en upp-
tökur fóru fram í júlí.
„Sem betur fer heyrði pabbi (Áki
Ásgeirsson tónlistarmaður), af-
raksturinn og hvatti okkur til að
vanda betur til verka. Málið er að
við tókum þetta upp algerlega
sjálfar, komum með eigin tæki og
tól og vorum ekkert að pæla í því
að það þyrfti kannski aðeins meira
en eina, tvær tökur til að ná þessu
rétt!“
Jófríður segir að lögin hafi hún
samið í fyrra og í upphafi þessa
árs.
„Textarnir fjalla um hitt og þetta
sem var mér hugstætt á þeim tíma.
Fólk er stundum að spyrja mig út í
textana og oftar en ekki er ég búin
að gleyma út frá hverju þeir voru
samdir (hlær). Hlutirnir gerast
hratt og fleiri lög eru farin að safn-
ast upp og efnið sem er á plötunni
er þannig séð orðið gamalt.“
Jófríður segir í framhaldinu að
mikil gerjun sé í bandinu, mikil
ástríða sé innanborðs og þær stöll-
ur séu mjög spenntar fyrir næstu
misserum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ferskt Stelpurnar í Pascal Pinon eiga framtíðina fyrir sér.
Best að flýta sér hægt
Pascal Pinon gefur út sína fyrstu plötu Platan var
unnin alfarið af meðlimum sjálfum Lögin hlaðast upp
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÓHÆTT er að segja að hinni
skemmtilega nefndu sveit Morðingj-
unum hafi vaxið ásmegin með hverri
plötu og hefur frísku og melódísku
pönkrokki hennar verið tekið hönd-
um tveim af rokkþyrstum út um
land allt.
„Það er eitt og hálft ár síðan síð-
asta plata, Áfram Ísland! kom út,“
segir Haukur Viðar Alfreðsson,
söngvari og gítarleikari sveitarinnar
sem gaf sig góðfúslega að spjalli við
blaðamann, rétt eftir hádegið í gær.
„Þannig að þessu vindur sæmilega
hratt fram, myndi ég segja. Við átt-
um engin lög á lager þegar við byrj-
uðum á þessari en þau söfnuðust í
sarpinn hægt og rólega á um hálfu
ári.“
Slípað
Haukur segir að þeir hafi aldrei
áður dvalið jafn lengi í hljóðveri, alls
hafi upptökur tekið um einn mánuð.
„Sem er mjög mikið fyrir þessa
sveit. Við unnum plötuna með Axel
„Flex“ Árnasyni sem var alger
draumur. Hann slípaði þetta vel til
og dró fram það besta í sveitinni.“
Þegar Haukur er beðinn um að
setja plötuna í samhengi við fyrri
verk hljómsveitarinnar segir hann
þetta vera „lokaskrefin á pönkgöng-
unni góðu sem hófst með fyrstu plöt-
unni, Í götunni minni.“
Sú plata var bæði illa upp tekin og
illa spiluð, segir hann. En...
„Og þannig átti hún líka að vera.
Mér finnst hún standa frábærlega í
dag. Einföld og hrá. En það má
segja að þessi nýjasta plata og hún
liggi á sitthvorum endanum í þessu
pönkrokkslega tilliti. Áfram Ísland!
er síðan einhvers staðar þarna á
milli mætti segja.“
Hvað Flóttann mikla varðar segir
Haukur að þeir félagar séu afskap-
lega sáttir við útkomuna og hann
hrósar útgefandanum sérstaklega,
Baldvini Esra hjá Kimi Records.
„Við erum honum þakklátir fyrir
að hafa þá trú á okkur að hleypa
okkur áfram í þriðju plötuna. Síð-
asta plata hefur ekki beint selst í bíl-
förmum – en hún mjakast þó eitt-
hvað...“
Segjum þetta gott …
Plötunni nýju verður svo fylgt eft-
ir með tónleikahaldi eins og lög gera
ráð fyrir. Gigg hér og gigg þar. En
hvað svo?
„Ætli við glápum ekki á Rambo í
vetur og síðan tökum við upp þráð-
inn aftur í vor.“
– En nú talarðu um lokaskref.
Hvert á þá að halda næst ... inn á
nýjar lendur?
„Þetta er góð spurning,“ svarar
Haukur og strýkur sér um skeggið.
„Mjög góð spurning. Við höfum
nefnilega verið að ræða þetta okkar
á milli undanfarið. Hvort við séum
nokkuð búnir að stilla sjálfum okkur
upp við vegg, tónlistarlega. Eitt af
því sem hefur verið á dagskipun
sveitarinnar er að endurtaka sig
ekki og þess vegna eru góð ráð dýr.
Ætli næsta plata verði ekki bara
eitthvert léttbylgjupopp eða einhver
svona „aftur í ræturnar“ plata sem
menn gera alltaf þegar þeir eru
orðnir hugmyndasnauðir. Sem er
auðvitað gjörsamlega glatað. Eða
við segjum þetta bara gott. Ég veit
það ekki ... við sjáum bara til hvað
gerist næst þegar við félagarnir
setjumst niður til að búa til tónlist,“
segir Haukur að lokum.
Enn sömu drullublesarnir
Þriðja plata Morðingjanna, Flóttinn mikli, er komin út Ákveðinn lokapunktur
í vegferð sveitarinnar, að mati Hauks Viðars Alfreðssonar söngvara og gítarleikara
Ljósmynd/Árni Torfason
Hugur Morðingjarnir eru í miklu stuði á nýjustu plötu sinni, Flóttinn mikli, sem er ívið persónulegri en fyrri verk.
Textar Morðingjanna eru til
muna persónulegri í þetta sinn-
ið, segir Haukur, og lögin eru
ekki „öll framreidd með glotti
út í annað“ eins og hann orðar
það.
„Ég held að flestir hafi átt
von á einhverri brjálaðri kreppu-
plötu þannig að það var bara of
freistandi að gera það alls ekki.
Áfram Ísland! var eiginlega
kreppuplata á undan áætlun. Og
það hefði verið ansi lúðalegt og
allt of fyrirsjáanlegt að halda
þeim leik áfram.“
Ekki kreppuplata