Morgunblaðið - 03.12.2009, Page 37
Jóhanna Vigdís Arnardóttir –Hansa – hefur sýnt ogsannað gegnum árin að húner eigi kona einhöm þegar
kemur að söng; hún er jafnvíg á
reffilegan djass, söngleikjalög,
franska vísnamúsík, popp og hvað
sem vera skal;
hún hefur til að
bera söngrödd
sem er jafn
styrk og hún er
kristaltær. Hér
leiða þau hesta
sína saman,
Hansa og Friðrik Karlsson, og hefði
líkast til ekki verið hægt að tefla
saman öflugra tvíeyki til að klára
verkið sem hér um ræðir; að setja
vel valin lög í þann búning sem
söngkonan Enya hefur skapað sér
heimsfrægð fyrir.
Til þess arna er öllum trixunum
úr kokkabók hinnar írsku söng-
gyðju beitt. Plokkaðir fiðlustrengir,
fjarlægar og yfirbergmálaðar radd-
ir, keltnesk flauta og hörpuleikur,
allt leggst á eitt að skapa draumi
líka stemmningu og Friðrik fer létt
með útsetningarnar enda sprengv-
anur slíku eftir útgáfu fjölmargra
geisladiska undanfarin ár með slök-
unartónlist. Á plötunni er að finna
ýmsar íslenskar perlur laga og
ljóða, og nægir þar að nefna Vísur
Vatnsenda-Rósu, Hættu að gráta
Hringaná og Vikivaka, í bland við
frumsamin lög Friðriks. Þá er að
finna tökulagið „Engla“ sem upp-
runalega heitir „Angel“ í flutningi
Söruh MacLachlan (ekki McLaug-
hlin, eins og stendur í bæklingnum
– skömm í hattinn fyrir það). Hansa
syngur sjálf allar raddir eins og
engill, plötuna í gegn, enda mögnuð
söngkona sem fyrr segir.
Einhverjum kann að þykja held-
ur sótt í annars sánd á plötu þeirra
Hönsu og Friðriks, og má það sjón-
armið til sanns vegar færa. En móti
fagmennskunni og fáguðum útetn-
ingunum verður ekki mælt og
óhætt er að mæla með plötunni við
þá sem kunna að meta engilþýðar
kvenraddir yfir seiðandi slök-
unarmúsík – að hætti Enyu.
Seiðandi og engilþýtt
Geisladiskur
Hansa og Friðrik Karlsson –
Sveitin milli sanda bbbnn
JÓN AGNAR
ÓLASON
TÓNLIST
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Glæpir eru orðnir algengtsöguefni í íslenskumbókmenntum og hefurþað væntanlega gerst
samhliða óheillavænlegri þjóð-
félagsþróun síðustu ára. Í nýrri
glæpasögu, Sporum, eftir Lilju
Sigurð-
ardóttur kem-
ur lunkinn
raðmorðingi
til skjalanna
sem murkar
lífið úr fórn-
arlömbum
sínum á
skelfilegan
hátt. Að-
alpersóna
sögunnar er
Magni sem tekur að sér að aðstoða
fyrrverandi maka sinn, Iðunni
rannsóknarlögreglukonu, við að
leysa hryllilega morðgátu. Magni
er nýkominn úr áfengismeðferð og
þar sem morðin virðast tengjast
samtökum óvirkra alkóhólista er
hann á heimavelli. Hann tekst á
við sporin sín skv. AA-fræðunum
og glímir um leið við fortíð sína,
sorg og veikleika og þroskast heil-
mikið í sögunni. Persónurnar heita
margar goðfræðilegum nöfnum
(Iðunn gefur Magna m.a.s. epli í
lokin) en eru manneskjulegar og
trúverðugar. Það er helst ameríski
prófælerinn Megan sem virkar
klisjulegur í Sporum: stórvaxið
kvenskass sem hesthúsar heilu
vínarbrauðslengjurnar en slær öll-
um löggum við í gagnrýnni rök-
hugsun. Bygging sögunnar er
hefðbundin og sagan þétt, í upp-
hafi er dramatískri dauðastund
eins fórnarlambanna lýst og brátt
koma fleiri morð í svipuðum dúr
inn á borð lögreglunnar, ýmsir eru
grunaðir og málin flækjast. Spenn-
an vex eftir því sem líkin hrannast
upp og meira reynir á edrú-
mennsku Magna.
Karlar hafa lengi verið ráðandi
bæði sem aðalpersónur og höf-
undar glæpa- og spennusagna. Það
er því sérlega gleðilegt að fá fleiri
verk eftir konur í þessum geira.
Höfundi gengur þó misvel að til-
einka sér karlmannseðlið og þegar
tilhugsun um súludansmeyju vekur
Magna losta gellur við: „Karlmenn
eru bara stundum svo furðulegir“ (
129). Mikilvægast er að formúlan
virkar og ráðgátan raðast alveg
saman, það gengur ágætlega upp
að tengja á milli trúarpælinga
samtakanna og morðanna sem eru
táknfræðileg og vandlega skipu-
lögð. Blóðbragðið sem heldur
manni á sporinu er ferskt þar sem
morð í íslenskum glæpasögum eru
oft framin óvart, í skyndibrjálæði
eða á fylleríi en hér er al-
vörumorðingi á ferð. Fyrsta bók
Lilju Sigurðardóttur er í grunninn
fínasta spennusaga, vel byggð og
metnaðarfull en líður dálítið fyrir
ákafan boðskap fræðanna sem hún
er kennd við.
Alvörumorðingi
mættur á svæðið
Spennusaga
Spor
bbmnn
Eftir Lilju Sigurðardóttur.
Bjartur 2009. 256 bls.
STEINUNN INGA
ÓTTARSDÓTTIR
BÆKUR
Smáralind / s ími 555 2900
JÓL Í
SELECTED
/FEMME
NÝJAR VÖRUR VIKULEGA
24900
4990
8900
6990
9900
24900
KJÓLL
FÆST Í SVÖRTU OG DÖKKBLÁU
SÖNGKONAN
Susan Boyle hef-
ur slegið sölumet
í Bandaríkjunum
með fyrstu breið-
skífu sinni, I
Dreamed a
Dream. Engin
plata tónlist-
arkonu hefur
náð annarri eins
sölu fyrstu vikuna á markaði vest-
anhafs og plata Boyle. 701.000 þús-
und eintök seldust í Bandaríkjunum
fyrstu vikuna en í fyrsta sæti yfir
karlkyns tónlistarmenn er Snoop
Dogg, 803.000 eintök seldust fyrstu
vikuna í sölu af plötu hans Doggy-
style árið 1993.
Boyle vakti heimsathygli í hæfi-
leikaþættinum Britain’s Got Talent
fyrr á þessu ári. Platan hennar hef-
ur einnig rokselst í Bretlandi, er sú
söluhæsta þar í landi frá upphafi
mælinga hvað fyrstu vikuna varð-
ar. 410.000 eintök seldust í þeirri
viku. Platan hefur fengið misjafnar
viðtökur gagnrýnenda en það virð-
ist litlu máli skipta í ljósi sölutalna.
Boyle er 48 ára gömul og var með
öllu óþekkt fyrir þátttöku sína í
hæfileikaþættinum.
Boyle sló
sölumet
Susan Boyle
Stórfréttir í
tölvupósti