Morgunblaðið - 03.12.2009, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 2009
Íkvikmyndinni Coco verðurChanel sem sýnd er í Laug-arásbíói um þessar mundir ersögð saga Gabrielle „Coco“
Chanel frá því að faðir hennar skilur
hana eftir á munaðarleysingjahæli
og þar til að hún verður goðsagna-
kenndur tískuhönnuður og tákn-
mynd nútímakvenna. Coco hefur
feril sinn sem aðstoðarstúlka
skraddara en á kvöldin syngur hún
og dansar með systur sinni á knæpu.
Þar hittir hún glaumgosann og bar-
óninn Etienne Balsan sem gerir
hana að lagskonu sinni. Hann kynnir
hana fyrir úrkynjuðum velmeg-
unarlífsstíl franskrar hástéttar og
gerir henni kleift að hanna eftirsótta
hatta. Síðar kynnist Coco stóru ást-
inni, enska viðskiptajöfrinum Arth-
ur Capel, sem hjálpar henni enn
frekar að ryðja sér til rúms í tísku-
heiminum. Á sama tíma og hagur
Coco vænkast flækist einkalífið til
muna.
Myndin er í flesta staði ágæt en
viðfangsefnið er ef til vill helst til
rómað. Persónurnar eru aðeins of
fínpússaðar og frásögnin er frekar
ójöfn þar sem hún byggist á ævi
Coco fremur en gullnum frásagn-
arsniðum. Útgangspunktur mynd-
arinnar er ekki nógu afmarkaður
þar sem frásögnin er hvorki beint
ástarsaga aðalhetjunnar né þroska-
saga hennar heldur tekur hún fyrir
hluta af ævi þar sem öllu ægir sam-
an. Engu að síður eru persónurnar
afar áhugaverðar og samskipti
þeirra skjóta glæðum og tendra
áhorfið. Búningar og öll sjónræn
umgjörð er sömuleiðis stórbrotin og
leikurinn er framúrskarandi. Aud-
rey Tautou vinnur leiksigur þar sem
hún verður Coco endurfædd. Þetta
er dramatískara hlutverk en leik-
konan hefur áður glímt við þar sem
hetja hennar er ekki jafn geðþekk,
lífsglöð og augljóslega hrífandi og sú
sem hún léði svo eftirminnilega líf í
Amélie árið 2001.
Hrifnæmi og fegurð persónu
hennar í þessari mynd býr í hinu
óhefðbundna og óbeislaða en afstaða
Coco til persónulegra sambanda og
stöðu konunnar í samfélaginu var
einstök. Hún lét samfélags-
formgerðina ekki sníða sér stakk og
skipa á bás heldur fylgdi sinni eigin
köllun og leyfði rannsakandi og
gagnrýnu augnaráði að stýra sér í
gegnum lífið. Myndin gerir út á
þetta augnaráð hennar og áhorf-
endum gefst kostur á að samsama
sig við það. Þeir sjá og gægjast með
henni en upplifa jafnframt ut-
angarðsstöðu hennar, hún tilheyrir
ekki umhverfinu sem hún rannsakar
og er á skjön við allt og alla. Það er
magnað að sjá Tautou sem Coco
beita augunum og hvernig klipping
og römmun sýna hvernig áferðir,
form og litir í klæðnaði fanga at-
hygli hennar. Þegar Coco kemur á
munaðarleysingjahælið sér hún til
dæmis ekki framan í nunnurnar en
hvítir bátlaga hattar þeirra, sem eru
algjör andstæða látlausra blá-
svartra kjólanna, heilla hana.
Líkt og þessir bátlaga hattar er
myndin helst til rómuð og stílfærð
en segja má að andhetjan Etienne
Balsan sem leikin er með tilþrifum
af Benoit Poelvoorde bjargi henni
frá því að vera of formfáguð. Bar-
óninn er burðarás frásagnarinnar
þar sem hann er þriðja hornið í ást-
arþríhyrningnum og trúður sem
léttir á dramanu. Hann er aðal-
áhrifavaldur framvindunnar og þar
sem hann er andhetja fá persónu-
legir annmarkar hans örlítið bit
fremur en að vera rómaðir í hæstu
hæðir eins og ímynd Coco Chanel
hefur óneitanlega orðið jafnt á hvíta
tjaldinu sem og utan þess.
Coco og Balsan Tautou og
Poelvoorde í hlutverkum sínum.
Rómuð goðsögn
Laugarásbíó
Coco verður Chanel / Coco avant
Chanel bbbmn
Leikstjórn: Anne Fontaine. Handrit:
Anne Fontaine, Camille Fontaine.
Aðalhlutverk: Audrey Tautou, Benoit
Poelvoorde, Alessandro Nivola, Marie
Gillain. 110 mín. Frakkland, 2009.
Hjördís
Stefánsdóttir
KVIKMYNDIR
Leikkonan Audrey Tautou tók
við af Nicole Kidman sem ímynd
Chanel No. 5 ilmvatnsins sam-
hliða útkomu kvikmyndarinnar
Coco verður Chanel. Leikstjór-
inn Jean-Pierre Jeunet stýrir
Tautou í tengdri auglýsinga-
herferð en þau hafa áður starf-
að saman við gerð kvik-
myndanna sem komu
leikkonunni á kortið, Amélie og
A Very Long Engagement. Chan-
el No. 5 er fyrsta og frægasta
ilmvatnið sem Coco setti á
markað en það hefur verið í sölu
frá árinu 1921 og áætlað er að á
heimsvísu seljist ein flaska af
því á 30 sekúndna fresti.
Chanel No. 5
YFIR 32.000 GESTIR FRÁBÆR MYND UM UPP-
VAXTARÁR EINS ÁSTSÆLASTA
KÖRFUBOLTAMANN
SAMTÍMANS, LEBRON JAMES.
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
ÞRIÐJA STÆRSTA FRUMSÝNINGAR-
HELGI ALLRA TÍMA Í USA
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
Robert Pattinson og Kristen Stewart
eru mætt í einni stærstu
kvikmyndaseríu allra tíma!
„ÞEIR SEM DÝRKUÐU FYRSTU MYNDINA...
MUNU ÁBYGGILEGA ELSKA ÞESSA ÚTAF LÍFINU.“
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
/ KRINGLUNNI
THE TWILIGHT NEW MOON kl.5:20-8-10:10-10:50 12 DIGITAL MY LIFE IN RUINS kl.5:50-8 L
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:10 16
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.83D ótextuð 7 3D-DIGITAL
/ ÁLFABAKKA
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 6-8-9-10:50 12 DIGITAL LAW ABIDING CITIZEN kl.10:20 L
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:20 - 8 - 10:50 LÚXUS MORE THAN A GAME kl. 5:50 7
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 5:503D ótextuð 7 3D DIGITAL COUPLES RETREAT kl. 8 12
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:50 7 ALGJÖR SVEPPI.. kl. 6 Sýnd í síðasta sinn L
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 8-10:10 7
PANDORUM kl. 8 16
NÚ geta þeir sem hafa gaman af því að
horfa á aðra kasta sér niður tröppur, fá
rafmagnsstraum í gegnum líkamann eða
gera aðra hluti sem geta dregið fólk til al-
varlegrar lömunnar, jafnvel dauða, tekið
gleði sína á ný. Það er orðið opinbert að
Jackass 3 er í vinnslu og á hún að koma í
þrívídd.
Johnny Knoxville er búinn að staðfesta
að hann verði með í nýjustu myndinni. Þeir
Jeff Tremaine, leikstjóri myndarinnar, eru
nú þegar farnir að gera tilraunir með
hvernig marblettir og önnur meiðsl líta út í
þrívídd. Tökur hefjast í janúar á næsta ári.
Jackass 3 væntanleg
Jackass Úr mynd númer tvö.