Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 1
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 íþróttir Rússinn á Anfield Andrei Arshavin gerði Liverpool aftur lífið leitt og skoraði glæsilegt sigurmark fyrir Arsenal. Lundúnaliðið komið á fleygiferð í baráttuna um enska meistaratitilinn. 7 Íþróttir mbl.is Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is „ÉG er búinn að ná mér vel á strik og finnst ég yfirhöfuð búinn að spila mjög vel frá því að ég kom til Dan- merkur. Ég hef náð upp góðum stöð- ugleika og sýnt að þetta góða tímabil í fyrra var ekki bara eitthvert „one hit wonder“,“ sagði Sölvi Geir Otte- sen, landsliðsmaður í knattspyrnu, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að í ljós kom að hann er besti leik- maðurinn í fyrri hluta dönsku úr- valsdeildarinnar samkvæmt ein- kunnagjöf Ekstrabladet. „Þetta er fínasta viðurkenning. Ég vissi svo sem alveg að ég væri bú- inn að spila vel í haust en ætli það megi samt ekki segja að þetta hafi komið mér á óvart. Ég fékk þó ekk- ert sjokk,“ sagði Sölvi og hló. Sönd- erjyskE hefur komið nokkuð á óvart í dönsku úrvalsdeildinni þar sem lið- ið er hvergi nálægt fallbaráttu, eins og búist hafði verið við, og hefur að- eins fengið á sig 18 mörk í jafn- mörgum leikjum. Á Sölvi stærstan þátt í því að mati danskra fjölmiðla. „Við erum með mjög trausta vörn en mér er ætlað að stjórna henni og ætli leikstíll minn sé ekki þannig að fólk taki frekar eftir mér. Við höfum fengið miklu færri mörk á okkur á þessari leiktíð en áður og erum núna í fjórða sæti yfir þau lið sem hafa fengið á sig fæst mörk í deildinni, sem er nokkuð gott,“ sagði Sölvi. Hann reiknar frekar með því að hafa spilað sinn síðasta leik fyrir SönderjyskE en mörg félög hafa fylgst náið með Sölva að undanförnu.  Reiknar með góðri jólagjöf | 5 Þetta er fínasta viðurkenning  Sölvi bestur í dönsku úrvalsdeildinni hjá Ekstrabladet  Kom honum á óvart Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is ÁGÚST Jóhannsson handknatt- leiksþjálfari hefur gert nýjan samning við norska félagið Lev- anger. Ágúst tók við liðinu fyrir þetta tíma- bil og greinilegt að forráðamenn félagsins eru ánægðir með störf hans og hafa aðilar skrifað undir þriggja ára samning. „Já, já, maður tapar öllum leikjum og þeir eru bara ánægðir með það,“ sagði Ágúst léttur í lund í samtali við Morgunblaðið í gær. „Nei, svona að öllu gamni slepptu, þá er búið að skrifa und- ir þriggja ára samning. Ég kann mjög vel við mig hérna í Noregi og forráðamenn félagsins ágæt- lega ánægðir með mig,“ sagði Ágúst. Levanger er frá samnefndum 20 þúsund manna bæ í Suður-Þrændalögum, skammt norðan við Þrándheim. Stefnir á að komast í úrslitakeppnina Levanger er sem stendur í 9. sæti í norsku úrvalsdeildinni með sex stig en næstu tvö lið þar fyrir neðan eru með fimm stig og Gjer- pen er á botninum með mínus þrjú stig. „Við höfum leikið ágæt- lega og tapað mörgum af þessum leikjum naumlega. Við höfum ver- ið frekar óheppin og eins hafa margir leikmenn verið meiddir. Nú fáum við frí fram til 10. jan- úar og þá verða flestir búnir að ná sér af meiðslunum þannig að við erum bara nokkuð brött. Það er ekkert langt upp í sæti í úrslitakeppninni, en að sama skapi er heldur ekki langt niður í fallsætin,“ sagði Ágúst sem hefur fulla trú á að hann komi liði sínu í úrslitakeppnina. Rakel Dögg á eftir að nýtast liðinu vel Landsliðskonan Rakel Dögg Bragadóttir gekk fyrir skömmu til liðs við Levanger eftir að hafa verið á mála hjá KIF Kolding í Danmörku í hálft annað ár og segir Ágúst hana eftir að nýtast liðinu vel. „Hún er búin að spila tvo síðustu leiki og það er ekki nokkur vafi á að hún á eftir að nýtast okkur vel. Hún er ekki í nægilega góðri æfingu, enda lítið spilað upp á síðkastið,“ segir Ágúst. Ágúst með þriggja ára samning Ágúst Jóhannsson  Áfram hjá Levanger  Kann mjög vel við sig Eftir Sindra Sverrisson sindris@mbl.is ÞAÐ kom mikill undrunarsvipur á andlit landsliðsfyrirliðans Her- manns Hreiðarssonar þegar hann ætlaði að ganga inn á leikvöllinn í upphafi seinni hálfleiks í viðureign Portsmouth og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardag. Steve Bennett dómari leiksins ákvað nefnilega að sýna honum þá gult spjald sem Eyja- maðurinn var ansi ósáttur með. „Þetta var víst fyrir að labba út af vellinum í leik- hléi með „aggre- sífum“ hætti,“ sagði Hermann í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég var samt ekkert að tala við dómarann, bara aðeins að rabba við Fraizer Campbell [leikmann Sunderland] í rólegheitum. Mér fannst hann renna sér tvisvar aðeins of óþægi- lega í mig og vildi minna hann á að það væri komið að mér. Þetta var bara mjög asnaleg áminning. Og af hverju spjaldaði dómarinn mig ekki þá frekar þegar þetta gerðist?“ sagði Hermann sem fékk engin ásættanleg svör um það frá Benn- ett. Leiknum sjálfum lauk með 1:1 jafntefli og hefur Portsmouth því náð í fjögur stig í síðustu tveimur leikjum. Félagi Hermanns úr vörn- inni, Younes Kaboul, skoraði jöfn- unarmarkið í uppbótartíma. Hann réð sér ekki fyrir kæti og reif sig úr treyjunni til að fagna markinu en fékk þá sitt annað gula spjald og þar með rautt. „Þetta var auðvitað á 93. mínútu og við höfum ekki fagnað mikið upp á síðkastið en að sjálfsögðu var þetta heimskulegt. Hann við- urkenndi það sjálfur strax eftir leik og baðst afsökunar á þessu. Tilfinn- ingarnar tóku bara yfir hjá honum og þetta sýnir að mönnum stendur ekki á sama,“ sagði Hermann sem virðist vera búinn að ná sér vel af meiðslunum sem hrjáðu hann fram- an af leiktíð. Þetta var asnaleg áminning  Hermann fékk gula spjaldið þegar hann gekk til síðari hálfleiks  Minnti sóknarmann Sunderland á að halda sig á mottunni  Fékk ekki skýringar Hermann Hreiðarsson Morgunblaðið/Kristinn Tilþrif Frekar skrýtnir tilburðir í leik Fram og Stjörnunnar í úrvalsdeild karla í handknattleik í gær. Sigurður Örn Arnarson markvörður Fram er með boltann en samherji og mótherji eru ekki alveg á hefðbundnum stöðum á vellinum. Stjarnan vann fallslaginn í Safamýrinni með átta mörkum. | 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.