Morgunblaðið - 14.12.2009, Síða 2

Morgunblaðið - 14.12.2009, Síða 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VALUR verður á toppi N1-deildar kvenna í handknattleik þegar leik- menn njóta jólahátíðarinnar þenn- an veturinn eftir stórsigur á liði HK, 41:22, um helgina. Íris Ásta Pétursdóttir gerði átta mörk fyrir Val og Ágústa Edda Björnsdóttir sex en Húsvíkingurinn Elva Björg Arnarsdóttir var markahæst hjá HK með sjö mörk. Valskonur hafa því enn ekki tap- að leik í deildinni en gert tvö jafn- tefli og hafa því aðeins eins stigs forskot á Fram sem er í 2. sæti. Framarar áttu ekki í vandræðum með að leggja botnlið Víkings að velli í gær, 41:14, þar sem Víkingar skoruðu aðeins þrjú mörk í seinni hálfleiknum. Framarar geta komist á topp deildarinnar með sigri í fyrsta leik eftir áramót en á þrettándanum eigast Fram og Stjarnan við í stór- leik. Stjarnan er einnig í hópi fjög- urra liða sem virðast ætla að keppa af hörku um efsta sæti deildarinnar því Garðbæingar eru í 4. sæti, þremur stigum á eftir Val en með leik til góða. Haukar eru svo í 3. sæti og eru tveimur stigum á eftir Val en hafa leikið einum leik betur. Hafn- arfjarðarliðið hafði betur gegn KA/Þór að Ásvöllum, 33:20, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14:12 Haukum í vil. Erna Þráins- dóttir gerði átta mörk fyrir Hauka og Hanna G. Stefánsdóttir sex en þær Martha Hermannsdóttir, Arna Erlingsdóttir og Inga Dís Sigurð- ardóttir gerðu fimm mörk hver fyr- ir Akureyrarliðið sem tapaði reyndar tveimur leikjum um helgina því liðið mátti einnig sætta sig við tap gegn Fylki í hörkuleik, 25:23. Arna var þá markahæst hjá KA/Þór með átta mörk en Elín Helga Jónsdóttir gerði sex fyrir Fylki. Sigur Árbæinga þýðir að þeir eru á góðu róli um miðja deild nú þegar rúmur þriðjungur af Íslands- mótinu er búinn en KA/Þór er sem áður í næstneðsta sæti með þrjú stig. sindris@mbl.is Valskonur á toppnum yfir jólin Morgunblaðið/Kristinn Stöðvuð Leikmenn KA/Þórs komust ekki mikið áleiðis gegn Haukum í gær og hér er Arndís Heimisdóttir í liði norðankvenna tekin föstum tökum. Eftir Kristján Jónsson kris@mbl.is FH tókst að tryggja sér sæti í deilda- bikarkeppni HSÍ sem fram fer á milli jóla og nýárs með því að leggja Val að velli 23:20 í N1 deild karla á laug- ardaginn. Liðin mættust á heimavelli Vals að Hlíðarenda og FH þurfti á stigum að halda til þess að tryggja sér eitt af fjórum efstu sætum deild- arinnar fyrir jólafrí. Fjögur efstu lið- in takast á í deildabikarnum en það verða Haukar, FH, Akureyri og Val- ur. „Já mér skilst að þessi sigur hafi tryggt okkur sæti í deildabikarnum. Það er auðvitað það sem var undir hjá okkur í þessum leik. Við ætluðum okkur svo sannarlega að komast inn í þá keppni fyrst hún var sett á. Það er titill í húfi og þáttökuréttur í Evr- ópukeppni líka. Að sjálfsögðu viljum við frekar taka þátt í deildabikarnum heldur en að vera í einhverjum jóla- fótbolta í Kaplakrika og einhverju gríni,“ sagði varnarjaxlinn hjá FH, Sigurgeir Árni Ægisson í samtali við Morgunblaðið að leiknum loknum. Sigurgeir gleymir sjaldnast barátt- unni heima og honum tókst að binda varnarleik FH vel saman að þessu sinni, enda hafa Valsmenn ekki átt því að venjast að skora aðeins 20 mörk á heimavelli en þó hefur það nú gerst í tveimur leikjum í röð. Góð úrslit gegn stóru liðunum Sigurgeir sagðist hafa verið ánægður með sigurinn sérstaklega vegna þess að Valur hefði haft frum- kvæðið um tíma í síðari hálfleik eða allt þar til FH skoraði fjögur mörk í röð og breytti stöðunni úr 17:15 í 17:19. Sigurgeir segir FH-inga þurfa að leika oftar eins og þeir gerðu gegn Val ætli þeir sér að berjast um tit- ilinn í vor: „Ég er ekki alveg nógu sáttur við okkar leik á fyrri helmingi tímabilsins. Við höfum verið allt of brokkgengir og það hefur vantað all- an stöðugleika í leik okkar. Við verð- um að vinna jafnt og þétt í að bæta þá hluti sem aflaga hafa farið fyrir áramót. Á hinn bóginn er margt gott í þessu liði og við höfum náð góðum úrslitum gegn stóru liðunum. Það hefur vantað gegn liðunum sem eru fyrir neðan okkur í deildinni og þar komum við akkúrat að því að við er- um ekki nægilega stöðugir. Það hef- ur verið mikill munur á baráttuand- anum í þessum leik eða bikarleiknum gegn Haukum annars vegar og hins vegar í leikjunum sem við töpuðum á móti Gróttu og HK. Ef við náum upp álíka geðveiki og í þessum leik þá verður þetta svo miklu auðveldara fyrir okkur,“ sagði Sigurgeir enn- fremur. Aðventan virðist ekki hafa farið sérstaklega vel í liðsmenn félags sr. Friðriks ef marka má þennan leik. Leikmenn Vals voru óvenju pirraðir og kusu að eyða mikilli orku í vanga- veltur um störf dómaranna. Einbeit- ing Valsmanna fauk því út í veður og vind og þeir köstuðu frá sér mögu- leikanum á því að vinna leikinn með óskynsamlegum aðgerðum í sókn- arleik sínum á lokakafla leiksins. Morgunblaðið/Kristinn Ógnandi Ólafur Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir FH-inga á laugardaginn og ógnar hér marki Valsmanna. FH vildi frekar deildabik- arinn en jólafótboltann  Pirraðir Valsmenn misstu niður góða stöðu  FH nældi í deildabikarsætið Vodafonehöllin að Hlíðarenda, úr- valsdeild karla, N1 deildin, laug- ardaginn 12. desember 2009. Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 6:4, 7:8, 9:10, 12:11, 14:12, 14:14, 17:15, 17:19, 19:20, 19:22, 20:23. Mörk Vals: Arnór Gunnarsson 5, Elvar Friðriksson 4, Orri Freyr Gíslason 3, Gunnar Ingi Jóhanns- son 3, Ernir Hrafn Arnarson 3, Ingvar Árnason 1, Fannar Frið- geirsson 1. Varin skot: Hlynur Morthens 16 (þar af 2 aftur til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk FH: Bjarni Fritzson 6/3, Örn Ingi Bjarkason 5, Ólafur Gúst- afsson 4, Ólafur Guðmundsson 4, Jón Heiðar Gunnarsson 3, Ásbjörn Friðriksson 1. Varin skot: Pálmar Pétursson 14/1 (þar af 2 aftur til mótherja). Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Anton Pálsson og Jónas Elíasson. Þokkalegir. Áhorfendur: Í kringum 350. Valur - FH 20:23 Gísli Krist-jánsson var í stóru hlut- verki hjá Nord- sjælland á laugardaginn þegar liðið vann Ringsted, 27:24, á útivelli í dönsku úr- valsdeildinni í handknattleik. Gísli var annar markahæsti leikmaður liðsins með fimm mörk. Nord- sjælland er nú komið í 6. sæti deildarinnar með 16 stig eftir 14 umferðir en átta efstu liðin að loknum 26 umferðum leika til úr- slita um meistaratitilinn.    GOG, undir stjórn GuðmundarÞ. Guðmundssonar, vann FHK Elite, 27:22, og er í fjórða sætinu með 20 stig. Ásgeir Örn Hallgrímsson lék ekki með GOG vegna meiðsla en Björn Ingi Frið- þjófsson var í marki FHK Elite sem er í 12. og þriðja neðsta sæti með sex stig. Arnór Atlason lék með FCK en skoraði ekki þegar lið hans vann Skjern á útivelli, 30:26. FCK er með 23 stig í öðru sætinu, þremur stigum á eftir toppliðinu Bjerringbro-Silke- borg.    Sigurður Ari Stefánsson skor-aði fimm mörk fyrir Elverum í gær þegar lið hans gerði jafn- tefli, 32:32, við Arendal á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik. Elverum er í 5. sæti deildarinnar með 13 stig eftir 10 leiki, aðeins stigi á eftir Fyllingen sem er í öðru sætinu. Drammen er efst með 17 stig.    Ólafur H.Gíslason var í marki Haugaland allan tímann og varði 16 skot þegar lið hans vann Bodö í miklum fallslag á útivelli í gær, 28:22, í norsku úrvalsdeildinni. Bodö situr eftir í næstneðsta sæt- inu með þrjú stig en Haugaland er næst fyrir ofan með fimm stig. Hið gamalkunna lið Sandefjord vermir hins vegar botnsætið með aðeins eitt stig.    Til stóð að dómaraparið kunnaAnton Gylfi Pálsson og Hlyn- ur Leifsson dæmdi leik Vals og FH í úrvalsdeild karla í hand- knattleik á laugardaginn. Hlynur glímir hins vegar við meiðsli í kálfa og var því ekki fær um að dæma leikinn. Jónas Elíasson hljóp í skarðið og dæmdi leikinn með Antoni en Jónas dæmir iðu- lega með Ingvari Guðjónssyni. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.