Morgunblaðið - 14.12.2009, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gæti barnið þitt upplifað
ógleymanlega stund. Tveir krakkar á aldrinum 7-9 ára fá að fara
ásamt fylgdarmanni á leik í Meistaradeild Evrópu í Englandi 2010 og
leiða leikmann inn á völlinn.
Fjölmargir skemmtilegir aukavinningar
SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á WWW.KREDITKORT.IS
UPPLIFUN SEM
ALDREI GLEYMIST
BARNIÐ ÞITT GÆTI LEITT HETJUNA SÍNA
INN Á VÖLLINN Í MEISTARADEILDINNI
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
ÞRETTÁN mínútur liðu í byrjun
síðari hálfleiks án þess að Fram
tækist að skora þegar Garðbæingar
komu í heimsókn í gær og þegar
gestirnir skoruðu 7 mörk á meðan
varð erfiður eltingaleikur hlutskipti
Framara. Enda urðu þeir að sætta
sig við 8 marka tap, 34:26. Þeir fara
þar með í fríið með aðeins tvö stig
og sitja einir á botninum, með
Stjörnuna tveimur stigum fyrir of-
an sig.
Framarar áttu ágæta kafla en
líka afar dapra svo Einar Jónsson
þjálfari Fram var dapur í bragði.
„Ég tek tap alltaf nærri mér og við
höfum oft rætt í vetur að menn eigi
að vera tilbúnir í leik og allt það en
nú sást í þessum leik hvort það
gekk því við tókum enga lausa
bolta, fráköst eða slíkt. Það sýnir
skort á einbeitingu og ef menn eru
ekki tilbúnir eiga þeir að gera eitt-
hvað annað, til dæmis að fara í
borðtennis og hætta í handbolta,“
sagði Einar eftir leikinn. Hann
gefst samt ekki upp. „Það býr mik-
ið meira í liðinu og í mönnum sem
ég hef ekki fengið nógu mikið út úr
í síðustu þremur leikjum. Mig vant-
ar til dæmis Andra Berg sterkari
inn og hann veit af því, sérstaklega
í skyttuhlutverkið. Við vitum ekk-
ert um hvenær Magnús kemur aft-
ur og ég held að Björn Guðmunds-
son sé alveg frá en Einar Rafn
Eiðsson verður tilbúinn í fyrsta leik
eftir jól og Arnar Birkir Hálf-
dánsson á enn eftir einn leik í leik-
banni.“ Halldór Jóhann Sigfússon,
Haraldur Þorvarðarson og Stefán
Baldvin Stefánsson skiluðu sínu
auk þess að Matthías Daðason átti
góða spretti. Áhyggjuefni var að
Magnús G. Erlendsson varði ekki
skot fyrstu 15 mínúturnar en Sig-
urður Örn Arnarsson kom þá inná
og varði 4 skot strax en þar við sat.
Jólasteikin smakkast
enn betur
Annað var upp á teningnum hjá
Stjörnumönnum því frá upphafi
mátti greina grimman sigurvilja
enda fögnuðu leikmenn hverri dáð,
helst þó þegar stórskyttan Vil-
hjálmur Halldórsson hóf sig á loft
og þrumaði inn átta mörkum. „Ég
held að ég eigi að skjóta, gerði ekk-
ert of mikið af því í síðustu leikjum
en fann mig nú vel í fyrsta skoti og
þá hélt ég áfram,“ sagði Vilhjálmur
eftir leikinn, með hugann við jóla-
steikina. „Við unnum Fram í Mýr-
inni þegar við skorum sjö mörk í
röð á tólf mínútna kafla og nú gerð-
ist svipað þegar Roland fer að verja
og vörnin small þá saman, svo við
fáum þá hraðaupphlaup og fleiri
sóknir. Ungu strákarnir eru að
koma til, þeir fá nú aukna ábyrgð
og þetta kemur hjá þeim. Við erum
enn nokkrir gamlir þarna með –
reyndar varla gamlir, bara 27 ára
en Roland er gamall. Jólasteikin
mun smakkast miklu betur og það
er gríðarlega gott að fara með
svona sigur í jólafrí því undirbún-
ingstímabilið byrjar aftur í janúar.“
Roland Valur Eradze var einnig
öflugur eins og Björn Friðriksson á
línunni en Daníel Einarsson var í
miklum ham, iðinn við að skora og
líka sem „indjáni“ í framliggjandi
vörn Stjörnunnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Sterkur Frömurum gekk illa að hemja Vilhjálm Halldórsson í gær en hér hefur þó Lárus Jónsson náð góðu taki.
Þrettán
mínútna
martröð Fram
Stjarnan skildi Fram eftir á botn-
inum Fram í fríið með tvö stig
Framhúsið, úrvalsdeild karla, N1
deildin, sunnudaginn 13. des. 2009.
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 4:4, 4:7,
5:8, 8:8, 9:10, 11:10, 11:12, 14:14,
14:16, 15:17, 15:24, 17.24, 20:26,
21:29, 23:29, 24:32, 26:34.
Mörk Fram: Haraldur Þorvarðarson
6/1, Halldór Jóhann Sigfússon 5,
Matthías Daðason 5/2, Andri Berg
Haraldsson 3, Hákon Stefánsson 3,
Stefán Baldvin Stefánsson 2, Elías
Bóasson 1, Atli Steinar Siggeirsson 1.
Varin skot: Magnús G. Erlendsson 9
(þar af 2 til mótherja), Sigurður Örn
Arnarson 5 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Vilhjálmur Hall-
dórsson 8, Björn Friðriksson 8, Daní-
el Einarsson 7/2, Ragnar Helgason
4, Guðmundur S. Guðmundsson 3,
Kristján Svan Kristjánsson 2, Sverrir
Eyjólfsson 1, Sigurður Helgason 1.
Varin skot: Roland Valur Eradze
19/1 (þar af 7 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Svavar Ó. Pétursson og
Arnar Sigurjónsson.
Áhorfendur: Um 140.
Fram – Stjarnan 26:34
NOREGUR og Danmörk standa
bæði tæpt í heimsmeistarakeppni
kvenna í handknattleik sem nú
stendur yfir í Kína. Bæði lið töpuðu
dýrmætum stigum í milliriðlum
keppninnar um helgina. Norska liðið,
undir stjórn Þóris Hergeirssonar,
tapaði fyrir Suður-Kóreu, 27:28, og
danska liðið tapaði mjög óvænt fyrir
liði Angóla, 23:28.
Norðmenn verða þar með að sigra
Spánverja í lokaumferð milliriðlanna
í fyrramálið til að komast í undan-
úrslit. Spænska liðið er þegar öruggt
með sæti þar. Að öðrum kosti verða
Þórir og hans
stúlkur að treysta
á að Suður-Kórea
nái ekki að vinna
Rúmena.
Danir eiga fyrir
höndum hreinan
úrslitaleik gegn
Rússum um sæti í
undanúrslitum.
Danmörk, Rúss-
land og Frakk-
land eru með 6 stig hvert lið en
franska liðið getur gulltryggt sig með
því að sigra Austurríki. vs@mbl.is
Noregur og Danmörk
í kröppum dansi í Kína
Þórir
Hergeirsson