Morgunblaðið - 14.12.2009, Blaðsíða 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 2009
Hreiðar LevyGuðmunds-
son landsliðs-
markvörður í
handknattleik
átti góðan leik í
marki Emsdetten
þegar lið hans
vann B-lið
Magdeburg á úti-
velli, 30:22, í norðurriðli þýsku 2.
deildarinnar um helgina. Hreiðar
lék allan tímann í markinu og varði
11 skot fyrir aftan sterka vörn. Ems-
detten styrkti enn frekar stöðu sína í
öðru sætinu en liðið er fjórum stig-
um á eftir toppliðinu Hamm.
Einar Ingi Hrafnsson skoraði eittmark fyrir Nordhorn sem
vann Anhalt Bernburg, 35:25, í
sama riðli, en Ólafur Bjarki Ragn-
arsson náði ekki að skora fyrir Ahle-
ner sem tapaði heima gegn Empor
Rostock, 26:27. Nordhorn er í fjórða
sæti og Ahlener í fimmta.
Arnar Jón Agnarsson var marka-hæstur hjá Aue með 6 mörk
þegar liðið tapaði, 23:25, fyrir Eise-
nach á heimavelli í suðurriðli þýsku
2. deildarinnar í handknattleik. Aue
er í 12. sæti af 18 liðum í riðlinum en
þar er Hüttenberg með þriggja stiga
forystu á toppnum.
Rafn AndriHaralds-
son, knatt-
spyrnumaður úr
Þrótti, er geng-
inn til liðs við bik-
armeistara
Breiðabliks. Rafn
Andri er tvítugur
og hefur ávallt
leikið með Þrótturum en hann hefur
spilað 38 leiki með þeim í úrvals-
deildinni undanfarin tvö ár og skor-
að eitt mark.
Þróttarar hafa hinsvegar fengiðtil sín Muamer Sadikovic,
framherja frá Bosníu, sem skoraði
17 mörk í 21 leik fyrir Hvöt á
Blönduósi í 2. deildinni síðasta sum-
ar. Þá er Hörður Bjarnason, fyrrum
leikmaður Víkings R. og Breiða-
bliks, kominn í raðir Þróttara en
hann spilaði með 3. deildarliðinu
Berserkjum í sumar.
Kylfingurinn Robert Allenbyvirðist heitur þessa dagana en
um helgina sigraði hann á ástalska
PGA meistaramótinu og var það
annar sigur hans á hálfum mánuði.
Kappinn lék síðasta hringinn á fimm
höggum undir pari og endaði á 14
höggum undir pari. Hann sigraði
með fjórum höggum en þeir John
Senden og Scott Strange komu
næstir.
SpánverjinnPablo Mart-
in, skráði nafn
sitt í sögubækur
golfsins um
helgina þegar
hann sigraði á
Alfred Dunhill
meistaramótinu í
Suður-Afríku.
Þar með varð hann fyrstur allra
kylfinga til að sigra á móti, bæði sem
áhugamaður og atvinnumaður.
Kappinn sigraði nefnilega á Evr-
ópumótaröðinni fyrir tveimur árum
og varð þá fyrsti áhugamaðurinn til
þess. Martin lauk leik á 17 höggum
undir pari, einu höggi á undan Charl
Schwartel frá Suður-Afríku.
Það gekk hins vegar ekki öllumjafn vel og Martin því Ernie Els
átti hræðilegan lokadag og lauk leik
í gær á fimm höggum yfir pari.
Hann var í öðru sæti fyrir síðasta
hring en hrundi niður í 17. sæti við
þetta.
Fólk sport@mbl.is
AKUREYRINGAR fylgja Skautafélagi
Reykjavíkur eins og skugginn í íshokkí
karla. SA lagði um helgina Björninn 6:3 og
er tveimur stigum á eftir SR, sem er í efsta
sæti deildarinnar eftir að liðin hafa leikið
níu leiki.
Leikmenn SR hafa fengið 19 stig en SA
17 og markatala liðanna er ótrúlega lík því
SR hefur gert 44 mörk en fengið á sig 34
en Akureyringar hafa gert 43 mörk og
fengið á sig 34. Björninn er síðan með þrjú
stig í þriðja sæti deildarinnar.
Fyrsti leikhluti í leik Bjarnarins og SA í
Egilshöll á laugardaginn var jafn og
spennandi, 2:2 þegar annar leikhluti hófst.
Þar gerðu gestirnir frá Akureyri tvö mörk
en Björninn ekkert. Í síðasta þriðjungi
héldu Akureyringar uppteknum hætti og
gerðu tvö mörk en heimamenn settu eitt.
„Við höfum ákveðið tak á Bjarn-
armönnum og höfum haft það lengi,“ sagði
Sigurður S. Sigurðsson hjá SA eftir leik-
inn. „Bjarnarstrákarnir eru samt flottir og
Sergei Zak er að gera góða hluti með þá,“
sagði Sigurður ánægður með sigurinn.
Mörk Bjarnarins, og stoðsendingar:
Brynjar F. Þórðarson 1/1, Gunnar Guð-
mundsson 1/0, Trausti Bergmann 1/0,
Birgir Hansen 0/2, Úlfar Jón Andrésson
0/1, Bergur Einarsson 0/1.
Refsitíminn var 16 mínútur en hjá SA
var hann 12 mínútur.
Mörk og stoðsendingar SA: Sigurður S.
Sigurðsson 2/2, Stefán Hrafnsson 1/1, Jó-
hann Már Leifsson 1/0, Josh Gribben 1/0,
Gunnar Darri Sigurðsson 1/0, Ingvar Þór
Jónsson 0/2, Björn Már Jakobsson 0/1.
skuli@mbl.is
SA heldur ógnartaki sínu á
Bjarnarmönnum
iel í þýsku 1. deildinni í hand-
rf 41:22 þar sem Aron Pálm-
ki með Burgdorf. Kiel er sem
a liðið sem ekki hefur tapað
á heimavelli sínum við Lemgo.
ar lentu í kröppum dansi um
ði liðinu 25:24 sigur með marki
Lübbecke en Þórir Ólafsson er
auðveldlega 40:21 og þar gerði
Guðjónsson og Ólafur Stef-
r.
orf létu ekki mikið að sér kveða
koraði ekki, en lék vörnina hjá
iddur og því ekki með. Sturla
r liðið heimsótti Róbert Gunn-
, 27:26. Alexander gerði sig-
rir Gummersbach. skuli@mbl.is
ðs
tinni
Morgunblaðið/hag
Sex Alexander Petersson lét að
sér kveða með Flensburg í gær.
en Una Margrét Heimisdóttir, leik-
í 1. deild kvenna.
Morgunblaðið/Kristinn
r enda engin hávörn hjá HK.
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
VITAÐ er um áhuga félaga á borð við
Twente frá Hollandi og Hamburger
frá Þýskalandi sem vilja fá Sölva til
sín, en að sögn Ekstrabladet ku enska
úrvalsdeildarfélagið Sunderland
einna áhugasamast um að krækja í
kappann. Sölvi er þó hinn rólegasti yf-
ir þeim fréttum.
„Eitthvað þessu líkt var líka sagt í
sumar og maður náttúrulega stefnir
hærra en það er aldrei hægt að vita
hvort úr þessu verður. Ég vil að
minnsta kosti ekki hugsa of mikið um
þetta því ég get sjálfur litlu breytt um
þetta öðru vísi en með því að spila
áfram vel,“ sagði Sölvi en telur hann
miklar líkur á að hann fái jólagjöf í
formi kauptilboðs frá eftirsókn-
arverðu félagi?
„Já já, ég er alltaf mjög jákvæður
og ég held að það eigi eitthvað eftir að
gerast. Það verður bara að koma í
ljós,“ sagði Sölvi sem neitar því ekki
að enska úrvalsdeildin hljómi vel.
„Það er náttúrulega toppdeild og
maður væri alveg tilbúinn að fara
þangað en það þarf í huga hvaða hlut-
verk manni er ætlað hjá þessum lið-
um. Það hljómar rosalega vel að vera í
ensku úrvalsdeildinni en svo er fullt af
góðum liðum fyrir utan hana.
Ég veit ekki af neinum tilboðum
sjálfur en ég veit nú að það komu ein-
hver tilboð í sumar sem mér var ekk-
ert sagt frá svo það er aldrei að vita.
Það er áhugi frá Englandi, Þýskalandi
og Hollandi og það er bara spurning
hversu mikill hann er,“ sagði Sölvi.
Hann var nýlentur í Danmörku eft-
ir stutt frí í Dubai þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum en er svo
væntanlegur til landsins þar sem
hann mun njóta jóla og áramóta með
fjölskyldunni. Í Dubai hitti Sölvi fyrir
einskæra tilviljun nýjasta liðsfélaga
sinn hjá SönderjyskE, Ólaf Inga
Skúlason. Hvort sem þeir ná að spila
leik saman með liðinu eða ekki fagnar
Sölvi því að félagi sinn úr íslenska
landsliðinu skuli hafa ákveðið að koma
til SönderjyskE.
„Það væri allt í lagi að taka eitt
topptímabil hérna með Óla. Það vildi
svo skemmtilega til að við hittumst úti
í Dubai og náðum að fara aðeins yfir
málin. Óli er toppnáungi og frábær
fótboltamaður og ég held að þetta sé
mjög gott skref fyrir hann og Sönder-
jyskE,“ sagði Sölvi.
Sölvi reiknar með
góðri „jólagjöf“
Sölvi Geir er orðaður við ensk, hollensk og þýsk félög
Hitti nýja íslenska samherjann fyrir tilviljun í Dubai
Eins og fram kemur á forsíðu íþrótta-
blaðsins er varnarjaxlinn Sölvi Geir
Ottesen besti leikmaður dönsku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu það
sem af er að mati danska miðilsins
Ekstrabladet. Sölvi hefur skarað fram
úr í sterkri vörn SönderjyskE sem hef-
ur aðeins fengið á sig 18 mörk í jafn-
mörgum leikjum á leiktíðinni sem er
talsvert betra en á þeirri síðustu þegar
hún fékk á sig tæplega helmingi fleiri
mörk að meðaltali. Það skal því engan
undra að Sölvi skuli hafa vakið mikla
athygli félaga utan Danmerkur.
Morgunblaðið/Ómar
Eitilharður Sölvi Geir hefur getið sér gott orð fyrir að vera eitilharður á velli
og hér hefur hann betur í skallabaráttu á æfingu íslenska landsliðsins.
Í HNOTSKURN
»Sölvi Geir Ottesen er 25 ára gamall varnarmaður sem er á mála hjáSönderjyskE í Danmörku.
»Sölvi Geir kom til SönderjyskE frá sænska úrvalsdeildarfélaginuDjurgården þar sem hann lék undir stjórn Sigurðar Jónssonar en
Sigurður stýrði Sölva einmitt einnig hjá uppeldisfélagi Sölva, Víkingi í
Reykjavík.
»Sölvi lék sinn fyrsta landsleik í júlí 2005 gegn Póllandi og hefurleikið níu landsleiki fyrir Íslands hönd.