Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009
íþróttir
Fjölhæf Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir er í aðalhlutverki hjá bandaríska
háskólaliðinu TCU. Stefnir á atvinnumennsku í Bandaríkjunum eða Evrópu. 3
Íþróttir
mbl.is
SÍÐUSTU leik-
irnir í þýsku 1.
deildinni í hand-
knattleik á þessu
ári fóru fram í
gær og voru
nokkur Íslend-
ingalið á ferð-
inni. Hamburg er
stigi á undan
meisturum Kiel
þegar frí er skoll-
ið á í deildinni vegna úrslitakeppni
Evrópumótsins sem haldið verður í
Austurríki í næsta mánuði.
Hamburg er stigi á undan Kiel en
bæði lið fögnuðu sigri í gær. Ham-
burg lagði Grosswallstadt og læri-
sveinar Alfreðs Gíslasonar í liði Kiel
burstuðu Dormagen, 32:18. Aron
Pálmarsson var ekki á markalist-
anum hjá Kiel en sænski landsliðs-
maðurinn Kim Andersson var
markahæstur í meistaraliðinu með
9 mörk.
Rhein-Neckar Löwen er heldur
betur að gefa eftir í toppbaráttunni
en liðið varð að sætta sig við tap
gegn TuS N-Lübbecke, 29:23. Heið-
mar Felixson skoraði 2 mörk fyrir
Lübbecke en Þórir Ólafsson lék
ekki vegna meiðsla. Ólafur Stef-
ánsson skoraði 6 mörk fyrir Rhein-
Neckar Löwen, Snorri Steinn Guð-
jónsson 2 og Guðjón Valur Sigurðs-
son 1.
Vignir Svavarsson skoraði 4
mörk fyrir Lemgo en Logi Geirsson
ekki neitt þegar liðið fagnaði úti-
sigri á Magdeburg, 25:23.
Gylfi Gylfason skoraði 8 mörk
fyrir Minden sem tapaði fyrir læri-
sveinum Dags Sigurðssonar í liði
Füchse Berlin, 29:24. Ingimundur
Ingimundarson náði ekki að skora
fyrir Minden og það gerði heldur
ekki Rúnar Kárason í Berlínarlið-
inu.
Hannes Jón Jónsson skoraði 1 af
mörkum Hannover-Burgdorf sem
tapaði fyrir Balingen, 29:23.
gummih@mbl.is
Stefnir í ein-
vígi hjá Kiel
og Hamburg
Ólafur
Stefánsson
JÓN Arnar Ingv-
arsson hefur ósk-
að eftir því við
körfuknattleiks-
deild ÍR að láta
af störfum sem
þjálfari meist-
araflokksliðs
karla vegna veik-
inda eiginkonu
sinnar. Eft-
irmaður Jóns
Arnars hefur ekki verið ráðinn. Jón
byrjaði að þjálfa ÍR-liðið haustið
2006 og undir hans stjórn varð liðið
bikarmeistari árið 2007.
ÍR-ingar eru í sjöunda sæti Ice-
land Express deildarinnar með 10
stig eftir 11 leiki.
Jón Arnar
hættur hjá ÍR
Jón Arnar
Ingvarsson
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
SIGURÐUR Ari Stefánsson varð í
gærkvöldi norskur bikarmeistari í
handknattleik þegar lið Elverum
bar sigurorð af Drammen, 25:24, í
æsispennandi úrslitaleik sem háður
var í Spektrum-höllinni í Osló að
viðstöddum 6.700 áhorfendum. Sig-
urður skoraði eitt af mörkum El-
verum sem lengst af leiknum var
skrefi á eftir Drammen. Staðan í
leikhléi var 12:11, Drammen í vil,
og í seinni hálfleik náði Drammen
mest fjögurra marka forskoti en
Sigurður og félagar áttu góðan
endasprett og
tókst að knýja
fram sigur með
því að skora sig-
urmarkið hálfri
mínútu fyrir
leikslok og var
Lars Nordberg
þar að verki.
Þetta er fyrsti
bikarmeistaratit-
ill Elverum-
liðsins og braust út gríðarlegur
fögnuður hjá leikmönnum og stuðn-
ingsmönnum liðsins í leikslok. Í
fyrra tapaði Elverum bikarúrslita-
leiknum gegn Runar. Sigurður
skoraði sjö mörk í þeim leik og
Kristinn Björgúlfsson skoraði fjög-
ur fyrir Runar.
„Þetta var hreint magnað og
dramatíkin var rosaleg. Við vorum
tveimur mörkum undir þegar fjórar
mínútur voru eftir en við gáfumst
ekki upp og tókst að leggja Dram-
men að velli,“ sagði Eyjamaðurinn
Sigurður Ari í samtali við Morg-
unblaðið eftir leikinn.
„Það ætlaði allt um koll að keyra
hjá okkur leikmönnum þegar úrslit-
in voru ráðin og stuðningsmenn
okkar grétu margir hverjir á pöll-
unum enda búnir að bíða lengi eftir
bikarnum,“ sagði Sigurður, sem
varð deildarmeistari með Elverum
fyrir tveimur árum. „Það kom ekki
til greina að tapa bikarúrslita-
leiknum annað árið í röð og núna
finnur maður muninn. Það er ólíkt
skemmtilegra núna. Þótt ég hafi
ekki náð að skora nema eitt mark
var ég mjög sáttur við minn leik.
Ég átti góð skot sem markvörð-
urinn varði og fyrst skotin rötuðu
ekki rétta leið þá reyndi ég bara að
spila félaga mína uppi og það gekk
fínt,“ sagði Sigurður Ari sem ætlar
að verja áramótunum heima á Ís-
landi en hann er væntanlegur til
landsins í dag og verður örugglega
með gullverðlaunin um hálsinn.
Þetta var hreint magnað
Sigurður Ari Stefánsson norskur bikarmeistari með Elverum í gærkvöldi
Fagnar áramótunum heima á Íslandi og gat því ekki fagnað sem skildi
Sigurður Ari
Stefánsson
RAJ K. Bonifacius og Eirdís C. Ragnarsdóttir
fögnuðu sigri í karla- og kvennaflokki á Bik-
armóti Tennissambands Íslands sem lauk með
úrslitaleikjum í einliðaleik í tennishöllinni í
Kópavogi í gær. Raj hafði betur gegn Andra
Jónssyni í spennandi úrslitaleik hjá körlunum,
7:6 og 7:6, og þegar staðan var 5:5 í fyrsta setti í
viðureign Eirdísar og Söndru Dísar Kristjáns-
dóttur í kvennaflokki gaf Sandra leikinn vegna
meiðsla. Á myndinni mundar Rafn Kumar Bo-
nifacius tennisspaðann en hann tók þátt í mótinu
eins og margir tennisspilarar.
Morgunblaðið/RAX
Bonifacius og Eirdís fögnuðu sigri