Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.2009, Blaðsíða 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 KNATTSPYRNA England Úrvalsdeild: Portsmouth – Arsenal..............................1:4 Nadir Belhadj 45. – Eduardo 28., Samir Nasri 42., Aaron Ramsey 69., Alexandre Song 81.  Hermann Hreiðarsson var í byrjunarliði Portsmouth. Manchester United – Wigan ...................5:0 Wayne Rooney 28., Michael Carrick 32., Rafael da Silva 45., Dimitar Berbatov 50., Luis Antonio Valencia 75. Staðan: Chelsea 20 14 3 3 45:16 45 Man. Utd 20 14 1 5 45:19 43 Arsenal 19 13 2 4 51:21 41 Tottenham 20 11 4 5 42:22 37 Man. City 19 9 8 2 38:27 35 Aston Villa 20 10 5 5 29:18 35 Liverpool 20 10 3 7 37:25 33 Birmingham 20 9 5 6 20:18 32 Fulham 19 7 6 6 24:19 27 Sunderland 20 6 5 9 28:31 23 Everton 19 5 7 7 26:32 22 Stoke City 19 5 6 8 15:23 21 Blackburn 20 5 6 9 20:35 21 Burnley 20 5 5 10 22:40 20 Wolves 20 5 4 11 18:36 19 Wigan 19 5 4 10 21:44 19 West Ham 20 4 6 10 28:37 18 Bolton 18 4 6 8 26:36 18 Hull 20 4 6 10 20:42 18 Portsmouth 20 4 2 14 18:32 14 Markahæstir: Jermain Defoe, Tottenham ...................... 14 Didier Drogba, Chelsea ............................ 14 Wayne Rooney, Man Utd ......................... 14 Darren Bent, Sunderland......................... 12 Fernando Torres, Liverpool .................... 12 Louis Saha, Everton ................................. 10 Cesc Fabregas, Arsenal.............................. 9 Carlos Tevéz, Man City .............................. 9 Gabriel Agbonlahor, Aston Villa................ 8 Carlton Cole, West Ham ............................ 7 Robin Van Persie, Arsenal ......................... 7 Emmanuel Adebayor, Man City................ 6 Andrei Arshavin, Arsenal........................... 6 Craig Bellamy, Man City............................ 6 Skotland Hearts – Motherwell.................................1:0 Rangers – Dundee United........................7:1  Eggert G. Jónsson var í byrjunarliði Hearts.  Staða efstu liða: Rangers 43, Celtic 36, Hibernian 32, Dundee 28, Hearts 23. Belgía Kortjikj – Club Brugge.............................1:4 Anderlecht – Zulte-Waregem..................2:1 Mechelen – Charleroi ...............................1:0 Lokeren – Beerschot ................................2:0 Roeselare – Gent .......................................0:4  Bjarni Þór Viðarsson var í byrjunarliði Roeselare.  Staðan: Anderlecht 45, Club Brugge 43, Gent 37, Beerschot 35, Zulte-Waregem 31. Roeselare er í neðsta sæti með 13 stig. HANDKNATTLEIKUR Þýskaland N-Lübbecke – R.N. Löwen ..................31:26 Magdeburg – Lemgo ............................23:25 Wetzlar – Dormagen.............................25:26 Kiel – Melsungen...................................32:18 Fücshe Berlín – Minden .......................29:24 Balingen – Burgdorf .............................29:23 Hamborg – Grosswallstadt ..................32:28 Kiel – Melsungen...................................32:18 Staðan: Hamburg 18 16 1 1 607:479 33 Kiel 18 15 2 1 618:471 32 Göppingen 18 13 1 4 539:523 27 Flensburg 18 13 0 5 549:493 26 R.N. Löwen 18 12 1 5 554:483 25 Gummersbach 18 10 3 5 524:486 23 Lemgo 18 10 2 6 507:481 22 Grosswallstadt 18 9 3 6 493:489 21 Füchse Berlin 18 10 0 8 512:507 20 Magdeburg 18 8 0 10 515:534 16 Lübbecke 18 6 3 9 507:503 15 Wetzlar 18 6 1 11 478:527 13 Melsungen 18 6 0 12 473:540 12 Balingen 18 5 0 13 471:496 10 Burgdorf 18 4 1 13 452:535 9 Dormagen 18 4 0 14 465:562 8 Düsseldorf 18 3 1 14 443:531 7 Minden 18 1 3 14 426:493 5 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA Úrslit í fyrrinótt: Atlanta – Cleveland...............................84:95 Washington – Oklahoma.....................98:110 Detroit – New York.............................87:104 Chicago – Indiana................................104:95 Houston – New Orleans....................108:100 San Antonio – Minnesota....................117:99 LA Lakers – Golden State................124:118 í dag FRJÁLSÍÞRÓTTIR Gamlársmót ÍR Kastmót ÍR fer fram á kastsvæðinu í Laug- ardal og hefst það kl. 11.30. Gamlárshlaup ÍR Gamlárshlaup ÍR fer fram í 33. sinn og hefst það kl. 12. Hlaupið hefst fyrir framan hús Hjálpræðishersins. Skapast hefur hefð fyrir því að hlauparar mæti í hinum ýmsu búningum og í ár verða veitt verðlaun fyrir bestu búningana. FYRR á leiktíðinni hafði United betur gegn Wigan, 5:0, á útivelli og Eng- landsmeistararnir léku sama leikinn í gær á heimavelli sínum. Þeir fóru á kostum gegn slöku liði Wigan og 10:0 hefðu ekki verið ósanngjörn úrslit eins og leikurinn þróaðist. Tvívegis fór boltinn í markstangir Wigan auk þess sem varnarmenn liðsins björg- uðu í tvívang á marklínu. Wayne Roo- ney, sem átti enn einn stórleikinn, hóf markaveisluna á Old Trafford eftir 28 mínútna leik og þeir Michael Carrick, Rafael da Silva, Dimitar Berbatov og Antonio Valencia bættu fjórum mörk- um við. Þar með gáfu leikmenn Man- chester-liðsins Alex Ferguson stjóra sínum góða afmælisgjöf en Skotinn heldur í dag upp á 68 ára afmæli sitt. Vidic og Brown breyta miklu ,,Við áttum svo sannarlega mögu- leika á að vinna enn stærri sigur en ég er ánægður með 5:0 sigur. Frammi- staða liðsins var virkilega góð og það er mikilvægast,“ sagði afmælisbarnið Sir Alex Ferguson við fréttamenn eft- ir sigur sinna manna. ,,Lykillinn að því að við höfum rétt úr kútnum er að við höfum endurheimt sterka varn- armenn. Vidic og Brown breyta rosa- lega miklu fyrir liðið og þegar við höf- um fengið fleiri til baka úr meiðslum munum við sjá betra lið.“ Arsenal á góðu skriði Hermann Hreiðarsson og sam- herjar hans í Portsmouth áttu ekki möguleika gegn spræku liði Arsenal sem lítur mjög vel út um þessar mundir. Eduardo, Samir Nasri, Aaron Ramsey og Alex Song settu mörkin fyrir Lundúnaliðið en Alsírbúinn Nadir Belhadj gerði eina mark heima- manna sem eiga erfiðan vetur fram undan. ,,Við litum út sem lið sem var tilbúið í leikinn og ég var mjög ánægður með framlag minna manna. Við munum berjast allt til loka og þetta lið er tilbúið í baráttu um titilinn,“ sagði Ar- sene Wenger knattspyrnutjóri. Hann vildi ekki staðfesta hvort hann ætlaði að styrkja lið sitt í janúar. ,,Það eru allir að segja okkur að kaupa fram- herja en við erum að skora mikið af mörkum og ég hef trú á mínu liði. Við munum svipast um ef þetta er ekkert sem veldur okkur áhyggjum. Það fer eftir því hvernig gengur að end- urheimta leikmenn úr meiðslum,“ sagði Wenger. Manchester United og Ars- enal sendu skýr skilaboð Reuters Heitur Wayne Rooney er hér að opna markaveisluna á Old Trafford í gær með sínu 14. marki í úrvalsdeildinni. Manchester United og Arsenal sendu Chelsea skýr skilaboð í gærkvöld. Bæði unnu sannfærandi sigra gegn mótherj- um sínum þegar tveir síðustu leikirnir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessu ári fóru fram. Englandsmeist- arar Manchester United tóku Wigan í kennslustund á Old Trafford og unnu stórsigur, 5:0, og Arsenal fór létt með Hermann Hreiðarsson og félaga hans á Fratton Park en lokatölurnar þar urðu, 1:4. Chelsea er efst í deildinni með 45 stig, Manchester United hefur 43 og Arsenal 41 en liðið á leik til góða á toppliðin tvö. Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is  Bæði hrósuðu stórsigrum í gær og elta Chelsea eins og skuggann UMRÆÐUR hafa skapast um kæru Hauka á hendur Val í deildabik- arkeppni kvenna í handknattleik á milli jóla og nýárs. Kæran var lögð fram eftir að Valur tefldi fram ólöglegum leikmanni í fyrr- greindum leik. Hermt er að heið- ursmannasamkomulag hafi verið í gildi milli þjálfara liðanna um að Valur mætti nota hinn ólöglega leikmann í fyrrgreindum leik. Haukar voru ekki sáttir við sam- komulagið, virtu það að vettugi og lögðu fram kæru, enda sam- komulag þjálfaranna út í hött. Hvorki þjálfurum né öðrum þátt- takendum leiksins er heimilt að virða reglugerðir sérsambands að vettugi í opinberu móti á vegum þess. Kæran var réttilega tekin til greina af Handknattleikssambandi Íslands og Haukum úrskurðaður sigur og sæti í úrslitaleik deildabik- arsins. Hafi þjálfari Vals séð fram á að geta ekki teflt fram 14 leikmönnum í viðkomandi leik úr hópi meist- araflokksliðs síns var honum nær að sækja leikmenn niður í unglinga- flokk fremur en virða reglugerð að vettugi. Sannarlega stendur hugur „hins ólöglega leikmanns“ til að ganga í raðir Valskvenna þegar opnað verður í skamman tíma fyrir félagaskipti hinn 7. janúar. Slíkt nægir heldur ekki til þess að ganga á svig við reglur. Þegar lið Vals í fyrrgreindum leik er skoðað kemur í ljós að það saknaði ekkert fleiri leikmanna en sum önnur sem tóku þátt í mótinu. Ýmsir hafa haft á orði að kæra Hauka og afgreiðsla HSÍ hafi gjald- fellt mótið og úrslitaleik kvenna. Slíkt er fullkomlega út í hött. Deildabikarkeppni HSÍ er eitt þriggja móta sambandsins ár hvert. Það er því á sama stalli og Íslands- mótið og bikarkeppni. Hvaða aug- um sem menn kunna að líta mótið, hvaða tilgangi sem það þjónar í augum handknattleiksmanna og þjálfara, verður það fyrst gert ótrú- verðugt fái þátttakendur að sneiða hjá þeim reglum sem í gildi eru. Hverju má þá búast við næst? Að mæta með ólöglegan leikmann í leik í bikarkeppninni eða á Íslands- mótinu? iben@mbl.is Reglur ber undantekningarlaust að virða Á VELLINUM Ívar Benediktsson LEIKMENN Barcelona ætla að fagna með stuðnings- mönnum sínum fyrir leik liðsins gegn Villareal í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu sem fram fer á Camp Nou, heimavelli Barcelona, á laugardagskvöldið. Börsungar hafa ríka ástæðu til að fagna en liðið náði þeim einstaka árangri að vinna sex titla á árinu sem er að líða eða alla bikarana sem þeir voru í keppni um. Barcelona varð Spánarmeistari, Evrópumeistari, heimsmeistari félagsliðs, bikarmeistari og vann ofurbikar UEFA og ofurbikarinn á Spáni. Forráðamenn Katalóníuliðsins hafa boðið Eiði Smára Guð- johnsen, Samuel Eto’o, Sylvinho og Jorquera að taka þátt í fagnaðarlátunum á laugardagskvöldið. Allir yfirgáfu þeir Barcelona í sumar en þeir hömpuðu öllum titlunum með fé- laginu í ár að undanskildum heimsmeistaratitlinum sem Börsungar innbyrtu fyrr í mánuðinum. gummih@mbl.is Eiði boðið á Camp Nou Eiður Smári Guðjohnsen HANNA Guðrún Stefánsdóttir úr Haukum og Ólafur Indriði Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen, hafa verið valin handknattleiksfólk ársins af Handknattleikssambandi Ís- lands. Hanna hefur allan sinn feril leikið með Haukum fyrir utan eitt tímabil sem hún lék með Holstebro í Danmörku. Hanna hefur verið burðarás í liði Hauka og landsliðsins undanfarin ár og er frábær hornamaður sem skilar ávallt sínu. Ólafur vann á árinu 2009 alla titla sem hægt var að vinna með liðinu, Evrópumeistari meistaraliða, Spán- armeistari og Konungsbikarmeistari. Í haust skipti Ólafur um lið og leikur hann með Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Ólafur hefur verið fyrirliði íslenska landsliðsins undanfarinn ár. Hann hefur leikið 283 landsleiki og skorað í þeim 1.337 mörk og er markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. iben@mbl.is Hanna og Ólafur valin best Hanna Guðrún Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.