Ísfirðingur


Ísfirðingur - 08.01.1960, Page 1

Ísfirðingur - 08.01.1960, Page 1
Áskriftarsími blaSsins er 332. Kaupið og lesiS ÍSFIRÐING árgangur ísafiörður, 8. ianúar 1960. Þa8 borgar sig að , auglýsa. AuglýsiS í ÍSFIRÐINGI „Sannleikurinn mun gera yður frjálsa" ISFIRÐINGUR Um síðastliðin áramót skrifaði Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, mjög at- hyglisverða grein í Tímann. Hér á eftir verður birtur kafli úr þessari grein, og sýnir hann ljóslega starfsaðferðir og óheilindi núver- andi stjórnarflokka. ,,1 allri kosningabaráttunni héldu stjórnarflokkarnir því fram, að sannleikurinn væri sá, að verð- bólgan væri stöðvuð án fórna. Það væri stórfellt afrek, sem kjósend- ur ættu að þakka með atkvæði sínu . Að stjórnarflokkarnir hafi ekki allan tímann vitað um efnahags- ástandið, er afsökun, sem fáir trúa, þar sem vitað er, að stjórn- arflokkarnir höfðu allar skýrslur um efnahagsástandið í höndum allt síðastliðið ár. Hverju á þjóðin nú að trúa? Að allt hafi verið stöðvað án fórna? Eða að allt sé að sökkva í óðaverð- bólgu, sem almenningur þurfi að fórna 250 milljónum til þess að stöðva? Árið 1947 var það hinn eini sálu- hjálplegi sannleikur til bjargar að taka ríkisábyrgð á framleiðslunni. Nú virðist eiga að treysta og þakka sömu flokkum fyrir það að láta ríkið þar hvergi koma nærri neinu, „skrá gengið rétt“ og láta allt leita jafnvægis í höndum ein- staklinganna. Hvoru á að trúa? Hvað er sannleikur? Bráðabirgðalögin. Og svo síðasta dæmið, bráða- birgðalögin. Alþýðuflokkurinn seg- ir, að hann hafi komið sínu fram. Sjálfstæðisflokkurinn segir, að bændur hafi fengið sitt. Ekki get- ur hvort tveggja verið sannleikur. Hið rétta í málinu er þetta: Bænd- ur höfðu heimild til þess að lög- um að hækka verð á búvörum seld- um innan lands, til að bæta upp verð á búvörum seldum til útlanda, svo að' það verð næðist, sem þeir eiga að fá að lögum. Bændur hafa alltaf talið neyðarúrræði að nota þetta ákvæði og raunverulega, eins og kom ljóst fram í hæstar- réttarmálinu, aldrei gert það. 1 stað þess fá þeir nú samkvæmt nýrri heimild greitt úr ríkissjóði það, sem þarf til þess að ná lög- legu verði fyrir útfluttar búvörur. Flestir munu skilja, að bændur fá hér sitt og þeir peningar koma úr sömu vösum og ella hefðu greitt hækkun á búvörum seldum inn- anlands. Annað atriði er dreifingarkostn- aðurinn. Neytendum hefur hvað eftir annað á undanförnum árum verið boðið að skoða reikninga yf- ir dreifingarkostnaðinn, en ekki þegið. Bændur vissu, að þeir hefðu ekkert að fela, því að þeir höfðu Hermann Jónasson. sjaldan fengið dreifingarkostnað- inn greiddan að fullu. Þess vegna er þeim einnig ljóst, að ef þeir leggja fram skýlausa reikninga yf- ir dreifingarkostnaðinn, getur dómur hlutlauss manns ekki farið nema á einn veg — orðið réttlæti, annars hafa bændur aldrei krafizt. Þriðja atriðið er verðhækkunin frá 1. september s.l. Bændur geta, ef þeir vilja, ásamt fulltrúum neyt- enda samið um nýjan verðlags- grundvöll. Ef ekki verður sam- komulag, gildir gamli grundvöllur- inn og hækkun samkvæmt honum, eins og bændur eiga rétt á frá 1. september. Það er því engum blöðum um það að fletta, að fyrir atfylgi Framsóknarflokksins og þá fyrst og fremst fyrir harðfylgi bænda, og vegna yfirvofandi sölustöðvun- ar, hafa þeir náð rétti sínum. — Eftir stendur, að Alþýðuflokkur- inn notaði bráðabirgðalögin til þess að undirstrika þá fölsun sína við þjóðina, að hann hafi stöðvað verðbólguna. Eftir stendur og, að hann sagði þjóðinni þann sann- leika, að hann mundi aldrei stjóma með þeim, sem slökuðu til fyrir bændum. En þarna sitja þeir í ráðherrastólunum, þót bændur hafi komið sinum málum fram. Hér voru ósannindi notuð í stað sann- leika og margir gátu ekki greint satt frá lognu, en Alþýðufíokkur- inn mun telja, að þetta sé búið að gera sitt gagn. — Ég hef valið hér fjögur dæmi af mörgum um það, hvernig stjórnmálaflokkarnir hafa talað til þjóðarinnar í stjórnarandstöðu og svo aftur í ríkisstjórn fyrir kosn- ingar og eftir kosningar. Þar stendur ekki steinn yfir steini. Ég véfengi það ekki, að ríkisstjórnin þurfi nú á tiltrú þjóðarinnar að halda. En er það ekki til full mik- ils mælzt, að þjóðin, sem staðið hefur stjórnarflokkana að ósann- indum hvað eftir annað í stjórnar- andstöðu og fyrir kosningar, trúi því og treysti, að sömu flokkar segi allt satt eftir kosningar. Hverjir „lifa um efni fram?“ Nú hefur sjómönnum og útgerð- armönnum verið sagt: Farið af stað. Ykkar hlutur skal ekki skert- ur, nema síður sé. — Samtímis er sagt: Þjóðin lifir um efni fram. Hverjir? Mannslíkaminn þolir visst magn af eitri án þess að lamast. Er því ekki líkt háttað með lýðræðislegt þjóðfélag? Það þolir ósannindi að vissu marki. En þegar ósannindin eru komin á það stig, að enginn veit, hverju trúa skal, hvernig á þá að skapa þá tiltrú, sem þarf nauðsynlega að vera til staðar, til þess að hægt sé að stjórna lýðræð- islega á farsælan hátt. Er það ekki oftast þessa leiðina, sem lýðræðis- ríkin hafa horfið yfir í hóp einræð- isríkja? „Sannleikurinn mun gera yður frjálsa", segir spakmælið. Er þá ekki réttmætt að álykta, að ósann- indin geti gert okkur ófrjáls? Von- andi erum við ekki komnir svo langt. En þegar stjórnarflokkarnir gera nú þær ráðstafanir til kjara- skerðingar, sem þeir telja, að gera þurfi, þarf þeim ekki að koma það á óvart, þótt þeir séu ófrjálsari í því verki en þeir kysu, vegna þess að þeir hafa á þann hátt, sem rak- inn er lítilsháttar hér að framan, sjálfir eyðilagt þá tiltrú, sem þeim er mest þörf á að hafa.“ óskar lesendum sínum og öðrum góðs og farsœls ngárs. IJr bænum Eins og að undanförnu voru miklar jólaskreytingar hér í bæn- um nú um hátíðarnar. Ljós voru tendruð á jólatrjám og skrautljós- um komið fyrir við götur, í aug- lýsingagluggum verzlana og á fjölda mörgum húsum einstakl- inga. Eins og jafnan áður lögðu skát- ar hér í bænum fram mikla vinnu, án endurgjalds, i sambandi við götuskreytingar. Ber vissulega að þakka fyrir það framtak og fyrir- höfn alla. o o o Kvenfélagið Hlíf hefur nýlega gefið Elliheimili ísafjarðar níu vönduð rúmstæði með dýnum. Einnig hefur Elliheimilinu borist vandað rúmstæði að gjöf frá Guð- mundi L. Þ. Guðmundssyni, hús- gagnasmið. o o o Stubbur Kvenfélagið Brautin og Ung- mennafélag Bolungavíkur sýndu í gærkveldi leikritið Stubb, eftir Arnold og Bach, í Alþýðuhúsinu hér í bænum. Leiksýningin verð- ur endurtekin á sama stað í kvöld. Leikendur eru 14 og leikstjóri er Einar Kristjánsson Freyr, frá Reykjavík. Leikritið hefur að undanförnu verið sýnt fjórum sinnum í Bol- ungavík og tvisvar á Suðureyri við ágætar undirtektir. Isfirðingar ættu sem flestir að sjá og heyra þetta létta og skemmtilega leikrit. Adalfundup Aðalfundur Framsóknarfélags Isfirðinga verður haldinn í fundarsal Kaupfélags ísfirðinga sunnudaginn 24. þ. m. kl. 4 e. h. S t j ó r n i n.

x

Ísfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.