Ísfirðingur


Ísfirðingur - 08.01.1960, Side 2

Ísfirðingur - 08.01.1960, Side 2
2 ISFIRÐINGUR r, ....—- ==? ISFIRÐINGUR Útgefandi: Framsóknarfélag ísfirðinga. Ábyrgðarmaður: Jón Á. Jóhannsson Af greiðslumaður: Guðmundur Sveinsson Engjaveg 24 — Sími 332 ^— —J Ráöþrota rikisstjára. Bölsýnn forsætisráö- herra. ðii snnd Iokuð Ræða sú sem forsætisráðherra flutti í útvarpið nú um áramótin hefur orðið mörgum ærið umræðu- og undrunarefni. Þjóðin hafði ekki áður heyrt af vörum nokkurs for- sætisráðherra jafnmikla bölsýni, ráðleysi, fyrrur og ásakanir í garð almennings. Hlustendum þótti sem öll sund væru lokuð fyrir ríkis- stjórn forsætisráðherrans, og þeim þótti það ekki spá góðu um far- sæla lausn þeira fjölmörgu og þýðingarmiklu viðfangsefna sem úrlausnar bíða. Hér er ekki að þessu sinni rúm til að rekja allar þær fyrrur og mótsagnir sem svo ríkulega voru á borð bornar í áramótahugleið- ingum forsætisráðherrans. T. d. verður lítið um það talað, að for- sætisráðherrann fullyrti að stjóm Emils Jónssonar hefði tekist að stöðva verðbólguna, en svo rétt í sömu andránni hélt hann fram hinu gagnstæða, sem sé því, að þegar núverandi ríkisstjóm kom til valda í nóv. í haust, hafi hið illa ástand efnahagsmálanna yfir- gnæft allt annað. Fyrir hafi legið að ekki yrði úm flúið að leggja ,,a. m. k. 250 millj. kr. nýja skatta á þjóðina", sem óhjákvæmilega mundi valda stórfelldri kjararýrn- un. Er allt hjalið um afrek Alþýðu- flokksstjórnarinnar, sem Sjálf- stæðisflokkurinn bar ábyrgð á, þar með afsannað. f áramótaræðunni varð forsætis- ráðherranum skrafdrjúgt um það afrek núverandi stjómarflokka og kommúnista, „að endurreisa lýð- ræðið á íslandi með réttlátri kjör- dæmaskipan, og það áður en í stórræðin —• varanlegu úrræðin — yrði ráðist, svo að leiðin yrði val- in af réttum umboðsmönnum þjóð- arinnar og í umboði hennar.“ Hvað mun þjóðin hugsa um þessi ummæli forsætisráðherrans í ljósi þeirra staðreynda sem nú eru komin á daginn. Forsætisráðherrann, Ólafur Thors, hafði ekki fyrr lokið við að mynda núverandi ríkisstjórn í nóv. s.l. en hann og stjórn hans krafðist þess, að hinir löglega kjörnu fulltrúar þjóðarinnar, al- þingismennirnir, hinir réttu um- boðsmenn þjóðarinnai; til þess að velja leiðirnar, — yrðu reknir heim af Alþingi. Og þetta gerræði var framkvæmt af ríkisstjóm for- sætisráðherrans. Nú eru alþingis- mennimir ekki að velja leiðirnar til úrlausnar í málefnum þjóðar- inngr, eins og hún hafði ætlast til af þeim, af því að ríkisstjóm Ólafs Thors kvaðst ekki hafa starfsfrið á sama tíma sem Alþingi væri að störfum. Þetta er hið „endurreista lýðræði" í framkvæmd núverandi ríkisstjómar. Meiri lítilsvirðingu er naumast hægt að sýna þjóðinni, Alþingi, alþingismönnum og lýð- ræðinu. f áramótaræðu sinni leggur for- sætisráðherrann hvað eftir annað áherzlu á nauðsyn þess að loka Al- þingi íslendinga. Hann segir: „Þing kom saman 20. nóv., en var frestað 7. des., til þess að stjórnin fengi starfsfrið." Og aftur segir hann: „Stjórnin bað um heimild til að fresta fundum þingsins, svo að hún fengi starfsfrið.“ Og enn: „Eftir að þingi var frestað og stjórnin fékk vinnufrið, tók hún strax til óspilltra málanna." Öllum ætti að vera augljós áhugi forsæt- isráðherrans fyrir að koma í fram- kvæmd hinu „endurreista lýðræði“ á íslandi. Og það stóð, sem fyrr segir, ekkert á framkvæmdum. Stjórnin hafði ekkert með störf alþingismanna að gera, þeir voru sendir heim, til þess að þeir væru ekki að þvælast fyrir og tefja störf ríkisstjórnarinnar. Þannig á hið endurreista lýðræði að vera í fram- kvæmd að dómi ríkisstjórnar Ólafs Thors. En mundi þjóðin vera á sömu skoðun? illllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllÍllllllllllIÍIIIIIIIIIIIIil Til sölu Góður flygill til sölu. Tilboð ósk- ast fyrir 14. þ. m. Nánari upplýsingar gefur Franlt Herlufsen. Mlllll'llllllllllllllllllllVIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII 4IIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1IIIIIIIIIIIIIIIIIÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII1II1II1I Starfsstúlkur vantar nú þegar í Elliheimili Isa- fjarðar. Upplýsingar hjá forstöðu- konunni, sími 110. B æ j a r st jó r i. iiiiHii!ininiNn<iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Aflabrögð hafa að undanförnu verið góð hjá bátunum héðan. T. d. fékk mb. Gunnhildur, skipstj. Hörður Guð- bjartsson, um 15 smál. í gær. AufllýsiuB frá Skattstofunni Hér með eru atvinnurekendur og aðrir í Isafjarðarkaupstað, 1 | sem laun hafa greitt á árinu 1959, áminntir um að skila launa- | | miðum til skattstofunnar, í því formi sem eyðublöðin segja til 1 | um, og eigi síðar en 15. þ. m. Nauðsynlegt er að heimilisföng | | séu tilgreind, aldur launþega, vinnutímar, vinnutímabil og tegund | 1 vinnu. Útgerðarmenn skulu tilgreina vinnutímabil þeirra sem | | vinna sem landmenn við bátana. Skýrslum um hlutafé og arðsútborganir hlutafélaga á s.l. ári | | ber að skila til skattstofunnar fyrir 20. þ. m. Skattskýrslur verða bomar út strax og þær berast, væntan- | | lega fyrir eða um 15. þ. m. en framtalsfresti lýkur 31. jan. n. k. | Söluskattsgreiðendur eru minntir á, að frestur til að skila | = söluskattsskýrslum fyrir síðasta ársfjórðung 1959 rennur út | 1 15. þ. m. | = ísafirði 5. janúar 1960. | | SKATTST JÓRI. | iTllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllTl lllllllllllllllllll III111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111II1111111111111111111111111111111111111111111111111 ÍSFIRÐINGAR — VESTFIRÐINGAR Tökum upp í vikulokin hrærivélar, ryksugur og bónvélar með | | hinu þekkta merki ELEKTROLUX. | | ■ Hömum einnig: Straubretti, sem hægt er að hækka og lækka. | I Masonitt. Plastplötur á borð og veggi í fjölbreyttara úrvali en | | áður. Skrár og handföng, úti og inni. Gluggastangir, tvær gerðir. | I Höfum fengið söluumboð fyrir Reyplast einangrun og stálhús- | i gögn frá Stálprýði. 1 | Rúðugler, þaksaumur og pappasaumur er væntanlegt með ; | næstu skipsferð. | ISFIRÐINGAR — VESTFIRÐINGAR Höfum tekið að okkur umboð fyrir Gleraugnaverzlunina Fókus, § | Reykjavík. Framköllun, kopiering, stækkun. Mjög vönduð vinna. = | Sýnishorn fyrir hendi. Afgreiðslutími 7—10 dagar, nema veður | | hamli flugi. | Filmur í fjölbreyttu úrvaii. Ansco litfilmur 35 mm (36 mynd- | | ir) og 6x9 (8 myndir). Ansco, Mímosa og Perutz svart-hvítar, | | fínkorna 35 mm (20 og 36 myndir) og 6 X 9 tréspólur, 17—28 dín. | Opið daglega frá 9—12 og 4—6 nema laugardaga 9—11. | Verzlun Jóns í. Magnússonar Sími 195 - Silfurgötu 4 - ísafirði. Illllllllllllllllinilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 Aðalfundur Aðalfundur Togaraútgerðar ísafjarðar h.f., verður haldinn í i m " = Skátaheimilinu á ísafirði, sunnudaginn 17. janúar 1960 kl. 13,30. jj DAGSKRÁ: m “ 1. Venjuleg aðalfundarstörf. | 2. önnur mál. Stjórnin. | ll■IIIIIIIIIIIIIIIIIIHIHIIIIHIIIIHIIIIH■IIIHIHIHIHIII■llllllll■HIII■lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll^lllllllllllllllll Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, SIGURRÓSAR HELGADÓTTUR. Helgi, Ólafur og Gunnar Hjartarsynir.

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.