Ísfirðingur - 27.01.1960, Blaðsíða 2
2
ISFIRÐINGUR
MIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIBIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIBIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllllilBllllllllllllilllllllir
Frá Skattstofu Isafjarðar
| 1. Skattstofan er daglega opin frá Kl. 10—12 og 1—7 til mót-
| töku skattframtala, og dagana 28., 29. og 30. þ. m. verður
| skattstofan einnig opin á kvöldin frá kl. 8,30 til kl. 11.
| Sunnudaginn 31. þ. m. verður opið frá kl. 4—6 e. h. Fram-
talsfresti lýkur 31. þ. m. Skv. lögum ber að áætla þeim tekj-
| ur og eignir sem eigi hafa skilað framtölum fyrii þann tíma.
| 2. Þeir, sem ennþá hafa ekki skilað launamiðum eru beðnir að
gera það nú þegar.
| 3. Fólk á skyldusparnaðaraldri þarf að sýna sparimerkjabækur
| sínar um leið og framtölum er skilað. Samkv. ákvæðum
reglugerðar um skyldusparnað ber að tæma sparimerkja-
| bækur um hver áramót, og þó eigi síðar en 10. janúar. Er
nauðsynlegt að það hafi verið gert þegar sparimerkjabæk-
= ur eru sýndar í skattstofunni.
| Isafirði, 25. janúar 1960.
| Skattstjóri.
Við þökkum hjartanlega öllum er auðsýndu okku hlýhug
og samúð við fráfall og jarðarför
PALS KKISTJÁNSSONAR
Börn, tengdabörn, barnabörn.
fr - -■■■- ?
ÍSFIRÐIN GUR
Útgefandi:
Framsóknarfélag ísfirðinga.
Ábyrgðarmaður:
Jón Á. Jóhannsson
Afgreiðslumaður:
Guðmundur Sveinsson
Engjaveg 24 — Sími 332
----JJ
„Vinnufriö" ríkisstjórn-
arinnar lokið
Alþingi hefur verið kvatt saman
til funda á morgun. Flestir Islend-
ingar munu fagna því, að alþing-
ismönnum gefst nú aftur færi á,
að vinna á Alþingi að þeim mál-
um sem þjóðin hafði kjörið þá til,
og þjóðin vonar að þeim takist þau
vandasömu störf giftusamlega.
Ef dæma skal eftir hinni svo-
nefndu áramótaræðu forsætisráð-
herrans er ríkisstjórnin ekkert
ánægð þessa dagana. Hún mun
ekki fagna því að Alþingi kemur
nú saman, heldur þvert á móti. í
fyrrnefndri áramótaræðu þrástag-
aðist forsætisráðheirann á þeirri
nauðsyn að senda þingmenn heim,
allt til þess ,,að stjórnin fengi
starfsfrið." Samkvæmt þessari
kenningu ríkisstjórnarinnar hefur
hún nú ekki starfsfrið lengur.
Vinnufrið ríkisstjórnarinnar er
lokið.
Vafalaust mundi ríkisstjómin
helst hafa kosið að hún hefði sem
allra lengst „vinnufrið" og að al-
þingismenn væru enn um stund
fremur heima hjá sér en á Alþingi.
En ríkisstjórnin hefur í þessu efni
orðið að láta undan síga fyrir
þunga almenningsálitsins, sem er
ekki á sömu skoðun og ríkisstjórn-
in í þessum efnum. Þessa mun
ríkisstjórnin hafa orðið mjög vör
við, og því orðið að neyðast til, að
gera ráðstafanir til að kalla þingið
saman nú. Almenningur í landinu
er nefnilega ekki á þeirri skoðun,
að það sé nein stjórnarbót, eða
„endurreisn á lýðræðinu á lslandi.“
að þingmenn séu reknir heim af
Alþingi að afloknum kosningum.
Þjóðin vill að alþingismenn hafi
vinnufrið.
I áramótaræðu sinni málaði for-
sætisráðherrann litina dökkt í
sambandi við hinar bágbornu efna-
hagsástæður, sem hann sagðist
hafa svo þungar áhyggjur .af, að
hann næði ekki „flugtakinu". Þess-
ar áhyggjur forsætisráðherrans
um efnahagsvandræðin, ásakan-
irnar um að þjóðin hafi lifað um
efni fram, allt tal hans um nauð-
syn kjaraskerðingar hjá almenn-
ingi, og fleira af líku tagi, voru
vissulega í æpandi mótsögn við
allt gortið og fullyrðingar núver-
andi ríkisstjórnar fyrir kosning-
arnar í haust, um að allt væri í
Fiskaflinn í
heiminum
Samkvæmt skýrslum frá upp-
lýsingaþjónustu Sameinuðu þjóð-
anna, var fiskaflinn alls í heimin-
um 33,7 milj .smál. árið 1958. Þar
af öfluðu Asíuþjóðir um helming-
inn, en Evrópuþjóðir um 22 af
hundraði.
Noregur flutti út mest allra
Evrópuþjóða af fiski, eða fyrir 164
millj. dollara. Næst er ísland með
55 millj. dollara. ísland er meðal
fimm mestu fiskveiðaþjóða heims.
Hinar eru: Kanada, Frakkland,
Danmörk og Noregur.
Mestu síldarútflytjendur eru:
Kanada, ísland, Holland, Noregur,
Svíþjóð og Bretland.
o o o
stakasta lagi. Þá átti ríkisstjórn
Emils og íhaldsins að hafa stöðv-
að verðbólguna og komið efna-
hagsmálunum á öruggan grund-
völl. Þá átti engrar kjaraskerðing-
ar að vera þörf. Er hægt að bú-
ast við því, að almenningur beri
nokkurn snefil af tiltrú til manna
sem svona tvísöng syngja, segja
eitt í dag og annað á morgun? Og
tæplega er hægt að búast við því,
að það séu þeir sem eru færir um
að ráða fram úr vandanum.
En hvað hefur svo ríkisstjórn-
in verið að gera á meðan hún hafði
starfsfrið? Hver eru bjargráðin?
Enn sem komið er hafa engar
staðfestar fregnir borist af áform-
um ríkisstjórnarinnar. Þó hefur
kvisast að stórfelld gengislækkun
muni vera eitt af bjargráðunum,
en hún myndi að sjálfsögðu leiða
af sér mikla kjaraskerðingu hjá
öllum almenningi.
Þá hefur heyrst að stórfelld
hækkun útlánsvaxta sé eitt af
bjargráðunum. Hækkun vaxta er
að sjálfsögðu fjötur um fót allra
þeirra mörgu sem á slíkum lánum
þurfa að halda, bæði í sambandi
við atvinnurekstur og til íbúða-
bygginga, svo eitthvað sé nefnt.
Þessar fregnir, ef sannar reyn-
ast ,benda vissulega til þess, að
ríkisstjómin sé ekki þeim vanda
vaxin að ráða fram úr málunum á
farsælan hátt. Starfsfriður sá sem
hún taldi sig nauðsynlega þurfa
hefur ekki orðið að neinu gagni,
sem og ekki var heldur við að bú-
ast. Ríkisstjórnin hefur ekki náð
„flugtakinu."
En Alþingi íslendinga er nú að
koma saman til funda. Vonandi
tekst þingmönnum að ráða þannig
fram úr vandamálunum að til far-
sældar verði fyrir land og lýð.
o o o
<llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Góð kaup
Sögufélag ísfirðinga býður þeim
er gerast nýir félagsmenn nú, 4
ársrit félagsins, fyrir árin 1956—
1959, alls hátt á sjöunda hundrað
blaðsíður, fyrir aðeins 150 krónur.
Gefið ykkur fram, sem fyrst,
við Kristján frá Garðsstöðum.
iHllllllllllllllllllllllllpllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Doktorsvörn.
Framhald af 4. síðu.
Dr. Selma Jónsdóttir hefur veitt
Listasafni ríkisins forstöðu frá
stofnun þess. Hún lagði stund á
listfræði í Bandaríkjunum og lauk
þar meistaraprófi .
Hún er gift dr. Sigurði Péturs-
syni, gerlafræðingi.
• • •
Samninoanefnd
í gær kom til Reykjavíkur með
m/s Drotningunni samninganefnd
frá Fiskimannafélagi Færeyja, og
er tilgangur nefndarinnar sá, að
ræða við L.l.Ú. um kjör færeyskra
sjómanna á íslenzkum fiskiskipum.
Erlendur Patursson, form.
Fiskimannafélagsins, er formaður
þessarar nefndar.
OOO
Fyrir iðni . . .
Framhald af 1. síðu.
Morgunæf ing:
1. 400 m. sund (endurtekið 4
sinnum, stutt hvíld á milli); 2. 400
m. sund með fótatökum einum; 3.
800 m .sund með handatökum ein-
um; 4. 8x100 m. eða 16x50 m.
sund (hendur og fætur).
Síðdegisæfing:
1. 2 X 800 m .sund, eða 8 X 200
m., eða 16 X 100 m„ eða 30 X 50 m.;
2. 400 m .sund með fótatökum ein-
um; 3. 800 m .sund með handatök-
um einum; 4. Viðbrögð og snún-
ingar.
Þannig verða til hinar Áströlsku
heimsfrægu „sundstjörnur“ án
þess að menn vanræki sinn skóla-
lærdóm eða önnur skyldustörf.
Fyrir iðni fæst árangur.
Lausl. þýtt úr „Schwimm“.
G. K.
Ath.
Ef nú slíkur sundáhugi skyldi
leynast meðal ísfirzks æskufólks,
myndi undirrituðum vera það mik-
il ánægja að opna sundhöllina,
jafnvel kl. 6 árdegis, án aukaþókn-
unar, fyrir svo góðum gestum, sem
hefðu hug á að æfa sig þannig
reglubundið.
Vænti ég þess að þá kæmi ár-
angur í ljós.
Gísli Kristjánsson
Sundh. ísafj.
illlilllliilliiiililiiiiiiiiiliiliiiiiliiiiiliilliiiiiiillllillliiuililllliliilliiilllllllllll 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111101111111111111111111111111111;