Ísfirðingur - 06.10.1966, Page 1
t
BlAÐ TRAMSOKNAKMANNA / !/£S TFJARÐAKJOPDÆM/
16. árgangur. ísafjörður 6. október 1966. 20. tölublað.
Steingrímur Hermannsson:
Skipuleg efling sjávarútvegs
og fiskiðnaðar
Barnaskólinn settnr
Sumarið er nú senn liðið og,
eins og fyrr, hafa síldveið-
amar fyrir norðan og austan
fyrst og fremst sett svip sinn
á undanfarna mánuði.
Þeir eru margir, sem hafa
beðið óþreyjufullir eftir síldar
fréttum dag hvem og bíða
enn, og þar á meðal hljóta að
vera ýmsir ráðamenn þjóðar-
innar því það er áreiðanlega
ekki of mikið sagt, að þjóðar-
búskapur okkar Islendinga
stendur eða fellur með síld-
veiðunum. Þær em það happ-
drætti, sem íslenzkur þjóðar-
búskapur byggist fyrst og
fremst á. Að vísu hafa líkur-
nar fyrir stóra vinningnum,
góðri síldveiði, verið nokkuð
auknar með ágætu starfi vís-
indamanna, sem vita nú betur
en áður hvar síldina er að
finna með nýjum og góð-
um tækjum og stærri bátum,
sem framsýnir útgerðarmenn
og sjómenn hafa aflað. En á
hinn bóginn virðist afkoma
okkar í vaxandi mæli vera
háð síldveiðunum.
Aðrar greinar sjávarútvegs
ins hafa horfið í skugga síld-
veiðanna. Togaraútgerðin hef
ur að mestu lagst niður og
bolfiskveiðamar eru víða rekn
ar með vafasömum hagnaði.
Fiskiðnaðurinn á í erfiðleik-
um, annar en síldariðnaður-
inn, því ekki er fáanlegt fjár-
magn til nauðsynlegra um-
bóta.
Þetta hafa ýmsir framá-
menn í þeirri atvinnugrein
staðfest, ein og kunnugt er.
Fjármagnið er fryst til þess
iað draga úr verðbólgunni, að
því er sagt er. Nú er það hins
vegar svo, að dýrtíðin stafar
ekki sízt af stöðugum skorti á
vinnuafli, sem nauðsynlegt
reynist að keppa um með yfir
boðum, ef dýr atvinnutæki
eiga ekki að standa ónotuð.
Því mætti ætla, að ötullega
væri unnið að aukinni fram-
leiðni í fiskiðnaðinum, eða að
fjármagn væri að minnsta
kosti auðfengið til f járfestinga
í þessari atvinnugrein, sem
spara vinnuafl eða auka nýtni
framleiðslutækjanna. Svo er
þó ekki, því miður. Frægt er
orðið dæmi Haraldar Böðv-
arssonar, útgerðarmanns á
Akranesi. Þar fékkst ekki fjár
Steingrímur Hermannsson
magn til kaupa á gaffallyftu
í frystihús, þótt losað hefði
þrjá til fjóra vinnandi menn.
Þetta ástand er óþolandi i
höfuðatvinnuvegi okkar ís-
lendinga, sjávarútveginum í
heild. Á vel skipulögðum, fjöl
breyttum og arðbærum sjávar
útvegi hlýtur afkoma þessa
þjóðfélags að byggjast enn
um áraraðir.
Mér þóttu athyglisverð um
mæli eins þekktasta sérfræð-
ings okkar á sviði fiskiðnaðar
og sjávarútvegs á fundi ný-
lega, þar semtrætt var um
virkjanir og álbræðslu. Til
undirbúnings þssara mála hef
ur verið varið milljónatugum,
sérstaklega til undirbúnings
virkjunarframkvæmda. Þar
hafa verið kallaðir til færustu
innlendir og erlendir sérfræð-
ingar og ekkert til sparað.
Þessu ber að fagna; góður
undirbúningur er ávallt til
bóta. En fyrrgreindum manni
varð þá að orði, hvers vegna
má ekki vinna á svipaðan hátt
að eflingu höfuðatvinnuvegar
íslenzku þjóðarinnar, sjávar-
útvegi og fiskiðnaði. Það er
tími til kominn að gera alls-
herjar úttekt á þessum at-
vinnuvegi og kalla þar til fær
ustu sérfræðinga innlenda og
jafnvel erl., ef nauðsyn kref-
ur, og vinna síðan með festu
að eflingu sjávarútvegs og þá
sérstaklega fiskiðnaðar. Þetta
er stórkostlegt verkefni og
varðar alla framtíð þessa þjóð
félags. Við strendur landsins
eru einhver beztu fiskimið í
heimi og við eigum sjómenn,
sem afla meira en nokkrir
aðrir. Hráefnið er mikið og
gott. Við verðum að kapp-
kosta að nýta það til hins
ítrasta, en það verður að ger-
ast að vel athuguðu máli og
á skipulegan hátt.
Enginn vafi er á því, að
ýmis ljón verða á vegi slíkrar
uppbyggingar. Hvarflar hug-
urinn þá meðal annars til
niðursuðu verksmiðju þeirrar,
sem nokkrir einstaklingar
hafa byggt í Hafnarfirði af
sérstökum dugnaði og fram-
sýni að því er virðist. Menn
þessir leituðu samstarfs við
norskt fyrirtæki um tækni-
og markaðsmál og er það tal-
ið einna fremst í heiminum
á þessu sviði. Þama virðist
undirbúningur allur hafa ver-
ið með ágætum, en þó vill
nú svo einkennilega til að
fyrirtæki þetta hefur varla
fyrr hafið starfsemi sína en
það stöðvast. Manna á meðal
eru nefndar ýmsar ástæður,
en fæstar virðast þær á hald-
góðum rökum reistar. Hér er
um mjög alvarlegt mál að
ræða, ekki aðeins fyrir þá
einstaklinga, sem byggðu upp
fyrirtæki þetta, heldur einnig
fyrir þjóðarbúskapinn allan.
Ríkisvaldið ætti nú þegar að
hefja rannsókn á rekstrar-
erfiðleikum þessa fyrirtækis,
alls ekki til að hegna þeim
mönnum, sem fyrirtækið eiga,
heldur til hins að læra megi
Bamaskólinn á Isafirði var
settur 16. f.m., þ.e.a.s. fyrir
yngri börnin, 7, 8, og 9 ára.
Eldri börnin hófu námið 1.
þ.m. Um 380 böm stunda
nám í skólanum í vetur. Þess
ir kennarar komu að skólanum
í haust: Kristjana Magnús-
dóttir, Erla Sigurðardóttir,
sem kennir 2/3 af starfi og
Kristín Guðmundsdóttir, sem
kennir leikfimi, að hálfu við
barnaskólann og að hálfu við
gagnfræðaskólann. Erla var
Tónlistarskólinn
settur
Tónlistarskólinn á Isafirði
var settur í gær. Aðsókn að
skólanum er ágæt og meiri
en nokkru sinni fyrr. Þórir
Þórisson sem með miklum á-
gætum hefur að undanfömu
kennt við skólann fór í haust
til náms til Englands. Við
starfi hans tekur Erling Sör-
ensen. Að öðru leyti er kenn
aralið skólans óbreytt frá
fyrra ári.
Skólastjóri er Ragnar H.
Ragnar.
af þeim mistökum, sem þarna
kunna að hafa orðið. Seint
vil ég trúa því, að við ís-
lendingar, með okkar miklu
og góðu síld, getum ekki starf
rækt síldamiðursuðu og ann-
an fullkominn síldariðnað eins
vel eða betur en aðrar þjóðir.
stundakennari við skólann s.l.
vetur. Að öðru leyti er kenn-
aralið skólans óbreytt frá s.l.
árai.
Til nýjunga má telja að nú er
tekin upp kennsla í dönsku
í einum tólf ára bekk. Kennsl
una annast Marinó Guðmunds-
son, yfirkennari skólans, en
hann sótti nú nýlega námskeið
fræðslumálastjómarinnar í
sambandi við dönskukennslu.
Skólastjóri bamaskólans er
Björgvin Sighvatsson.
Rafveilufundur
á ísafirði
24. aðalfundur Sambands
íslenzkra rafveitna var hald-
inn á ísafirði dagana 19. og
20. ágúst sl.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru flutt erindi um
rafvæðingarmál á fundinum.
Jakob Gíslason raforkumála-
stjóri flutti erindi um raf-
veitumál Vestfjarða, Jóhann
Indriðason, verkfræðingur,
flutti erindi um frumáætlun
um rafveitu í Barðastranda-
og Rauðasandshrepp og Hauk-
ur Pálmason, verkfræðingur,
flutti erindi um samrekstur
dieselstöðva og vatnsafls-
stöðva á Vestfjörðum. Þá
vom umræður á fundinum um
endurskoðun raforkulaga.
1 stjóm sambandsins eru
nú Jakob, rafmagnsstjóri,
Guðjohnsen, formaður, Rvík,
Baldur Steingrímsson, deildar-
Framhald á 2. síðu
300 þúsund króna sekt
Aðfaranótt laugardagsins 1. þ.m. tók varðskipið Öðinn,
skipherra Jón Jónsson, togarann OKATAVA GY 669 í land-
heigi og fór með hann til ísafjarðar þar sem málið var
tekið fyrir.
Skipstjórinn á ORATAVA, A. Jensen, 33 ára gamall og
fæddur í Þórshöfn í Færeyjum en búsettur í Grímsby, var
dæmdur í þrjú hundruð þúsund króna sekt til Landhelgis-
sjóðs Islands auk málskostnaðar.
Bæjarfógetinn á Isafirði Jóh. Gunnar Ólafsson kvað upp
dóminn ásamt meðdómsmönnum Guðmundi Guðmundssyni
og Simoni Helgasyni, skipstjórum.