Ísfirðingur - 01.05.1971, Side 2
2
ÍSFIRÐINGUR
i—-----—-------——•— --------—-------------------------------
81AD WAMSÓKN/WMANN/I / VCSm/IRMKJÓBDÆMI
Útgefandi:
Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördœmi.
Ritstjórar:
Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb.
Afgreióslumafiur:
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 332.
Verð árgangsins kr. 100,00. — Gjalddagi 1. október.
-----------------—-------------—---------------------------
Kosningasöngur
stjórnarílokkanna
Svo sem vænta má, er kominn kosningatónn í stjórnar-
blöðin. Morgunblaðið a.m.k. virðist vera búið að ákveða
hvernig kosningaáróður það skuli reka.
Þar er tvennt sem mest ber á. Annað er það, að nú sé
mikið góðæri á íslandi og gjörbreytt ástand frá því sem
var fyrir einum tveimur árum. Og það á auðvitað að vera að
þakka ríkisstjórninni. Hitt er svo sundrung stjórnarandstæð-
inga.
'Sk.
Um góðærið á íslandi er það að segja, að aflabrögð hafa
verið góð og afburðaverð hátt. Verðhækkanir hafa verið
svo miklar að nemur meira en einum fimmta frá fyrra
ári á helstu útflutningsafurðum. Opinberar skýrslur telja
v
að útfluttar sjávarafurðir séu að verðmæti 27% meiri árið
1970 en 1969.
Þetta ætti að nægja til að skýra málið. Það eru sömu
rök og sömu lögmál sem valda góðærinu nú og 1966, og
þau ollu líka erfilðleikunum fyrir tveimur árum. Ríkis-
stjórnin á engu fremur hlut að verðhækkunum á heims-
markaði en verðfalli. Og þó að hún kunni voldug að vera,
mun ekki almennt vera talið að hún ráði yfir veðri og fiski-
fiskigöngum.
Morgunblaðinu mun verða erfitt að sanna, að verðlag á
heimsmarkaði hefði ekki getað hækkað, ef stjórnarskipti
hefðu orðið á íslandi 1968 eða 1969.
Hitt er vert að hafa í huga hver viðbúnaðður stjórnar-
valda er, ef verðlag skyldi falla aftur. Ólafur Björnsson,
alþingismaður, segir að það sé hrollvekja að hugsa til
að stjórna málum hér á landi þegar haustar. Þann dóm
kveður þessi hagfræðingur Sjálfstæðisflokksins upp um
MINNINGARORÐ
Grímur Kristgeirsson
Grímur Kristgeirsson
Áður en gengið var til
dagskrár á fundi bæjarstjórn-
ar ísafjarðar 28. þ.m. minnt-
ist forseti bæjarstjórnar, Jón
A. Jóhannsson, Gríms Krist-
geirssonar, fyrrverandi bæj-
arstjórnar- og bæjarráðs-
manns, sem lézt 19. þ.m., og
mælti á þessa leið:
Grímur Kristgeirsson, fyrr-
verandi bæjarfulltrúi og bæj-
arráðsmaður á ísafirði, and-
aðist í Reykjavík 19. þ.m.
Hann var fæddur að Bakka-
koti í Skorradal 29. sept-
ember 1897. Foreldrar hans
voru þau hjónin Guðný Ólafs-
dóttir og Kristgeir Jónsson.
Á árinu 1920 flutti Grímur
til Isafjarðar og átti þar síð
an heima til ársins 1953 að
hann flutti til Reykjavíkur.
Fyrstu fjögur árin sem hann
átti heima á ísafirði var hann
lögregluþjónn í bænum og
fórst það starf mjög vel. 1924
opnaði hann rakarastofu á
ísafirði og vann síðan að
þeirri iðn þar til hann flutti
úr bænum.
Á ísafjarðarárum sínum
vann Grímur mikið að opin-
berum málum. Hann var
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins
frá 1934 til 1953. Fyrstu 4
árin var hann varabæjarfull-
trúi og eitt kjörtímabil átti
hann sæti í bæjarráði. Iiann
átti sæti í ýmsum nefndum
innan bæjarstjórnarinnar.
Hann var einn af aöalhvata-
mönnum að byggingu Sund-
hallarinnar á ísafirði og
fylgdist með byggingu henn
ar f.h. bæjarstjórnarinnar, og
mjög áhugasamur var Grím-
ur um stækkun Gagnfræða-
skólahússins og hann fylgd-
ist einnig með þeirri bygg-
ingu. Þegar hlutafélagið
Njörður var stofnað var
hann einn af aðalhvatamönn
um þess, og hann átti sæti
í stjórn fyrstu rækjuverk-
smiðju hér í bænum,
Að öðrum félagsmálum vann
Grímur mikið t.d. í íþrótta-
félagi Isfirðinga, Iðnaðar-
mannafélaginu, Sóknarnefnd
ísafjarðar og Dýraverndunar-
félagi ísafjarðar.
Grímur var kvæntur Svan-
hildi Ólafsdóttur Hjartar, frá
Þingeyri, hinni ágætustu konu
Hún andaðist 1966. Þau
eignuðust eitt barn, Ólaf
Ragnar, mikinn náms- og
gáfumann, sem nú er lektor
við Háskóla íslands.
Grímur Kristgeirsson var
hygginn maður og raunsær,
sem ekki rasaði um ráð fram
í sambandi við þau málefni
sem honum var falið að vinna
að. Mér fannst hann jafnan
gera sér ljósa grein fyrir
flestum hliðum hvers máls.
og raunverulega vinna málin,
en slíkt er hygginna manna
háttur. Hann var áhugasam-
ur og farsæll bæjarstjórnar-
maður.
Um leið og ég votta syni
Gríms, Ólafi Ragnari, einlæga
samúð bið ég háttvirta bæjar
fulltrúa að votta minningu
Gríms Kristgeirssonar virð-
ingu sína með því að rísa
úr sætum.
Rammagerðin
ÍSAFIRÐI
Verður lokuð
frá 25. maí til 1. okt.
GÖTE ANDERSON
Hafnarsjóður Isafjarðar
óskar eftir tilboðum í smíði á bryggju-pollum.
Upplýsingar hjá bæjarverkfræðingi.
Bæjarsjóöur
tsafjarOar
ætlar að ráða
flokksstjóra.
Umsóknir sendist
bæjarstjóra.
stjórnarfarið í dag. Morgunblaðið hælir sinni stjórn af rétt- 0g hann er eflaust reiðubúinn til að gera það aftur, hvenær
um viðbrögðum við vanda fyrri ára. Það eru gengislækk- sem tækifæri byðist. Og það er ekkert til að undrast eða
Bæjarstjórinn
ísafirði.
anirnar. Ráðherrar töluðu þá um að „takast á við allan
hneykslast á. Það væri heimskur maður, sem ekki vildi
vandann
einu“ og „leysa málin í eitt skipti fyrir öll'
nota það tækifæri sem byðist til að koma sínu fram, bara
með gengisfellingu. Samkvæmt þessu verða úrræði ríkis-
stjórnarinnar gengisfall á gengisfall ofan þegar verzlunar-
árferði breytist íslendingum í óhag. Hún kann ekki önnur
ráð.
Spurning kosninganna er fyrst og fremst sú, hvort þjóð-
in uni því, eða hvort hún vilji breyta um stefnu. Sé þjóðin
sammála Morgunblaðinu um það, að vel hafi verið stjórn-
að, leggur hún vitanlega blessun sína yfir öll gengisföll lið-
inna ára og heldur fagnandi áfram á þeirri braut.
Sundrung stjórnarandstæðinga er vitanlega mikið al-
vörumál. En vilji þjóðin breytta stefnu verður hún þó
að greiða atkvæði gegn stjórnarflokkunum. Morgunblaðið
lætur nú sem það sé hneykslað yfir því, að stjórnarand-
stæðingar vilji samstarf við kommúnista. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur stjórnað íslandi í samvinnu við kommúnista
af því að til þess þyrfti samstarf við einhvern, sem hann
hefði ógeð á. Slíkir skapgallar henta ekki stjórnmálamönnum.
Björgun repd
Hér eru því í rauninni tiltölulega hreinar línur. Spurn-
liggur Ijóst fyrir að í vor keppa 5 flokkar um kjörfylgið.
Það er líka Ijóst, að verði um að ræða víðtækari samtök
um breytta stjórnarstefnu eftir kosningar mun Fram-
sóknarflokkurinn þar gegna forustuhlutverki. Vonir manna
um breytta stjórnarstefnu eru fyrst og fremst bundnar við
það, að Framsóknarflokkurinn eflist að áhrifum.
Hér eru því í rauninni tiltölulega hreinar línur. Spurn-
ingin, sem úrslitum ræður, er sú, hvort menn vilja að hald-
ið sé áfram eins og verið hefur. Þeir sem vilja breyta til,
hafa miklu mestar líkur fyrir því að þeir fái vilja sinn
ef þeir greiða Framsóknarflokknum atkvæði sitt.
H.Kr.
Á næstunni munu vera
væntanleg tvö björgunarskip
frá Noregi til þess að reyna
að ná á flot togaranum
Caesar sem strandaður hefur
verið við Arnarnes síðan 21.
þ.m. Brezkir sérfræðingar
komu hingað til athugana í
sambandi við strandið, svo
og norskur maður. Einnig
kom Hjálmar R. Bárðarson,
siglingamálastjóri, sömu er-
inda. í fylgd með honum var
Finnur Guðmundsson, fugla-
fræðingur.