Ísfirðingur - 01.05.1971, Side 4
Vel af stað farið
Nýlega barst raér skólablað
Menntaskólans á ísafirði, en
blaðið hefur hlotið nafnið
„Gullsparð“. Ég las þetta
blað mér til ánægju og tel að
vel sé af stað farið. Útlit
blaðsins og frágangur allur
virðist í góðu lagi. Skóla-
meistarinn skrifar athyglis-
verðan leiðara. Ég held að
hvaða blað sem væri gæti
verið stolt af að birta grein-
ina „Mengunin og skólarnir“
eftir I.D. Þar er mjög vel á
penna haldið. Finnur Torfi
Hjörleifsson er ábyrgðarmað-
ur blaðsins.
Ég mun reyna að verða
mér úti um næstu blöð.
J.Á.J.
fienginn nr vistinni
Dr. Gunnlaugur Þórðarson,
fyrrverandi frambjóðandi Al-
þýðuflokksins, hefur nýlega
lýst því opinberlega yfir, að
hann muni ekki styðja Al-
þýðuflokkinn í næstu alþing-
iskosningum vegna afstöðu
flokksins í landhelgismálinu.
Það munu áreiðanlega
verða margir aðrir en dr.
Gunnlaugur sem segja sig úr
tengslum við Alþýðuflokkinn
í næstu kosningum vegna
ráðleysis og dáðleysis flokks-
ins í þessu mikilsverðasta
hagsmunamáli þjóðarinnar.
Verkamenn óskast
Bæjarsjóður ísafjarðar ætlar að ráða verkamenn
Umsóknir, með upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist á bæjarskrifstofuna.
ísafirði, 30. aprfl 1971.
Bæjarverkfræðingurinn á ísafirði.
Tilkynning
frá Barnaskóla Isaf jarðar
Þau börn í skólahverfinu, sem fædd eru árið 1964
eiga að hefja skólagöngu á þessu ári.
Innritun þeirra í skólann fer fram
föstudaginn 21. maí n.k.
klukkan 14,00.
Börnin verða síðan nokkra daga í vorskóla.
ísafirði, 30. apríl 1971.
SKÓLASTJÓRI.
Stjórnmálaályktnn...
Framhald af 1. síðu.
ustan verði þannig skipulögð,
að hún starfi meira að utan-
ríkisviðskiptum en verið hef-
ur og þá í nánu samstarfi við
útflutningsatvinnuvegi þjóðar
innar.
Lánakerfið verði endurskipu-
lagt með aukna hagkvæmni
fyrir augum. Fækkað verði
bönkum cg fjárfestingarsjóð-
um og þeir efldir og tryggt
að fjármagn það sem fyrir
hendi er verði á skipulegan
hátt nýtt til þjóðhagslegra
arðbærra framkvæmda.
Rafvæðingu landsins verði
lokið og stefnt að því að nota
raforku til hitunar húsa þar
sem hitaveitum verður ekki
við komið.
Skattalöggjöfin verði endur-
skoðuð, meðal annars með
það fyrir augum að létta
skattabyrði þeirra er lág laun
hafa. Skattavísitalan fylgi
Halldór Kristjánsson:
Að ílokksþingi loknu
Það mun ekki ofmælt, að
með fimmtánda flokksþingi
Framsóknarmanna hafi verið
fylgst með meiri athygli en
venja er um slíkar samkom-
ur. Stærsta blað landsins
hafði sagt þjóðinni að þar
væri von harðra átaka og
sennilegt að menn segðu þar
sundur með sér griðum og
ílokkurinn klofnaði. Þess í
stað reyndist að vera þar
mikill samhugur og sóknar-
vilji.
Stjórnmálayfirlýsing flokks-
ins birtist hér í blaðinu. Ó-
venjulegt mun vera að flokk-
ar leggi fram svo glögga og
gagnorða stefnuskrá. Hún
var samþykkt einróma með
mikilli ánægju á flokksþing-
inu.
Þessi stjórnmálayfirlýsing
er þannig unnin, að fyrir
flokksþing eru samin drög
að henni. Eftir að almennar
stjórnmálaumræður höfðu
staðið nokkrar klukkustund-
ir á flokksþinginu tók stjórn
málanefndin til starfa, en í
henni voru nær hundrað
menn. Hún fékk þessi drög
til athugunar.
Auðvitað voru valdir menn
í nefndina með það í huga,
að þar kæmu sem flest sjón-
armið fram.
Stjórnmálanefndin skipaði
úr sínum hópi sjö manna
undirnefnd til að vinna
stjórnmálayfirlýsinguna úr
þeim hugmyndum sem fram
komu og fylgi höfðu. Það
er ekki ofmælt að unnið hafi
jafnan framfærsluvísitölu.
Beitt verði víðtækum ráð-
stöfunum gegn hverskonar
mengun. Éngin verksmiðja
verði reist eða rekin nema
óháðir aðilar sanni að meng-
unarhætta af hennar völdum
sé hverfandi.
Beita skipulegum samverk-
andi ráðstöfunum við stjórn
efnahagsmála með stuðningi
f jöldahreyfinga fólksins í land
inu til að halda verðbólgunni
í skefjum svo að endir verði
bundinn á þá skipulagslausu
efnahagsstefnu, sem leitt hef-
ur til endurtekinna gengisfell-
inga og gert að engu kjara-
bætur almennings.
verið að mótun hennar á veg-
um stjórnmálanefndar tals-
vert á þriðja dag. Það þarf
því enginn aðsegja, að flokks
þingið hafi verið kallað sam-
Halldór Kristjánsson
an til að samþykkja eitthvað,
sem búið var að semja fyrir-
fram.
Sú skoðun kom fram á
flokksþinginu, að æskilegast
og drengilegast væri að stjórn
málaflokkar lýstu því yfir
fyrir kosningar með hverjum
þeir myndu vinna að kosn-
ingum loknum. Þá vita kjós-
endur best að hverju þeir
ganga. Þetta getur þó eng-
inn flokkur einhliða. Það
þar samninga tveggja eða
fleiri flokka til. Enginn flokk
ur hefur nokkurntíma lofað
skilyrðislaust að vinna með
öðrum. Hér var því ekki ann-
að hægt en að draga fram
IV.
Að loknum kosningum til
Alþingis mun Framsóknar-
flokkurinn starfa með öðr-
um stjórnmálaflokkum á
grundvelli þeirra stefnumála,
sem lýst er hér að framan,
en við myndun ríkisstjórnar
leggja höfuðáherzlu á upp-
sögn landhelgissamningsins
við Breta og V.-Þjóðverja og
útfærslu fiskveiðilögsögunnar
í 50 sjómílur.
Framsóknarflokkurinn mun
á komandi kjörtímabili vinna
að því að móta sameiginlegt
stjórnmálaafl allra þeirra,
sem aðhyllast hugsjónir jafn-
aðar, samvinnu og lýðræðis.
helstu stefnumálin, svo sem
gert er. Þau mál, og fram-
gang þeirra, munum við fram
bjóðendurnir reyna að ræða
við kjósendur fram að kosn-
ingum, og raunar engu síður
eftir þær, nái flokkurinn að-
stöðu til stjórnarþátttöku.
Ég tel mig hafa fylgst með
málum í Framsóknarflokkn-
um í rúmlega 30 ár. Ég tel
að aldrei hafi starfað í fl.
meira af ungum mönn-
um, sem ástæða er til að
vænta mikils af, en einmitt
nú. Það var glæsilegt lið
ungra manna, sem stofnaði
Samband ungra Framsóknar-
manna 1938. Mér hefur aldrei
fundist jafnmikið til um
unga menn í flokknum síðan,
fyrr en nú á síðustu misser-
um. Verði Framsóknarflokk-
urinn í ríkisstjórn næsta kjör
tímabil, veit ég að áhrifa þess
ara ungu manna mun gæta í
ríkum og vaxandi mæli. Það
er ánægjulegt fyrir hvern
þann sem valinn verður til
trúnaðarstarfa fyrir flokkinn,
að eiga kost slíkra samstarfs
manna. Eigi að framkvæma
þá stjórnarbót, sem okkur
dreymir um, er mikil þörf
ungra og dugandi manna.
Sérstaka ánægju vakti það,
hve mikill áhugi og einhugur
var um landhelgismálið á
flokksþinginu. Fulltrúar
höfðu þá sögu að segja, að
svo væri um land allt. Dæmi
voru mér nefnd um það úr
uppsveitum bæði sunnan
lands og norðan. Það var
gott að heyra, því að vel
mátti hugsa sér, að nokkuð
öðru máli gegndi þar en hér
vestra til dæmis, þar sem
segja má að dagleg afkoma
okkar allra sé háð því að
bátamiðin verði varin.
Það er því engin tilviljun,
að landhelgismálið er nefnt
fyrst af baráttumálum kom-
andi daga, og að lokum er
aftur lögð sérstök áherzla á
framgang þess. Framsóknar-
flokkurinn vill ekki bregðast
einhug íslenzkrar þjóðar í
landhelgismálinu.
H. Kr.