Morgunblaðið - 04.01.2010, Side 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JANÚAR 2010
REAL Madrid mistókst í gærkvöld
að skjótast á topp spænsku 1. deild-
arinnar í knattspyrnu en nífaldir
Evrópumeistarar urðu að láta sér
lynda markalaust jafntefli gegn
Osasuna í Pamplona.
Stjörnum prýtt lið Real Madrid,
sem í vantaði þó Brasilíumanninn
Kaká, náði sér ekki á strik gegn
huguðum liðsmönnum Osasuna og
mátti Madridarliðið teljast lukku-
legt með að hafa náð öðru stiginu.
Barcelona tapaði sínum fyrstu stigum á heima-
velli á leiktíðinni þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við
Villareal. Fyrir leikinn var mikil sýning á Camp Nou
en þar fengu stuðningsmenn Barcelona að sjá alla
sex bikarana sem liðið hefur unnið á einu ári. Pedro
kom Börsungum yfir eftir sex mínútna leik en David
Fuster jafnaði fyrir gestina í byrjun seinni hálfleiks.
,,Þetta var mjög erfiður leikur en þessi úrslit verða
bara til þess að efla okkur,“ sagði Joesep Guardiola,
þjálfari Barcelona, eftir leikinn en Börsungar sökn-
uðu Argentínumannsins Lionel Messi tilfinnanlega í
leiknum.
Barcelona hefur 40 stig í efsta sæti, hefur ekki
tapað leik á tímabilinu, Real Madrid er með 38 stig
og Valencia 32 en liðið sigraði Espanyol, 1:0, og skor-
aði Nikola Zigic, Serbinn stóri og stæðilegi eina
mark leiksins í uppbótartíma.
gummih@mbl.is
Spænsku risarnir töpuðu stigum
Zlatan
Ibrahimovic
KÁRI Steinn Sigurðsson sigraði í karlaflokki í
gamlárshlaupi ÍR sem fram fór á síðasta degi
ársins 2009. Kári hljóp á 31 mínútu og 20 sek-
úndum. Metþátttaka var í hlaupinu í ár, 937
hlauparar. 13 ára stúlka lenti í þriðja sæti í
kvennaflokki.
Í öðru sæti í karlaflokki lenti Stefán Guð-
mundsson úr Breiðablik á 34,26 mínútum og í
þriðja sæti varð Birgir Sævarsson úr ÍR á
35,20.
Fyrst kvenna í mark var Arndís Ýr Haf-
þórsdóttir, sem kom í mark á tímanum 38,12 mínútum. Önnur
var Íris Hanna Skúladóttir á tímanum 39,42 mínútum en bæði Íris og Arndís
hlaupa fyrir Fjölni. Þriðja sætið var nokkuð óvænt í ár, en hin 13 ára gamla Aníta
Hinriksdóttir varð í þriðja sæti í kvennaflokki á 40,07 mínútum.
Kári Steinn og Arndís sigruðu
Arndís ÝrKári Steinn
Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson
seth@mbl.is
ARNÓR byrjaði leikinn af krafti,
og skoraði þrjú af fyrstu fjórum
mörkum FCK í úrslitaleiknum sem
fram fór í Árósum að viðstöddum
tæplega 5.000 áhorfendum. Þessi
lið áttust við í undanúrslitum í
fyrra og þar tapaði FCK, 41:27.
Forráðamenn FCK geta glaðst
yfir árangrinum í bikarkeppninni
því kvennalið félagsins er einnig
bikarmeistari.
Norski landsliðsmaðurinn Erlend
Mamelund var markahæsti leik-
maður FCK með 10 mörk en Arnór
kom þar næstur með 7. Þjálfari
FCK er Magnus Andersson frá
Svíþjóð en hann er margreyndur
landsliðsmaðurinn og lék stórt hlut-
verk í „gullaldarliði“ Svía.
Lokamínútur leiksins voru æsi-
spennandi. Arnór kom FCK yfir,
31:30, þegar um tvær mínútur voru
eftir af leiknum. Leikmenn Bjerr-
ingbro-Silkeborg fór í sókn en
danski landsliðsmarkvörðurinn
Kapser Hvidt varði í marki FCK.
Mamelund átti skot í stöng þegar
40 sekúndur voru eftir og Bjerr-
ingbro-Silkeborg gat jafnað. Þjálf-
ari Bjerringbro-Silkeborg tók
leikhlé þegar 18 sekúndur voru eft-
ir en síðasta sókn liðsins rann út í
sandinn án þess að liðið næði skoti
að marki.
„Það sem réð úrslitum var sú
reynsla sem er í okkar liði. Við höf-
um leikið úrslitaleiki áður, tekið
þátt í Meistaradeildinni. Í upphafi
tímabilsins sögðum við að það væri
markmiðið að vinna bikarmeist-
aratitilinn. Við náðum því markmiði
og þá er næsta markmið að landa
gullinu í deildarkeppninni,“ segir
Arnór í viðtali sem birt er á heima-
síðu félagsins.
Arnór tryggði sigurinn
Arnór Atlason skoraði 7 mörk og fagnaði bikarmeistaratitlinum með FCK
Íslenski landsliðsmaðurinn skoraði síðasta mark leiksins í 31:30 sigri
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Meistari Arnór Atlason skoraði 7 mörk í bikarúrslitaleiknum í Danmörku fyrir FCK Kaupmannahöfn.
Arnór Atlason fagnaði bikarmeist-
aratitlinum í handknattleik karla í
Danmörku ásamt félögum sínum í
FCK Kaupmannahöfn. Þetta er í
fyrsta sinn í stuttri sögu FCK þar sem
liðið landar bikarmeistaratitlinum en
FCK var stofnað árið 2002. Íslenski
landsliðsmaðurinn skoraði alls 7
mörk og hann skoraði síðasta mark
leiksins tveimur mínútum fyrir leiks-
lok gegn Bjerringbro-Silkeborg, loka-
tölur 31:30.
ÍþróttamaðurVals var út-
nefndur á gaml-
ársdag í 18. sinn
og að þessu sinni
varð knatt-
spyrnukonan
Dóra María Lár-
usdóttir fyrir
valinu. Dóra hef-
ur verið algjör lykilmanneskja und-
anfarin ár í kvennaliði Vals, sem
varð Íslands- og bikarmeistari 2009.
Fram, líkt og mörg íþróttafélög,útnefndu íþróttamann félags-
ins á gamlársdag og að þessu sinni
varð handboltakonan Stella
Sigurðardóttir fyrir valinu. Hún er
jafnframt fyrsta konan sem hlýtur
þennan eftirsótta titil hjá Fram.
Bergur IngiPétursson
var á gamlársdag
útnefndur
íþróttamaður FH
2009. Bergur
Ingi hlýtur þá
sæmd fyrir góð-
an árangur í
sleggjukasti en
hann kastaði
sleggjunni lengst 73,00 m. Bergur
Ingi er stigahæsti frjálsíþróttamað-
ur Íslands og var valinn frjáls-
íþróttamaður Íslands 2009.
Árni Már Árnason, sundmaðurvar kjörinn íþróttamaður
Reykjanesbæjar á gamlársdag.
Borðtennismaðurinn Jóhann Rúnar
Kristjánsson varð annar í kjörinu
og knattspyrnumaðurinn Símun Ei-
ler Samuelsen þriðji
Hörður Axel Vilhjálmssonkörfuknattleiksmaður var val-
inn íþróttamaður Keflavíkur árið
2009.
Rakel Hönnu-dóttir
knattspyrnukona
úr Þór/KA og ís-
lenska landslið-
inu var únefnd
íþróttamaður
Þórs og er þetta
annað árið í röð
sem hún verður
fyrir valinu. Rakel átti virkilega
gott tímabili en hún fór mikinn með
norðanliðinu í Pepsi-deildinni og
var fastamaður í sterku liði Íslands.
Grindvíkingar útnefndu íþrótta-karl- og konu ársins á gaml-
ársdag og þar urðu fyrir valinu
körfuboltamaðurinn Þorleifur
Ólafsson og knattspyrnukonan El-
ínborg Ingvarsdóttir.
Helena Sverrisdóttir skoraði 17stig, tók 11 fráköst og gaf 11
stoðsendingar í 78:74 sigri TCU
gegn Texas A&M skólanum í fyrra-
dag í bandaríska háskólakörfubolt-
anum.
Fólk sport@mbl.is
Liðsfélagarnir Gilbert Arenas og
Javaris Crittenton hjá NBA liðinu
Washington Wizards voru helsta
fréttaefnið í NBA deildinni. Afrek
þeirra á körfuboltavellinum voru þó
ekki umfjöllunarefnið. Atvik í bún-
ingsklefa liðsins eftir æfingu á jóla-
dag er til rannsóknar hjá alríkislög-
reglu en liðsfélagarnir eiga að hafa
dregið upp byssur og hótað hvorum
öðrum í uppgjörsdeilu vegna veð-
mála. Arenas er vel þekkt stærð í
NBA deildinni, hann er 27 ára gam-
all og var á sínum tíma í fremstu
röð en alvarleg hnémeiðsli hafa
hægt á ferli bakvarðarins. Crit-
terton, sem er 22 ára, hefur ekk-
ert leikið á þessari leiktíð vegna
meiðsla.
Arenas sagði við bandaríska fjöl-
miðla í gær að hann hafi geymt
skammbyssu í búningsklefa Wash-
ington liðsins og það væri ekki til
eftirbreytni. Hann mun svara spurn-
ingum lögreglunnar í dag, mánudag,
en Arenas sagði eftir 97:86 tapleik
gegn San Antonio Spurs í fyrrinótt
að það væri ekki rétt að hann hefði
dregið upp byssu og ógnaði liðs-
félaga sínum. Richard Jefferson
leikmaður San Antonio Spurs og
fyrrum liðsfélagi Arenas í Arizona
háskólaliðinu telur að „lélegur
brandari“ hafi farið úr böndunum.
„Ég trúi þessu ekki og Gilbert Are-
nas er ekki sú manngerð sem dregur
upp byssu til þess að ógna fólki,“
sagði Jefferson.
Margir leikmenn og þjálfarar hafa
tjáð sig um málið á undanförnum
dögum en David Stern fram-
kvæmdastjóri deildarinnar lítur
málið alvarlegum augum.
Gilbert Arenas hóf ferilinn hjá
Golden State Warriors árið 2001 en
hann samdi við Washington árið
2003. Arenas gerði risasamning við
Washington sumarið 2008. Hann
tryggði sér tæplega 14 milljarða kr. í
laun yfir sex ára tímabil eða 2,3
milljarða kr. á ári.
Arenas þarf að svara fyrir sig
Var „byssubardagi“ Arenas og Crittenton aðeins lélegur brandari?