Ísfirðingur - 17.03.1973, Page 2
2
ÍSFIRÐINGUR
c---~— -------—■—~— ---------------------------------
.^^fíráittpttr
SIAD fRAMSÖKNA&MANNA / t'fSrrjARMKSÓROiM/
Vtgefandi:
Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi.
Ritsljórar:
Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb.
AfgreiSslumaSur:
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 3332.
Verð árgangsins kr. 200,00 — Gjalddagi 1. október.
■-----------—---------------------------------------i
Síðustu hækkanir
Um síðustu mánaðamót urðu almennar kauphækkanir og
jafnframt almenn verðhækkun á landbúnaðarvörum. Kaup-
hækkanirnar voru samkvæmt kjarasamningunum frá 1971
og hækkun afurðaverðsins í rökréttu sambandi við þær.
Margir telja, að þessar hækkanir allar séu lítt tímabærar
eins og á stendur, og þær muni ekki verða almennt til
blessunar; Það er líka vitað mál, að ríkisstjórnin hafði
undirbúið löggjöf um það að þær tækju ekki gildi. Tillaga
ríkisstjórnarinnar var sú, að kauphækkunin yrði að sinni
tekjustofn fyrir Viðlagasjóð Vestmannaeyja, og Iandbún-
aðarafurðir hækkuðu ekki í verði. Stjórnarandstaðan var
ekki til viðræðu um slíkt. Því eru nú þessar hækkanir allar
komnar á, og Viðlagasjóði aflað fjár með aukaútsvari á
tekjur manna og hækkuðum söluskatti.
Það er satt, að ríkisstjórnin hefur ekki borið gæfu til
að halda verðlagi í skefjum, svo sem æskilegt hefði verið.
Hún benti samt á úrræði í þá átt, svo að alla vega er
hlutur hennar í þessum efnum miklu betri en stjórnarand-
stöðunnar.
Hins er heldur ekki að dyljast, að nokkuð kann að bresta
á fulla samstöðu innan stjórnarliðsins sjálfs, svo að full
tök væru höfð á þróun efnahagsmálanna. Vissir menn, sem
eru eða telja sig sérstaka trúnaðarmenn launastéttanna,
telja sig svo bundna af kjarasamningunum, að ekkert megi
gera, sem ekki sé í fullu samræmi við þá. Er þar gleggsta
dæmið, að vilji ríkið leggja skatt á brennivínskaup, er þess
krafizt, að sú tekjuöflun leiði til kauphækkunar, svo að
launamenn geti keypt jafn mikið brennivín og áður.
Sízt er því að neita, að allt slíkt, sem snertir kaupgjalds-
vísitölu og kjarasamninga er viðkvæmt mál, og sitthvað
úr fortíðinni veldur því, að ekki er óeðlilegt þó að ábyrgir
menn séu varfærnir í þeim efnum. Flestum út í frá mun
þó finnast að slík hollusta við bókstafinn gangi heldur
langt, þegar hún hindrar menn frá því að afstýra vand-
ræðum, svo sem flestir munu telja síðustu verðhækkanir
vera. Kemur hér eflaust til að auki, að menn eru misjafn-
lega kjarkmiklir að gera það, sem þeir telja farsælast og
réttast, ef þeir óttast að það yrði gert að ádeiluefni til að
rýja af þeim metorð og trúnað.
Þess mun nú skammt að bíða, að vinna hefjist til undir-
búnings nýjum kjarasamningum. Þá mun verða úr því
skorið hvort launþegasamtökin í landinu vilja að hér sé
varanlegt verðbólguþjóðfélag eða ekki. Vilji þau sporna
við því, munu verða gerðir samningar, sem að einhverju
leyti slíta hinn sjálfvirka snúning verðbólguskrúfunnar, sem
í dag er ýmsum trúnaðarmönnum launþega heilög kýr vegna
gildandi samninga. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því
að slík breyting verði. Sé til dæmis ekki hægt að skatt-
leggja vissa eyðslu án þess að skattinum sé skilað aftur í
hækkuðum launum, eru hendur stjórnvalda bundnar svo,
að skattheimta getur lítt orðið hagstjórnartæki, sem allir
munu þó viðurkenna að sé æskilegt.
Framhald af 4. síðu
útkjálkahéraði, sem vera
skal, þ.e.a.s. sjúkraflutninga
í skammdeginu. Þrátt fyrir
háþróaða tækni í gerð sam-
göngutækja verður ekki á-
fram komizt nema með sam-
þykki veðurguðanna. Oft hafa
sjúklingar héðan þurft á
skjótri læknishjálp að halda,
síðustu áratugina en aldrei
hefur dregizt jafn legni og í
umrætt skipti, að unnt væri
að veita hana. Vonandi er
að sjúklingurinn þurfi ekki
að gjalda þess, og þetta
fyrsta þyrluflug eftir sjúkl-
ingi norður í Árneshrepp
hafi, þrátt fyrir hina löngu
■■■
töf, komið til hjálpar í tæka
tíð.
SJÓNVARPSSENDIR
1 VETUR var sjónvarpssend-
ir settur upp á Krossnesi.
Náðust fyrstu sjónvarpsmynd
irnar hér í Víkinni þann 12.
desember. Það var allmikill
viðburður í fábreyttu lífi út-
skagabúans. Þurfti þess þó
ekki með til að hafa af okkur
leiðindi, þvi að þau voru eng-
in fyrir. En vel valið fræðslu-
og skemmtiefni er alltaf vel
þegið.
Barnaskólanum, Finnboga-
stöðum 4. marz 1973.
Torfi Guðbrandsson.
um verðhækkunarstuðul fyrir í'yrningu
eigna í atvinnurekstri.
Skv. ákvæðum 4. tl. 7. gr. laga nr. 7/1972 um
breytingu á lögum nr.68 15.6. 1971 um tekju- og
eignarskatt, hefur fjármálaráðuneytið, í samráði
við Hagstofu íslands ákveðið, að verðhækkunar-
stuðlar vegna verðbreytinga árið 1972, skuli verða
sem hér segir:
1. Verðhækkunarstuðull eigna — annarra en bif-
reiða, — sem tilgreindir eru í 1. tl. A-liðs 15.
gr. laga nr. 68/1971, verði 15%
2. Verðhækkunarstuðull bifreiða, sbr. 1. tl. A-liðs
15. gr. laga nr. 68/1971, verði 25%.
3. Verðhækkunarstuðull eigna, sem tilgreindar
eru í 2. tl. A-liðs 15. gr. laga nr. 68/1971 verði
26%.
Fjármálaráðuneytið, 27. febrúar 1973.
Spjaldapappír, 15 krónur örkin
Bókbandspappi, 1,5 mm, 2 mm, 2,5 mm
Rexín, svart, blátt, rautt
Saurblaðapappír, gulur og hvítur
Grisja og kjölkragi.
Iijl
Bókaverzlun
Jónasar Tómassonar
Sími 3123 — ísafirði
Flestir munu fallast á, að auðveldari væri nú eftirleik-
urinn, ef Alþingi hefði sameinast um tillögu ríkisstjórnar-
innar, að gera kauphækkanirnar 1. marz að tekjustofni fyrir
Viðlagasjóð Vestmannaeyja og jafnframt haldið óbreyttu
verði landbúnaðarafurða. Þá væri eftirleikurinn auðveldari,
ef menn óska eftir því, að einhver hemill verði hafður á
verðbólgu. En hvernig sem menn líta á þessi mál er skylt
að vita hvers vegna er komið þar, sem komið er. Ábyrgð
þessara síðustu hækkana hvílir fyrst og fremst á stjórnar-
andstöðunni. Hún hafnaði því, að hjá þeim yrði komizt.
H. Kr.
Frá Hjólinu
Isafirði - Sími 3667.
Alltaf eitthvað nýtt!
NÚ!
Fermingarföt á drengi.
Stakir jakkar og buxur.
Skyrtur, bindi, slaufur,
belti.
Væntanlegt fyrir stúlk-
ur: Vmis konar ferm-
ingarklæðnaður.
Alltaf nýjar hljómplöt-
ur.
í Hjólinu
Fiskikörfur og
plasthringir
fást hjá
Netagerð
Vestfjarða hf.
Til sölu
er Opel Rekord fólks-
bifreið, árg. 1970.
Upplýsingar í síma 7221
Bolungarvík.
Fjölskylda frá
Vestmanna-
ejíjum
AÐ MINNSTA kosti ein fjöl-
skylda frá Vestmannaeyjum
hefur þegar flutt hingað til
bæjarins. Er það fjölskylda
Jóns R. Sigurðssonar, vél-
smiðs, sem er 8 manna fjöl-
skylda. Jón vinnur hjá Skipa-
smíðastöð M. Bernharðssonar
hf.