Morgunblaðið - 08.01.2010, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 2010
íþróttir
Aron Einar Akureyringurinn ungi er ánægður með gengi sitt í enska liðinu Coventry. Hann veit þó
ekkert hvað framtíðin býr í skauti sér. Samningar tókust ekki og óvíst hvað félagið vill gera. 3
Íþróttir
mbl.is
RÓBERT Gunnarsson er línumaður í íslenska
landsliðinu í handknattleik sem leikur í úr-
slitakeppni EM í Austurríki 19.-31. janúar.
Róbert er 29 ára gamall, fæddur 22. maí
1980. Hann lék fyrst með A-landsliði Íslands
árið 2000 og hefur spilað frá þeim tíma 153
landsleiki og skorað í þeim 471 mark. Þar af
eru 13 leikir og 35 mörk á EM en þar lék hann í
Slóveníu 2004, Sviss 2006 og Noregi 2008.
Róbert var í landsliðinu sem fékk silf-
urverðlaunin á ÓL í Peking 2008.
Róbert kom ungur inn í lið Fram og lék með
því til vorsins 2002. Þá gekk hann til liðs við
danska félagið Århus GF og spilaði þar í þrjú ár en samdi við Gum-
mersbach í Þýskalandi 2005. Þar hættir hann að þessu tímabili liðnu
og hefur samið við Rhein-Neckar Löwen.
FYRSTI LEIKUR ÍSLANDS Á EM Í AUSTURRÍKI ER EFTIR 11 DAGA
Róbert Gunnarsson
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
KRISTJÁN Örn Sigurðsson, lands-
liðsmiðvörður í knattspyrnu, skrifaði
í gærkvöld undir tveggja ára samn-
ing við Hönefoss, nýliða í norsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu. Hann
færir sig því um set innan Noregs en
Kristján hefur spilað með Brann í
sömu deild undanfarin fimm ár og
varð meistari með liðinu árið 2007.
Hönefoss er frá samnefndum 14
þúsund manna bæ skammt frá Ósló.
Liðið hafnaði í öðru sæti 1. deildar á
síðasta ári og spilar í úrvalsdeildinni
í fyrsta skipti á komandi leiktíð.
Hönefoss komst upp úr 4. deild árið
1988 og hefur smám saman fikrað
sig upp deildirnar síðan og aldrei
fallið.
Dag Håvard, framkvæmdastjóri
Hönefoss, lýsti yfir mikilli ánægju
með samninginn við Kristján á vef
VG í gærkvöld. „Ég var sérstaklega
ánægður með viðhorf hans, en hann
velur að yfirgefa næststærsta félag-
ið í deildinni og ganga til liðs við það
næstminnsta. Hann sagðist vera
spenntur fyrir því að spila með nýju
liði, sem leikur gegn stórum liðum í
hverjum einasta leik, þar sem allir
verða að bretta upp ermar til að ná
árangri. Það er einmitt með svona
viðhorf sem við þurfum að mæta til
leiks,“ sagði Håvard en Kristján er
fjórði leikmaðurinn sem Hönefoss
fær til sín í vetur, og sá öflugasti að
sögn Håvards.
Kristján Örn, sem er 29 ára og
hefur leikið 44 landsleiki fyrir Ís-
land, er annar Íslendingurinn sem
leikur með Hönefoss. Guðni Rúnar
Helgason spilaði með liðinu í hálft
annað ár, 2000 til 2001.
Hönefoss krækti í Kristján
Samdi við nýliðana í norsku úrvalsdeildinni til tveggja ára
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„VERKEFNIÐ er mjög metnaðarfullt og það
verður spennandi að taka þátt í því. En eftir
fjögur ár hjá FCK er maður orðinn svo mikill
félagsmaður að þetta er svolítið eins og að fara
að spila með Þór,“ sagði Arnór Atlason, lands-
liðsmaður í handknattleik, leikmaður danska
úrvalsdeildarliðsins FCK og fyrrverandi leik-
maður KA á Akureyri, spurður um tíðindi
gærdagsins í danska handknattleiknum. Þá
var tilkynnt að FCK og AG Håndbold yrðu
sameinuð og tækju þátt í úrvalsdeildinni á
næsta keppnistímabili sem AG København.
AG Håndbold leikur í næstefstu deild
danska handknattleiksins um þessar mundir
en er á góðri leið upp í úrvalsdeild. Félagið er
að stærstum hluta til í eigu skartgripasalans
Jesper Nielsen og fyrirtækis hans, KasiGroup.
Til fróðleiks má rifja upp að um þetta leyti fyr-
ir ári stefndi allt í að Ólafur Stefánsson gengi
til liðs við AG Håndbold en þau áform runnu út
í sandinn nokkru síðar og Ólafur gerði samn-
ing við Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi.
Nielsen og fyrirtæki hans hefur reyndar einn-
ig sterk ítök í þýska liðinu.
Núverandi samningur rennur út í vor
Félag skartgripasalans, KasiGroup, mun
eiga meirihluta í hinu nýja AG København.
„Ég veit ekki almennilega hvernig staðan á
þessu er hvað mig varðar. En eins og þetta
hljómar þá er Jepser Nielsen eða fyrirtæki
hans að kaupa félagið mitt og sameina það
sínu. Núverandi samningur minn við FCK
rennur út í vor en áður en ég kom heim um
áramótin gerði ég munnlegt samkomulag þess
efnis að vera áfram hjá félaginu,“ sagði Arnór í
gær en hann hafði ekki fengið neinar upplýs-
ingar frá stjórnendum FCK eða stjórnendum
hins nýja félags um hvort hann væri inni í
myndinni hjá liði hins sameinaða félags.
Eftir því sem fram kemur í samtölum við for-
ráðamenn AG København er tilgangur samein-
ingarinnar sá að búa til sterkasta handknatt-
leikslið Danmerkur. Ekki verður þar við látið
standa gangi hernaðaráætlun Nielsens upp
heldur er ráðgert að AG København verði í hópi
allra bestu félagsliða Evrópu og komist á stall
með Ciudad Real á Spáni og Kiel í Þýskalandi.
Spennandi en breyttar forsendur
„Út frá þessu sjónarhorni er þetta ótrúlega
spennandi tækifæri. Þar af leiðandi er gaman
að verða kannski hluti af þessu nýja liði,“ sagði
Arnór og bætti við. „Í dag eru nokkuð breyttar
forsendur fyrir því samkomulagi sem ég gerði
við forráðamenn FCK fyrir áramótin; nýtt fé-
lag, nýir þjálfarar, nýr heimavöllur og fleira.
Ég þarf að vega hlutina og meta upp á nýtt og
sennilega er best að segja sem minnst á þessari
stundu,“ sagði Arnór og bætti við að hann von-
aðist eftir að forráðamenn FCK hefðu samband
við sig fljótlega til að ræða hvorum megin
hryggjar hann lendi.
Svíinn Magnus Andersson sem þjálfað hefur
FCK um nokkurra ára skeið stýrir ekki hinu
sameinaða liði. Það kemur í hlut núverandi
þjálfara AG Håndbold, Søren Herskind og
Klavs Bruun Jørgensen.
Á heimasíðu FCK segir að öllum leik-
mönnum FCK sem hafi samning við félagið
vegna næsta vetrar verði boðið að leika fyrir hið
nýja félag. Hvort það nær til munnlegra samn-
inga kom ekki fram.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Óvissa Arnór Atlason hefur leikið með FCK undanfarin ár og tryggði liðinu danska bikarmeist-
aratitilinn á dögunum. Hann veit ekki hvert framhaldið verður hvað sig varðar.
„Eins og að
spila með Þór“
Arnór samþykkti munnlega framhaldssamning
við FCK fyrir áramót Óvíst hvort það sam-
komulag heldur gagnvart hinum nýja danska
handboltarisa sem er í fæðingu í Kaupmannahöfn