Morgunblaðið - 08.01.2010, Side 3
a landsliði
kvöld sigur á
um í riðla-
eistaramóts-
ur yfir í Ist-
gði íslenska
g leikur á
gegn Ný-
inn úrslita-
yrstu þrjú
rkið var skor-
i færri, jafnt
markið kom og
strákarnir
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 2010
Valdís ÞóraJónsdóttir
var í fyrrakvöld
kjörinn íþrótta-
maður Akraness
og er þetta þriðja
árið í röð sem
hún hlýtur þann
titil. Valdís Þóra
varð Íslands-
meistari í höggleik í golfi sl. sumar
og er hún fyrsta konan frá Akranesi
sem nær þeim árangri. Þrjár konur
voru í þremur efstu sætunum í kjör-
inu, Inga Elín Cryer, sundkona varð
önnur og Karitas Ólafsdóttir bad-
mintonkona varð þriðja.
Sunneva Einarsdóttir annarmarkvarða handknattleiksliðs
Vals meiddist illa á æfingu á sunnu-
daginn. Hún fór úr ökklalið, sperri-
leggur brotnaði og tvö liðbönd slitn-
uðu. Sunneva leikur ekki meira með
Val á þessu keppnistímabili. Vals-
menn leita nú að markverði til þess
að vera Berglindi Írisi Hansdóttir
aðalmarkverði til halds og trausts.
Þangað til sú leit ber árangur stend-
ur Jóhannes Lange, aðstoðarþjálf-
ari, á milli stanganna í öðru markinu
á æfingum Valsliðsins þegar hópn-
um er skipt upp í tvö lið.
Helena Sverrisdóttir skoraði 5stig í stórsigri TCU gegn Air
Force háskólanum í bandaríska
háskólakörfuboltanum í fyrrinótt.
Lokatölur 72:35. Íslenska landsliðs-
konan hefur oft hitt betur en í leikn-
um, en hún hitti aðeins úr einu af
alls sjö skotum sínum utan af velli.
Helena lék í 25 mínútur af alls 40.
María Ben Er-lingsdóttir
lék vel með
UTPA há-
skólaliðinu í
körfuknattleik í
84:76 sigri liðsins
gegn Texas A&M
Corpus Cristi í
fyrrinótt. María,
sem lék með Keflavík áður en hún
fór í nám til Bandaríkjanna, skoraði
21 stig og tók 2 fráköst.
Danska dagblaðið Jyllands-Posten fullyrðir í gær að
danski landsliðsmarkvörðurinn,
Niklas Landin, sem leikið hefur með
GOG leiki með toppliði Bjerr-
ingbro/Silkeborg þegar keppni
hefst nýjan leik í dönsku úrvals-
deildinni í byrjun næsta mánaðar.
GOG, sem Guðmundur Þórður Guð-
mundsson þjálfar, fékk greiðslu-
stöðvun í byrjun vikunnar.
Rafa Echenique frá Argentínuátti högg ársins 2009 á Evr-
ópumótaröðinni að mati dómnefnd-
ar. Á lokaholunni á lokakeppnisdegi
BMW meistaramótsins í München
sló Echenique boltann ofaní af um
225 metra færi. Hann lék holuna,
sem er par 5, á 2 höggum eða 3
höggum undir pari. Echenique lék
hringinn á 10 höggum undir pari og
blandaði sér í baráttuna um sig-
urinn á mótinu en Echenique lék
síðari 9 holurnar á 27 höggum sem
er sem metjöfnun á Evrópumóta-
röðinni.
BjörgólfurTakefusa,
markakóngur úr
KR, lék æfinga-
leik með þýska
2.deildarliðinu
Ahlen í fyrradag
en hann er þar
til reynslu um
þessar mundir.
Björgólfur lék fyrri hálfleikinn þeg-
ar Ahlen tapaði, 1:3, fyrir 3. deild-
arliðinu Münster. Ahlen er neðst í 2.
deildinni, næstefstu deildinni í
Þýskalandi, og leitar að sóknar-
manni til styrkingar.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
ARON á eitt og hálft ár eftir af
samningi sínum við Coventry sem
hann gekk til liðs við frá hollenska
liðinu AZ Alkmaar. Aron átti afar
góðu gengi að fagna með enska lið-
inu á sinni fyrstu leiktíð. Hann var
fastamaður í liðinu og var eftir
tímabilið útnefndur leikmaður árs-
ins hjá félaginu.
Aron var inntur eftir því hvort
hann sæi fyrir sér að fara frá Cov-
entry núna í janúarglugganum.
Maður veit aldrei hvað gerist
,,Maður veit aldrei hvað gerist.
Ef eitthvað kemur upp þá held ég
að Coventry skoði það. Coventry er
félag sem er byggt upp á ungum
leikmönnum og ef því býðst gott til-
boð í leikmenn þá selur það þá. Ég
væri meira en til í að skoða það ef
eitthvað tilboð kæmi upp á borðið.“
Aron og samherjar hans í Cov-
entry hafa ekki farið varhluta af því
vetrarríki sem ríkjandi er á Bret-
landseyjum þessa dagana. Aron er
þó ekkert að kippa sér upp við það
enda vanur slíku í heimabæ sínum á
Akureyri.
,,Við fengum að æfa á aðalvell-
inum í dag þar sem hann er upphit-
aður en dagana tvo á undan æfðum
við á gervigrasi innanhúss. Það er
alveg skelfilegt fyrir bakið og vont
að skipta yfir af venjulegu grasi yf-
ir á gervigras. Það er meiðslahætta
því fylgjandi en maður verður víst
að sætta sig við þessar aðstæður
útaf veðrinu sem er hérna,“ sagði
Aron.
Mætir Emil og Hermanni
Aron mætir félögum sínum í
landsliðinu í næstu tveimur leikjum.
Á morgun tekur Coventry á móti
Barnsley sem Emil Hallfreðsson
leikur með og á þriðjudaginn er
komið að endurteknum leik Con-
ventry og Portsmouth í bikarnum
en Hermann Hreiðarsson leikur
sem kunnugt er með Portsmouth.
,,Það var skemmtilegt að spila á
móti Portsmouth um daginn. Við
Hemmi voru aðeins að kítast en það
var allt í góðu. Það er allt mögulegt
í bikarnum eins og Leeds sýndi og
sannaði í leiknum á móti Manchest-
er United. Við höfum engu að tapa
og ég tel okkur eiga góða mögu-
leika á að slá Portsmouth út,“ sagði
Aron en Coventry er í 17. sæti í
ensku 1. deildinni. ,,Við höfum verið
að rétta úr kútnum á síðustu vikum.
Við höfum unnið þrjá af síðustu
fjórum leikjum okkar og þetta er á
uppleið hjá okkur.“
Lært mikið á einu og hálfu ári
Aron Einar hefur verið með í
flestum leikjum Coventry á tíma-
bilinu, 20 af 24 leikjum liðsins í 1.
deildinni, og hefur Akureyringurinn
verið fastur fyrir á miðjunni. Hann
hefur byrjað inná í 18 af þessum 20
leikjum.
,,Ég hef spilað mjög vel í síðustu
fimm til sex leikjum. Ég var svolítið
niðri í byrjun tímabilsins. Ég lét
samningaviðræðurnar fara svolítið í
skapið á mér. Ég lærði af því að
hengja ekki haus þótt félagið vilji
ekki gera það sem þú vilt. Ég ákvað
að einbeita mér af fótboltanum og
nú er ég kominn í frábært form. Ég
hef lært mikið á þessu eina og hálfa
ári sem ég hef verið hjá Coventry,“
sagði Aron Einar Gunnarsson.
Morgunblaðið/Eggert
Sterkur Aron Einar Gunnarsson kom til liðs við Coventry sumarið 2008 og hefur verið fastamaður síðan.
Aron Einar Gunnarsson óviss með framtíð sína hjá Coventry Samningar
tókust ekki í haust, veit ekki hvað forráðamennirnir vilja Líður vel í Coventry
,„Það er lítið að gerast í samningamál-
unum. Ég er hins vegar alveg rólegur.
Mér líður vel í Coventry og held bara
áfram að standa mig vel. Það náðust
ekki samningar á milli mín og félagsins
í haust og ég veit ekki hvað forráða-
menn liðsins eru að hugsa, hvort þeir
séu að bíða eftir því að lið komi með
tilboð í mig eða ætli að bjóða mér nýj-
an og bættan samning,“ sagði lands-
liðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson
leikmaður enska 1. deildarliðsins Cov-
entry við Morgunblaðið í gær.
Kominn í frábært form
Í HNOTSKURN
»Aron er tvítugur að aldri ogleikur sem miðjumaður.
Hann kom ungur inní lið Þórs á
Akureyri og lék með því í 1.
deild 2005 og 2006.
»Sumarið 2006 fór hann tilAZ Alkmaar í Hollandi en
fékk þar aðeins tækifæri í ein-
um deildaleik með aðalliðinu.
»Aron fór til Coventry sum-arið 2008 og hefur átt fast
sæti í liðinu í ensku 1. deildinni.
Fljótlega annarri lotu komust Tyrkir
inn í leikinn með tveimur mörkum á stutt-
um tíma, 3:2. Íslenska liðið sneri hins-
vegar leiknum við á einni mínútu með því
að gera þrjú mörk í röð. Staðan var því 6:2
eftir aðra lotu. Í þriðju lotunni tryggði ís-
lenska liðið sigurinn enn frekar með
tveimur mörkum.
Íslenska liðið sótti töluvert meira en
það tyrkneska allan leikinn. Segja má að
um skyldusigur hafi verið að ræða enda
Tyrkir með veikasta liðið í riðlinum.
Orri Blöndal leikmaður íslenska liðsins
var ánægður með að vinna riðilinn og var
spenntur fyrir leiknum á morgun. „Við
vorum frekar lengi í gang og vorum svo-
lítið mikið í refsiboxinu. Við höfðum samt yf-
irhöndina allan leikinn. Á morgun er frí og þá not-
um við tímann til að undirbúa okkur fyrir undan-
úrslitin,“ sagði Orri.
Ólafur Björnsson og Egill Þormóðsson skoruðu
2 mörk hvor og þeir Orri Blöndal, Matthías Máni
Sigurðarson, Gunnar Sigurðsson og Jóhann Leifs-
son eitt hver. Róbert Pálsson átti 3 stoðsendingar,
Tómas Ómarsson 2, Ingólfur Elíasson 2 og þeir
Egill, Jóhann, Óli Gunnarsson, Pétur Maack,
Snorri Sigurbjörnsson og Matthías Skjöldur Sig-
urðsson eina hver.
Sigurvegarinn í leik Íslands og Nýja-Sjálands
mun, auk þess að fara upp um deild, spila á sunnu-
dag um gullverðlaunin við sigurvegarana úr leik
Ástrala og Norður-Kóreu. vs@mbl.is
andi sigur á Tyrkjum í Istanbúl
Góður Egill Þormóðsson skoraði tvö mörk í
gærkvöld og lagði eitt upp.