Morgunblaðið - 12.03.2010, Side 1
FÖSTUDAGUR 12. MARS 2010
íþróttir
Körfubolti Keflavík í annað sætið eftir léttan sigur á slökum Njarðvíkingum. Breiðablik gal-
opnaði fallbaráttuna með því að sigra Hamar. Tindastóll ekki í vandræðum á Selfossi. 4
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Hefnd FH-ingar náðu loksins að svara fyrir sig í nágrannarimmu gegn Haukum eftir að hafa farið halloka gegn
þeim í fyrri viðureignum liðanna í vetur. FH-ingar unnu sannfærandi sigur, 31:25, í Kaplakrika í gærkvöld og hér
er það Ólafur Guðmundsson sem sækir að Haukamarkinu en Einar Örn Jónsson reynir að verjast. »2-3
HINN 42 ára
gamli Bjarki Sig-
urðsson, sem dró
fram skóna í vet-
ur, og leikur með
FH-ingum fylgd-
ist með slag FH
og Hauka í
Kaplakrika í gær
í borgaralegum
klæðum í stúk-
unni. Ástæðan er
sú að hann gekkst undir aðgerð í
vikunni vegna brjóskloss í baki.
Bjarki sagði við Morgunblaðið að
aðgerðin hefði heppnast vel og
hann vonaðist til að geta byrjað að
spila á ný eftir þrjár vikur en
Bjarki hefur á löngum og glæsi-
legum ferli oft meiðst illa og hefur
margoft farið undir hnífinn. Sonur
Bjarka, Örn Ingi, var hins vegar í
fullu fjöri og átti góðan leik þegar
FH lagði Hauka, 31:25.
gummih@mbl.is
Bjarki í aðgerð
vegna brjóskloss
Bjarki
Sigurðsson
BÆÐI Liverpool og Fulham máttu
sætta sig við ósigra í fyrri leikjum
sínum í 16-liða úrslitum Evr-
ópudeildar UEFA í knattspyrnu í
gærkvöld. Bæði þurfa nú að vinna
heimaleikina með tveggja marka
mun.
Liverpool sótti Lille heim til
Frakklands. Eden Hazard skoraði
þar sigurmark franska liðsins,
beint úr aukaspyrnu, þegar sex
mínútur voru til leiksloka, 1:0.
Juventus sigraði Fulham, 3:1, í
Tórínó. vs@mbl.is
Ensku liðin bæði
í erfiðri stöðu
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
GUÐMUNDUR Reynir Gunnarsson, knatt-
spyrnumaður, hefur ákveðið að leika með KR-
ingum í sumar. Guðmundur er á mála hjá sænska
liðinu GAIS en þar hefur hann átt erfitt með að
vinna sér sæti í liðinu og hann hefur náð sam-
komulagi við forráðamenn Gautaborgarliðsins um
að verða lánaður í sumar. KR og GAIS eiga eftir
ganga frá samkomulagi um lánssamninginn en
þau mál verða væntanlega kláruð á næstu dög-
um.
Þegar út spurðist að Guðmundur væri á heim-
leið settu mörg lið úr Pepsi-deildinni sig í sam-
band við leikmanninn og óskuðu eftir að njóta
krafta hans en svo fór að lokum að Guðmundur
ákvað að velja KR.
,,KR er mitt lið og því varð það fyrir valinu.
GAIS og KR eiga að vísu eftir að ganga frá samn-
ingum en ég held að það verði ekkert mál,“ sagði
Guðmundur við Morgunblaðið í gær en hann var
þá nýkominn af æfingu með Vesturbæjarliðinu.
Þurfti að hugsa mig svolítið um
Var þetta erfitt val?
,,Ég þurfti að hugsa mig svolítið um. Ég var
með tilboð frá nokkrum liðum en á endanum
fannst mér ég ekki geta farið annað en í uppeldis-
félagið,“ sagði Guðmundur, sem var í láni hjá
KR-ingum síðari hluta tímabilsins í fyrra og kom
við sögu í átta leikjum liðsins í Pepsi-deildinni en
hann samdi við GAIS haustið 2008. Hann varð 21
árs í janúar, hefur spilað tvo A-landsleiki og á
samtals 49 leiki að baki með KR í efstu deild.
Hann lék fjóra leiki með GAIS í sænsku úrvals-
deildinni fyrri hluta síðasta tímabils.
Guðmundi líst vel á sumarið fyrir hönd KR-
inga, sem á dögunum hömpuðu Reykjavík-
urmeistaratitlinum.
,,KR-liðið lítur mjög vel út og ég hlakka bara til
að berjast fyrir mínu sæti í liðinu. Við munum
mæta í hvern leik í sumar til að vinna og auðvitað
langar menn að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Við
gerum okkar besta til að ná honum,“ sagði Guð-
mundur.
Hann er fjórði ,,útlendingurinn“ sem KR-ingar
fá til liðs við sig. Hinir þrír eru Viktor Bjarki
Arnarsson, sem kom frá norska liðinu Nyberg-
sund, Kjartan Henry Finnbogason kom frá
Sandefjord í Noregi og Guðjón Baldvinsson, sem
er í láni frá GAIS eins og Guðmundur. Þá gekk
markvörðurinn Þórður Ingason til liðs við þá
svart/hvítu frá Fjölni, á lánssamningi.
„Gat ekki farið annað“
Guðmundur Reynir lánaður að nýju frá GAIS til KR Valdi KR eftir tilboð frá
nokkrum félögum Fjórði „útlendingurinn“ sem kemur í Vesturbæinn í vetur
KÁRI Steinn
Karlsson hlaup-
ari úr Breiðabliki
hljóp á dögunum
vel undir Íslands-
meti sínu í 5.000
metra hlaupi inn-
anhúss á móti í
Seattle í Banda-
ríkjunum. Kári
stundar nám við
Berkeley-
skólann í Kaliforníu og keppir fyrir
hönd skólans. Hann varð fimmti í
hlaupinu á 14:03.06 mínútum sem
er jafnframt betri tími en Íslands-
met hans í greininni utanhúss,
14,06.61 mínútur.
Líklega verður afrekið ekki við-
urkennt sem Íslandsmet þar sem
hlaupið fór fram á 308 metra langri
braut en ekki 200 metra eins og
jafnan er miðað við. Tími Kára er
engu að síður mikil persónuleg
bæting því Íslandsmet hans innan-
húss er 14:08,58 mínútur.
Kári er 24 ára gamall og leggur
megináherslu á 5.000 og 10.000
metra hlaup og á Íslandsmetið í
báðum greinum. Hann stefnir á að
komast inn á Ólympíuleikana í
London árið 2012. kris@mbl.is
Kári nálgast 14
mínútna múrinn
Kári Steinn
Karlsson
ÞRÍR Íslend-
ingar taka þátt í
Vetrarkastmóti
Frjálsíþrótta-
sambands Evr-
ópu sem fram fer
í Arles í Frakk-
landi helgina 20.
og 21. mars. Óð-
inn Björn Þor-
steinsson, FH,
tekur þátt í kúlu-
varpi. Ásdís Hjálmsdóttir, Íslands-
methafi í spjótkasti úr Ármanni, er
skráð til leiks í spjótkasti og hin
fjölhæfa Helga Margrét Þorsteins-
dóttir tekur þátt í kúluvarpi og
spjótkasti í unglingaflokki sem ætl-
aður er keppendum undir tvítugu.
Óðinn Björn fer utan ásamt þjálf-
ara sínum, Eggerti Bogasyni, um
helgina en þeir ætla að nýta næstu
viku undir æfingabúðir ytra. Óðni
hefur síðan verið boðið að taka þátt
í kúluvarpskeppni Växjö laugardag-
inn 27. mars og segir Eggert að
stefnan sé sett á þátttöku þar.
Ásdís og Helga Margrét fara til
Frakklands eftir viku en með þeim
í för verður Stefán Jóhannsson,
þjálfari þeirra. Eftir mótið í Frakk-
landi fara þau þrjú til Tenerife þar
sem þau verða við æfingar um 10
daga skeið.
Ásdís setti Íslandsmet á Vetr-
arkastmótinu á síðasta ári þegar
það var haldið á Kanaríeyjum og
rauf 60 metra múrinn í fyrsta skipti
í spjótkasti. Þá tók Bergur Ingi
Pétursson, Íslandsmethafi í
sleggjukasti úr FH, einnig þátt í
mótinu. Hann er meiddur í baki
núna og tekur ekki þátt.
iben@mbl.is
Þrjú á leið
á kastmót
í París
Ásdís
Hjálmsdóttir