Ísfirðingur - 16.01.1975, Síða 2
2
ISFIRÐINGUR
i--------------------------------—-----———
^Mbðinpir
SIAO r£SMSÓKMJ?MANN/> / VESmaRDAKJÓKDtMI
Útgefandi:
Samband Framsóknarfélaganna í Vestfjarðakjördæmi.
Ritstjórar:
Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóliannsson, áb.
Afgreiðslumafiur:
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 3332.
Verð árgangsins kr. 200,00 — Gjalddagi 1. október.
-------- ----------—.—~ -----------—.— -------1
Að liðnu ári
Á liðnu ári reyndi á margan hátt á það stjórnkerfi, sem
við búum við. Sú vinstri stjórn, sem sett var á vetur hafði
ekki þingmeirihluta, og að treysta á ábyrga afstöðu stjórnar-
andstóðunnar reyndist vera það sama og setja á „Guð og
gaddinn”. Svo sterkt er það flokksvald, sem ríkir í sölum
aiþingis. Segja má, að réttur forsætisráðherra til að rjúfa
þing og efna til nýrra kosninga hafi bjargað því, sem bjargað
varð, en þjóðin var búin að glata tíma og vandinn orðinn
stærri, þegar snúist var gegn honum en eðlilegt hefði verið,
ef stjórnkerfi landsins væri sterkara. Persónulega er ég
þeirrar skoðunar, að of vægt hafi verið farið í sakirnar með
beitingu bráðabirgðalaga. Athyglisvert er, að allar athuga-
semdir í garð Olafs Jóhannessonar um misbeitingu valds
eru flognar út í veður og vind, enda aldrei nein alvara á
bak við þær ásakanir. Þær voru aðeins lúalegur áróður i
kosnigahitanum. Það var ekki bara æðsta stjórn landsins,
sem reyndist of veik. Alþýðusamband íslands hafði markað
ákveðna stefnu í kjaramálum, þar sem leiðarljósið var meiri
launajöfnuður. Þeirri stefnu efa ég ekki að meiri hluti þjóð-
arinnar var fylgjandi, en hvað gerðist? Hlutirnir snérust
alveg við. Meiri launamismunur varð niðurstaðan. Aldrei
hefur það komið jafn áþreifanlega í Ijós, að Alþýðusamband
íslands hefur það veika stjórn, að hún veldur ekki því
hlutverki, sem henni er ætlað, þ.e. að ráða heildarstefnunni í
í kjaramálum. Við íslendingar erum neyzlu menn og látum
hverjum degi nægja sína þjáningu. Allt er gott um það að
segja, en friðlaust frelsi, sem stendur í innan-lands deilum
og gerir kjarasamninga, sem fyrst og fremst eru verðbólgu-
samningar, getur ekki tekið ákvörðun um breytta skiptingu
fjármagns milli atvinnurekenda og launþega. Hér er um
ákvörðun atvinnurekenda og launþega að ræða að taka fjár-
magn frá sparifjáreigendum og getur ekki talist stórmannleg.
Þó við þvoum hendur okkar og segjum við gamla fólkið, sem
við erum að verðfella spariféð hjá, að við hækkum ellilífeyr-
inn, er okkar þvottur sá sami og hjá Pílatusi forðum. Hend-
urnar verða hreinar en undan ábyrgðinni sleppum við ekki.
Ól. Þ. Þ.
Sjúkrasamlag Isafjarðar
óskar öllum meðlimum sínum farsældar og
heilbrigðs á nýlega byrjuðu ári.
Vélsmiðja ísafjarðar
Við óskum viðskiptavinum okkar og öðrum
árs og friðar og þökkum samskiptin á liðnu
ári.
Hús-
eigendur -
Hús-
TíliMEL olíufylltir rafmagnsofnar, til hitunar fyrir ibúðir,
sjúkrahús, félagsheimili og hvar annarsstaðar, sem
menn vilja fá þægilegan hita.
Mánaðarlega fáum við stórar sendingar af þessum ágætu rafmagnsofnum. Ef
þið óskið, munu rafmagnsverkstæði aðstoða við útvegun ofnanna frá okkur, eða
þið hringið eða skrifið til okkar og sendum við þá ofnana, strax eftir pöntun,
með skipi, flugi eða bíl.
Ofnarnir eru í þessum stærðum:
Stærð: Lengd: Hæð: Nægir fyrir:
500 W 600 mm. 600 mm. 15 rúmm.
800 W 840 mm. 600 mm. 23 —
1250 W 1440 mm. 600 mm. 36 —
2000 W 1920 mm. 600 mm. 57 —
350 W 600 mm. 300 mm. 10 —
500 W 840 mm. 300 mm. 14 —
800 W 1440 mm. 300 mm. 23 —
1000 W 1800 mm. 300 mm. 28 —
Til þess að reikna út rafmagnsþörf herbergjanna til hitunar, má gera ráð
fyrir 35-40 wöttum á rúmmetra.
Á þeim stöðum, þar sem hitarafmagn er tekið af um máltíðir, verka þessir
ofnar sem hita-jafnarar, því þeir eru það lengi að kólna, að lítið verður vart
við, þó að rafmagnið sé tekið af stuttan tíma.
Hitastillirinn er það nákvæmur, að ekki á að muna nema + eða -s- 1 gráðu,
frá þeim hita, sem beðið er um.
Þeir nota því aðeins það rafmagn sem þarf, - ekkert framyfir það.
Nú getum við talað af íslenskri reynslu - ofnarnir líka alstaðar mjög vel.
Ofnarnir gefa hitann frá sér, nákvæmlega eins og um vatnsmiðstöð væri að
ræða.
Engin rykbrennsla og því ekki sortaflekkir á veggjum.
Við sendum bækling til þeirra sem óska.
Hringið eða skrifið.
KJÖLUR SF.
Keflavík — Símar 92-2121 og 92-2041 — Box 32.
— HAPPDRÆTTISLÁN
Framhald af 1. síðu
saman í einni myndarlegri
áætlun, t.d. vegaáætlun til
fjögurra ára, eins og nú er
gert, en jafnframt innan áætl-
unar til lengri tíma. Komið
hefur fram hjá hæstvirtum
samgönguráðherra, að átak
eins og Norðurvegurinn gæti
tekið 2-3 vegaáætlanir. Vel
mætti draga upp eins konar
ramma að langtímaáætlun,
sem næði t.d. yfir þrjái
venjulegar vegaáætlanir.
Fjáröflun tii Vegasjóðs ætti
að vera óbundin og ráðstafað
Skattframtöl
Tek að mér skattframtöl fyrir einstaklinga
og smærri fyrirtæki. Hafið samband sem fyrst.
Arnar G. Hinriksson, hdl.
Aðalstræti 13,
sími 3214
samkvæmt ákvörðun Alþingis
við gerð vegaáætlunar, bæði
við gerð langtímaáætlunar og
skammtímaáætlunar. Ég er
einnig þeirrar skoðunar, að
áætlanir fyrir einstaka lands-
hluta ættu að falla inn í slíka
almenna heildaráætlun. Ég
hygg, að slíkt væru skynsam-
legri vinnubrögð.
Ég geri mér grein fyrir því,
að erfitt muni reynast að fá
vinnubrögðum breytt þannig
við meðferð þessa máls. Því
sýnist mér réttast að hækka
upphæðina enn, taka Vest-
firðina með sem hluta af
þessu landi okkar og gera ráð
fyrir því að koma þeim í
öruggt samband við vegakerfi
landsins.”