Ísfirðingur


Ísfirðingur - 22.03.1978, Side 2

Ísfirðingur - 22.03.1978, Side 2
2. fSFIRÐINGUR 81AD TRÁMSÓKNA'RMANNA Í VESTFJARÐAKJÖRDÆMI Utgefandi: Kjördœmissamb. Framsóknarmanna i Vestfjarðakjördœmi. Ritstjórar: Halldór Kristjánsson ogjón A. Jóhannsson, áb. Afgreiðslumaður: Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, simi 3332. Verð árgangsins kr. 600. Kjarasamning- arnir — Efna- hagsaðgerðirnar í framsöguræðu sinni á nýlega afstöðnu flokks- þingi Framsóknarmanna ræddi Ólafur Jóhannesson, formaður flokksins, að sjálfsögðu um síðustu efnahagsaðgerðir og kjarasamninga. Hann sagði m. a.: „Ástand í efnahagsmálum er á ýmsan hátt óráðið um þessar mundir. Eins og eðlilegt er hefur lögin um efnahagsráðstafanir sem sett voru í síðasta mánuði borið einna hæst í umræðum að undanförnu. Þar er um að ræða viðkvæm mál eins og kjaramál yfirleitt. Þar hættir mönnum til að láta tilfinningar fremur en röksemdir og rólega yfir- vegun ráða. í lögum felst auðvitað nokkur kjara- skerðing miðað við óbreytta kjarasamninga og sé gengið út frá öruggri atvinnu. Reynt er því að milda hana fyrir þá sem lakast eru settir. Auðvitað er ætíð neyðarúrræði að grípa inn í kjarasamn- inga. Engin ríkisstjórn og enginn þingmeirihluti gerir slíkar ráðstafanir að gamni sínu eða af illfýsi. Mergur málsins er sá að án aðgerða var rekstrar- stöðvun fyrirsjáanleg og þar af leiðandi atvinnu- leysi. Gengislækkun án hliðarráðstafana hefði magnað verðbólguna úr hófi. Að mínu mati stóð valið á milli efnahagsað- gerða annars vegar og rekstrarstöðvunar og at- vinnuleysis hins vegar. Auðvitað geta menn lengi deilt um leiðir og úrræði þegar svo stendur á, en ég held að allar slíkar efnahagsaðgerðir hefðu í einu eða öðru formi orðið að fela í sér kjaraskerð- ingu miðað við að unnt hefði verið að sigla áfram fullum seglum. En miðað við aðstæður og verð- bólguhættu er sennilega um alls enga raunveru- lega kjaraskerðingu að ræða. Þessar staðreyndir þurfa menn að íhuga og meta. Ég hygg að flestir já e.t.v. allir, játi að eitthvað varð að gera. Ríkisstjórnin hefur mest og lengst verið gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi í efnahagsmál- um. Þær raddir hafa verið býsna háværar sem hafa krafizt ákveðinna aðgerða. Þess ættu menn að minnast þegar mál þessi eru íhuguð. Að sjálfsögðu veita ráðstafanirnar rétt til upp- sagnar kaupliða og endurskoðunar. Ég skal engu spá um það á þessu stigi, hver endir verður hér á. Ég held að farsælast verði að fara að öllu með gát í þessum efnum.” SÍMAR 8 31 55 8 33 54 POST BOX 5190 SÍMNEFNI ICE IDNVAL BYGGINGAÞJÓNUSTA BOLHOLTI 4 Tilboð—Samningar—Þjónusta húsbyggjendum að kostnaðarlausu — Megin- markmið Biðjið verslun yðar um vörur frá: Efnagerðinni F L Ó R U Brauðgerð K E A Kjötiðnaðarstöð K E A Smjörlíkisgerð K E A Reykhúsi K E A Efnaverksmiðjunni S J ö F N Kaffibrennslu Akureyrar SENDUM beint til verzlana, gistihúsa og matarfélaga. FLJÓT og ÖRUGG afgreiðsla. VERKSMIÐJUAFGREIÐSLA AKUREYEI — SÍMI: (96)21400 Vélsmiðjan Þór hf. auglýsir: Eigum til nú á lager Torneycroft bátavél 40 hestafla. Mjög hagstætt verð. VÉLSMIÐJAN ÞÓR HF. ÍSAFJÖRÐUR Framhald af 1. sfðu og hér sem kalla á úrlausn á næsta kjörtímabili vafalaust mörg og margvísleg. Sum sem þegar eru fyrirsjáanleg, önnur, sem koma til án þess að gera boð á undan sér. Ég tel að efnahagsmálin, og þá ekki hvað sízt verð- lagsþróunin eða verðbólgan hljóti að verða meginvið- fangsefni Alþingis og ríkis- stjórnar, hver sem hún verð- ur, á næsta kjörtímabili svo og það að tryggja rekstrar- grundvöll atvinnuveganna. Ég held., að á næstunni verði að leggja aðaláherslu á lausn þeirra mála bæði með tímabundnum ráðstöfunum og varanlegri úrræðum, er hafi það markmið að treysta grundvöll atvinnuveganna og tryggja afkomu- og at- vinnuskilyrði allra lands- manna. Eins og ég hef áður gert grein fyrir hafa nokkur byrj- unarskref í þá átt verið stigin af núverandi ríkis- stjórn. Sumum hættir við að gera lítið úr þeim og deila á ríkisstjórnina og stjórnar- flokkana fyrir aðgerðarleysi í þeim efnum. Ég held að það sé ekki réttmætt að líta það of smáum augum, sem gert hefur verið og vafasamt í ljósi staðreynda, að nægur vilji hefði verið fyrir hendi til stærri átaka. En ég fyrir mitt leyti legg á það áherslu eins og ég hef áður gert, að mál þessi verði að taka fastari tökum hér eftir en hingað til. Ég held að til þess ættu að vera skilyrðþþar sem verðbólgan nú er runnin meir af inn- lendri rót en áður. Ég tel nauðsynlegt að stefna að meiri stöðugleika í efna- hagslífinu.” Auglýsið í ísfirðingi

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.