Ísfirðingur


Ísfirðingur - 15.12.1982, Blaðsíða 15

Ísfirðingur - 15.12.1982, Blaðsíða 15
ÍSFIRÐINGUR 15 stjórnina að breyta héraðs- skólalögunum og auka þá ríkisstyrkinn til skólastofn- unar og efla verklegt nám í skólunum. Flutningsmenn tillögunnar voru Jónas Jóns- son og Bjarni Bjarnason. Ar- ið 1939 samþykkti þingið ný lög um héraðsskóla, en frumvarpið var borið fram af Jónasi Jónssyni. Þar segir m.a. að skólarnir skuli veita æskumönnum landsins fjöl- breytta fræðslu á þjóðlegum grundvelli, og miða starfið við að búa nemendur undir athafnalíf við íslensk lífskjör með verklegri kennslu, bók- námi og íþróttum. í lögun- um er rætt um rekstur sum- argistihúsa í skólunum. Kveðið er á um það að stefnt skuli að því að verk- lega námið verði 12 stundir á viku að minnsta kosti. Þá er gert ráð fyrir því að stofn- kostnaður skóla skuli greidd- ur að 3á hlutum úr ríkissjóði. Niðurlagsorð Segja má að á þriðja og fjórða áratug 20. aldar hafi alþýðuskóla- og héraðsskóla- starfið í islenskum sveitum fengið á sig svipmót sér- stakrar félagshreyfingar sem tók til flestra landshluta. Hreyfingin var m.a. reist á hugmyndafræðilegum grundvelli, sem kemur lík- lega einna skýrast fram í Skinfaxagreinum Jónasar Jónssonar á öðrum tug ald- arinnar. Samstarf héraðs- skólanna á fjórða tug aldar- innar varð svo náið að stofn- að var sérstakt Félag héraðs- skólakennara og forsvars- menn skólanna bundust samtökum um útgáfu Við- ars, ársrits íslenskra héraðs- skóla, sem út kom á Akur- eyri og síðar í Reykjavík 1936—1942. Áður höfðu a.m.k. Laugaskóli og Laug- arvatnsskóli gefið út ársrit eða skýrslur sem þá lögðust niður. Segja má að straumar úr þremur áttum haFi einkum stuðlað að uppgangi héraðs- skólanna í fyrstu: 1. Innlend þjóðernishyggja sveitafólks og leit að mót- vægi gegn kaupstaða- skólum og flótta úr sveit- um í kaupstaði skipti hér miklu máli. Hér er í raun um pólitískan tilgang-eða viðleitni að ræða. 2. Hugmyndir Grundtvigs- skólans danska og áhrif norrænna lýðháskóla, einkum danska Askov- skólans, settu sitt mark í ríkum mæli á íslensku skólana, sem hér um ræð- ir. 3. Hefðbundið fræðsluhlul- verk íslenskra presta kom við sögu, enda voru furðu margir af fyrstu skóla- stjórum alþýðu- og hér- aðsskólanna prestlærðir. Hér má minna á að Grundtvig var einnig prestur. Athyglisvert er þó að trúfræðsla fór lítt eða ekki fram í íslensku skólunum. Um tilgang skólanna má vitna til orða Þóris Stein- þórssonar í Viðari 1938. Hann segir: ,,Hitt er aðstandendum hér- aðsskólanna ekki ljúft, að margir nemenda þaðan haldi áfram námi og hverfi úr sveitunum og að störfum annarsstaðar, hvorki þeir sem miður eru til þess fallnir að þeirra dómi né allir hinir sem einhverra sérstakra af- reka er að vænta af. En það er skoðun þeirra að í héraðs- skólunum eigi æskulýður sveitanna að finna sjálfan sig við fjölbreytt störf og nám og það sé einmitt engu síður hlutverk skólanna að fá þá sem einhverja óljósa iöngun hafa til þess að halda menntabrautina, eins og það er nefnt, til þess að hugsa sig vandlega um og athuga hvort þeir geta ekki eins fullnægt þrám sínum og þörfum í starfi heima.“ Af þessu má ljóslega sjá að skólarnir áttu ekki að stuðla að flótta æskufólks úr sveitunum, þvert á móti áttu þeir að gera sveitaæsk- una vel færa um að byggja lltgerðar- og verkunar vörur Höfum fyrirliggjandi fiskumbúðir, veiðarfæri til línu-, neta- og togveiða. Loðnu-, rækju- og síldarflokkunarvélar. Fiskþvottavélar, slægingarvélar, sjálfvirkar bindi- vélar og fjölbreytt úrval tækja og áhalda til fiskverkunar. Erum innflytjendur á salti, striga, hjallaefni o.fi. Leitið nánari upplýsinga. Kynnist viöskiptunum af eigin raun. sveitirnar áfram. Þetta markmið kemur greinilega fram í þeirri áherslu sem lögð var á verklegt nám í skólunum og best sást e.t.v. í smíðadeildinni á Laugum. Um 1940 voru héraðsskól- arnir að þróast í þá átt að verða bóknámsskólar hlið- stæðir gagnfræðaskólunum í kaupstöðunum. Með fræðslulögunum 1946 voru þeir loks að fullu formlega felldir inn í hið íslenska skólakerfi. Þá var ársritið Viðar fyrir skömmu hætt að koma út, enda höfðu miklar breyting- ar átt sér stað í þjóðfélaginu. (Helstu heimildir: Hall- dór Kristjánsson: Sigtryggur Guðlaugsson. Aldarminn- ing. Rvík 1964. — Gunnar M. Magnúss: Saga alþýðu- fræðslunnar á íslandi. Rvík 1939. — Guðmundur Hjaltason: Ævisaga. Rvik 1923. — Magnús Sveinsson: Hvítárbakkaskólinn. Rvík 1974. — Skinfaxi, II. árg., Rvík 1911. — Jónas Jóns- son: Vordagar, 3. bindi Rvík 1939. — Réttur, tíma- rit, III. árg. Rvík 1917. - Ársrit Sögufélags ísfirðinga 1980. — Ársrit Nemenda- sambands Laugaskóla, I.—VI. árg. Akureyri 1926- 31. — Jóhann Hjaltason: Strandasýsla. Árbók Ferða- félags íslands 1952. — Guð- mundur Finnbogason: Al- þingi og menntamálin. Rvík 1947 (Saga Alþingis, V. bindi). —JónasJónsson frá Hriflu: Æfi hans og störf. Rvík 1965. — Viðar, ársrit íslenskra héraðsskóla, I. — III. árg. Akureyri 1936 — 38). Við óskum öllu starfs- fólki okkar á sjó og landi, viðskiptavinum, svo og öllum Vestfirð- ingum, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þökkum viðskiptin á líðandi ári. Fiskvinnslan Bíldudal hf.

x

Ísfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.