Ísfirðingur - 24.01.1989, Síða 7

Ísfirðingur - 24.01.1989, Síða 7
ÍSFIRÐINGUR 7 Fréttapistill frá Súðavík Jólatrésskemmtun var haldin í Félagsheimili Súðavíkur og tókst mjö vel. fengin voru tvö ungmenni frá Bolungarvík til að syngja og spila og þá mættu auðvitað jólasveinar á staðinn ásamt móður sinni, Grýlu. Þau mæðginin gerðu mikla lukku, svo ekki sé meira sagt. Súðvíkingar kvöddu gamla árið með stórgóðu diskóteki, sem Frosti Gunnarsson stjórnaði og segir meðfylgjandi mynd meira en orð fá lýst um fjör á staðnum. Um eitt hundrað manns sóttu diskótekið og telst það mjög góð mæting hér á staðnum. Skemmtunin fór í alla staði hið besta fram og skemmtu menn sér í sátt og samlyndi fram eftir nóttu. Atvinna í Súðavík hefur verið næg á nýja árinu, Bessi ÍS 420 landaði í síðustu viku rúmum 48 tonnum og hélt þegar á veið- ar aftur. Undirbúningur er hafinn á hinu árlega þorrablóti, en kvenfé- lagið IÐJA sér um það að þessu sinni. Áformað er að það verði haldið 28. janúar. Anna Lind. ... og dansinn dunar í Súðavík. Gjafir til björgunarbátsins Kvennadeild SVFÍ á ísafirði af- henti formlega í s.l. viku björg- unarbátnum „Daníel Sig- mundssyni“ tæki að andvirði kr. 700.000. Þetta er bruna- dæla, flotgallar og boðunar- kerfi. Þá gaf smábátafélagið Huginn gúmmíbjörgunarbát af fullkomnustu gerð. Það sem af er vetri hefur „Daníel Sigmundsson“ verið kallaður þrisvar út til leitar. Hann hefur farið í fjóra sjúkra- flutninga auk þess sem hann hefur farið tvisvar með lækni í vitjanir inn í Djúp. Þá hefur báturinn verið fenginn í ýmis- konar önnur viðvik. gs Orðsending til lesenda ísfirðings: Næsta blað kemur út um 20. febrúar. Þeir sem vilja koma efni eða auglýsingum í blaðið vins- amlegast hafi samband við ritstjóra í símum 94-3855 eða 94-4684. Blaðstjórn. Finnstþér tryggingarjMnar floKnarogol osar, dreifðarogdýrar? Vilt þú breyta? SAMVINNU TRYGGINGAR ÚTIBÚIÐ ÍSAFIRÐI Hafnarstræti 14, sími 3555 Opið 9 -12 og 13 - 17. Ferðamálasamtök Vestfjarða Aðalfundur Ferðamálasam- taka Vestfjarða var haldinn hinn 1. desember s.l. í Félags- heimili Patreksfjarðar. Fund- inn sóttu 30 manns, víðs vegar af svæðinu. Framsöguerindi voru flutt á fundinum sem hér segir: Reynir Adólfsson fram- kvæmdastjóri sagði frá Ferða- málasamtökum landshlutanna og ræddi um ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Valtýr Sigur- bjarnarson, forstöðumaður Byggðastofnunar á Akureyri flutti erindi um Byggðastofnun og þátt hennar í ferðamálum. Áslaug Alfreðsdóttir fram- kvæmdastjóri kynnti starf og markmið Upplýsingamiðstöðv- ar ferðamála á íslandi, sem rek- in er af Ferðamálaráði, Reykjavíkurborg og Ferða- málasamtökunum. Guðmund- ur Lárusson framkvæmdastjóri sagði frá útgerð Breiðafjarðar- ferju og lýsti nýrri ferju ásamt mannvirkjum sem henni tengjast. Nýja ferjan mun koma næsta vor og breytist að- staða verulega til bóta með til- komu hennar. Að framsöguerindum loknum urðu fjörugar umræður, en framsögumenn svöruðu fyrir- spurnum. Fráfarandi formaður Snorri Grímsson flutti yfirlit yfir starf- semi Ferðamálasamtakanna frá síðasta aðalfundi og lagði fram rekstraryfirlit fyrir sama tímabil. í stjórn voru kosnir: Pétur Bjarnason ísafirði, formaður. Aðrir í stjórn: Arnór Jónatansson, ísafirði Álfheiður Guðnad., Breiðuvík Áslaug Alfreðsd., ísafirði Jóhannes Ellertss., Reykjavík Ragnar Guðm., Brjánslæk Reinhard Reynis, Reykhólum. Varastjórn: Erla Hafliðadóttir, Patreksfirði Nú nýlega voru send út bréf til ýmissa velunnara ísfirðings, víðs vegar um Vestfirði og þeir beðnir að taka að sér að vera fréttaritarar blaðsins hver á sín- um stað. Þessi málaleitan hefur yfirleitt fengið mjög góðar undirtektir og þegar í þessu blaði eru farin að sjást þess merki. Tilgangurinn er að sjálfsögðu sá, að reyna að afla frétta af Sverrir Hestnes, ísafirði. Endurskoðendur: Jóhann T. Bjarnason, ísafirði Magnús R. Guðm., ísafirði. Helsu verkefni framundan eru kynning á Ferðamálasamtök- unum, efling upplýsingamið- stöðvar, m.a. með starfrækslu útibús á Vestfjörðum og stuðla að bættri aðstöðu til móttöku ferðamanna á Vestfjörðum. Ferðamálasamtök landshlut- anna hafa með sér samtök, sem sameiginlega beita sér fyrir því að koma á stefnu í ferðamál- um, og stuðla að auknu sam- ræmi í ferðaþjónustunni. fleiri hlutum Vestfjarða en Stór-ísafjarðarsvæðinu. í næsta blaði munum við væntan- lega greina nánar frá fréttarit- urum okkar og vonandi fáið þið einnig að sjá efni frá þeim. Þrátt fyrir þetta er rétt að minna á, að blaðið er opinn vettvangur fyrir ykkur til að koma skoðunum ykkar á fram- færi, eða fréttum úr byggðar- lögunum. ísfirðingur færir út kvíarnar > Gömul verslun í nýjum búningí 4C í tilefni 85 ára afmælis verslunarinnar á þessu ári, höfum við fært innréttingar til nútíma- legra tiorfs. Við munum framvegis, eins og undanfarin 85 ár, bjóða upp á fjölbreytt úrval af góðum skófatnaði á hagstæðu verði. Verið velkomin í rótgróna verslun í nýjum búningi. Stofnuð 1904, ************************************************************. jSkóvarzlun Lðós ************************************************************** Hafnarstræti 5, ísafirði, sími 3011.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.