Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 3
Í mars á þessu ári eru 20 ár liðin frá því VALITOR (VISA Ísland) braut blað
í íslenskum viðskiptaháttum með því að kynna posa til sögunnar og greiða
þannig leið fyrir rafrænum kortaviðskiptum
Forysta og reynsla VALITOR
í posaþjónustu síðastliðin tuttugu ár skapar
félaginu traustan grunn og sem fyrr mun
VALITOR kappkosta að veita
viðskiptavinum sinum öruggar lausnir
og faglega þjónustu.
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • Sími 525 2080 • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
E
F
L
IR
Á þeim tíma voru ávísanir og peningar vinsælasti greiðslumátinn, en söluaðilar höfðu
jafnframt vanist því að notast við þrykkivélar í kortaviðskiptum, handskrifa sölunótur og
hringja eftir heimildarnúmerum ef úttektir fóru fram yfir viðmiðunarmörk. Kostir þessara
breyttu viðskiptahátta urðu söluaðilum fljótt ljósir ekki síst hvað vinnu- og tímasparnað
snerti og á skömmum tíma varð þetta greiðslufyrirkomulag ríkjandi á Íslandi.
Framundan eru tímamót í rafrænni greiðslumiðlun á Íslandi. Ný tækni Kort og PIN mun
á næstunni leysa af hólmi lestur segulranda og undirskriftir korthafa við staðfestingu á
greiðslum í kortaviðskiptum. VALITOR hefur þegar hafið dreifingu á posum sem nýta þessa
tækni en hún mun auka enn frekar öryggi í kortaviðskiptum öllum til hagsbóta.