Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.03.2010, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MARS 2010 6 Fréttir • Gefur þér aukna orku og vellíðan • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Hefur góð áhrif gegn streitu • Er slakandi og bætir svefn Opið virka daga frá kl. 9 -18 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verð frá 9.750 kr. Nálastungudýnan Eftir Þórð Gunnarsson thg@mbl.is NÝHERJI skilaði af sér ársskýrslu fyrir ár- ið 2009 á aðalfundi fyrir skömmu, en ljóst er að fyrirtækið hefur ekki farið varhluta af þeim samdrætti sem hefur átt sér stað í ís- lensku efnahagslífi. Forstjórinn Þórður Sverrisson segir að mikil hagræðing hafi átt sér stað hjá fyrirtækinu og að erlend verk- efnastaða sé mikið að styrkjast. Lækka launakostnað um 800 milljónir Árið 2009 var ár sviptinga í efnahagslífinu, segir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja. Hann segir sitt fyrirtæki ekki hafa verið undanskilið: „Við höfum þurft að gera mikl- ar breytingar hér heima sem og erlendis. Hjá okkur starfa í dag um 600 manns, þar af eru 430 á Íslandi. Starfsfólki okkar hér heima hefur því fækkað um á annað hundr- að manns frá „hruni“,“ segir Þórður. Hann bendir á að krónutala launa og launatengdra gjalda haldist óbreytt í ársreikningnum, sökum þess að starfsmenn erlendra dótt- urfyrirtækja fái greitt í erlendri mynt. „Við höfum þó náð að lækka launakostnaðinn hér heima um nær 800 milljónir,“ segir Þórður. Heimild til 40% hlutafjáraukningar Á aðalfundi Nýherja 19. febrúar síðastliðinn fékk stjórn félagsins samþykki þess efnis að auka megi hlutafé félagsins um allt að 120 milljónir að nafnvirði. Þar er um að ræða ríflega 40% hlutafjáraukningu. Þórður segir stjórn félagsins nú vinna að fyrsta hluta slíkrar hlutafjáraukningar, en heimild stjórnar sé til þriggja ára. „Fjárhagsskipan fyrirtækisins verður eðlilegri að hlutafjár- aukningunni lokinni. Við erum í stórum verkefnum erlendis og því mikilvægt að fjárhagsstaðan sé sterk,“ segir forstjórinn. Aukin áhersla á erlend verkefni Þórður segir erlenda verkefnastöðu Nýherja og dótturfyrirtækja hafa batnað mjög á und- anförnum mánuðum. „Til að mynda var um þriðjungur verkefna TM Software fenginn að utan. Þá kom tæplega helmingur þjón- ustutekna Applicon ehf. að utan síðustu sex mánuði ársins í fyrra. Fram að gengishruni var afar lítill hluti verkefna fyrirtækisins fenginn frá erlendum viðskiptavinum,“ segir hann. Þórður segir að áhersla Nýherja í dag sé að auka umsvifin erlendis frekar: „Dótt- urfyrirtæki okkar í Danmörku, Applicon, var til að mynda að gera stóran samning við DSB, aðaljárnbrautarfyrirtæki Dana, um uppsetningu stórra fjárhagskerfa. Við erum einnig að vinna í fleiri stórum samningum erlendis,“ segir Þórður, sem vill þó ekki upplýsa hvaða samninga um ræðir. „Stóru verkefnin okkar erlendis eru hjá okkar fyrirtækjum úti, eins og Applicon í Danmörku og Svíþjóð og Dansupport í Dan- mörku. Gjaldeyrishöftin hafa í sjálfu sér ekki áhrif á þá starfsemi. Hins vegar geta þau haft áhrif á erlenda fjárfestingu. Inn- flutningur tæknibúnaðar til Íslands er auð- vitað stór hluti starfsemi Nýherja hér heima. Tekjur vegna seldra vara hér heima í ár eru sama krónutala og í fyrra, þótt verð- lagningin haldist auðvitað í hendur við gengi krónunnar. Þróunin er þó nærri því sem við áttum von á samkvæmt okkar áætlunum,“ segir Þórður. Aðstæður íslenskra fyrirtækja eru að sögn Þórðar feikilega erfiðar um þessar mundir og of lítið hafi breyst til batnaðar á því hálfa öðru ári sem er frá hruni fjár- málakerfisins. „Það er margt sem þarf að laga, án þess að ég vilji sérstaklega telja upp einstök atriði. Kannski liggur beinna við að spyrja sig hvað hafi raunverulega verið gert til að bæta umhverfið varanlega. Að nokkru leyti hafa menn troðið marvað- ann við það verkefni.“ Þórður segir að veita þurfi auknu fjár- magni inn í hagkerfið svo hjól atvinnulífs- ins geti snúist á ný. Annars vegar þurfi að opna meira fyrir erlenda fjárfestingu, en einnig sé brýnt að Seðlabanki Íslands lækki sína stýrivexti. „Þannig losnar um allt það fjármagn sem liggur verkefnalaust í bankakerfinu og það mun þá leita inn í at- vinnulífið. Við verðum að halda áfram að stunda hér viðskipti eins og í öðrum vest- rænum markaðshagkerfum.“ Hann bætir við að á Íslandi hafi átt sér stað nánast fordæmalausir atburðir: „Það er auðvitað hægt að tína til ýmsa hluti og gerast götudómari um þá atburði og ábyrgð á þeim, en það er ekki til neins því þau mál munu skýrast í framtíðinni. Ég tel að áhrif samdráttarins í hagkerfinu séu ekki komin fram að fullu. Einnig er erfitt að segja til um hver áhrif þess verða að svo stór hluti fyrirtækja í landinu er kominn í eigu lánardrottna og kröfuhafa. Það eru í raun fáir farnir að velta fyrir sér hvaða áhrif slík tilhögun hefur áhrif á atvinnulífið í heild til langs tíma,“ segir hann. Eiga ekki að halda lengi á fyrirtækjum „Það að svona stór hluti fyrirtækjanna skuli vera í eigu kröfuhafa og banka er óeðlilegt. Slíkt fyrirkomulag samræmist ekki því vestræna markaðshagkerfi sem við viljum reka hér á Íslandi. Erlendis eiga bankar ekki fyrirtæki, það er reglan. Kröfuhafar selja fyrirtæki ef þau lenda í höndunum á þeim. Þetta er vandasöm staða hjá kröfuhöfum á Íslandi og við eig- um eftir að sjá á næstu mánuðum hvernig mun ganga hjá bönkunum og öðrum kröfu- höfum að koma þessum fyrirtækjum far- sællega aftur í hendur fjárfesta,“ segir hann. Virkur hlutabréfamarkaður mikilvægur Þórður nefnir að mikilvægt sé að hluta- bréfamarkaður nái aftur tiltrú almennings og fjárfesta. Mikilvægt sé að fyrirtæki sjái sér hag í að skrá hlutafé sitt á markað. „Virkur hlutabréfamarkaður er mikilvægur hluti þess hagkerfis sem við viljum búa við. Þess vegna er það ásetningur okkar í Ný- herja að vera áfram í Kauphöllinni, og við vonum að hún muni ná fyrri styrk að nýju.“ Forstjórinn áréttar að mikilvægt sé að vandað sé til verka þegar ný fyrirtæki eru skráð í Kauphöllina, „Það verður að takast vel til. Mikilvægt er að fyrirtæki í góðum rekstri komi á ný í Kauphöllina og vandað verði til verka við val á fyrirtækjum og skráningu þeirra til að traust almennings á Kauphöllinni verði endurreist,“ segir Þórð- ur að endingu. Áhrif samdráttar hagkerfisins ekki komin fram að fullu  Forstjóri Nýherja segir að rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja sé feikilega erfitt um þessar mundir  Erlend verkefnastaða Nýherja hefur batnað mjög og fyrirtækið stefnir á aukna starfsemi erlendis í gegnum erlend dótturfélög  Afleiðingar þess að stór hluti atvinnulífsins er í höndum banka og kröfuhafa eru ekki komnar fram að fullu  Mikilvægt er að vandað sé til verks þegar fyrirtæki eru skráð á markað Morgunblaðið/Golli Þórður Sverrisson „Ég tel að áhrif samdráttarins í hagkerfinu séu ekki komin fram að fullu. Einnig er erfitt að segja til um hver áhrif þess verða að svo stór hluti fyrirtækja í landinu sé kominn í eigu lánardrottna og kröfuhafa. Það er í raun fáir farnir að velta fyrir sér hvaða áhrif slík tilhögun hefur áhrif á atvinnulífið í heild til langs tíma.“ SAMKEPPNI meðal lággjaldaflugfélaga sem fljúga yfir Atlantshafið kemur til með aukast í sumar. The Wall Street Journal segir frá því að lággjaldaflug- félagið Sun County Airlines hyggist fljúga einu sinni í viku frá Minneapolis til Stansted-flugvallar í London í sumar. Millilent verður í Gander í Nýfundnalandi á leiðinni og verður flugtíminn níu tímar. Samkvæmt frétt Wall Street Journal mun farseðillinn aðra leið- ina kosta 416 Bandaríkjadali eða ríflega 50 þúsund krónur. Fram kemur í fréttinni að Icelandair sé eina flug- félagið sem bjóði lægri fargjöld en gengur og gerist á flugleiðinni yfir Atlantshafið en sem kunnugt er þurfa farþegar að millilenda í Keflavík. Sun County Airlines muni fljúga á milli Minneapolis og London frá júní til ágúst í sumar. Fór í greiðslustöðvun í kjölfar fjársvika eiganda Sun County Airlines fór í greiðslustöðvun í október árið 2008 í kjölfar þess að stærsti hluthafinn, Tom Petters, var handtekinn fyrir fjársvik. Hann var síðar fundinn sekur fyrir dómstólum. Fram kemur í um- fjöllun blaðsins að endurskipulagning rekstrar flug- félagins frá því að greiðslustöðvunin tók gildi hafi gengið vel og var hagnaður af rekstri þess í fyrra. ornarnar@mbl.is Keppa við Icelandair  Bandaríska lággjaldaflugfélagið Sun County Airlines flýgur frá Minneapolis til Stansted-flugvallar í London í sumar  Millilent í Gander á Nýfundnalandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.