Morgunblaðið - 20.03.2010, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.03.2010, Qupperneq 1
JAKOB Jóhann Sveinsson úr Ægi náði frábær- um tíma í 100 metra bringusundi á Íslands- mótinu í 50 metra laug í Laugardalnum í gær. Jakob synti á 1:01,84 mínútum og var nálægt Ís- landsmeti sínu í greininni. Tími Jakobs er þriðji besti tíminn í þessari grein á árinu í Evrópu og sá fimmti besti í heiminum. Þessi árangur trygg- ir Jakobi keppnisrétt á Evrópumótinu í 50 metra laug. Bryndís Rún Hansen úr Óðni setti eina Ís- landsmet gærdagsins þegar hún synti 50 metra flugsund á 27,65 sekúndum og bætti þar eigið met um fjórðung úr sekúndu. kris@mbl.is Jakob náði fimmta besta tíma ársins Ljósmynd/Ernir LAUGARDAGUR 20. MARS 2010 íþróttir Upprisa Óvænt upprisa ólíkindatóls. Bode Miller fullkomnaði verðlaunasafnið í Vancouver. Sérstakur persónuleiki og gífurlega umdeildur. Stundaði djammið á ÓL í Tórínó 4 Íþróttir mbl.is RÍKJANDI meistarar í Barcelona mæta Arsenal í átta liða úrslitum Meistaradeild- arinnar. Þessi sömu lið áttust við í úrslitaleik árið 2006 þar sem Barcelona hafði betur, 2:1. Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal er þó hvergi banginn en hann metur möguleika liðanna til jafns. ,,Ég tel að við séum ekki sigurstranglegri en mín skoðun er sú að okkar möguleikar séu til jafns á við Barcelona og þannig nálgumst við verkefnið. Barcelona er vitaskuld með mjög gott lið en það höfum við líka. Þetta verða spennandi við- ureignir,“ sagði Arsene Wenger. Kollegi hans hjá Manchester United, Sir Alex Ferguson, er einnig bjartsýnn en United dróst gegn þýska stórliðinu Bayern München. „Sagan í leikjum á móti Bayern München í Evrópukeppn- inni segir manni að þetta verða erfiðir leikir fyrir okkur og and- rúmsloftið verður magnað,“ sagði Ferguson en United sigraði Bay- ern í sögulegum úrslitaleik árið 1999. kris@mbl.is. Wenger óttast ekki Barcelona Arsene Wenger HELGA Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr Ármanni, fer ekki til Frakk- lands til þess að keppa á vetr- arkastmóti Frjálsíþrótta- sambands Evr- ópu eins og til stóð. Helga tognaði á liðbandi við hæl í keppni á sænska meistaramótinu í fjölþraut fyrir tveimur vikum og vildi hún ekki taka neina áhættu með því að keppa í Frakklandi. Meiðslin eru ekki alvarleg hjá Helgu og á þriðjudag mun hún halda til Tenerife á Kanaríeyjum í æfingabúðir í 10 daga. Tveir íslenskir keppendur taka þátt í vetrarkastmótinu sem fram fer í París. Óðinn Björn Þor- steinsson úr FH keppir í kúluvarpi og Ásdís Hjálmsdóttir úr Ármanni keppir í spjótkasti. Ásdís setti Ís- landsmet á vetrarkastmótinu á síð- asta ári þegar það var haldið á Kan- aríeyjum og rauf 60 metra múrinn í fyrsta skipti í spjótkasti. Þá tók Bergur Ingi Pétursson, Íslands- methafi í sleggjukasti úr FH, einnig þátt í mótinu. Hann er meiddur í baki núna og er ekki með. seth@mbl.is Helga keppir ekki í París Helga Margrét Þorsteinsdóttir Meistaradeild Evrópu 8 LIÐA ÚRSLIT Lyon - Bordeaux Bayern München - Manchester United Arsenal - Barcelona Inter - CSKA Moskva Fyrri leikirnir í átta liða úrslitunum verða leiknir 30. og 31. mars en síðari leikirnir 7. og 8. apríl. Undanúrslitin: B.München/Man Utd - Lyon/Bordeaux Inter/CSKA Moskva/ - Arsenal/Barcleona Undanúrslitin verða 20. og 21. apríl og 27. og 28. apríl. Úrslitaleikurinn fer fram í Madríd 22. maí. Evrópudeild UEFA 8 LIÐA ÚRSLIT Fulham - Wolfsburg Hamburg - Standard Liege Valencia - Atletico Madrid Benfica - Liverpool Fyrri leikirnir í átta liða úrslitunum verða leiknir 1. apríl en síðari leikirnir 8. apríl. Undanúrslitin: Hamburg/Standard - Fulham/Wolfsburg Valencia/Atl.Madrid - Benfica/Liverpool Undanúrslitin verða 22. apríl og 29. apríl. Úrslitaleikurinn fer fram í Hamborg 12. maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.