Morgunblaðið - 20.03.2010, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2010
Íslenska landsliðið í íshokkí, skipaðleikmönnum 18 ára og yngri, tap-
aði í dag gegn Rúmeníu 7:3 í A-riðli
2. deildar heimsmeistaramótsins
sem fram fer í Eistlandi. Ísland hef-
ur þar með lokið keppni en liðið vann
einn leik og tapaði fjórum. Tómas
Ómarsson kom Íslendingum yfir á 6.
mínútu í 1. leikhluta. Rúmenar jöfn-
uðu þegar 11.33 mínútur voru liðnar
af leiknum og þeir komust yfir 20
sekúndum síðar. Jóhann Leifsson
jafnaði metin fyrir Ísland á 25. mín-
útu í 2. leikhluta en Rúmenar skor-
uðu tvö mörk í röð á 36. og 38. mín-
útu og komust í 4:2. Björn
Sigurðarson minnkaði muninn fyrir
Ísland í upphafi 3. leikhluta en Rúm-
enar skoruðu þrjú næstu mörk á 46.,
52., og 56. mínútu og tryggðu sér 7:3
sigur.
Júlíus Jón-asson lands-
liðsþjálfari
kvenna í hand-
knattleik valdi
tvo nýliða fyrir
tvo leiki sem fram
fara í und-
ankeppni Evr-
ópumótsins í lok
mars og byrjun apríl. Arna Erlings-
dóttir úr KA/Þór og Rebekka
Skúladóttir úr Val voru valdar í 16
manna hópinn en næstu tveir leikir
eru gegn Bretum. Sá fyrri fer fram í
London 31. mars, og síðari leikurinn
fer fram í Laugardalshöll 3. apríl. Ís-
land er þar í riðli ásamt Austurríki,
Frakklandi og Bretlandi. Leikið er
heima og að heiman og komast tvö
efstu liðin áfram úr riðlinum.
Markverðir: Berglind Íris Hans-
dóttir, (Valur), Íris Björk Sím-
onardóttir (Fram). Aðrir leikmenn:
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir (Val-
ur), Arna Erlingsdóttir (KA/Þór),
Arna Sif Pálsdóttir (Horsens HK),
Ásta Birna Gunnarsdóttir (Fram),
Elísabet Gunnardóttir (Stjarnan),
Hanna G. Stefánsdóttir (Haukar),
Harpa Sif Eyjólfsdóttir (Stjarnan),
Hrafnhildur Skúladóttir (Valur),
Karen Knútsdóttir (Fram), Rakel
Dögg Bragadóttir (Levanger), Re-
bekka Rut Skúladóttir (Valur), Rut
Jónsdóttir (Team Tvis Holstebro),
Stella Sigurðardóttir (Fram),
Sunna Jónsdóttir (Fylkir).
Allar líkur eruá því að mið-
herjinn Zydrunas
Ilgauskas gangi
á ný í raðir NBA
liðsins Cleveland
Cavaliers. Ilgaus-
kas, sem er 34
ára, var sendur til
Washington Wiz-
ards í leikmannaskiptum í febrúar
er í viðræðum við forráðamenn
Cleveland þess efnis að semja á ný
við félagið sem hann hefur ávallt
leikið með.
Tinna Jó-hannsdóttir
úr Golfklúbbnum
Keili hafnaði í 11.
sæti á
Dr. Donnis
Thompson In-
vitational mótinu
sem fór fram á
Hawai í vikunni.
Mótið var hluti af bandaríska há-
skólagolfinu þar sem Tinna keppir
fyrir San Francisco háskólann.
Tinna lék 54 holur á 228 höggum og
endaði á 12 höggum yfir pari vallar.
Tinna byrjaði frábærlega í mótinu
og varð í 2. sæti eftir fyrsta hring
sem hún lék á pari en eftir það hall-
aði undan fæti hjá henni.Vefsíðan
kylfingur.is greindi frá.
Stefán Már Stefánsson úr GRhafnaði í 18. sæti á Polaris
World Conando mótinu á Spáni sem
lauk á fimmtudag. Stefán lék hring-
ina þrjá á samtals á fjórtán yfir pari.
Fólk sport@mbl.is
s sitt skína
tvangur fyrir menn til að láta ljós sitt
eikmenn okkar eru ekki með. Nú fá
i, fyrst þennan við Færeyinga og síð-
u viku. Þetta er það sem ég vil, það er
aðeins þannig getum orðið betri og
par landsliðið hverju sinni,“ segir
að skipta leiknum mikið milli leik-
ki vera ljóst. „Það er erfitt að segja til
eftir því hvernig leikurinn þróast
.
u skýr og þau eru að vinna leikinn,“
landsliðsþjálfari í kanttspyrnu karla.
KNATTSPYRNUMAÐURINN
Hannes Þ. Sigurðsson, sem er á mála
hjá sænska 1. deildarliðinu Sundsvall,
er á förum frá félaginu. Hannes á eitt
ár eftir af samningi sínum við Sunds-
vall. Viðræður um nýjan samning hafa
staðið yfir í nokkurn tíma en þær hafa
nú siglt í strand og líklegt er að hann
verði seldur þegar opnað verður fyrir
félagaskipti í sumar.
,,Nú er það orðið ljóst að ég skrifa
ekki undir nýjan samning og það er
reyndar búið að stefna í þetta í nokk-
urn tíma. Nú er bara spurning hvort
ég fari þegar glugginn opnast í sumar
eða hvort ég klári tímabilið og fari þá
án greiðslu eftir tímabilið,“ sagði
Hannes í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hannes kom til Sundsvall frá
norska liðinu Viking fyrir tímabilið
2008 og gerði þriggja ára samning við
sænska liðið. Hann var markahæsti
leikmaður liðsins á síðustu leiktíð,
skoraði 10 mörk í 22 leikjum.
,,Ég hefði kosið að fara frá félaginu
í janúarglugganum en það gekk ekki
eftir. Sundsvall hefur verið með allt of
háan verðmiða á mér. Það hefur haft
tækifæri til að lækka verðið en hefur
ekki gert það. Ef félagið ætlar sér að
fá eitthvað fyrir mig þá hljóta þeir
menn sem stjórna félaginu að lækka
verðið. Umboðsmaður minn hefur
sagt mér að það sé áhugi til staðar hjá
öðrum liðum og nú er bara að finna
rétta liðið,“ sagði Hannes en að hans
sögn vill Sundsvall fá 3-4 milljónir
sænskra króna fyrir hann sem jafn-
gildir 55-70 milljónum íslenskra
króna.
Peter Larsson yfirmaður knatt-
spyrnumála hjá Sundsvall segir í
sænska blaðinu Sundsvall Tidning að
Hannes sé dýrasti leikmaðurinn í
sögu félagsins en hann segir að félagið
hafi greitt nálægt 7 milljónum króna
fyrir Íslendinginn sem jafngildir 125
milljónum íslenskra króna.
Spurður hvort til greina komi að
koma heim til Íslands í sumar og spila
í Pepsi-deildinni sagði Hannes; ,,Ég
útiloka ekkert . Ég hef hins vegar
mestan áhuga á að reyna fyrir mér á
meginlandi Evrópu en maður veit
ekki hvað tekur við,“ sagði Hannes.
gummih@mbl.is
Hannes Sigurðsson á förum frá Sundsvall
VIGNIR Svavarsson landsliðsmaður í handknattleik hefur
gert tveggja ára samning við þýska 1. deildarliðið Hann-
over-Burgdorf. Aron Kristjánsson var nýlega ráðinn þjálf-
ari liðsins en Vignir lék undir hans stjórn hjá danska liðinu
Skjern á sínum tíma. Með Hannover-Burgdorf leikur
Hannes Jón Jónsson og þá gengur Heiðmar Felixson til liðs
við félagið í sumar frá Lübbecke eins og Morgunblaðið
greindi frá á fimmtudaginn.
Vignir færir sig um set í Þýskalandi en hann hefur verið í
tvö ár hjá Lemgo. „Þetta er í höfn og bara formsatriði að
klára málið. Það voru prentvillur í samningnum sem ég
skrifaði undir og ég þarf því að skrifa aftur undir, “ sagði
Vignir þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í gær.
Hann sagði ráðningu Arons hafa skipt máli í ákvarðanatök-
unni. „Eftir EM fór ég að velta fyrir mér hvaða möguleikar
væru í stöðunni. Mig langar að prófa að búa í einhverri borg
eftir að hafa búið í litlum bæjum bæði í
Danmörku og Þýskalandi síðustu fimm
árin. Það voru nokkur lið sem komu til
greina og Burgdorf var eitt þeirra. Ég
þekki Aron mjög vel bæði sem þjálfara
og persónu og veit fyrir hvað hann stend-
ur. Það var því mjög freistandi að fara
þangað og skemmtilegt að hafa nokkra
Íslendinga á svæðinu,“ sagði Vignir.
Samningur hans við Lemgo rennur út í
vor og ekki var áhugi fyrir því að fram-
lengja hann, hvorki af hálfu Lemgo né
Vignis. „Það má segja að þessi tvö ár í Lemgo hafi verið
vonbrigði, bæði innan vallar sem utan. Ég taldi mig vera að
fara til toppfélags í handboltanum en reynsla mín af þessu
félagi er bara ekkert sérstök.“ kris@mbl.is
Árin tvö hjá Lemgo voru Vigni vonbrigði
Vignir Svavarsson
Eftir Guðmund Karl
sport@mbl.is
„PLANIÐ var að koma hingað og
stela þessum leik og það gekk sem bet-
ur fer upp en þetta var rosalega erf-
iður leikur,“ sagði Jón Halldór. Leik-
urinn var jafn en Keflavík var skrefinu
á undan lengst af leiknum. Hamar náði
að knýja fram framlengingu en Koren
Schram jafnaði, 88:88, þegar 17 sek-
úndur voru eftir á klukkunni.
Í framlengingunni náði Hamar for-
ystunni og leiddi með einu stigi þegar
10 sekúndur voru eftir. Kirsti Smith
tók þá til sinna ráða og setti niður
glæsilegan þrist langt fyrir utan teig
þegar 4,9 sekúndur voru eftir á klukk-
unni. Hamar óð fram í sókn en skot
Koren Schram missti marks og Kefl-
víkingar fögnuðu ógurlega.
Birna Valgarðsdóttir var mikilvæg-
asti hlekkurinn í sóknarleik Keflvík-
inga og hún lék mjög vel ásamt Kirsti
Smith. Pálína Gunnlaugsdóttir setti
niður margar mikilvægar körfur og
Bryndís Guðmundsdóttir sömuleiðis
en hún tók af skarið og skoraði síðustu
fjögur stig Keflavíkur í venjulegum
leiktíma.
Hjá Hamri var Julia Demirer allt í
öllu og þó Keflvíkingar hafi ekki fund-
ið neina leið til að stöðva hana verða
fleiri leikmenn Hamars að taka af
skarið í sókninni. Demirer skoraði 10
af 12 stigum Hamars í framlenging-
unni og lék frábærlega með fjórar vill-
ur á bakinu. Hvergerðingar hittu mjög
illa í leiknum og settu einungis niður
fimm þriggja stiga skot úr 25 til-
raunum.
„Varnarleikurinn var ekki nógu
góður hjá okkur, þær fá mikið af opn-
um skotum sem þær nýttu vel. Á með-
an vorum við að misnota galopin skot
fyrir utan. Við erum með betri skot-
menn en þetta, við þurfum bara að ná
fókus og setja opnu skotin okkar nið-
ur. Ef við ætlum okkur að gera eitt-
hvað í þessu einvígi þá þurfum við að
vinna næsta leik. Við tökum bara eitt
skref í einu en það er á hreinu að við
teljum okkur geta hampað þeim
stóra,“ sagði Ágúst Björgvinsson,
þjálfari Hamars í leikslok. Keflavík er
nú 2:1 yfir og getur tryggt sér sigur í
rimmunni á heimavelli.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Stáltaugar Kristi Smith skoraði sigurkörfu Keflavíkur í gær. Hér er hún í
baráttunni gegn Koren Schram, leikmanni Hamars.
Smith skoraði sigurkörfu Keflavíkur
„Jesús minn! Þetta var svakalegt. Ég
held að hjartað þoli ekki mikið meira
en þetta,“ sagði Jón Halldór Eðvalds-
son, þjálfari Keflavíkur, ylvolgur eftir
æsispennandi þriðja leik Keflavíkur og
Hamars í Hveragerði í gærkvöldi. Kristi
Smith tryggði Keflavík sigurinn í fram-
lengingu með risastórum þristi utan af
velli.
„Hjartað þolir
ekki mikið
meira en þetta“
Hamar – Keflavík 101:103
Hveragerði, úrvalsdeild kvenna, Iceland Ex-
press deildin, undanúrslit, þriðji leikur föstu-
daginn 19. mars 2010.
Gangur leiksins: 0:6, 12:8, 18:17, 23:22, 25:33,
31:38, 39:45, 45:52, 55:55, 61:63, 66:71, 72:73,
74:80, 88:88, 95:92, 99:97, 101:103.
Stig Hamars: Julia Demirer 39, Koren
Schram 14, Kristrún Sigurjónsdóttir 13,
Fanney Guðmundsdóttir 12, Sigrún
Ámundadóttir 10, Hafrún Hálfdánardóttir 6,
Íris Ásgeirsdóttir 4, Guðbjörg Sverrisdóttir
3.
Fráköst: 24 í vörn – 18 í sókn.
Stig Keflavíkur: Kristi Smith 26, Birna Val-
garðsdóttir 25, Pálína Gunnlaugsdóttir 14,
Bryndís Guðmundsdóttir 12, Marín Rós
Karlsdóttir 11, Rannveig Randversdóttir 8,
Svava Stefánsdóttir 4, Hrönn Þorgrímsdóttir
3.
Fráköst: 22 í vörn – 13 í sókn.
Villur: Hamar 21 – Keflavík 23.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Eggert Þór Aðalsteinsson, slakir.
Áhorfendur: 122.