Morgunblaðið - 20.03.2010, Side 4
Í HNOTSKURN
»Bode Miller er fæddur 12.október árið 1977 í Easton
í New Hampshire í
Bandaríkjunum.
»Hann hefur unniðtil 5 einstaklings-
verðlauna á Ólymp-
íuleikum og á
heimsmeist-
aramótum hefur
hann einnig unn-
ið til 5 verðlauna,
þar af eru fjórir
gullverðlauna-
peningar.
Bode Miller fullkomnaði verð-
launasafnið í Vancouver Sig-
ursælasti skíðaíþróttmaður
Bandaríkjanna Sérstakur per-
sónuleiki og gífurlega umdeildur
Stundaði djammið á Ól-
ympíuleikunum í Tórínó
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MARS 2010
ALLS hefur Miller nú unnið fimm ól-
ympíuverðlaun en hann skaust fram á
sjónvarsviðið með látum tímabilið
2001-2002. Bandaríkjamenn héldu þá
leikana á heimavelli í Salt Lake City.
Miller vann þar til tvennra silf-
urverðlauna og hafði fyrr á tíma-
bilinu unnið tvo sigra í heimsbik-
arnum. Síðan þá hefur Miller nánast
unnið allt sem hægt er að vinna. Auk
fyrrnefndra ólympíuverðlauna hefur
Miller unnið til fimm verðlauna á
heimsmeistaramótum, þar af eru fern
gull. Tvenn þeirra komu í St. Moritz
2003 og tvenn tveimur árum síðar í
Bormio. Ofan á þetta bætast 32 sigr-
ar í heimsbikarnum og tvívegis hefur
hann sigrað í samanlagðri stiga-
keppni heimsbikarsins, 2005 og 2008.
Það sem Bode Miller hefur um-
fram ýmsa aðra keppinauta sína er
hversu fjölhæfur hann er. Miller stát-
ar til dæmis af sigrum í heimsbik-
arnum í öllum fimm alpagreinunum,
bruni, risasvigi, tvíkeppni, stórsvigi
og svigi. Eins hefur hann unnið til
verðlauna í fjórum þessara greina á
Ólympíuleikum og einnig fjórum á
HM. Þessi fjölhæfni hefur vitaskuld
gert það að verkum að verðlaunasafn-
ið er jafn glæsilegt og raun ber vitni.
Með jafn glæsilegan feril og Bode
Miller mætti ætla að hann væri þjóð-
hetja í heimalandinu. Þó vissulega sé
virðing borin fyrir afrekum Millers
þá er staðreyndin sú að hann er víða
óvinsæll. Ekki síst á meðal þeirra
blaðamanna sem fjalla hvað mest um
alpagreinar og stórmótin í kringum
þær. Þær óvinsældir hefur Miller að
vissu leyti kallað yfir sig sjálfur með
ýmsum yfirlýsingum í gegnum tíðina.
Sannur íþróttaandi
Miller var þó vinsæll framan af
ferlinum og sérstaklega þótti hann
sýna sannan íþróttanda á Ól 2002. Þá
missti hann af hliði þegar hann var á
góðri leið með að vinna
sín þriðju verðlaun. Í
stað þess að hætta þá
rölti hann til baka og kláraði ferðina
þrátt fyrir að tapa mörgum sek-
úndum í íþrótt þar sem sek-
úndubrotin ráða úrslitum. Einnig
hreif hann margan skíðaáhugamann-
inn með tilþrifum sínum á HM 2005.
Miller missti þá annað skíðið þegar
honum hlekktist á ofarlega í brekk-
unni. Hann hélt hins vegar sínu striki
á aðeins einu skíði og var einungis 30
sekúndum á eftir fyrsta manni þegar
hann datt loksins þegar marklínan
var í sjónmáli.
Afdrifaríkt viðtal í 60 minutes
Þær vinsældir sem Miller vann sér
inn með þessum tilþrifum dvínuðu þó
mjög þegar kom að leikunum í Tórínó
2006. Í viðtali við sjónvarpsþáttinn 60
minutes í janúar 2006 hraunaði Miller
yfir skíðaíþróttina sem hann sagði
ónýta. Á meðan á leikunum í Tórínó
stóð sagðist hann ítrekað vera að
skíða eins og honum þætti skemmti-
legast. Engin verðlaun vann hann á
leikunum en hann sagðist ánægður
að leikunum loknum því hann hefði
skemmt sér konunglega í tvær vikur.
Í kjölfarið á þessum undarlegu yf-
irlýsingum fékk hann mjög slæma
umfjöllun í bandarískum og alþjóð-
legum fjölmiðlum. Væntingarnar
höfðu verið gríðarlega miklar og rætt
var um möguleikann á fimm gull-
verðlaunum. Miller var á
stórum samningi hjá Nike
sem auglýsti fyrir leikana
með slagorðinu: „Sláumst í
för með Bode.“ Eftir leik-
ana spurði einn
íþrótta-
blaða-
maðurinn í pistli sínum: „Hvert? Á
barinn?“ Það fór ekki fram hjá nein-
um að Miller hafði verið á djamminu
á leikunum og hann dró ekki heldur
dul á það í viðtölum.
Ekki jukust vinsældir Millers þeg-
ar hann ákvað vorið
2007 að slíta sig frá bandaríska
landsliðinu. Hann æfði og keppti á
eigin vegum í tvö ár. „Bode verður að
gera það upp við sig hvort hann sé ey-
land,“ sagði landsliðsþjálfarinn Phil
McNichol að loknum leikunum í Tór-
ínó. Á þeim tíma féllu margir sér-
fræðingarnir í þá gryfju að afskrifa
kappann. Jafnframt klóruðu margir
sér í höfðinu yfir þessum undarlega
íþróttamanni. Töldu ýmsir að finna
mætti skýringar á hegðun Millers í
heimilisaðstæðum hans í uppvext-
inum. Miller mun hafa alist upp við
hippalegar aðstæður eins og það var
kallað, og var hvorki vatn né rafmagn
á heimilinu. Einnig þótti mörgum
sem Miller væri lítill keppnismaður.
Hann teldi sig frekar vera í keppni
við fjallið sjálft heldur en dauðlega
keppinauta sína.
Enginn maður er eyland
Árið 2009 var hans versta á ferl-
inum í skíðabrekkunum. Miller, sem
glímdi við ökklameiðsli og gerir raun-
ar enn, mistókst að vinna mót á
keppnistímabilinu í fyrsta skipti í átta
ár. Nú töldu margir blaðamenn að
nóg væri komið og Miller gaf sjálfur
í skyn að nú færu skíðaklossarnir á
hilluna frægu. Miller kom því mörg-
um á óvart þegar hann sneri aftur í
bandaríska landsliðið síðastliðið
haust og hóf undirbúning fyrir leik-
ana í Vancouver. Hann missti þó tals-
vert úr vegna ökklameiðsla sem hann
varð fyrir í blaki. Smám saman tókst
Miller þó að koma sér í gang og sigur
í tvíkeppni í heimsbikarnum um miðj-
an janúar á þessu ári var honum
væntanlega mikilvægur. Hans fyrsti
sigur í heimsbikarnum í liðlega tvö
ár.
Engu að síður gat Miller farið á
leikana í Vancouver án þess að of
mikil pressa væri á honum. Vissulega
var fjallað um möguleika hans á því
að næla loksins í ólympíugull en hann
var ekki á meðal þeirra allra líkleg-
ustu. Andrúmsloftið í kringum Miller
fyrir leikana í Vancouver var því tals-
vert ólíkt því sem var fyrir leikana í
Tórínó. Þá var hann með væntingar
Bandaríkjamanna á
herðunum og var beinlínis andlit
bandarískra keppenda á leikunum.
Miller hafði skreytt nánast allar
hugsanlegar tímaritaforsíður í
Bandaríkjunum. Einum fjölmiðla-
manni varð að orði að miðað við um-
fjöllunina þá væri engu líkara en
hann héldi við Angelinu Jolie!
Þessi skrautlegi skíðamaður hefur
í það minnsta skráð nafn sitt rækilega
í sögubækurnar. Hvort sem mönnum
líkar betur eða verr þá hefur hann af-
rekað meira en aðrir skíða-
íþróttamenn Bandaríkjanna. Miller
hefur ekki gefið neitt út á það hvort
hann ætli sér að halda áfram að
keppa í fremstu röð. Hann er slíkt
ólíkindatól að ómögulegt er að segja
fyrir um hvað hann ætlar sér.
Reuters
Umdeildur Banda-
ríkjamaðurinn Bode
Miller er sérstakur
íþróttamaður og afar
umdeildur.
Bandaríski skíðakappinn Bode Miller var óumdeilanlega
ein helsta stjarna vetrarólympíuleikanna sem haldnir
voru í Vancouver á dögunum. Miller vann til þrefaldra
verðlauna á leikunum og fékk alla málmana, gull, silf-
ur og brons. Var þetta hans fyrsta ólympíugull og full-
komnaði Miller þar með glæsilegt verðlaunasafn sitt.
Hann er nú sigursælasti skíðaíþróttamaður Banda-
ríkjanna frá upphafi en er þó ekki þjóðhetja eins og
svo oft er með framúrskarandi íþróttamenn. Miller
er nefnilega ekkert sérstaklega vinsæll og hefur
verið nokkuð uppátækjasamur í gegnum tíðina
enda virðist hann vera fremur sérstakur per-
sónuleiki.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Óvænt upprisa
ólíkindatóls