Morgunblaðið - 26.03.2010, Blaðsíða 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
VALSMENN komu í veg fyrir að
Haukar fögnuðu deildarmeistaratitli
í N1-deild karla í handknattleik á
Ásvöllum í gærkvöldi. Þeir mættu
gríðarlega ákveðnir til leiks og slógu
öll vopn úr höndum einbeiting-
arlausra leikmanna Hauka. Haukar
náðu sér aldrei á strik og töpuðu sín-
um fyrsta leik á heimavelli í deild-
inni á þessari leiktíð, 24:20.
Valur var yfir allan leikinn, þar á
meðal einu marki að loknum fyrri
hálfleik, 10:9.
Leikmenn Vals voru greinilega
staðráðnir í að sækja stig á Ásvöllum
í gær. Mikil stemning var í her-
búðum liðsins frá fyrstu mínútu á
sama tíma og Haukar virkuðu ann-
ars hugar. Vörn Vals var góð og að
baki hennar var Hlynur Morthens
frábær. Hann varði alls 19 skot í
leiknum sem skiptust eins jafnt og
mögulegt var á milli hálfleika.
Vörn Hauka var lengst af nokkuð
góð og Birkir Ívar Guðmundsson
markvörður var einn af fáum leik-
mönnum liðsins sem náðu að standa
upp úr meðalmennskunni. Sókn-
arleikurinn var í molum.
Aron afar óhress
„Við vorum bara alls ekki tilbúnir
í leikinn. Valsmenn mættu með bak-
ið upp að vegg. Þeir þurftu nauðsyn-
lega á stigum að halda til að vera
með í baráttunni um sæti í úr-
slitakeppninni. Staða okkar er þægi-
legri í efsta sæti deildarinnar og þá
er eins menn mínir telji að þeir geti
bara komið með hálfum huga til
leiks,“ sagði Aron Kristjánsson,
þjálfari Hauka, við Morgunblaðið í
leikslok í gær en þá hafði hann ný-
lokið við að tala yfir sínum leik-
mönnum í búningsklefanum. Þar tal-
aði hann bæði tæpitungulaust og af
miklum styrk svo undir tók á Ásvöll-
um.
„Það er alveg ljóst að menn verða
að leggja meira í andlegan und-
irbúning á leikdag þótt ekki sé mikið
undir í leikjum.
Við lékum eins og höfuðlaus her í
sókninni lengst af. Það var alveg
sama hvað við reyndum að gera,
ekkert gekk,“ sagði Aron Krist-
jánsson.
Morgunblaðið/Ómar
Stöðvaður Þórður Rafn Guðmundsson komst lítt áleiðist gegn Elvari Friðrikssyni, Valsmanni.
Valsmenn
mikið betri
Fyrsta tap Hauka á Ásvöllum í vetur
Aron las mönnum pistilinn í leikslok
Ásvellir, úrvalsdeild karla, N1-
deildin, fimmtudaginn 25. mars
2010.
Gangur leiksins: 0:2, 2:3, 2:5, 5:6,
5:8, 9:10, 9:12, 12:14, 12:16, 14.18,
17:23, 20:24.
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveins-
son 10/8, Elías Már Halldórsson 6,
Þórður Rafn Guðmundsson 2, Einar
Örn Jónsson 1, Heimir Óli Heim-
isson 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmunds-
son 17 (þar af 7 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Vals: Fannar Þór Friðgeirsson
8, Elvar Friðriksson 5/3, Arnór Þór
Gunnarsson 3/1, Orri Freyr Gíslason
2, Sigurður Eggertsson 2, Sigfús
Páll Sigfússon 2, Jón Björgvin Pét-
ursson 1, Ingvar Árnason 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 19
(þar af 6 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Magnús Jónsson og Arn-
ar Sigurjósson, fínir.
Áhorfendur: 523.
Haukar – Valur 20:24
Eftir Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
NÚ fer að verða tímabært að hætta
að kalla ungu strákana í Stjörnunni
efnilega því miðað við frammistöð-
una í 33:28 sigri á HK í Mýrinni í
gærkvöldi eru þeir alveg að verða
menn. Oft skilur á milli reynslu og
aldurs þegar lið missa dampinn en
þegar Garðbæingar spýttu rækilega
í lófana og tóku leikinn í sínar hend-
ur á lokasprettinum mátti sjá hvern-
ig sjálfstraustið óx. Gömlu menn-
irnir, ef hægt er að setja slíkan
stimpil á menn eins og Vilhjálm
Halldórsson og Þórólf Nielsen, ekki
orðnir þrítugir, skiluðu þó sínu en
það var þó sá gamli, eins og Stjörnu-
strákarnir kalla Roland Eradze, sem
kom liðinu í gang með frábærri
markvörslu í byrjun síðari hálfleiks.
Hinn 19 ára Tandri Konráðsson
telst enn einn af þeim ungu en hefur
fengið tækifæri í vetur og sýndi þeg-
ar á reyndi að hann getur spjarað
sig í djúpu lauginni. Reyndar leit
ekki vel út með hann því í síðari hálf-
leik lagðist hann fyrir aftan við vara-
mannabekkinn því hann fékk of
hraðan hjartslátt. Það jafnaði sig en
sló ekkert á baráttuandann.
„Ég varð að gefa 150% í þetta, það
fór allt í gang og allt inni,“ sagði
Tandri hinn brattasti eftir leikinn.
„Við höfum alltaf verið í veseni með
fyrstu tíu mínútur seinni hálfleiks og
ákváðum gefa allt okkar og rúmlega
það í leikinn og þegar við fáum þrjú
hraðaupphlaup kom það okkur í
gang. Við þeir ungu í liðinu höfum
fengið meiri ábyrgð í vetur og notum
tækifærið til að komast í gang. Ég
hef lært mikið af þessu tímabili, við
erum að þroskast og verðum bara
betri og betri.“
Línujaxlinn Atli Ævar Ingólfsson
í HK var ekki eins kátur. „Ég þoli
ekki að tapa og er í hrikalegri fýlu
núna, við erum auðvitað mjög
svekktir í klefanum núna og verðum
í klukkutíma en verðum bara að
koma sterkari til baka. Við höfum
sýnt betri liðsheild en þetta í vetur
og grátlegt að missa leikinn í vit-
leysu en það er ekki hægt að kenna
neinum nema okkur sjálfum um
það,“ sagði Atli Ævar eftir leikinn.
Morgunblaðið/hag
Dýrmætt Vilhjálmur Halldórsson
og félagar lönduðu mikilvægum
sigri gegn HK í gærkvöld.
Strákarnir orðnir menn
Baráttusigur ungu strákanna í Stjörnunni á HK, 33:28 Annar sigur þeirra í
röð með mikilli baráttu Stórleikur Rolands í markinu kveikti í Garðbæingum.
Mýrin, úrvalsdeild karla, N1-deildin,
fimmtudaginn 25. mars 2010.
Gangur leiksins: 1:0, 1:1, 2:2, 4:3,
5:4, 5:6, 7:7, 7:11, 8:13, 10:13, 12:16,
14.16, 15:17, 19:17, 19:19, 21:21,
23:22, 23:24, 26:24, 27:26, 30:26,
30:28, 33:28.
Mörk Stjörnunar: Vilhjálmur Hall-
dórsson 10/4, Daníel Einarsson 7,
Tandri Konráðsson 6, Kristján Svan
Kristjánsson 4, Þórólfur Nielsen 2,
Eyþór Magnússon 2, Jón Arnar Jóns-
son 1, Sverrir Eyjólfsson 1.
Varin skot: Roland Valur Eradze 15/1
(þar af 4 til mótherja), Svavar Már
Ólafsson 5 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk HK: Valdimar Fannar Þórsson
6/1, Atli Ævar Ingólfsson 5, Bjarki
Már Elísson 5, Sverrir Hermannsson
5/1, Ragnar Hjaltested 4/3, Vilhelm
Gauti Bergsveinsson 2, Bjarki Már
Gunnarsson 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 15
(þar af 4 til mótherja), Lárus Helgi
Ólafsson 1 (þar af 1 til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Hlynur Leifsson.
Áhorfendur: Um 235.
Stjarnan – HK 33:28
„VIÐ vorum ótrúlega vel einbeittir
í þessum leik. Það hreinlega small
allt saman hjá okkur, ekki síst í
varnarleiknum,“ sagði Hlynur
Morthens sem átti frábæran leik í
marki Vals gegn Haukum á Ásvöll-
um í gærkvöldi. Hann var með um
50% markvörslu, varði alls 19 skot.
„Við skiptum yfir í 6/0 vörn úr
framliggjandi 3/2/1 vörn sem við
höfum verið að leika mest upp á síð-
kastið. Þessi breyting skilaði sér
fullkomlega því Haukum gekk
mjög illa að koma skotum á markið.
Það var helst að þeir næðu að fiska
vítaköst,“ sagði Hlynur en Haukar
fengu átta vítaköst í leiknum sem
öll nýttust. Það nægði þó ekki.
„Það er frábært að halda Hauk-
um í tuttugu mörkum á þeirra
heimavelli.“ sagði Hlynur og bætti
við að ekki hefði komið til greina að
leyfa Haukum að fagna deild-
armeistaratitli að þessu sinni.
Máttu ekki fagna aftur
„Þeir hafa nýverið fagnað bik-
artitli fyrir framan nefið á okkur
og því kom ekki til greina að leyfa
þeim að fagna öðrum titli á skömm-
um tíma eftir sigur á okkur.
Framundan eru þrír úrslitaleikir
hjá okkur og þá verðum við alla að
vinna til þess að tryggja okkur sæti
í úrslitakeppninni. Annað kemur
ekki greina því baráttan um sæti í
úrslitakeppninni er það hörð, ekki
síst eftir að botnliðin tóku upp á því
að vinna leik eftir leik,“ sagði Hlyn-
ur Morthens, markvörður Vals sem
mætir Akureyri á Hlíðarenda í
næstu umferð. iben@mbl.is
Hreinlega allt small saman