Morgunblaðið - 26.03.2010, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2010
Eftir Skúla Sigurðsson
sport@mbl.is
ÞESSI stórsigur heimamanna var þó allt annað en
sannfærandi. Eftir síðustu ferð Tindastólsmanna
til Keflavíkur átti undirritaður ekki von á miklu
frá þeim en þeir sýndu svo sannarlega að með
góðri baráttu höfðu þeir í fullu tré við lið Keflvík-
inga. Ekki var þó laust við að Keflvíkingar hefðu
vanmetið gesti sína, í það minnsta framan af leik.
Hálfleiksræða Guðjóns Skúlasonar hefur verið
hnitmiðuð að því að herða varnarleik sinna manna
og keyra upp hraðann. Það var einmitt það sem
gerðist í seinni hálfleik og hægt og bítandi juku
heimamenn forskotið og enduðu með að sigra með
21 stigi.
Tambúrína í stúkunni
Leikurinn náði hinsvegar aldrei þeirri fyllingu
að vera úrslitakeppnisleikur. Þetta leit út eins og
hver annar deildarleikur þar sem stemmningin
var döpur að undanskilinni tambúrínu í stúkunni
sem örfáir stuðningsmenn Tindastóls voru mættir
með og studdu sitt lið. Gestirnir stóðu sig ágæt-
lega en þurfa svo sannarlega meira framlag frá
Svavari Birgissyni sem hefur nú í tvo leiki í röð
skorað aðeins 3 stig í Toyotahöllinni og telst það
ekki mikið á þeim bænum. Reynslubolti Keflvík-
inga Sverrir Þór Sverrisson var sáttur með sig-
urinn.
„Þetta var ágætis leikur hjá okkur og aðal-
atriðið er náttúrlega að við unnum. Tindastóll er
með gott lið og við vitum það alveg en þrátt fyrir
þennan stórsigur tel ég okkur geta gert betur en
við gerðum hér í kvöld. Við klárum þennan leik
sannfærandi en þannig séð voru þeir aldrei langt
undan. Þessi leikur er búinn og nú stefnum við að
því að klára þetta fyrir norðan,“ sagði Sverrir Þór.
„Við komum aftur“
Karl Jónsson þjálfari Tindastólsmanna var kok-
hraustur í lok leiks þrátt fyrir tapið. „Það eins
sem okkur vantaði uppá til að sigla þennan leik í
gegn var bara örlítið uppá trúna á verkefnið. Mér
fannst eins og við værum alltaf að bíða eftir að
Keflavík myndi rúlla yfir okkur. Það var markmið
okkar að hanga inní leiknum eins lengi og við
mögulega gætum. Fyrri hálfleikur var nákvæm-
lega eins og við lögðum hann upp og við vorum að
spila vel þá en það vantaði eins og ég segi uppá
trúna. Við lögum þetta og það verður alvöru leik-
ur á Króknum og við komum hingað aftur til
Keflavíkur í oddaleik, það er alveg á hreinu,“
sagði Karl í samtali við Morgunblaðið.
Hnitmið-
uð hálf-
leiks-
ræða
Ljósmynd/Skúli Sigurðsson
Átök Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflvíkingur, reynir að ná boltanum af Cedric Isom, leikmanni Tinda-
stóls, í leiknum í gærkvöld. Keflvíkingar hafa 1:0 forystu í einvígi liðanna og fara norður á sunnudag.
Keflvíkingar sigruðu Tindastól í gærkvöldi með 94
stigum gegn 75 í fyrsta leik liðanna í 8 liða úrslitum
Iceland Express deildarinnar. Skagfirðingar mættu til
Keflavíkur nokkuð sprækir og náðu að halda ágæt-
lega í við heimamenn framan af leik en Keflvíkingar
voru sterkari á lokasprettinum.
Karl bjartsýnn á að ná
fram oddaleik Eins og
hver annar deildaleikur
HVAR svarar íþróttamaður gagnrýni
og illu umtali. Jú, inni á vellinum, og
það hefur Eiður Smári Guðjohnsen svo
sannarlega gert upp á síðkastið. Besti
knattspyrnumaður þjóðarinnar, ef
ekki sá besti sem Ísland hefur alið af
sér, er farinn að sýna snilli sína á nýjan
leik og hefur gefið því fólki sem hefur
haldið því fram að hann væri búinn á
því, langt nef.
Á nokkrum dögum hefur Eiður
Smári unnið hug og hjörtu stuðnings-
manna Tottenham og eins og hann
hefur sjálfur sagt hefur hann öðlast
nýtt knattspyrnulíf með endurkomu
sinni í ensku úrvalsdeildina. Eiður,
sem hefur borið hróður íslenskrar
knattspyrnu út um víða veröld í ára-
raðir og er sá íslenski íþróttamaður
sem hefur náð lengst í íþrótt sinni, er
enn og aftur að sigrast á mótlæti. Það
skiptust á skin og skúrir hjá honum
hjá stjörnum prýddu liði Barcelona en
að hafa náð að spila yfir 100 leiki í bún-
ingi Katalóníuliðsins og skora 10 mörk
fyrir liðið í deildinni er stórkostlegur
árangur sem vart verður jafnaður af
íslenskum knattspyrnumanni.
Vistaskiptin til Mónakó reyndust
Eiði ekki heillavænleg. Á þeim fimm
mánuðum sem hann dvaldi í fursta-
ríkinu náði hann ekki að fóta sig og
komst ekki í takt við franska boltann.
Skiptin til Mónakó voru mistök en það
er alltaf gott að vera vitur eftir á. Eið-
ur fékk sem betur fer líflínu. Honum
var bjargað frá leiðinlegu liði Mónakó
og er farinn að leika listir sínar á
grænum grundum í vöggu knattspyrn-
unnar þar sem hann komst í hæstu
hæðir á ferli sínum hjá Chelsea á sín-
um tíma og hefur fundið leikgleðina.
Hárrétt að velja Tottenham
Sumir héldu því fram að Eiður hefði
gert rangt með því að snúa baki við
West Ham á síðustu stundu og þiggja
frekar tilboð Tottenham en það er að
koma á daginn að sú ákvörðun hans
var hárrétt. Harry Redknapp, knatt-
spyrnustjórinn magnaði sem hefur
áratuga reynslu í faginu, lagði mikið á
sig til að klófesta Íslendinginn og í við-
tölum við enska fjölmiðla upp á síð-
kastið hefur hann farið lofsamlegum
orðum um Eið Smára. ,,Það er þess
virði að fylgjast með honum á æfing-
unum. Hann er frábær fótboltamaður
og það spilar enginn með Chelsea og
Barcelona nema að vera frábær,“ sagði
Redknapp, sem hefur lagt ofurkapp á
að halda Eiði í herbúðum liðsins á
næstu leiktíð. Það kemur ekki á óvart
miðað við hvernig Eiður fellur inn í
þetta stórskemmtilega lið sem Totten-
ham hefur á að skipa.
Mætir Hermanni á Wembley
Það eru skemmtilegir tímar fram-
undan hjá Eiði Smára. Hann átti sinn
þátt að tryggja Lundúnaliðinu farseð-
ilinn á Wembley þar sem hann kemur
til með að mæta félaga sínum Her-
manni Hreiðarssyni, leikmanni
Portsmouth, í undanúrslitum bik-
arkeppninnar en þeir félagar mætast
einmitt í deildinni á laugardaginn.
Hermann varð fyrstur Íslendinga til
að verða enskur bikarmeistari þegar
Portsmouth fór alla leið fyrir tveimur
árum og nú getur Eiður leikið sama
leik. Eiður varð tvívegis Englands-
meistari með Chelsea og vann deilda-
bikarinn með félaginu. Hann varð
Spánarmeistari, bikarmeistari og Evr-
ópumeistari með Barcelona og nú get-
ur hann bætt enn einum titli í safnið
með því að vinna enska bikarinn.
Redknapp sagði þegar hann fékk
Eið til liðs við sig að hann gæti leikið
mikilvægt hlutverk með liðinu á loka-
spretti tímabilsins og reynsla hans og
hæfni ætti eftir að koma liðinu vel.
Eiður hefur svarað kalli Redknapps
með frábærum hætti í síðustu leikjum
og hefur stimplað sig rækilega inn með
liðinu sem nú síðustu vikur tímabilsins
berst fyrir því að vinna sér sæti í
Meistaradeildinni. Leiðin er grýtt að
því sæti því eftir fyrstu vikuna í apríl
tekur við svakalegt prógramm hjá lið-
inu. Tottenham mætir toppliðunum
þremur í beit, fyrst Arsenal, þá
Chelsea og loks Manchester United og
í millitíðinni er undanúrslitaleikurinn í
bikarnum.
Vonandi verður framhald á góðu
gengi Eiðs Smára á lokaspretti tíma-
bilsins. Hann er frábær sendiherra ís-
lenskrar knattspyrnu og þjóðin á að
vera stolt yfir því að eiga fótboltamann
í þeim gæðaflokki. gummih@mbl.is
Eiður gefur gagnrýnisröddum langt nef
Á VELLINUM
Guðmundur Hilmarsson
Ívar Ingimars-son, fyrirliði
enska knatt-
spyrnuliðsins
Reading, þarf að
gangast undir
uppskurð á morg-
un og spilar þar
með ekki aftur
fyrr en á næsta
tímabili. Ívar meiddist í leik gegn
Middlesbrough á laugardaginn og
verður þar með ekki með í þeim níu
leikjum sem Reading á eftir í 1.
deildinni á þessu tímabili.
Tony Mowbray, knattspyrnu-stjóra skoska úrvalsdeildarliðs-
ins Celtic, var í gær sagt upp störf-
um hjá félaginu. Celtic steinlá fyrir
St. Mirren, 4:0, í skosku úrvalsdeild-
inni í fyrrakvöld og það var kornið
sem fyllti mælinn. Þetta var 13. tap-
leikur liðsins á tímabilinu og er það
tíu stigum á eftir erkifjendum sínum
í Rangers sem á að auki tvo leiki til
góða. Mowbray var ráðinn stjóri hjá
Celtic í stað Gordons Strachans síð-
astliðið sumar en áður var hann við
stjórnvölinn hjá WBA. Neil Lennon
mun stýra liði Celtic út leiktíðina.
Lennon, sem er 38 ára gamall, lék
með Celtic í sjö ár en árið 2007 yf-
irgaf hann liðið og gekk í raðir Nott-
ingham Forest. Hann var fyrirliði
Celtic og leiddi liðið til sigurs í deild-
inni og bikarnum fyrir þremur ár-
um.
Michel Plat-ini, forseti
evrópska knatt-
spyrnusambands-
ins, UEFA, telur
að baráttan um
heimsmeistaratit-
ilinn í knatt-
spyrnu í Suður-
Afríku í sumar
komi til með að standa á milli Bras-
ilíumanna, Evrópumeistara Spán-
verja og Englendinga. „Ég sé þrjú
lið sem hafa burði til að vinna heims-
meistaratitilinn; Brasilíu, England
og Spán. Það verður erfitt að vinna
nokkur önnur lið en þau hafa ekki
nægilega mikinn styrk í öllum hópn-
um til að verða meistari,“ sagði Plat-
ini við fréttamenn á þingi UEFA í
Tel Aviv í Ísrael.
Brasilía hefur unnið heimsmeist-aratitilinn fimm sinnum, Eng-
land einu sinni, 1966, en Spáni hefur
aldrei tekist að hampa styttunni eft-
irsóttu. Spánverjar eru efstir á
styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins, FIFA, Brasilíumenn
eru í öðru sæti en Englendingar eru
í áttunda sæti á listanum.
Fólk sport@mbl.is
Keflavík – Tindastóll 94:75
Toyota-höllin, úrslitakeppni karla, 8-liða úrslit, fyrsti leikur,
fimmtudag 25. mars 2010.
Gangur leiksins: 10:15, 25:22, 34:29, 46:43, 61:51, 74:66, 81:72,
94:75
Stig Keflavíkur: Draleon Burns 21, Þröstur Leó Jóhannsson
19, Gunnar Einarsson 18, Hörður A. Vilhjálmsson 14 Urule Ig-
bevboa 12, Sigurður Þorsteinsson 6, Gunnar Stefánsson 3,
Sverrir Þ. Sverrisson 1.
Fráköst: 28 í vörn – 8 í sókn.
Stig Tindastóls: Cedric Isom 27, Donatas Visockis 14, Helgi
Rafn Viggósson 10, Friðrik Hreinsson 9, Axel Kárason 6, Helgi
Freyr Margeirsson 4, Svavar A. Birgisson 3, Sigmar L. Björns-
son 2.
Fráköst: 23 í vörn – 19 í sókn.
Villur: Keflavík 21 – Tindastóll 18.
Dómarar: Rögnvaldur Hreiðarsson og Einar Skarphéðinsson.
Áhorfendur: 350.