Morgunblaðið - 27.03.2010, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
VERÐI frumvarp efnahags- og við-
skiptaráðherra um breytingar á sam-
keppnislögum að lögum mun Sam-
keppniseftirlitið fá nýjar og víðtækari
heimildir til að grípa inn í starfsemi
fyrirtækja, m.a. með því að skipta upp
markaðsráðandi fyrirtæki.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
væntir skjótrar afgreiðslu á frumvarpinu.
„Ég hef þetta náttúrulega ekki í hendi mér en þetta
var samþykkt í ríkisstjórn í morgun [gærmorgun] og fer
þá fyrir þingflokka og verður svo vonandi lagt fyrir Al-
þingi fyrir páska. Síðan er það auðvitað Alþingis að
ákveða hvaða framgang frumvarpið fær, en mínar vonir
standa til þess að málið verði klárað fyrir sumarhlé.“
– Hvaða þýðingu mun frumvarpið hafa? Mun þetta
auka völd Samkeppniseftirlitsins verulega?
„Þetta er reyndar í nokkrum liðum en einn þátturinn
er að gefa eftirlitinu ákveðið tæki sem gerir því kleift að
grípa inn í og skipa fyrir um breytingar á skipulagi fyrir-
tækja. Það er auðvitað mjög áhrifamikið tæki en vand-
meðfarið. En vissulega gefur þetta, að mínu mati, eftirlit-
inu tæki, sem það hefur kannski ekki haft til þessa, til að
taka á vandamálum við ákveðnar kringumstæður.“
Eftirlitið ákveðið inngrip í matvörumarkað
– Nú eru eigendur Haga umsvifamiklir á matvöru-
markaðnum. Má ætla að þessilög muni hafa það í för með
sér að það verði breytingar á matvörumarkaði?
„Ég þori engu að spá um það og í raun og veru get ég
ekki gefið nein fyrirheit um það, því að ef eftirlitið fær
þessa heimild er það þess að taka ákvörðun um það
hvernig það beitir henni.“
Fái heimild til að skipta upp
markaðsráðandi fyrirtæki
Viðskiptaráðherra tjáir sig ekki um áhrif á matvörumarkað
Gylfi Magnússon
Auki gegnsæi
í hlutafélögum
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG held að þetta sé einn liður í al-
mennri tiltekt í regluverki viðskipta-
lífsins og auðvitað er gegnsæi eitt af
því sem menn hafa kallað mjög eftir
og bent á að hafi skort á að undan-
förnu. Þannig að þetta er ákveðið
svar við þeirri þörf og þeirri um-
ræðu,“ segir Gylfi Magnússon við-
skiptaráðherra aðspurður um frum-
varp sem ætlað er að stuðla að auknu
gegnsæi í hlutafélögum.
„Ég vona að frumvarpið verði af-
greitt á þessu þingi, það er að segja
fyrir sumarhlé, en það er auðvitað
þingsins að ákveða það.“
– Myndi frumvarpið girða að
stórum hluta fyrir krosseignatengsl
og þann skort á gagnsæi sem færð
hafa verið rök fyrir að hafi ríkt hér?
„Já. Þetta er að mínu mati stórt
skref í þá átt en ég ætla svo sem ekk-
ert að vekja neinar falsvonir um að
þetta muni leysa öll slík vandamál.
Við reynum hvað við getum og þetta
er mikilvægt skref.“
Meira þarf að koma til
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og einn tals-
manna frumvarpsins, telur að meira
þurfi að koma til eigi að girða fyrir
krosseignatengsl og raðeignarhald.
„Ég held að það þurfi að gerast
töluvert meira því að uppfinninga-
semin er svo mikil sem og þjálfunin í
að finna göt í kerfinu. Menn hafa
orðið svo mikla reynslu af þessu. Ég
held því að það
þurfi að búa til
gegnsætt eignar-
hald og banna
lánveitingar til
eigenda sinna og
eigenda þeirra
[...] Þannig getum
við endurvakið
traustið sem
hvarf. Ég nefni
sem dæmi í fylgiriti 1 með frumvarp-
inu hvernig menn geta búið til tóm
félög sem virðast hafa eigið fé en
hafa ekkert eigið fé. Og sýni fram á
að það er veila í hlutafélagaforminu
sem felst í því að menn geti keypt í
eigendum sínum einhvers staðar
lengst úr fjarlægð.
Þá fara peningar í hring – menn
geta lánað einhverjum eiganda sín-
um sem kaupir síðan niður alla keðj-
una. Þeir peningar geta farið hring
eftir hring. Það er það sem er mesta
veilan og ég tel og vona að þetta
frumvarp muni útiloka það.“
Alþjóðlegur vandi
– Hvað á ríkisstjórnin þá að gera í
framhaldinu?
„Um leið og hlutafélög fara að eiga
í hlutafélögum fara að myndast
skrítnir hlutir eins og krosseignar-
hald. Þetta er leyft um allan heim og
býr til vandamál sem við höfum því
miður kynnst. Vandinn er sá að við
getum ekki verið að breyta hluta-
bréfalögum á Íslandi ein og sér held-
ur á breytingin að vera í takt við það
sem er að gerast í heiminum.“
Pétur Blöndal
Skiptar skoðanir um áhrif frumvarps
SAMKVÆMT upplýsingum frá stærstu ferðaskrif-
stofum og flugfélögum landsins verða a.m.k. 8 þús-
und Íslendingar á faraldsfæti erlendis um páskana.
Straumurinn liggur annars vegar til heitari staða á
borð við Tenerife, Kanaríeyjar, Alicante og Suður-
Spán og hins vegar til borga á borð við London,
Kaupmannahöfn, Orlando, Berlín og Dublin. Að
mati viðmælenda hefur farþegum fjölgað milli ára,
en mismikið þó eftir tegundum ferða. Einnig benda
þeir á að landsmenn hafi almennt bókað páskaferð-
ina fyrr þetta árið en í fyrra.
Reikna má með að a.m.k. 3-5 þúsund Íslendingar
ferðist með Icelandair páskadagana. Að sögn Guð-
jóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair,
dreifist farþegafjöldi á flesta áfangastaði fyrirtæk-
isins sem eru á annan tuginn. Segir hann aukningu
í bókunum milli ára vera á bilinu 15-20%. Spurður
hvaða áfangastaðir séu vinsælastir nefnir Guðjón
Orlando annars vegar og Norðurlöndin hins vegar.
Alls verða um það bil 600 farþegar erlendis á
vegum ferðaskrifstofunnar VITA, að sögn Björns
Guðmundssonar markaðsstjóra fyrirtækisins. Seg-
ir hann viðskiptavini helst sækja í golfferðir til
Spánar, sólarlandaferðir til Kanarí og borgarferðir
til Dublin. Segir hann aukninguna í bókunum milli
ára vera um 70%, þó bókunartölur séu enn nokkuð
langt frá því sem sást fyrir efnahagshrun. Bendir
hann á að leiguflugsbransinn hafi í kjölfar hrunsins
dregist saman um 45-50%.
Býst við góðu ferðasumri í ár
Að sögn Tómasar Gestssonar, framkvæmda-
stjóra Heimsferða, verða tæplega 400 manns á
þeirra vegum á Suður-Spáni og á Kanaríeyjum yfir
páskadagana. Segir hann þetta ívið fleiri farþega
en í fyrra, en athygli veki að viðskiptavinir hafi
byrjað að bóka páskaferðina þegar í janúar og það
sé fyrr en í fyrra.
Hjá Rannveigu Guðmundsdóttur, fjármálastjóra
Ferðaskrifstofu Íslands ehf., fengust þær upplýs-
ingar að straumurinn liggi helst til Tenerife og
Kanarí en þangað séu allar vélar fullar, en einnig sé
talsverður fjöldi að fara til Alicante.
Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Iceland
Express, segir fyrirtækið munu flytja 500-600 far-
þega til Alicante um páskana og 400-500 farþega til
Berlínar jafnframt því sem einhver fjöldi sé á leið
til Varsjár. „Auk þess eru mörg þúsund manns að
fara út með okkur til Kaupmannahafnar og London
um páskana,“ segir Matthías og tekur fram að
hann eigi von á góðu ferðasumri í ár. Segir hann
aukninguna í bókunum nú um páskana vera 12-15%
samanborið við í fyrra. „En almennt eru bókanir
það sem af er ári 40% fleiri milli ára.“ silja@mbl.is
Þúsundir á leið út um páskana
Mun fleiri Íslendingar hyggjast leggja leið sína til útlanda um páskana í ár en í fyrra
Stór hluti farþeganna sækir í sólina suður á bóginn en borgarferðir eru líka vinsælar hjá landanum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Í sól og sumaryl Suðrið heillar.
„STEMNINGIN sem myndast hefur í tengslum við
þetta átak er mjög skemmtileg. Þetta hefur haft góð
áhrif á starfsandann. Í raun held ég að það hafi verið
leyndur draumur mjög margra lögreglumanna að
safna í mottu en eiginkonurnar ekki viljað það. En
núna fengu menn loksins tækifæri,“ segir Þórir Ing-
varsson rannsóknarlögreglumaður.
Tæplega fjörutíu lögreglumenn í liði höfuðborgar-
svæðisins hafa tekið þátt í átakinu Mottu Mars. Menn
úr nánast öllum deildum lögreglunnar hafa tekið þátt í
átakinu, bæði yfirmenn og lægra settir. Mottuhópnum,
það er þeim úr honum sem heimangengt áttu, var svo
safnað saman til myndatöku á tröppum lögreglustöðv-
arinnar við Hverfisgötu í gærmorgun.
Þórir segir sterka vitund vera fyrir baráttunni gegn
krabbameini meðal lögreglumanna, sem fyrr í vikunni
kvöddu einn úr sínum röðum, Svein Bjarka Sigurðsson,
sem lést úr þessum illvíga sjúkdómi. Mönnum sé því ljúf
skylda að leggja málefninu lið, en áheit á lögreglumenn
í þessu átaki eru samanlagt um 90 þúsund krónur og
renna þeir peningar óskiptir til Krabbameinsfélags Ís-
lands og baráttu starfs þess. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
MOTTUR VORU LEYNDUR DRAUMUR
Ármú la 32 · 108 Reyk j a v í k · S ím i 533 5060 · Fax 533 5061 · t epp i@stepp · www.s t epp . i s
Bjóðumheildarlausnir þegar endurnýja á góleppi
í stigagöngum í ölbýlis- og sambýlishúsum.
Taktu upp símann eða sendu okkur línu og við
göngum í málið.
Ó
!
·
1
3
1
3
6
teppi@stepp.is