Morgunblaðið - 27.03.2010, Side 8
8 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
Íslenskir þingmenn áttu athyglis-verðan fund í húsakynnum starfs-
félaga í Lundúnum. Þar var mest
rætt um Icesave. Margt kom þægi-
lega á óvart.
Einn hópur breskra þingmannatók undir þau sjónarmið að Ís-
lendingum bæri engin skylda til að
borga fyrir einkafyrirtæki sem
stæði ekki í skilum.
Annar hópur virt-ist lítið þekkja
til málsins en var
mjög opinn fyrir að
heyra sjónarmið Ís-
lands og var vel
móttækilegur fyrir
rökum þess.
Þriðji hópurinn taldi að þetta málteldist til hinna smærri mála á
Bretlandi og það væri skýringin á að
þingmennirnir þekktu ekki mjög vel
til þess.
Þó er ljóst að einn þingmaðurhafði algjörlega misskilið málið.
Hann var þó ekki breskur. Það var
Árni Þór Sigurðsson. Hann sagði að
Íslendingarnir hefðu lagt áherslu á
að finna pólitíska lausn á málinu en
ekki lögfræðilega lausn.
Er ekki nóg að Steingrímur og Jó-hanna spili sífellt á eigið mark í
þeim landsleikjum sem þau taka þátt
í? Þarf Árni Þór líka að dúkka upp í
vitlausu liði?
Þeir sem ekki hafa góða lagalegastöðu forðast að ræða mál á lög-
fræðilegum grundvelli og vilja alls
ekki fara með mál fyrir dómstóla.
Hinir, sem hafa lögin sín megin, eru
ekki á því róli.
Reyndar ættu báðir aðilar að getasætt sig við niðurstöðu trúverð-
ugra dómstóla. Er þetta of flókið
fyrir Árna Þór?
Árni Þór
Sigurðsson
Enn farinn úr liði
Veður víða um heim 26.3., kl. 18.00
Reykjavík 5 léttskýjað
Bolungarvík 1 snjókoma
Akureyri -1 snjókoma
Egilsstaðir 0 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 3 léttskýjað
Nuuk 0 skýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 1 skúrir
Kaupmannahöfn 10 heiðskírt
Stokkhólmur 9 heiðskírt
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 9 skýjað
Brussel 13 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 11 skýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 15 skýjað
Berlín 21 heiðskírt
Vín 21 léttskýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 18 skýjað
Madríd 10 skýjað
Barcelona 19 heiðskírt
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 15 heiðskírt
Aþena 14 heiðskírt
Winnipeg 2 léttskýjað
Montreal -8 léttskýjað
New York 4 skýjað
Chicago 0 heiðskírt
Orlando 22 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
27. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:04 20:04
ÍSAFJÖRÐUR 7:06 20:11
SIGLUFJÖRÐUR 6:49 19:54
DJÚPIVOGUR 6:32 19:34
STARF leik- og grunnskóla verður
undir sama þaki í Krikaskóla í Mos-
fellsbæ sem var tekinn formlega í
notkun í gær. Skólinn nýi verður
fyrir börn á aldrinum eins til níu
ára og verður kennt allan daginn,
allan ársins hring. Markmiðið með
því er meðal annars að mæta þörf-
um foreldra, sem flestir hverjir
vinna úti allan daginn.
Byggingin er ekki skólinn sjálf-
ur. Hún er einungis umgjörð um
faglegt og metnaðarfullt starf í
anda einstakrar skólastefnu, sagði
Haraldur Sveinsson bæjarstjóri við
opnun skólans.
Skólastefnan sem fylgt verður í
Krikaskóla er afrakstur samkeppni
sem haldin var fyrir tveimur árum.
Sigurvegari hennar var hópur sem
nefnir sig Bræðingur. Liðsmenn
hópsins færðu skólanum gjöf í gær
og hið sama gerði bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar.
Krikaskóli í Mosfells-
bæ opnaður í gær
Morgunblaðið/Ernir
Krikaskóli Ekki var laust við að undrunarsvipur væri í andlitum krakkanna.