Morgunblaðið - 27.03.2010, Side 16
16 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
BÚIST er við mikilli umferð al-
mennings við gosstöðvarnar á
Fimmvörðuhálsi í dag og næstu
daga. Af því tilefni þykir Slysa-
varnafélaginu Landsbjörgu rétt að
vara við hættulegum eiturgufum
er fylgja eldgosum sem þessu. Um
er að ræða brennistein, flúor,
koltvísýring og kolmonoxíð sem er
lyktarlaust og banvænt. Efnin eru
leysandi og geta valdið var-
anlegum lungnaskaða andi maður
þeim að sér. Eiturgösin eru þung
og leka með jörðinni. Fólk er því
varað við að fara inn í Hrunagil
þar sem hraun lekur nú niður, því
gilið er þröngt og líklegt að mikið
sé um eiturgös þar. Einnig er fólki
sem er uppi á Fimmvörðuhálsi við
eldstöðvarnar bent á að forðast
lægðir ef veður er stillt, halda sig
á hólum og hæðum og standa und-
an vindi.
Morgunblaðið/RAX
Fagurt Eiturefni geta leynst í gos-
gufum frá eldgosinu.
Banvæn eiturgös
við eldstöðvar
Í dag, laugardag, heldur Samfylkingin flokkstjórnar-
fund á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Fundurinn hefst kl.
13:00 með ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, formanns
Samfylkingarinnar undir yfirskriftinni „Brýn verkefni
framundan“. Síðan tekur til máls Dagur B. Eggertsson,
varaformaður Samfylkingarinnar, sem fjallar um erindi
Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningunum. Þá
mun Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráð-
herra fjalla um ný úrræði í skuldavanda heimilanna.
Að loknum framsöguræðum munu fulltrúar mál-
efnanefnda gera grein fyrir umræðum og frummæl-
endur, auk Ragnheiðar Hergeirsdóttur bæjarstjóra á
Selfossi og Kristjáns L. Möller samgönguráðherra, sitja fyrir svörum í um-
ræðum um komandi sveitarstjórnarkosningar og stöðuna í íslenskum
stjórnmálum. Fundir flokkstjórnar eru opnir öllu samfylkingarfólki. Mál-
efnanefndir flokksins funda á Hótel Loftleiðum frá kl. 9.00 um morguninn.
Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar
Jóhanna
Sigurðardóttir
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SURTSEYJARSTOFA verður opn-
uð í Vestmannaeyjum í sumar. Þar
verður sýningin „Surtsey – jörð úr
ægi“ sem Nátt-
úrufræðistofnun
Íslands setti upp í
Þjóðmenningar-
húsinu fyrir
þremur árum.
Áformað var að
koma upp Surts-
eyjarstofu á árinu
2008, sama ár og
eyjan var sam-
þykkt á heims-
minjaskrá Menningarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (UNESCO). Lovísa
Ásbjörnsdóttir jarðfræðingur var
ráðin til þess verks og að hafa umsjón
með friðlandinu. Vegna efnahagserf-
iðleikanna fengust ekki fjárveitingar
til verksins.
Lovísa segir að nú hafi fengist
heimild frá umhverfisráðuneytinu til
að hefja framkvæmdir við Surtseyj-
arstofu. Hún hefur fengið tilboð um
húsnæði á góðum stað í Vestmanna-
eyjum og segir að Surtseyjarstofa
verði opnuð í sumar, væntanlega í júlí.
Áformað er að í framtíðinni verði
Surtseyjarstofa í safnahúsi sem Vest-
mannaeyjabær hefur hug á að reisa
og mun heita Eldheimar. Þar verða
Heimaeyjargosinu einnig gerð skil.
Sífellt fleiri ferðamenn leggja leið
sína til Vestmannaeyja og Lovísa seg-
ir að búast megi við mikilli aukningu í
sumar og næstu ár með tilkomu
Landeyjahafnar og styttri siglingar-
leið til Eyja.
Upplýsingaskilti um úteyjar
Sýningin „Surtsey – jörð úr ægi“
verður tekin úr pappakössunum og
sett upp í Surtseyjastofu eins og gert
var ráð fyrir þegar hún var sett sam-
an í Þjóðmenningarhúsinu á árinu
2007. Þar er rakin myndunar- og þró-
unarsaga Surtseyjar og spáð um
framtíð eyjarinnar og þróun lífríkis
hennar næstu 120 árin.
„Það er verið að vinna að verkefn-
inu af fullum krafti núna. Ég er búin
að bíða eftir þessu í tvö ár og hlakka
mikið til að opna stofuna með öllum
þeim fróðleik og upplýsingum sem
eru til um Surtsey,“ segir Lovísa.
Jafnframt vinna Umhverfisstofnun
og Vestmananeyjabær að því að und-
irbúa uppsetningu skiltis með upplýs-
ingum um heimsminjasvæðið Surtsey
og úteyjar Vestmannaeyja. Skiltinu
verður komið fyrir á á vesturströnd
Heimaeyjar, þar sem gott útsýni er til
eyjanna.
Surtseyjarstofa verður
opnuð í Eyjum í sumar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Surtsey Aðeins vísindamenn mega stíga fæti á heimsminjasvæðið Surtsey
en ferðafólk má fljúga yfir og sigla allt í kringum eyjuna.
Í HNOTSKURN
»Surtsey varð til í eldgosisem hófst í nóvember
1963. Hún er yngsta eyja
landsins og hefur verið vernd-
að friðland frá upphafi.
»Surtsey var tekin á heims-minjaskrá UNESCO á
árinu 2008.
Sýningin „Surtsey
– jörð úr ægi“ verð-
ur sett þar upp
Lovísa G.
Ásbjörnsdóttir
ÚR BÆJARLÍFINU
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Hvað er að frétta? Svona spyr
enginn hér um slóðir þessa dagana
enda verður hér varla þverfótað fyr-
ir fréttamönnum sem sýna myndir
og segja fréttir margoft á dag. Til-
efnið er að sjálfsögðu eldgosið í
Eyjafjallajökli. Hógværir Rang-
æingar eru vart vanir slíkri umfjöll-
un, maðurinn í næsta húsi er orðinn
landskunnur og krakkarnir tala
óhrædd við fréttamenn.
En sennilega er þetta bara
byrjunin. Að sjálfsögðu mun áhugi
fréttamanna dvína með tímanum þó
eldgosið dvíni ekki. Ljóst er að
framundan er ein stærsta ferða-
mannahelgi ársins. Hingað munu
streyma ferðmenn til að berja undur
náttúrunnar augum og upplifa
smæð mannsins á eigin skinni.
Undirbúningur undir móttökurn-
ar er þegar hafinn. Gera á bílastæði
við Fljótsdal og jafnvel koma þar
upp einhverri aðstöðu. Merkja á
gönguleið uppá Þórólfsfell þar sem
virða má dýrðina fyrir sér án allt of
mikillar fyrirhafnar. Þeir sem leggja
leið sína í næsta nágrenni eldgossins
verða varla aðrir en þaulvanir
göngugarpar og útivistarmenn.
Hótel Rangá hefur þegar auglýst
tilboð á gistingu og þyrluflugi yfir
svæðið og nú bíða menn spenntir
eftir fleiri krassandi tilboðum ferða-
þjónustuaðila. Eldgos hefur alltaf
hleypt lífi í ferðamennsku á svæð-
inu.
Menn deila um viðbrögð við gos-
inu af hálfu almannavarna. Sumir
telja sig svikna vegna þess að ekki
var haft samband við þá, þrátt fyrir
búsetu á hættusvæði. Það hlýtur að
vera óþægileg tilfinning. Nú gefst
öllum tækifæri á að láta vita af því
sem aflaga hefur farið. Þrátt fyrir
pirring einstakra gamalla kalla á
Reykjavíkursvæðinu þá eru íbúar
hér afar þakklátir fyrir að upplifa
öryggistilfinningu. Það er mikil
ábyrgð sem fylgir því að taka
ákvarðanir við þessar aðstæður og
við sem búum við hættuna viljum
frekar vera kölluð út einu sinni of
oft en einu sinni of sjaldan.
Garpur skal það heita fjallið
sem er að fæðast. Það finnst und-
irritaðri við hæfi þar sem hraunið
hefur þegar runnið yfir gönguleið
allra þeirra fræknu göngugarpa sem
gengið hafa Fimmvörðuhálsinn.
Hógværir Rang-
æingar heimsóttir
RANGÁRÞING EYSTRA
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Jarðeldur Eldgosið eins og það blasir við frá Fljótshlíðinni.
HALDNIR verða
á Selfossflugvelli
í dag tónleikar
um Sigurð Karls-
son verktaka,
sem lést á sl. ári.
Tónleikarnir
hefjast kl. 17 og
verða í flugskýli,
en Sigurður var
flugáhugmaður.
Samkoman hefst með listflugi
Björns Thoroddsens. Ágóði af tón-
leikunum rennur til Parkinson-
samtakanna. Karlakór Selfoss er í
aðalhlutverki en Sigurður var með-
al söngmanna þar.
Tónleikar sem hefj-
ast með listflugi
Sigurður Karlsson
Ljúfengt
Berja-strudel
að hætti Jóa Fel
-einstakt með morgunkaffinu
DETTUR ÞÚ
Ef þú kaupir Homeblest eða
Maryland kexpakka gætir þú
unnið glæsilegan vinning.
3 x 50.000 kr. úttektir
48 x 15.000 kr. úttektir
frá Útilífi, Intersport eða Markinu.
Leynist
vinningur í
pakkanum
þínum!
Í LUKKUPOTTINN
Útivistarleikur
Homeblest & Maryland
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
40
48
1