Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 25
Fréttir 25ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ANGELA Merkel, kanslari Þýska-
lands, virðist hafa verið helsti sigur-
vegarinn í deilunni um Grikkland á
tveggja daga leiðtogafundi Evrópu-
sambandsins sem lauk í gær. Merkel
fékk vilja sínum framgengt í deilu
við leiðtoga Frakklands og fleiri
ríkja um hvernig koma ætti Grikkj-
um til hjálpar vegna gífurlegs
skuldavanda þeirra. Sigurinn er þó
blandin beiskum eftirkeim, að mati
þýskra fjölmiðla.
Merkel fékk því meðal annars
framgengt að Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn tæki þátt í aðstoðinni við
Grikkland þrátt fyrir andstöðu
Nicolas Sarkozy, forseta Frakk-
lands, og fleiri ráðamanna á evru-
svæðinu sem voru tregir til að senda
þau skilaboð að eitt evrulandanna
þyrfti að leita ásjár AGS.
Þessi niðurstaða markar tímamót
í sögu Efnahags- og myntbandalags
Evrópu, EMU, því þetta er í fyrsta
skipti sem óskað er eftir afskiptum
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins af málefn-
um evrusvæðisins.
Á fundinum náðu leiðtogar ESB-
landanna samkomulagi um að evru-
löndin og AGS myndu veita Grikk-
landi lán að andvirði allt að 22 millj-
arða evra ef landið fær ekki lán á
viðráðanlegum kjörum á fjármála-
mörkuðum. Samkvæmt samkomu-
laginu kæmi þriðjungur lánanna frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og tveir
þriðju frá evrulöndum með tvíhliða
samningum milli þeirra og Grikk-
lands.
Markmiðið með samkomulaginu
er að tryggja að Grikkland fái lán á
fjármálamörkuðum með hagstæðari
kjörum, þannig að landið þurfi ekki
aðstoð evrulandanna eða Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Merkel gat því
farið heim með þau skilaboð til
þýskra kjósenda að þeir þyrftu ekki
að borga brúsann vegna óráðsíu
grískra stjórnvalda í efnahagsmál-
um.
Myntbandalagið „í gjörgæslu“
„Angela Merkel sigrar,
Evruhópurinn hefur samþykkt
neyðaráætlun fyrir Grikkland með
skilyrðum hennar,“ sagði vefútgáfa
þýska vikublaðsins Spiegel. Blaðið
bætti við að þótt Merkel hefði verið
harðskeytt áður á leiðtogafundum
ESB hefði hún alltaf verið tilbúin að
gefa eftir þar til nú. „Í þetta skipti lét
hún ekki undan, hún varð jafnvel
harðari í afstöðu sinni,“ sagði
Spiegel. „En sigurinn er dýrkeypt-
ur: í augum hinna ESB-þjóðanna
hefur „Ungfrú Evrópa“ breyst í
„Frau Nein“. Hætta er á að ímynd
okkar stórskaðist.“
Þýska viðskiptablaðið Handels-
blatt sagði að Merkel hefði sýnt
kraft sem minnti á „Járnfrúna“
Margaret Thatcher, fyrrverandi for-
sætisráðherra Bretlands, en sigur-
inn væri „beiskur“. Blaðið lýsti
Merkel sem „járnkanslara“, með
skírskotun til Ottos von Bismarcks,
fyrsta kanslara Þýskalands 1871-
1890, en sagði að hún hefði þurft að
„brjóta marga postulínsdiska til að
fá vilja sínum framgengt“. Nú væri
„lítil von“ um að Merkel gæti talið
aðra leiðtoga ESB á að setja harðari
reglur um fjárlagahalla evrulanda
eða að hægt yrði að víkja síbrotaríkj-
um úr myntbandalaginu.
Financial Times Deutschland tók í
sama streng, sagði að reglur mynt-
bandalagsins væru úreltar. „Í mála-
miðlunarsamkomulaginu felst að
gríski sjúklingurinn er úr hættu í
bili,“ sagði blaðið. „En niðurstaðan
er óneitanlega sú að nú er annað
komið í gjörgæslu: myntbandalagið í
heild sinni.“
„Beiskur sigur“ fyrir Merkel
Þýski kanslarinn fékk vilja sínum framgengt í deilunni um aðstoð við Grikki Þýskir fjölmiðlar telja
að sigur Merkel geti reynst dýrkeyptur Grikkland úr hættu í bili en myntbandalagið sagt í gjörgæslu
„Ungfrú Evrópa“ varð að „Frau
Nein“ á leiðtogafundi Evrópu-
sambandsins og hafði betur í
deilunni um hvernig koma ætti
Grikkjum til hjálpar vegna
skuldavanda þeirra.
Föst fyrir Nicolas Sarkozy ræðir við
Angelu Merkel á fundi ESB.
GRÍSKIR fjölmiðlar fögnuðu
samkomulagi leiðtoga ESB um
að koma Grikklandi til hjálpar ef
þörf krefði og niðurstaða fund-
arins varð til þess að skulda-
tryggingarálag á grískum ríkis-
skuldabréfum lækkaði verulega.
Gengi evrunnar hækkaði gagn-
vart dollarnum.
„Við getum andað aftur,“
sagði gríska dagblaðið Ta Nea.
Grískir stjórnmálaskýrendur
sögðu þó að ef Grikkir fengju
lán frá evrulöndunum og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum þyrftu
þeir að uppfylla ströng skilyrði
sem gætu leitt til frekari götu-
mótmæla í Grikklandi.
„Getum andað aftur“
IMELDA Marcos, fyrrverandi for-
setafrú Filippseyja, veifar til stuðn-
ingsmanna sinna í bænum Batac
þar sem hún hóf kosningabaráttu
sína í gær vegna þingkosninga sem
fram fara 10. maí. Imelda Marcos
er orðin áttræð og hóf baráttuna
með því að kyssa glerlíkkistu ein-
ræðisherrans fyrrverandi, Ferdin-
ands Marcos, sem var við völd í 20
ár þar til honum var steypt af stóli í
byltingu árið 1986.
Reuters
IMELDA SÆKIST EFTIR ÞINGSÆTI
HÆGT hefur á eyðingu skóga í
heiminum í fyrsta skipti frá því að
mælingar hófust, að því er fram
kemur í nýrri skýrslu Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO).
Skóglendi heimsins nemur nú
alls um fjórum milljörðum hektara
og á ári hverju minnkar skóglendið
um 13 milljónir hektara, eða
120.000 ferkílómetra.
Skógrækt hefur aukist í mörgum
löndum og ræktaðir skógar eru nú
um 7% af öllu skóglendi í heim-
inum, að sögn FAO.
Skóglendið í Asíu stækkaði um
2,2 milljónir hektara á ári að meðal-
tali á síðasta áratug, einkum vegna
mikillar skógræktar í Kína, á Ind-
landi og í Víetnam.
Skóglendið minnkaði mest í
Suður-Ameríku, um fjórar milljónir
hektara.
Estudio R. Carrera fyrir
1,0
0,8
0,6
0,4
0,2
0
Afríka Asía EvrópaNorður- og Mið-
Ameríka
EyjaálfaSuður-
Ameríka
SKÓGAREYÐING Í HEIMINUM
Heimild: Sameinuðu þjóðirnar
Indlandshaf
Atlantshaf
Kyrrahaf
Skógareyðingin í heiminum minnkaði á síðasta áratug, að sögn
embættismanna Sameinuðu þjóðanna sem segja þetta fyrsta
merkið um að baráttan fyrir verndun skóga sé að bera árangur.
Árlega minnkar þó skógarþekjan í heiminum um 120.000 ferkm.
Stærð skóglendis, 1990-2010
(milljarðar hektara)
Breytingar á stærð skóga, 2005-2010
2000
2010
1990
250-500
250-500
50-250
50-250
> 500
> 500
+50/ -50
St
æ
kk
un
M
in
nk
un
Þúsundir hektara
á ári
Hægir á
eyðingu
skóganna
BARACK Obama Bandaríkjaforseti og Dmítrí
Medvedev, forseti Rússlands, hafa komið sér sam-
an um nýjan sáttmála um kjarnorkuafvopnun.
Samkvæmt sáttmálanum má hvort ríki eiga 1.550
kjarnaodda. Rússar þurfa að fækka kjarnaoddum
sínum um rúm 30% og Bandaríkjamenn um 25%
miðað við síðasta afvopnunarsamning landanna.
Forsetarnir ræddust við í síma í gær og bundu
það fastmælum að undirrita afvopnunarsáttmál-
ann í Prag 8. næsta mánaðar.
Viðamesti sáttmáli í tæp 20 ár
Obama sagði að þetta væri viðamesti
afvopnunarsáttmáli í tæpa tvo áratugi, eða frá því
að START-samningurinn um fækkun langdrægra
kjarnorkueldflauga var undirritaður árið 1991.
„Með þessum sáttmála senda Bandaríkin og Rúss-
land – tvö mestu kjarnorkuveldi heimsins – skýr
skilaboð um að þau ætli að vera í fylkingarbrjósti,“
sagði Obama. „Með því að standa við skuldbind-
ingar okkar samkvæmt alþjóðasáttmálanum um
bann við útbreiðslu kjarnavopna eflum við baráttu
okkar í heiminum gegn útbreiðslu vopnanna og
fyrir því að önnur ríki standi við skuldbindingar
sínar.“ Obama lýsti því yfir í ræðu í Prag fyrir
tæpu ári að langtímamarkmið sitt væri að stuðla
að heimi án kjarnavopna.
Dúman, neðri deild rússneska þingsins, og öld-
ungadeild Bandaríkjaþings þurfa að staðfesta
sáttmálann. Í öldungadeildinni þurfa tveir þriðju
þingmannanna að samþykkja sáttmálann en
fréttaskýrendur segja að svo kunni að fara að
repúblikanar reyni að hindra staðfestingu hans.
Samningaviðræðurnar um nýja sáttmálann
höfðu dregist á langinn, meðal annars vegna deilu
um áform Bandaríkjamanna um að koma upp eld-
flaugavarnakerfi í Evrópu. Óljóst var í gær hvern-
ig deilan var leyst. Robert Gates, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að sáttmálinn myndi
ekki hindra áformin um eldflaugavarnirnar.
Stjórnvöld í Kreml sögðu þó að „lagalega bind-
andi“ tengsl væru á milli árásarvopna og eld-
flaugavarnakerfa í nýja sáttmálanum, eins og
Rússar höfðu krafist.
Sömdu um kjarnorkuafvopnun
Forsetar Bandaríkjanna og Rússlands náðu samkomulagi um fækkun
kjarnorkuvopna Löndin eiga að fækka kjarnaoddum sínum um 25-30%
Reuters
Sátt Hillary Clinton utanríkisráðherra og
Obama kynna sáttmálann í Hvíta húsinu.