Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 26

Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Stöðugleika-sáttmálinnsálugi hafði ekki síst þann til- gang að treysta undirstöður at- vinnulífsins og þar með heim- ilanna í landinu. Eitt af því sem til stóð var að ríkis- stjórnin greiddi götu stór- framkvæmda. Hún hefur þess í stað hindrað framkvæmdir og er það eitt af þeim atriðum sem aðilar vinnumarkaðarins og fjöldi annarra hafa gagn- rýnt ríkisstjórnina fyrir án ár- angurs. Sumir stjórnarliðar reyna að gera lítið úr fyrirstöðu rík- isstjórnarinnar í þessu sam- bandi og benda á aðra þegar rætt er um að ekkert hreyfist í stórum atvinnumálum. Þeir benda til að mynda á ríkis- stofnanir og láta eins og óút- skýrðar tafir innan þeirra séu ásættanlegar í því atvinnu- ástandi sem nú ríkir. Þá reyna stjórnarliðar að halda því fram að erlent fjármagn skorti og snúa þannig orsök og afleiðingu á haus. Þeir sem enn efast um að framkvæmdir mæti fyrirstöðu hjá ríkisstjórninni ættu að velta fyrir sér ræðu sem Svan- dís Svavarsdóttir umhverfis- ráðherra flutti á ársfundi Náttúrufræðistofnunar í vik- unni. Þar sagði ráðherrann: „Í allt of langan tíma hefur nátt- úrunni verið vikið til hliðar fyrir framkvæmdum sem hafa verið ákvarðaðar á grundvelli skammtímasjónarmiða, gróðahyggju og sérhagsmuna. Maður hefði haldið að það hrun sem varð hér haustið 2008 hefði kennt okkur eitt- hvað og breytt viðhorfum stjórnvalda, aðila vinnumark- aðarins og almennings. En því miður virðist svo ekki vera.“ Þessi orð segja allt sem segja þarf um viðhorf stjórn- valda og ástæður þess að hér situr allt fast í atvinnu- málum. Þess háttar málflutn- ingur hefur vafalítið hljómað vel á sellufundi á árum áður. Úr munni ráðherra í miðri efnahagskreppu dagsins í dag eru þetta hins vegar aðeins skilaboð um að enginn vilji sé til að hleypa atvinnulífinu af stað á ný. Auk gamalkunnra orða- leppa reynir ráðherrann að halda því fram að hér hafi orð- ið hrun í efnahagslífinu vegna mikillar uppbyggingar í grunnatvinnuvegum þjóðar- innar. Staðreyndin er þvert á móti sú að það var bankakerf- ið sem hrundi og ein helsta ástæða erfiðleikanna er að menn gleymdu því að nauð- synlegt er að byggja upp framleiðslu til að skapa áþreifanleg verðmæti. Vandinn sem Ísland glímir við er ekki aðeins alþjóðleg fjármálakreppa og innlent bankahrun. Ísland situr fast vegna þess að ríkisstjórnin vill ekki leyfa uppbyggingu at- vinnulífsins. Ráðherrar og aðrir stjórnarliðar bera á borð margvíslegar afsakanir fyrir því að ekkert gerist en um- hverfisráðherra hefur nú tek- ið viðhorf ríkisstjórnarinnar saman í stuttu máli. Innan rík- isstjórnarinnar ræður það við- horf að uppbygging orkufreks iðnaðar sé hvorki atvinnu- skapandi né í almannaþágu, heldur snúist hún um skamm- tímasjónarmið, gróðahyggju og sérhagsmuni. Ætli nokkr- um manni detti í hug að hægt sé að byggja upp nýja at- vinnustarfsemi þegar þetta er viðhorf stjórnvalda? Ráðherra sýnir atvinnulífinu mikinn fjandskap } Öfugsnúið viðhorf til atvinnuuppbyggingar Gylfa Magnús-syni fannst við hæfi að nota ársfund Seðla- bankans til að ráðaðst að ís- lensku krónunni. Sjálfsagt talið að hún þyrfti mest á því að halda um þessar mundir. Sjálfsagt hefur uppátækið glatt kjósendur ráðherrans. Björn Bjarnason, fyrrver- andi ráðherra, segir hins vegar á vefsíðu sinni: „Mér þykir einsýnt að skyn- samlegast sé fyrir ríkis- stjórn Jóhönnu að kalla ESB- umsókn sína til baka, áður en hún skaðar álit lands og þjóðar meira en orðið er.“ Og Björn bætir við: „Ég minni á, að fyrir bankahrunið höfðu einkum fjármálajöfrar krafist nýrrar myntar, hin íslenska væri of lítil fyrir þá. Nú væru áhrif þeirra engin og þörfin fyrir nýja mynt jafnframt horfin með þeim rökum sem þeir beittu.“ Fundur SÍ notaður til að vega að gjald- miðli þjóðarinnar} Horfin rök notuð E nginn er líklega fegnari gosinu á Fimmvörðuhálsi en ríkisstjórn Íslands. Ef undanskildir eru jarðvísindamenn, Ómar og Raxi. Stjórnin og Icesave hafa varla komist að í fréttum vikunnar. Sjálfsagt ekki einu sinni verið nefnd á Facebook. Og verða varla í þessari njósnaferð um fésbókina. Ekki oftar. - Kona fyrir vestan: Húrra fyrir Jóni Gnarr! Fólk vill að stjórnmál séu skemmtileg og nið- urstaða könnunar Fréttablaðsins í gær kemur því varla nokkrum á óvart. - Kona fyrir austan: Gnarr verður vonandi ekki í hlutverki Georgs Bjarnferðarsonar þegar hann sest í borgarstjórastólinn. Nema rétt á meðan fundir standa yfir. Eða eru menn ekki alltaf í einhverju hlutverki? Varla þeir sjálfir, hefur mér sýnst. - Kona fyrir norðan: Jón fer vonandi ekki í klippingu. Hann minnti á Tinna þar sem hann gekk með hundinn við Tjörnina í gær og ræddi við blaðamann Fréttavefjar Morgunblaðsins. Toppurinn horfði til himins. - Kona fyrir sunnan: Ég heyrði ekki betur en hundur borgarstjórans tilvonandi héti Tobbi. Eins og hundur Tinna. Líktist honum meira að segja. - Karl fyrir norðan: Hvers vegna fá bara konur að skrifa í pistlinum í dag? Hvar er jafnréttið? Og lýðræðið er ekki til að hafa í flimtingum. Stjórnmál og grín fara ekki saman. Nema á Alþingi. - Unglegur blaðamaður á miðjum aldri fyrir norðan: Konurnar eru líklega bara fre... ákveðnari. Ég fæ ekki stjórnað þessu frekar en aðrir miðlar; þær ryðjast hér inn. - Karl, vill ekki segja hvar: Já, hvar er jafn- réttið? Nú er meira að segja búið að banna stelpum að dansa. Það er ekki lengur gott að búa í Kópavogi. Alþingismenn ættu að skammast sín fyrir að auka atvinnuleysið. Stóriðja nauðsynleg, sama hvað hún kallast. - Fyrir 8 mínútum: Stjórnmál og grín fara víst saman. Og Jón Gnarr ætti að verða fjármálaráð- herra. Helst sem Bjarnfreðarson. Sá leiðindagaur yrði ekki lengi að fá útlendingana til að semja. Það yrði góður raunveruleikaþáttur. Tveir glaðlegir saman við borð, Georg og Brown. Ha ha ha! - Konan fyrir austan: Skapti og Skafti verða vænt- anlega komnir í góð embætti fljótlega eftir kosningar. Gnarr ætlar að hygla vinum sínum. Voru Skapftarnir ekki örugglega vinir hans í bókunum? - Sá unglegi: Þarf ég þá að flytja suður? Eða er nóg að búa í Borgar-hlíð hér í póstnúmeri 603? skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Stjórnmál í gamni og alvöru STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is G ígurinn á Fimmvörðu- hálsi kann að vera rétt um viku gamall, en sá myndarlegi hraun- bingur sem þar hefur hlaðist upp hefur engu að síður þeg- ar kallað fram fjölda hugmynda að nafngift. Samkvæmt upplýsingum frá Landmælingum Íslands fá svæði á Íslandi nöfn eftir mismunandi leið- um. Sveitarfélög ákveða t.d. nöfn á nýjum byggðum sem fara svo í gegnum samþykktaferli hjá Ör- nefnanefnd og þá hefur fjöldi ör- nefna orðið til í gegnum tíðina hjá bændum í tengslum við landnytjar. Oft minna t.a.m. örnefni við sjó á út- veg og nöfn inn til sveita á land- búnað. Örnefni þurfa að falla að íslensku málkerfi, en aðrir viðmiðunarþættir sem nafngift varðar eru lausari í sniðum – t.d. hvort örnefnið vísar til atburðar, staðar í næsta nágrenni, eða eðlis umrædds staðar. Áður var það hlutverk örnefnanefndar að finna nýjum náttúruvættum heiti og má nefna bæði Surtsey og Eldfell í Vestmannaeyjum sem dæmi um slíkt. Þónokkuð var liðið á gosið í báðum tilfellum áður en þessir stað- ir hlutu núverandi nöfn. Að sögn Þóru Bjarkar Hjartardóttur, for- manns Örnefnanefndar, voru þá komnar fram fleiri tillögur að nöfn- um. Í dag fara hins vegar Landmæl- ingar og nafnfræðingar yfir ný ör- nefni og gæta þess að þau standist kröfur sem til þeirra eru gerðar, svo að þau megi skrá og setja á kort. Upplýsingastreymið annað Í byrjun næstu viku munu fulltrú- ar Landmælinga, Stofnunar Árna Magnússonar og Örnefnanefndar funda um verkferla tengda örnefn- um og nafngiftum. Að sögn Eydísar Líndal, forstöðumanns Landupplýs- ingasviðs Landmælinga, er þó ólík- legt að nafn verði komið á gíginn að fundi loknum. Gígurinn verði engu að síður til umræðu, sem og verk- ferlarnir almennt. „Aðstæður nú eru aðeins öðru vísi en í gosinu í Vestmannaeyjum, eða þegar Surtsey gaus,“ segir hún. Ekki hafi verið jafn hávær krafa um nafngift þá og nú. „Í dag höfum við bæði vefmiðla og blogg og upplýs- ingastreymið á skoðunum einstakl- ingsins er einfaldlega allt annað.“ Full ástæða sé því til að fara yfir ferlið og verkefnið sé áhugavert. Líkt og mismunandi skoðanir eru á því hvaða nafn gígurinn á að hljóta, þá eru ekki allir á einu máli um hvenær það eigi að gerast. Þannig telja sumir happasælast að nefna staðinn strax svo ekki festist fleiri nöfn við hann. „Þröskuldar fyrir vestan, sem einnig hafa verið nefndir Arnkötludalsheiði eru dæmi um stað sem tvö nöfn hafa verið not- uð um,“ segir Eydís. Aðrir eru hins vegar þeirrar skoðunar að best sé að láta tímann líða og sjá þá hvernig svæðið þróast. „Gosið er nýhafið og það getur allt breyst á þessu svæði,“ segir Þóra Björk. Verði hins vegar nafn valið í næstu framtíð sé ekki ólíklegt að það vísi til þess að um eldgíg er að ræða. Nafnið þarf að falla að íslensku málkerfi Morgunblaðið/RAX Gígur, fjall eða fell? Svæðið í kringum eldgíginn á Fimmvörðuhálsi kann að eiga eftir að taka miklum breytingum á gostímanum. Örnefni taka gjarnan heiti sitt af aðstæðum og staðháttum, eða vísa til atburða sem þar hafa gerst. Þau þurfa auk þess að falla að íslensku málkerfi. STUNGIÐ hefur verið upp á fjöl- mörgum og fjölbreyttum nöfn- um fyrir gíginn á Fimmvörðu- hálsi í netheimum undanfarna daga. Mismikil alvara kann þar að leynast að baki og e.t.v. upp- fylla ekki öll þau skilyrði að geta birst á korti. Hér er birt brot nafna- hugmyndanna: Fimmvörðubóla Varða Funi Funafell Skuld Skjaldborg Þórðarfjall (til heiðurs Þórði Tómassyni í Skógum) Enron Lauga Steina Vörðufell Hraunfell Hruni Hálsafell Þórugígur (til heiðurs Þóru Arnórsdóttur fréttakonu) Gíslafell (til heiðurs Gísla Einarssyni fréttamanni) Hrunafell (ábending frá Þórði í Skógum) Grefill Fjölbreytt nafnahefð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.