Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 28
28 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 ÞAÐ VAR fyrir nokkrum árum að morgni föstudagsins langa að ég fékk mér göngutúr. Allt var einhvernveginn svo napurt, dapurt og drungalegt. Skýin á himninum voru svört og mjög áberandi, þau beinlínis angr- uðu mig. Þau minntu mig á syndir mínar. Þau voru allt í kringum mig, hvert sem ég leit. Mér fannst þau elta mig, ég komst ekki undan þeim. Tilfinningin var yfirþyrm- andi, mér fannst ég eins og í fjötrum. Það sem eftir lifði dags var ég utan við mig, var þögull og hugsi. Það var svo eftir fréttirnar í Sjónvarpinu laugardagskvöldið fyrir páskana að ég fór aftur út til þess að viðra mig. Til að hugsa minn gang og biðja. Mér varð litið upp í himininn til vest- urs. Við mér blasti blóðrautt sól- arlagið. það huldi skýin, ég sá þau ekki, þau virtust horfin. það var eins og sólarlagið hefði brennt þau upp eða eins og málað hefði verið yfir þau með ótrúlega fallegri rauðri málningu. Upplif- unin var einstök og er mér mjög eftirminnileg. Hvílík fegurð. Kaldur svitinn spratt fram á mér og rann niður eftir líkama mínum, ég fékk gæsahúð. Á þess- ari stundu upplifði ég á nýjan hátt hvernig blóð Jesú hylur syndir mínar og hreinsar þær burt. Svo rann páska- dagsmorgunn upp, dýrðlegur og fagur. Ég vaknaði snemma og hélt fótgangandi til kirkju. Á leiðinni varð mér litið upp í himininn, þangað sem sólarlagið hafði verið kvöldið áður. Nú var himinninn fagurblár og svo ólýsanlega tær og bjartur. Hann var blár svo langt sem aug- að eygði, með hvítum þunnum rákum á stöku stað. Hinn óend- anlegi blámi minnti mig á lífið. Hið óendanlega líf, eilífðina. Og hvítu rákirnar minntu mig á heil- agan anda Guðs eða englana hans sem vísa okkur veginn að hliðum himnanna, þangað sem frelsarinn sjálfur bíður okkar og tekur fagnandi á móti okkur með opinn faðminn sinn og segir: Velkominn vinur, lífið mitt er þitt. Hið fyrra var farið, allt var orðið nýtt. Lífið hafði náð yf- irhöndinni. Lífið hafði sigrað. Til umhugsunar um bænadaga og páska Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson »Hið fyrra var farið, allt var orðið nýtt. Lífið hafði náð yfirhönd- inni. Lífið hafði sigrað. Höfundur er rithöfundur og áhugamaður um lífið. NÝLEGA barst mér sú frétt að til stæði að minnka kröfur um dönsku- kunnáttu íslenskra stúdenta. Þannig á í framtíðinni að vera mögulegt að ljúka ís- lensku stúdentsprófi án þeirrar dönsku- kunnáttu sem flestir íslenskir námsmenn búa við í dag. Margt má segja um tengsl Íslands og Danmerkur í gegnum tíðina. Þar, eins og annars staðar, hafa skipst á skin og skúrir og oft hafa skiptin verið æði ójöfn. Oft- ast skúrir á Íslandi á meðan sól hefur skinið í heiði yfir Dan- mörku. Því verður þó ekki neitað að margt gott hefur hlotist af þeim nánu tengslum sem löndin hafa haft og hafa þá sérstaklega góðir hlutir fallið Íslandi í skaut á und- anförnum árum og áratugum. Á skrifandi stundu er t.d. áætlað að um 3.000 íslenskir námsmenn dveljist við nám í Danmörku. Og annað eins af fólki hefur sest hér að svona „á þessum síðustu og verstu“. Tölurnar eru áreið- anlega svipaðar fyrir Noreg og Svíþjóð, svo með snöggum hug- arreikningi má sjá að hátt í 10% Íslendinga njóta daglega góðs af kunnáttu sinni á öðru Norð- urlandamáli. Margir hafa reynt að hefja vistina í Baunaveldi með því að beita fyrir sig enskunni. Og þrátt fyrir að margir komist í gegnum margra ára nám án þess að geta gert sig vel skiljanlega á máli innfæddra, getur það varla talist vænleg lausn. Sérstaklega ekki fyrir þá sem íl- endast að námi loknu. En hvernig liti dæmið út í dag ef ís- lenskt námsfólk hefði ekki verið skyldað í dönskukennslu sem hluta af stúdents- prófi (Og sem enginn tók sjálfviljugur)? Ef ekki hefðu verið þessi sterku tengsl land- anna á milli, svo sem t.d. tvöfald- ur skattaafsláttur fyrir þá ís- lensku námsmenn sem vinna fyrir sér á sumrin eða meðfram náminu? Já, og þjóðfélag sem tekur opnum örmum á móti Ís- lendingum á meðan flestum öðr- um er haldið úti (Væntanleg eru móttökurnar ekki svo hlýjar í Hollandi eða á Bretlandseyjum í augnablikinu). Er enskuvæðingin virkilega komin svo langt á leið að Íslendingar eiga auðveldara en aðrir með að fá landvistar- og starfsleyfi í Bandaríkjunum og Englandi en á Norðurlöndunum? Skyldi það vera tilviljun að tæp- lega helmingur íslenskra náms- manna, sem stunda nám erlendis og þiggja námslán, stundar ein- mitt nám í Danmörku? Og hlut- fallið er mun stærra ef við teljum Noreg og Svíþjóð með. Eða er eitthvað til í því að við eigum meiri samleið með þessum mott- um prýddu frændum okkar en við viljum hafa hátt um? Við skulum ekki gleyma því að eftir að ungir íslenskir náms- menn hafa lokið námi sínu hér í Danaveldi eru þeir margir hverj- ir með sumarvinnunni sinni og meðfylgjandi skattgreiðslum búnir að tryggja sér að danska ríkið kosti nám barnanna þeirra. Alla leið að doktorsnáminu. Og borgar þeim laun á meðan! En það er auðvitað smámál fyrir ís- lenska ríkið að gera slíkt hið sama. Kostar ekki nema eins og eina virkjun. Með því að slaka á kröfum um dönskukunnáttu íslenskra náms- manna er verið að gera helmingi íslenskra námsmanna í námi er- lendis erfitt fyrir. Loka þeim leiðum sem best hafa reynst og takmarka möguleikana. Er það svona sem framtíðin á Nýja Ís- landi lítur út? Slegið á útréttar hendur, þegar við þurfum mest á þeim að halda? Danska þykir víst ekki svöl lengur. Einskis virði í allri enskuvæðingunni. Nei, þá finnst sumum betra að hafa góð tök á grundvallaratriðunum, þessum sem virkilega skipta máli: „Kudd jú plís sjó mí ðe vei tú ðe sjopp- ingmol?“ Eftir Birgi Fannar Birgisson »Niðurskurður á dönskukennslu fyrir stúdentspróf hefur víð- tæk áhrif þegar til lengri tíma er litið. Birgir Fannar Birgisson Höfundur er sjálfstætt starfandi iðnhönnuður. Kennsla í kreppu Endurbygging í takt við söguna Vorið 2007 skemmdust húsin Austurstræti 22 og Lækjargata 2 mikið í eldsvoða. Ákveðið var að endurreisa húsin og endurgera götumynd hornsins Austurstræti-Lækjargata. Byggingar sem nú er verið að reisa á horni Lækjargötu og Austurstrætis eru alls tæplega 2.500 m² að flatarmáli og rúmlega 9.000 m³ eða um tvisvar sinnum stærri en þær byggingar sem þarna stóðu fyrir brunann. Þar af er kjallari um 800 m², Lækjargata 2 ofan kjallara um 756 m², bakhús (Lækjargata 2b, Nýja bíó) ofan kjallara og með aðalstigakjarna um 724 m² og loks er húsið Austurstræti 22 ofan kjallara með útbyggingu um 220 m². Kjallarinn er að miklu leyti ætlaður fyrir veitingastað með framleiðslueldhúsi og starfsman- naðstöðu fyrir verslanir. Gert er ráð fyrir t.d. verslunum, þjónustu og kaffihúsi á jarðhæð og t.d. skrifstofum, félagsstarfsemi eða gallery á efri hæðum. Lóðin á horni Lækjargötu og Austurstrætis er í hjarta miðborgarinnar og ein af verðmætu- stu byggingarlóðum borgarinnar. Hér er því um að ræða eignir á frábærum stað. Allar nánari upplýsingar veita eingöngu eftirfarandi fasteignasölur: Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali TIL SÖLU EÐA LEIGU Lækjargata 2, 2b og Austurstræti 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.