Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 30
30 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
ÞEGAR Henry Kiss-
inger fékk frið-
arverðlaun Nóbels árið
1973 var haft eftir þjóð-
lagasöngvara nokkrum
að nú væri pólitísk
ádeila úrelt þar eð mað-
urinn sem látið hefði
sprengja hlutlausa
Kambódíu aftur til
steinaldarinnar hefði
verið hylltur sem frið-
arhöfðingi. Tacitus hefði vafalítið talið
Kissinger fullkomið dæmi um mann
sem „býr til eyðimerkur og kallar þær
frið“. Rómverjinn forni hefði örugg-
lega fengið kjánahroll, áþekkan þeim
sem ég fékk hinn 22. mars síðastliðinn
þegar ég sá í Morgunblaðinu yfirlýs-
ingu leiðtoga Sjálfstæðisflokksins á
Suðurnesjum um „pólitíska hræsni“
andstæðinga sinna.
Í grein sinni ber Ragnheiður Elín
Árnadóttir blak af fyrirtækinu ECA
og fyrirætlunum þeirra á Íslandi á
þeim grundvelli að þar sé á ferðinni
meinlaust verktakabatterí með
„óvopnaðar flugvélar“ sem geti veitt
ýmsum vel menntuðum Íslendingum
atvinnu við flugherma og slíkt. Þó
getur hún ekki stillt sig um að árétta
ágæti hernaðarbandalagsins NATO,
„varnarbandalags sem við Íslend-
ingar höfum verið aðilar að í 60 ár.
Varnarbandalags sem
stendur fyrir reglu-
legum æfingum innan
aðildarríkja sinna, m.a.
á Íslandi, til þess að
tryggja öryggi borgara
sinna og frið og stöð-
ugleika í álfunni.“
Hvort ætlar Ragn-
heiður að halda því fram
að hernaðaræfingar séu
góðar eða að ECA eigi
að mega vera hér á
landi vegna þess að fyr-
irtækið ætli ekki að vera
með neinar hernaðaræfingar? Varla
ætlar hún að leika tveimur skjöldum
og ætlast svo til þess að einhver taki
hana alvarlega?
Ef hún er að halda því fram í alvöru
að NATO tryggi frið og stöðugleika í
Evrópu finnst mér rétt að benda
henni á að um miðjan tíunda áratug-
inn gerði NATO-þjóðin Tyrkland
sprengjuárásir á Kúrda í landi sínu
með samþykki og hergagnastuðningi
Bandaríkjamanna, auk þess sem loft-
árásir bandaríska hersins á Serbíu
voru gerðar með þeim yfirlýstu vænt-
ingum bandaríska herforingjans
Wesley Clark að af þeim myndi leiða
þjóðarmorð í Kosovo. NATO er og
hefur alltaf verið stríðsbandalag
heimsveldisins í vestri og Íslendingar
fengu aldrei þjóðaratkvæðagreiðslu
um inngöngu í það. Aðild Íslands að
NATO var gerð að veruleika í skugga
sinnuleysis gagnvart þjóðarvilja og
lögregluofbeldis á Austurvelli.
Og ef Ragnheiður sér ekki siðferð-
islegan mun á því að skaffa herliði
flugvélar til loftárása annars vegar og
fisk til átu hins vegar þá er auðvitað
til einskis að reyna að tala um fyrir
henni. Það eitt segir hún af viti í
greininni að „við megum aldrei sætta
okkur við atvinnuleysi“. En hvar
dregur hún sín eigin siðferðismörk?
Hverju má að hennar mati fórna til að
sporna við atvinnuleysi á Suðurnesj-
um? Er ECA í lagi af því að fyrirtæk-
ið kemur ekki með vopn hingað?
Skiptir það hana engu máli að sú
tækni sem ECA skaffar herjum
NATO muni vera notuð til að granda
saklausum borgurum í Afganistan og
guð má vita hvar annars staðar í
framtíðinni?
Nei, það er ekki til hæfis að henda
grjóti í glerhúsum og hversu mikla
hræsni sem núverandi ríkisstjórn
gerir sig seka um í siðferðismálum
mun hún seint ná að slá pólitísk
hræsnimet Sjálfstæðisflokksins.
Flokks sem bauð sig fram sem eina
von Íslendinga um efnahagslegan
stöðugleika og stýrði svo þjóðarskút-
unni í gjaldþrot.
Af pólitískum
metum í hræsni
Eftir Símon
Hjaltason
Símon Hjaltason
» Talsmenn Sjálfstæð-
isflokksins ættu að
varast gífuryrði eins og
„hræsni“ í siðferð-
isumræðu þar eð þeir
eru alls ekki barna best-
ir í þeim efnum.
Höfundur er bókmenntafræðingur.
FERÐASKRIFSTOFA GUÐMUNDAR JÓNASSONAR EHF.,
BORGARTÚNI 34 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 511 1515,
www.gjtravel.is • outgoing@gjtravel.is
Vorferð til Norður-Þýzkalands 08.-13.maí Flogið til Kaupmannahafn-
ar, dvalið að Damp í Þýzkalandi. Fjölbreyttar skoðunarferðir innifaldar.
Fararstjóri Gunnar Guðmundsson Verð frá krónum 98.900,- .
Vestfjarðaferð 19. - 22.júní Fjögurra daga ferð um Vestfirði með gistingu
og fæði. Leiðsögumaður Emil Örn Kristjánsson. Verð frá krónum 84.500,-
Fjallavötn og fagrar strendur. Skemmtileg og fræðandi ferð um Norður
Ítalíu 5.-12. júlí Allar skoðunarferðir innifaldar auk ½ fæðis. Fararstjóri
Guðný Margrét Emilsdóttir. Verð frá krónum 219.900,-
Helsinki og Tallinn 17.- 22. ágúst Spennandi ferð til Helsinki, þar sem
einnig verður farið í heimsókn til Tallinn, höfuðborgar Eistlands. Fjöbreyttar
skoðunarferðir innifaldar. Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson. Verð frá krónum
140.840,-
Helgarferð til Brussel 10. - 13. september Stutt en yfirgripsmikil ferð til
belgísku borganna Brussel og Brügge. Gist á Hotel Crowne Plaza, skoðunar-
ferðir innifaldar. Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson. Verð frá krónum 89.900,-
Ferð um Suður-England 16.-20. september Ein af vinsælustu ferðun-
um okkar. Sjáið borgir og þorp í hjarta Englands. Allar ferðir og hálft fæði
innifalið. Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson. Verð frá krónum 124.800,-
Færeyjaferð 8. - 11. október Hví ekki að breyta til og heimsækja vini
okkar og granna í austri? Fjölbreytt og skemmtileg ferð. Skoðunarferðir og
½ fæði innifalið. Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson. Verð frá krónum
118.750,-
Rínarsigling 14. - 18. október Sigling á Rín, einu helzta stórfljóti Evr-
ópu, þar sem hún rennur um hinn fagra og rómaða Rínardal. Siglt er á góðu
skipi með prýðis vistarverum. Fæði og drykkir innifalið meðan á siglingu
stendur. Gist um borð í 3 nætur en síðustu nóttina er gist í Strasbourg í
Frakklandi. Fararstjóri Emil Örn Kristjánsson. Verð frá krónum 157.500,-
Við bjóðum vandaðar og skemmtilegar borgar-, menningar- og
náttúruferðir þar sem mikið er innifalið í verði ferðarinnar.
Skipuleggjum einnig ferðir fyrir sérhópa jafnt innanlands sem
utan, t.d. árshátíðarhópa, starfsmannaferðir, vinnuferðir o.fl.
Leitið nánari upplýsingar á heimasíðu okkar
www.gjtravel.is/isl eða www.ferdir.is
eða hringið í síma 511-1515.
Spennandi hópferðir
Innanlands og utan
20 mismunandi bækur
sem dæma þarf af
kápunni.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
50 kassar utan um
augnakonfekt.
5.000 umslög af
heppilegri stærð.
2.000 bæklingar
með afar djúpum
pælingum.
! " #
$
!
"
%
&
!
!
%!
' #
##
(
)
*+,- &
#$
(
$
. / /
! ,0 '
& (/ & (
! ( (
(!
! &
$
##
"
##
/ 111
+
#,$
0$
,2
,
Hestamenn athugið!
Til sölu sumarhús og beitiland á fallegum stað í Bláskógabyggð.
Um er að ræða nýtt 60 fm sumarhús með svefnlofti
á 0.6 ha. lóð ásamt 7 ha. beitilandi.
Verð 25 milljónir.
Upplýsingar í síma 893 8808.