Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 33

Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 ÞAÐ VERÐUR að teljast til fádæma að þjóð í hinum vest- ræna heimi geti með elju sinni hrakið rík- isstjórn frá völdum. Elja og þrautseigja Íslendinga er mikil. Dugnaður og þjóð- ernisstolt skipar stóran sess í hjarta þjóðarinnar enda hefur henni jafnvel tekist að sigra heilu heimsveldin í stórum milliríkjadeilum, má þá einna helst nefna landhelgisdeil- una og sjálfstæðisbaráttuna. Einhver gjá virðist því miður hafa myndast milli ráðamanna þjóðarinnar, það er að segja þeirra sem lagalega eiga að vinna fyrir þjóðina og þjóðarinnar þeg- ar kemur að þjóðar- og þjóðern- isstolti. Á meðan þjóðin berst fyrir sjálfsákvörðunarrétti sínum eru ráðamenn að vinna gegn honum, á meðan þjóðin berst hetjulega gegn kúgun, valdníðslu og nið- urlægingu erlendra ríkja og stór- ríkjasambanda taka ráðamenn þjóðarinnar slíkri valdníðslu fagnandi og í sumum tilfellum hvetja til aukinnar niðurlægingar og þjóðlegrar kúgunar. Jafnvel hinir hógværustu menn íhuga að rísa upp gagnvart slík- um ráðamönnum, skiljanlega, enda getur þjóðin ef illa fer end- að í langvinnum, ef ekki ævar- andi, skuldaflækjum með tilheyr- andi lífskjaraskerðingu. Langlundargeð þjóðarinnar er ekki óendanlegt og í fleiri en einu máli er henni misboðið. Sennilega verður litið aftur til þessara tíma og horft með stolti á framgöngu þjóðarinnar sem hefur sannarlega sýnt mátt sinn og megin þótt lymskuaðferðum hafi verið beitt gegn henni. Sam- einuð stóð hún og stendur enn. Ósigur verður aldrei samþykktur af hálfu hennar, fullveldisafsal ekki heldur. Kerfisbreytingar eru nauðsyn- legar í okkar þjóðfélagi. Koma þarf í veg fyrir áframhaldandi al- ræðisvald ríkisstjórnar yfir lög- gjöfinni, hvers flokks sem hún er. Í því samhengi verður það að teljast varhugavert að þingstörf liggi niðri í lengri tíma þegar rík- isstjórn er löskuð og/eða óstarf- hæf eins og kemur fyrir. Samkvæmt íslensku stjórnar- skránni, sem og í flestum lýðræð- isríkjum, á ríkisstjórn aðeins að fara með framkvæmdarvald þótt hefð sé fyrir því hérlendis að sitj- andi ríkisstjórn á hverjum tíma, og breytir þá engu hverra flokka, taki sér alræðisvald yfir löggjafanum. Með þessu fyrrnefnda al- ræðisvaldi hefur for- mönnum, oftast tveggja, stjórn- málaflokka í gegnum tíðina tekist að fara þvert á vilja þjóð- arinnar í hverju mál- inu á fætur öðru. Sé stjórnarskráin skoðuð segir í 15. gr. hennar: „Forsetinn skipar ráð- herra og veitir þeim lausn. Hann ákveður tölu þeirra og skiptir störfum með þeim.“ Þessi grein stjórnarskrárinnar, eins og því miður margar, hefur ekki verið virk. Hugsanlegt er að þessi slæma hefð hafi skapast þegar Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands, var þingvalinn forseti og hugsast getur að hann hafi hrein- lega ekki viljað taka að sér slíkt vald óþjóðkjörinn. Augljóst er þó að forsetinn á samkvæmt stjórn- arskrá að skipa ráðherra en ekki óþjóðkjörnir formenn stjórn- málaflokka. Von hlýtur að skapast í hug og hjarta margra þegar litið er til þess að forsetakosningar fara fram 2012. Vonandi stígur fram, í þeim kosningum, leiðtogi sem er óhræddur við að taka sér það vald sem sjálf stjórnarskráin ekki aðeins heimilar heldur segir til um. Löngu er orðið tímabært að stjórnarskráin verði virt. Það má ekki líðast að sjálf grundvall- arréttindi Íslendinga séu virt að vettugi til þess eins að óþjóð- kjörnir formenn stjórnmálaflokka með örfá atkvæði á bak við sig hafi alræðisvald yfir sjálfu Al- þingi Íslendinga. Eftir Viðar H. Guðjohnsen » Á meðan þjóðin berst fyrir sjálfs- ákvörðunarrétti sínum eru ráðamenn að vinna gegn honum … Viðar H. Guðjohnsen Höfundur er meistaranemi í lyfjafræði. Barátta þjóðarinnar Ýf a 11 0x 11 0c m 20 10 Síðasta sýningarhelgi Hvar áttu heima? Opið virka daga 10-18, laugard. 11-16 og sunnud. 14-16. Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir sýnir í Gallerí Fold 3.-28. mars. www.hrafnhilduringa.com Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is OPIÐ Laugardag frá kl. 11-17 Sunnudag frá kl. 13-17 Virka daga frá kl. 10-18www.dorma.is + + = 19.900,- Dúnsæng Dúnkoddi Sængurver Frábær fermingargjöf Allur pakkinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.