Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
ÞAÐ VERÐUR að
teljast til fádæma að
þjóð í hinum vest-
ræna heimi geti með
elju sinni hrakið rík-
isstjórn frá völdum.
Elja og þrautseigja
Íslendinga er mikil.
Dugnaður og þjóð-
ernisstolt skipar
stóran sess í hjarta
þjóðarinnar enda
hefur henni jafnvel
tekist að sigra heilu heimsveldin í
stórum milliríkjadeilum, má þá
einna helst nefna landhelgisdeil-
una og sjálfstæðisbaráttuna.
Einhver gjá virðist því miður
hafa myndast milli ráðamanna
þjóðarinnar, það er að segja
þeirra sem lagalega eiga að vinna
fyrir þjóðina og þjóðarinnar þeg-
ar kemur að þjóðar- og þjóðern-
isstolti.
Á meðan þjóðin berst fyrir
sjálfsákvörðunarrétti sínum eru
ráðamenn að vinna gegn honum,
á meðan þjóðin berst hetjulega
gegn kúgun, valdníðslu og nið-
urlægingu erlendra ríkja og stór-
ríkjasambanda taka ráðamenn
þjóðarinnar slíkri valdníðslu
fagnandi og í sumum tilfellum
hvetja til aukinnar niðurlægingar
og þjóðlegrar kúgunar.
Jafnvel hinir hógværustu menn
íhuga að rísa upp gagnvart slík-
um ráðamönnum, skiljanlega,
enda getur þjóðin ef illa fer end-
að í langvinnum, ef ekki ævar-
andi, skuldaflækjum með tilheyr-
andi lífskjaraskerðingu.
Langlundargeð þjóðarinnar er
ekki óendanlegt og í fleiri en einu
máli er henni misboðið.
Sennilega verður litið aftur til
þessara tíma og horft með stolti
á framgöngu þjóðarinnar sem
hefur sannarlega sýnt mátt sinn
og megin þótt lymskuaðferðum
hafi verið beitt gegn henni. Sam-
einuð stóð hún og stendur enn.
Ósigur verður aldrei samþykktur
af hálfu hennar, fullveldisafsal
ekki heldur.
Kerfisbreytingar eru nauðsyn-
legar í okkar þjóðfélagi. Koma
þarf í veg fyrir áframhaldandi al-
ræðisvald ríkisstjórnar yfir lög-
gjöfinni, hvers flokks sem hún er.
Í því samhengi verður það að
teljast varhugavert að þingstörf
liggi niðri í lengri tíma þegar rík-
isstjórn er löskuð og/eða óstarf-
hæf eins og kemur fyrir.
Samkvæmt íslensku stjórnar-
skránni, sem og í flestum lýðræð-
isríkjum, á ríkisstjórn aðeins að
fara með framkvæmdarvald þótt
hefð sé fyrir því hérlendis að sitj-
andi ríkisstjórn á hverjum tíma,
og breytir þá engu
hverra flokka, taki
sér alræðisvald yfir
löggjafanum. Með
þessu fyrrnefnda al-
ræðisvaldi hefur for-
mönnum, oftast
tveggja, stjórn-
málaflokka í gegnum
tíðina tekist að fara
þvert á vilja þjóð-
arinnar í hverju mál-
inu á fætur öðru.
Sé stjórnarskráin
skoðuð segir í 15. gr.
hennar: „Forsetinn skipar ráð-
herra og veitir þeim lausn. Hann
ákveður tölu þeirra og skiptir
störfum með þeim.“ Þessi grein
stjórnarskrárinnar, eins og því
miður margar, hefur ekki verið
virk. Hugsanlegt er að þessi
slæma hefð hafi skapast þegar
Sveinn Björnsson, fyrsti forseti
Íslands, var þingvalinn forseti og
hugsast getur að hann hafi hrein-
lega ekki viljað taka að sér slíkt
vald óþjóðkjörinn. Augljóst er þó
að forsetinn á samkvæmt stjórn-
arskrá að skipa ráðherra en ekki
óþjóðkjörnir formenn stjórn-
málaflokka.
Von hlýtur að skapast í hug og
hjarta margra þegar litið er til
þess að forsetakosningar fara
fram 2012. Vonandi stígur fram, í
þeim kosningum, leiðtogi sem er
óhræddur við að taka sér það
vald sem sjálf stjórnarskráin ekki
aðeins heimilar heldur segir til
um.
Löngu er orðið tímabært að
stjórnarskráin verði virt. Það má
ekki líðast að sjálf grundvall-
arréttindi Íslendinga séu virt að
vettugi til þess eins að óþjóð-
kjörnir formenn stjórnmálaflokka
með örfá atkvæði á bak við sig
hafi alræðisvald yfir sjálfu Al-
þingi Íslendinga.
Eftir Viðar H.
Guðjohnsen
» Á meðan þjóðin
berst fyrir sjálfs-
ákvörðunarrétti sínum
eru ráðamenn að vinna
gegn honum …
Viðar H.
Guðjohnsen
Höfundur er meistaranemi
í lyfjafræði.
Barátta þjóðarinnar
Ýf
a
11
0x
11
0c
m
20
10
Síðasta sýningarhelgi
Hvar áttu heima?
Opið virka daga 10-18, laugard. 11-16 og sunnud. 14-16.
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
sýnir í Gallerí Fold 3.-28. mars.
www.hrafnhilduringa.com
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is • dorma@dorma.is
OPIÐ
Laugardag frá kl. 11-17
Sunnudag frá kl. 13-17
Virka daga frá kl. 10-18www.dorma.is
+ + = 19.900,-
Dúnsæng Dúnkoddi Sængurver
Frábær fermingargjöf
Allur pakkinn