Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 ✝ Þóra Frímanns-dóttir, fv. hús- freyja og verkakona á Siglufirði, fæddist í Neðri-Sandvík í Grímsey 19.12. 1921. Hún andaðist á sjúkra- deild Heilbrigðisstofn- unar Fjallabyggðar á Siglufirði 21.3. sl. Foreldrar hennar voru Emilía Guðrún Matthíasdóttir f. 26.7. 1894, d. 3.7. 1969, hús- freyja, og Frímann Sigmundur Frímanns- son f. 9.10. 1879, d. 23.3. 1934 út- vegsbóndi í Grímsey. Systkini Þóru eru Guðný Frímannsdóttir, fv. hús- mæðrakennari í Reykjavík og víðar, f. 30.9. 1920, d. 22.1. 1983; Sigríður Frímannsdóttir, fv. húsfreyja í Reykjavík, f. 20.6. 1926, d. 2.5. 1967; og Matthías Frímannsson, cand. the- ol. og löggiltur skjalaþýðandi, fv. framhaldsskólakennari og leið- sögumaður, Kópavogi, f. 30.12. 1932. Fyrri maki Þóru var Ingi- mundur Vilhelm Sæmundsson, vél- virki, f. 26.5. 1921 í Hnífsdal, d. ist þá með foreldrum sínum til Hrís- eyjar og bjó þar í eitt ár. Síðan flytja þau aftur út til Grímseyjar. Á 13. ári missti hún föður sinn og flutti móðir hennar þá til Akureyrar með systk- inahópinn, en Þóra varð eftir hjá afa sínum og ömmu, sr. Matthíasi Egg- ertssyni og Mundíönu Guðnýju Guð- mundsdóttur, úti í Grímsey og fermdist þar. Seinnipart sumars fór hún í vist til Árna Kristjánssonar tónlistarkennara í Reykjavík og frænku sinnar, konu hans, Önnu Steingrímsdóttur, og dvaldi hjá þeim í eitt og hálft ár, við barnapöss- un. Þaðan fór hún til Patreksfjarðar eitt sumar (1936), til Gísla Bjarna- sonar skipstjóra og Nönnu Guð- mundsdóttur konu hans. Var svo í Reykjavík hjá ömmu sinni og afa, um hríð, svo á Haugum í Stafholt- stungum í Borgarfirði sumarið 1937, en fór um haustið í nám í Reykholts- skóla í Borgarfirði og útskrifaðist þaðan vorið 1939. Var það sumar í vist á Akureyri, hjá Ásgeiri Matt- híassyni kaupmanni, móðurbróður sínum, og konu hans. Þaðan fór hún til Siglufjarðar og bjó þar til ævi- loka. Útför Þóru verður gerð frá Siglu- fjarðarkirkju í dag, laugardaginn 27. mars 2010 og hefst athöfnin kl. 14. 10.12. 1988. Þau skildu. Börn þeirra eru: Frímann Emil, f. 12.6. 1941, hann á þrjú börn, er fráskilinn; Rí- key, f. 1.6. 1942, hún á þrjár dætur, er frá- skilin; og Þorsteinn, f. 3.12. 1943, d. 17.1. 1963. Seinni maki Þóru var Kristján Æg- ir Jónsson, vélstjóri, sjómaður og verka- maður, f. 4.5. 1921 að Stóra-Grindli í Grind- um í Fljótum, Skaga- firði, d. 15.12. 1993. Börn þeirra eru: Gylfi, f. 10.11. 1946, hann á fjögur börn, er í sambúð með Jóhönnu Finnborgu Magnúsdóttur; Lýður, f. 3.7. 1948, hann á fjóra syni, er frá- skilinn; Jón, f. 19.5. 1953, barnlaus og einhleypur; Sigurður, f. 21.9. 1958, hann á þrjú börn af fyrra hjónabandi, núverandi kona hans er Arnheiður Jónsdóttir og eiga þau tvö börn; og Matthías, f. 1.6. 1960, eiginkona hans er Hanna Ólafsdóttir og eiga þau þrjú börn. Þóra ólst upp í Grímsey fram undir 1930, en flutt- Elsku mamma, um síðustu helgi háðirðu erfiðustu orrustu lífs þíns og jafnframt þá ójöfnustu. Ég er þakk- látur fyrir að hafa fengið að vera hjá þér þessa daga og allt þar til yfir lauk. Þú sýndir ótrúlega eljusemi en eitt- hvað varð undan að láta. Þú hafðir einstaka lund. Ég minn- ist þess aðeins að þú hafir þrisvar á lífsleiðinni skipt skapi. Fyrst þegar ég var að spila fyrir þig á harmonikku 16 ára gamall. Þá tókstu þessi hrika- legu dansspor og ég fékk hláturskast. Þér var hins vegar ekki hlátur í huga þar sem danssporin stöfuðu af heift- arlegum sinadrætti. Þú reiddist mér í annað sinn þegar þú fannst áfengislykt úr svefnher- berginu mínu, þegar ég var sextán ára og nýfarinn að fikta við vín. Ég hafði læst að mér. Þú kallaðir: „Matt- hías, ertu farinn að drekka eins og bræður þínir? Ég hélt að það myndi rætast úr þér.“ Ég svaraði: „Nei, mamma mín, ég er að gera tilraun í eðlisfræði.“ „Nú, fyrirgefðu, elskan mín,“ sagðir þú og ég dauðskamm- aðist mín fyrir að hafa platað þig. Reyndar bætti ég ráð mitt síðar á árinu þegar ég hætti alfarið að drekka eftir aðeins nokkur skipti. Þú reiddist mér í þriðja og síðasta sinn þegar við vorum á leið til Reykjavíkur. Þarna hef ég verið orð- inn ríflega tvítugur og þú tæplega sextug. Til að það færi sem best um þig í aftursætinu hafði ég sett sæng undir þig. Við vorum nýbúin að kaupa ís þegar ég keyrði yfir hraðahindrun. Ég heyrði vein úr aftursætinu og varð litið í baksýnisspegilinn. Sá þá undir iljarnar á þér. Síðan lentirðu aftur en ísinn varð eftir í loftklæðn- ingunni. Ég fékk hláturskast en þú höfuðverk. En þér rann reiðin fljótt eins og í hin skiptin tvö. Þar sem það var alltaf svo stutt í grínið hjá þér, mamma mín, verð ég að minnast á þegar Guðmunda, tengdamóðir mín, sagði að ef þér liði illa ættirðu að hringja í Orð dagsins og leita þér huggunar þar. Eina nótt- ina gastu ekki sofnað og ákvaðst að fara að orðum tengdamóður minnar. En þú hringdir í vitlaust númer og í snaróðan Dana sem blótaði þér í sand og ösku á dönsku og óskaði þér alls ills. Þetta bjargaði nóttinni, því þú hlóst fram undir morgun. Elsku mamma, þú varst einstök móðir. Hlý og falleg, hugulsöm, kær- leiksrík og alltaf til staðar. Þú hugs- aðir alltaf fyrst um aðra en síðast um sjálfa þig. Þú varst hógvær og af hjarta lítillát og þín verður sárt sakn- að. Sextán ára gamall samdi ég lag og ljóð um þig sem þú fékkst að heyra í fyrsta sinn fyrir síðustu jól. Ég læt ljóðið verða mín lokaorð til þín. Takk fyrir samfylgdina, mamma mín. Ég mun elska þig að eilífu. Mamma mín, ljóð ég sendi þér, lítill drengur þér ást sína ljær. Af því að efst í huga mér ætíð verður þú móðir mín kær. Mamma mín, er upp sú rennur tíð að þú dreng þínum hverfur á braut munu tárvotir hvarmar endurspegla minning’ þína í aldanna skaut. Þinn sonur, Matthías Ægisson. Nú burtu’ ertu farin, þú, blíðasta sál, og besta og tryggasta móðir, og komin í dýrð, inn í krossberans land, – á kærleikans, eilífu slóðir. Þá vegur er genginn í veröldu hér og vik eru’ á brautinni þinni, með fullmeintum hug en við fátækleg orð, við fyrir allt þökkum. Að sinni. Þú varst okkur mikið, já, vernd bæði’ og skjól, er vindarnir gnauðuðu og börðu, því alltaf stóð faðmurinn opinn og hlýr í oftlega lífinu hörðu. Að leita til þín með hin leyndustu mál og leiðann og ótalmörg sárin, var gott. Því í hvert sinn með gleði á brá þú gafst okkur bros þín á tárin. Svo kenndirðu ljúf okkur kristinna trú. Til konungsins sanna að biðja. Að liðsinna því sem er lasburða og veikt. Hvern lítinn og beygðan að styðja. Æ gerðir þér far um að græða hvert sár, og gæsku í heiminn að færa. Sú bæn þín til himins var borin og leidd í bjarma af ljósinu skæra. Og vegna þess alls sem í vitund nú býr, er vandinn þeim meiri að kveðja. Að hafa ekki lengur að halda’ í og sjá þá hönd sem allt reyndi að gleðja. Við horfum í tómið og harmur er stór. Og hér eru dagarnir kaldir. En mynd þín í hjarta’ okkar, mild og svo björt, í minningu lifir. Um aldir. Þín börn, Frímann, Ríkey, Þorsteinn, Gylfi, Lýður, Jón, Sigurður og Matthías Elsku tengdamamma, mig langar að skrifa nokkur orð um hvað þú varst mér dýrmæt. Þú varst alltaf svo yndisleg og hlý við mig. Ég man þeg- ar ég kom fyrst inn á heimilið með Matta fyrir þrjátíu og þremur árum, þá tókstu svo vel á móti mér. Þá var ég 19 ára gömul og ég man að ég var svo rosalega feimin. Þú bauðst mig velkomna inn á heimilið og í fjölskyld- una og vannst mig með því að sýna mér fjölskyldumyndir. Eftir skamma stund var eins og við hefðum þekkst lengi og ég varð ekki feimin eftir það. Þú varst mér rosalega dýrmæt sem tengdamamma, vinkona og mamma. Mig langar að þakka þér hvernig þú varst við börnin mín sem elskuðu þig og að koma til þín og vera hjá þér. Við vissum alltaf þegar við nálguðumst göngin að við fengjum yndislegar bollur og kartöflustöppu sem við hlökkuðum alltaf til að borða. Ég man eitt skiptið þegar þú hrós- aðir mér svo mikið fyrir hvað ég þvoði vel og passaði vel upp á hlutina. Þú baðst mig um að þvo fyrir þig hunda- fötin (varst alltaf í sérfötum hjá Gylfa út af hundinum, föt sem átti að þvo á 30 gráðum). Þú baðst mig um að skola þetta fyrir þig. „Ekki málið,“ sagði ég og skellti þessu í þvottavélina. Svo skildum við ekkert í því hvað þvotta- vélin var lengi að. Þá kannaði ég á hvaða prógram ég hafði stillt og viti menn, það var suða. Út úr þvottavél- inni kom pínulítið pils og peysa. Ég var miður mín en þú hlóst og fannst þetta bráðfyndið. „Svona gerast hlut- irnir stundum,“ sagðirðu með mikilli yfirvegun. Þóra, ég elska þig mikið. Mér fannst dýrmætur tími þegar ég kom til þín 13. desember með Matta og það kvöld er svo ofarlega í huga mér. Þar áttum við innilegt samtal sem var mér mjög dýrmætt. Ég elska þig mikið og á góða minn- ingu um yndislega tengdamóður sem ég er þakklát fyrir. Takk fyrir hvað þú varst yndisleg amma. Matthías Jochum, Eva Ösp og Ægir Óli elska þig út af lífinu. Takk fyrir allt sem þú varst mér. Guð blessi minningu þína. Þín tengdadóttir, Hanna Ólafsdóttir. Elsku amma Þóra, eða amma á Sigló, eins og ég kallaði þig alltaf á yngri árum. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin. Mér finnst ég enn geta hitt þig í sumar og spjallað við þig um daginn og veginn. Þú varst alltaf svo létt í lund og iðaðir af lífs- gleði. Þú varst hefðarkona, alltaf svo vel til höfð. Ég man hvernig ég gat gleymt mér tímunum saman uppi á lofti í fata- og skartgripaskápunum þínum. Alltaf leyfðirðu mér að máta fötin þín og skartgripi. Eitt sinn, þegar ég var átta ára, kom ég niður af háaloftinu í fullum skrúða. Ég var komin í stígvélin þín meira að segja og þau voru svo stór á mig að ég dró þau nánast á eftir mér. Mér fannst ég vera agalega fín og ég man að þú og pabbi fóruð með mig niður í fjöru og á torgið á Siglufirði til að taka mynd- band af mér. Þegar við systkinin komum norður til þín var þrennt á kristaltæru. Við fengum fiskibollur í brúnni sósu og kartöflustöppu með, sem var algjört lostæti, ömmunammi og síðast en ekki síst trúðum við því að í garðinum þín- um væri mesti hitinn þegar sólin skein. Enginn vafi lék á því, Matti bróðir var duglegur að gera kannanir í öðrum görðum og í bænum sjálfum. Ég er óendanlega stolt af þér, Þóra amma mín, hvernig þú brostir alltaf framan í lífið. Þú kvaddir á afmælis- daginn minn 21. mars síðastliðinn, 88 ára að aldri, eða á báðum áttum eins og þú orðaðir það svo skemmtilega eitt sinn. Mér er heiður að fá í framtíðinni að minnast þín á afmælisdegi mínum, því ég mun alltaf vera ömmustelpan þín. Þú varst mér mikil fyrirmynd í líf- inu, smakkaðir aldrei áfengi og það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér. Það er svo sérstakt að fyrir tæpum tveimur mánuðum fór ég í Kolaportið því ég ætlaði að byrja að safna mér an- tík bollastelli. Ég fann ekki neina bolla sem mig langaði í en þegar ég fór í einn básinn sá ég tvo gullfallega kö- kudiska og ég fékk á tilfinninguna að ég ætti að kaupa þá. Þegar ég ætlaði að fara að borga sá ég bolla alveg eins og þú áttir og gerði mér þá grein fyrir því að kökudiskarnir voru líka úr samskonar stelli. Merkilegast við þetta allt saman er að það var aðeins einn bolli eftir og var hann merktur marsmánuði. Þennan bolla lét ég Matta bróður gefa mér fyrirfram í af- mælisgjöf og mun ég alltaf muna eftir þeirri afmælisgjöf, elskulega amma mín. Margs er að minnast, elskan mín, og man ég hvað mér fannst alltaf gott að knúsa þig, því það stafaði svo mikilli hlýju frá þér. Þú varst oft með Coolwa- ter, sama ilmvatn og ég notaði þegar ég var unglingur, sem var vel lýsandi fyrir þína léttu lund. Ég sakna þín svo mikið, elsku amma mín. Kveðja, Eva Ösp Matthíasdóttir. Elsku amma mín á Sigló, nú ertu farin frá okkur. Ég mun sakna þín óendanlega mikið en ég veit að þú ert komin á betri stað. Um þig á ég margar og góðar minningar. Þú varst alltaf svo góð við mig og fannst mér ekkert betra en að knúsa þig þegar ég sá þig. Alltaf þeg- ar ég fór með mömmu og pabba og systkinum mínum norður á Siglufjörð hlakkaði ég mikið til. Það var alveg sama hvenær sólarhringsins við kom- um til þín, alltaf varstu tilbúin með fiskibollur í brúnni sósu í pottinum og sást til þess að allir fengju nóg. Þér þótti ekki leiðinlegt að segja sögur og man ég sérstaklega eftir tveim sögum sem þú sagðir mér frá því ég var lítill. Fyrri sagan var þannig að við Davíð frændi vorum í heimsókn hjá þér og þú varst að baka pönnukök- ur handa okkur þegar annar okkar gaspraði: „þetta er mín sexta pönnu- kaka“ og þá segir hinn „þetta er líka mín sexta“. Hin var á þá leið að ég var að horfa á sjónvarpið og táknmálsfréttir fóru af stað. Hleyp ég þá inn til þín í eldhúsið og segi við þig að það vanti batterí í kallinn í sjónvarpinu. Ég og amma mín eigum að ég hygg Íslandsmet í spiluðum ólsen ólsen spil- um á fjórum dögum. Ég var þá átta ára og amma að verða 70 ára. Við spil- uðum 400 spil á þessum fjórum dögum og ég skrifaði allt niður og fór svo að ég vann 200 og amma 200. Ég vakti greyið ömmu rosa spenntur að spila kl. sjö á morgnana. Hún samþykkti þetta ef hún mætti liggja í sófanum sínum. En amma átti eitt trikk sem ég var alltaf svo hræddur við: hún sagðist trekkja sig í gang og alltaf þegar hún byrjaði að gera það þá hélt ég að spilið væri búið, en þetta gerði hún bara til að slá á létta strengi sem var hennar aðalsmerki. Alltaf svo stutt í húmorinn og hláturinn hjá henni ömmu. Eitt sumarið þegar Ægir Óli, bróðir minn, var í maganum á mömmu fór ég, Eva Ösp, systir mín, og pabbi norður til ömmu um hásumar. Það var rosa- lega gott veður og amma var með hita- mæli í glugganum hjá sér og ég sá hann fara upp í 40 gráður. Við það rýk ég af stað niður í bæ og tjái öllum sem ég sá að það sé 40 gráða hiti í garð- inum hjá ömmu Þóru, alveg rosalega stoltur af hitamollunni í garðinum hjá ömmu minni. Svo áttum við mjög góðar stundir á jólunum þar sem amma kom oft í mat til okkar ásamt Jónsa og Frímanni, bræðrum pabba. Fannst það vera al- gjör hápunktur jólanna að fá ömmu í heimsókn. Síðasta sumar fórum við til Siglu- fjarðar og áttum við yndislega stund með ömmu á Siglufirði öll fjölskyldan. Tókum myndir af okkur öllum saman. Amma þvílíkt fín, enda vissu þeir vel sem þekktu ömmu að henni fannst voðalega gaman að gera sig sæta og fína. Mér fannst rosalega gott að geta kvatt þig vel, amma mín, um síðustu helgi. Í mínum huga ertu algjör hetja og ég mun halda uppi þinni minningu um ókomin ár. Hvíl í friði, elsku fallega amma mín. Ég elska þig. Matthías Jochum Matthíasson. Amma mín var yndisleg kona. Hún var falleg, sterk, brosmild, hlý, auð- mjúk og hláturmikil. Stórkostleg manneskja. Ég hef alla tíð verið mikil ömmustelpa. Það voru ófáar stundirn- ar sem við sátum saman og spjölluðum og þá var mikið hlegið. Alla tíð hef ég hringt í ömmu ef ég var eitthvað leið. Það var nóg að heyra í henni röddina. Það var öruggt mál að að því samtali loknu var ég brosandi. Mér hefur oft verið líkt við hana. Ekki í útliti heldur hvernig ég er. Það þykir mér mikill heiður. Það var oft gert grín að því að það væri ekki ákjósanlegt að sitja á milli okkar því báðar töluðum við mik- ið og lá hátt rómur. Amma hélt mikið upp á fólkið sitt. Hún var stolt af öllum sínum afkom- endum og bað mig reglulega að telja saman hvað þeir væru nú orðnir marg- ir. Mig minnir að sú tala sé í 66 eins og er. Ég er viss um að nú situr hún hjá afa, ásamt Steina syni sínum, Siggu sonardóttur, systrum sínum og for- eldrum, segir sögur og hlær. Eitt af því síðasta sem amma mín sagði við mig fyrir rúmum mánuði síð- an var „Ég elska þig Salla mín“. Það þykir mér svo dýrmætt. Ég þakka fyr- ir allar þær stundir sem ég hef fengið að deila með henni og þau rúmlega 30 ár sem ég hef verið þeirrar gæfu að- njótandi að hafa þekkt hana. Stórt skarð er höggvið í hjarta mitt. Minn- ingarnar geymi ég sem gull. Hvíldu í friði, elsku amma mín, ég sakna þín sárlega. Þín Salóme. Þóra Frímannsdóttir Erfidrykkjur af alúð Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju. Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta. Sím i : 525 9930 hot e lsaga@hot e lsaga. is www . hot e l saga. is PI PA R\ TB W A • SÍ A • 9 1 0 1 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.