Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
✝ Helga Guðjóns-dóttir var fædd 5.
janúar 1919 á Litlu-
Háeyri á Eyrarbakka
og lést 17. mars 2010.
Foreldrar hennar
voru Guðjón Jónsson
formaður á Litlu-
Háeyri f. 28.10. 1865,
d. 21.12. 1945 og Jó-
hanna Jónsdóttir frá
Minna-Núpi í Gnúp-
verjahreppi f. 1.11.
1879, d. 4.4. 1957.
Systkini Helgu voru
Sigurður f. 9.2. 1903,
d. 7.1. 1987; Halldóra Guðrún f. 13.8.
1905, d. 27.11. 1988; Jón f. 10.1.
1908, d. 27.6. 1982; Margrét f. 26.10.
1910, d. 19.6. 1989, maki: Ragnar
Jónsson f. 1905, d. 1992; fóst-
með bræðrum sínum Jóni og Sigurði
á Litlu-Háeyri eftir að móðir þeirra
veiktist og dó. Helga var í Héraðs-
skólanum á Laugarvatni 1937-39.
Hún lærði garðyrkju í Gróðrarstöð
Akureyrar 1940 og vann eftir það í
gróðrarstöð á Húsavík. Hún lærði til
klæðskera hjá Sigríði Sveinsdóttur
klæðskerameistara í Reykjavík og
nam leiklist í leiklistarskóla Ævars
R. Kvaran 1950. Hún var í stjórn
ungmennafélags og leikfélags Eyr-
arbakka um árabil og lék í mörgum
sýningum leikfélagsins. Hún sótti
námskeið í Kennaraskóla Íslands og
var handavinnukennari við Barna-
skóla Eyrarbakka á árunum 1957-
1973. Helga bjó ein á Litlu-Háeyri
eftir fráfall bræðra sinna en síðustu
tvö árin dvaldi hún á hjúkr-
unarheimilinu á Kumbaravogi á
Stokkseyri.
Útför hennar verður gerð frá
Eyrarbakkakirkju 27. mars 2010 og
hefst athöfnin kl. 14.
urdóttir: Bára Brynj-
ólfsdóttir, f. 1945.
Þórdís f. 8.12. 1912, d.
26.11. 1973, maki: Ög-
mundur Krist-
ófersson, f. 1907, d.
2000. Börn: Jóhanna,
f. 1945, d. 2000 og
Auðbjörg f. 1948.
Brynjólfur Halldór f.
19.11. 1915, d. 6.7.
1946, maki: Fanney G.
Hannesdóttir, f. 1922,
d. 2009. Börn: Bára f.
1945 og Brynjólfur
Guðjón, f. 1946. Sig-
ríður f. 11.5. 1921, d. 1.10. 1982,
maki: Sigurður Ó. Haraldsson, f.
1911, d. 1992. Barn: Valgerður K.
Sigurðardóttir, f. 1956. Helga var
ógift og barnlaus og hélt heimili
Helga Guðjónsdóttir, föðursystir
mín, var falleg kona, vel vaxin, kvik í
hreyfingum og glaðsinna. Hún var
eigi að síður skapmikil og stolt. Hún
var ógift og barnlaus og hélt heimili
fyrir bræður sína Jón og Sigurð eftir
að móðir þeirra dó. Ég er að hluta til
alinn upp hjá þeim og þar var gott að
vera. Lífið var fjölbreytt og margt að
starfa eins og var á mörgum heim-
ilum á Eyrarbakka á þessum árum
þar sem var bæði búskapur og kart-
öflurækt.
Á uppvaxtarárum sínum á Bakk-
anum kynntist hún ungmennafélags-
hreyfingunni þar sem lögð var
áhersla á heilbrigt líferni, íþróttir og
samheldni. Þessi viðhorf einkenndu
hana alla tíð. Hún fékk þekkingu og
reynslu í garðyrkju á Laugarvatni
og Akureyri og hafði alla tíð mikinn
áhuga á garðrækt og kom sér upp
fallegum garði við Litlu-Háeyri.
Helga var listfeng og fjölhæf. Hún
spilaði á mandólín, málaði myndir og
tók ljósmyndir, meira að segja lit-
myndir sem var fátítt á þeim árum
og fékk þær framkallaðar í Ameríku.
Hún hafði mikinn áhuga á leiklist og
starfaði í leikfélagi Eyrarbakka á
gullaldarárum þess og tók þátt í
flestum uppfærslum þess. Hún lék
m.a. eitt aðalhlutverkið í Lénharði
fógeta og var sú sýning með þeim
eftirminnilegustu. Síðasta hlutverk
hennar var í sýningunni Margt býr í
þokunni og skemmta margir sér enn
yfir minningunni um hana. Helga
æfði hlutverkin oft heima við heim-
ilisstörfin, bæði í leikritum sem átti
að sýna og eins önnur bara af því þau
voru svo skemmtileg. Stundum bað
hún mig að vera hvíslara fyrir sig.
Oft tók hún þátt í undirbúningi 17.
júní-hátíðarhaldanna á Bakkanum
og lék þá gjarnan í stuttum þáttum.
Loftið á Litlu-Háeyri var heimur út
af fyrir sig með m.a. leikbúningum
leikfélagsins og búningum sem hún
hafði búið til sjálf ásamt gömlum 78
snúninga hljómplötum með mörgum
okkar bestu einsöngvurum.
Á inniteppudögum fengum við
frændsystkinin oft að leika okkur
með búningana hennar og máta okk-
ur inn í ýmis hlutverk. Við spiluðum
hljómplöturnar á gamlan upptrekkt-
an grammófón en fjöðrin var slitin
svo ég varð að handsnúa plötudisk-
inum. Ég hef oft undrast að Helga
skyldi leyfa okkur þetta en viðhorf
hennar var: „Þau kynnast þá þessum
söngperlum.“ Helga var mikil hann-
yrðakona og kenndi handavinnu við
Barnaskóla Eyrarbakka í mörg ár.
Hún leyfði nemendum sínum að
koma heim til sín hvenær sem var ef
þeir þurftu tilsögn. Hún las þá
stundum sögur fyrir stelpurnar og
reyndi að miðla þeim fróðleik og
fannst mörgum þeirra þetta mikil
upplifun og minnast þess ennþá með
hlýju.
Hún var söngelsk og söng oft við
heimilisstörfin. Hún söng í mörg ár í
kirkjukór Eyrarbakkakirkju og var
það henni afar mikilvægt því hún var
í eðli sínu félagslynd. Tækifærum til
félagslegra samskipta fækkaði stöð-
ugt hin síðari ár en hún prjónaði og
las þá því meira. Helga vakti áhuga
minn á bókmenntum og góðum lífs-
gildum og er ég henni þakklátur fyr-
ir það og hlutdeild hennar í uppeldi
mínu. Blessuð sé minning hennar.
Brynjólfur G. Brynjólfsson.
Vorið virðist vera að koma. Runn-
ar farnir að bruma og rabarbarinn
farinn að spretta í garðinum við
Litlu-Háeyri. Helga frænka var
vorsins barn og hennar líf og yndi að
rækta blóm og matjurtir enda hafði
hún lært garðyrkju á Akureyri.
Garðurinn hennar má nú líta sinn fíf-
il fegri. Þegar Helga var í blóma lífs-
ins var þetta einn af fallegri blómst-
urgörðum á Bakkanum þrátt fyrir
erfið skilyrði í saltrokinu á Eyrar-
bakka. Þar voru margar tegundir
blóma. Ekki skemmdu gömlu vagn-
hjólin sem lokuðu garðinn af.
Helga móðursystir okkar var
hæfileikarík kona, glaðlynd, listræn
og afskaplega falleg á yngri árum.
Hún lærði til klæðskera í Reykjavík
og kenndi handavinnu í Barnaskóla
Eyrarbakka í mörg ár. Góðlyndi
Helgu og ljúfmennska sýndi sig best
í því að heimili hennar var nemend-
unum alltaf opið og áhugasamar
stelpur komu til hennar á sumrin til
að fá leiðsögn og efni.
Hugur Helgu stóð til leiklistar og
veturinn 1950 fór hún að læra leiklist
í leiklistarskóla Ævars R. Kvaran. Á
þeim árum var blómatími Leikfélags
Eyrarbakka og þær systur Helga og
Sirrí voru máttarstólpar þess. Léku í
flestum þeirra leikrita sem sett voru
upp og saumuðu búninga. Til eru
myndir af Helgu í burðarhlutverki í
Lénharði fógeta.
Helga frænka giftist aldrei þó að
„biðlarnir væru margir“ eins og
systur hennar sögðu. Hún hélt heim-
ili með bræðrum sínum Sigurði og
Jóni á Litlu-Háeyri. Við systkina-
börn hennar fimm vorum send til
dvalar á Eyrarbakka á sumrin. Átt-
um að létta eitthvað undir með
Helgu en vorum mest úti við leik eða
í heyskap með Nonna. Systkinin
voru ákaflega barngóð og börn löð-
uðust að þeim. Brynjólfur frændi
okkar var að miklu leyti alinn upp af
þeim systkinum.
Oft var kátt á hjalla þegar systkini
Helgu að sunnan bar að garði. Þá var
spaugað og vísum kastað fram.
Heimilið var öllum opið og marga
bar að garði. Karlarnir í nágrenninu
komu í morgunkaffi til skrafs og
ráðagerða. Alltaf var kaffi á könn-
unni hjá Helgu, smurt brauð á borð-
um og bakkelsi.
Helga var söngelsk og hlustaði
mikið á tónlist. Hljómuðu óperur,
kórverk og einsöngslög í stofunni á
Litlu-Háeyri. Þegar við hjálpuðum
Helgu í húsverkunum gekk hún ann-
aðhvort um með vindil „til að fá góða
lykt í húsið“ eða æfði sálmasöng.
Hún söng í kirkjukór Eyrarbakka-
kirkju í um 50 ár. Þegar við vorum að
reyna að fá hana suður um jólin tók
hún það ekki í mál. Hún varð að
syngja aftansöng og messu daginn
eftir!
Eftir alvarleg veikindi varð Helga
ekki söm og áður. Hún gerðist ein-
ræn og einangraðist. Eftir dauða
bræðra hennar jókst einsemd henn-
ar mikið og í mörg ár hefur Helga
búið ein með Trygg.
Helga fékk hægt andlát á Kumb-
aravogi þar sem hún hafði dvalist í
rúm tvö ár. Við þökkum kærlega fyr-
ir góða umönnun og hlýju starfs-
fólks. Kirkjukór Eyrarbakkakirkju á
þakkir skildar fyrir góða samfylgd í
áranna rás og þá gleði sem kórfélag-
ar veittu Helgu með söng á níræð-
isafmæli hennar á síðasta ári.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
( V. Briem)
Valgerður K.
Sigurðardóttir,
Auðbjörg Ögmundsdóttir.
Helga Guðjónsdóttir
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
INGIBJARGAR JÓNATANSDÓTTUR,
Bröttugötu 2,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til Sjúkrahússins á Akranesi,
A-deild, fyrir frábæra hjúkrun.
Við þökkum Krabbameinsfélaginu í Borgarnesi frábæra aðstoð í erfiðum
veikindum.
Jón S. Pétursson og börn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför kærrar móður
okkar,
GUÐLAUGAR INGVARSDÓTTUR
frá Norðfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
deildar Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað og
öllu starfsfólki sjúkrahússins.
Fríður, Björn, Ingvar, Margrét, Atli, Hákon,
Anna, Jóhanna og Guðlaug.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR,
Vallarbraut 6,
Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Garðvangi fyrir einstaklega góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Þórmar Guðjónsson,
Elías Þórmarsson, Anna Eyjólfsdóttir,
Jóhanna Þórmarsdóttir, Björn Kristinsson,
Árni Geir Þórmarsson, Linda Stefánsdóttir,
Adda Þórunn Þórmarsdóttir, Fredrik Plott,
Gunnar Þór Þórmarsson, Jenný Olga Eggertsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til ykkar kæru vinir og ættingjar
sem sýnduð samúð og hlýhug vegna andláts
ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengda-
móður, ömmu og systur,
GUÐRÚNAR ÞÓRU MAGNÚSDÓTTUR,
Víkurströnd 6,
Seltjarnarnesi,
og heiðruðuð minningu hennar.
Sigurður Gizurarson,
Júlía Jónsdóttir,
Dagmar Sigurðardóttir, Baldur N. Snæland,
Magnús Sigurðsson, Karen Z. Zurga,
Júlía Sigurðardóttir,
Gizur Sigurðsson,
Ólafur Sigurðsson,
Ingibjörg Sigurðardóttir, Arnar Loftsson,
barnabörn og systkini.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÁSGEIR HALLSSON,
Hvassaleiti 101,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grensáskirkju mánudaginn
29. mars kl. 13.00.
Margrét Halldóra Sveinsdóttir,
Guðný Ásgeirsdóttir Stäuble, Markus Stäuble,
Ásgeir Ásgeirsson, Ingibjörg Ýr Pálmadóttir,
afabörn og langafabarn.