Morgunblaðið - 27.03.2010, Page 38

Morgunblaðið - 27.03.2010, Page 38
38 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 ✝ Sigursteinn Ólafs-son fæddist að Syðra-Velli í Flóa 6. ágúst 1914. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi 20. mars sl. For- eldrar hans voru Ólafur Sveinn Sveins- son, f. 1889, d. 1976 og Margrét Steins- dóttir, f. 1890, d. 1970. Sigursteinn var elstur sextán systk- ina. Þau eru: Guðrún, f. 1915, býr í Reykja- vík; Sveinbjörn, f. 1916, býr í Hafn- arfirði; Ólafur, f. 1917, d. 2005, bjó í Hafnarfirði; Ingvar, f. 1919, d. 2007, bjó í Reykjavík; Gísli, f. 1920, dó sem ungbarn; Ólöf, f. 1921, d. 2007, bjó á Selfossi; Guðfinna, f. 1922, d. 2008, bjó í Tungu í Fljóts- hlíð; Kristján, f. 1923, býr í Reykja- vík; Soffía, f. 1924, býr á Selfossi; Margrét, f. 1925, býr á Selfossi; Sigurður, f. 1928, býr í Þorláks- höfn; Gísli, f. 1929, d. 1991, bjó í Reykjavík; Aðalheiður, f. 1930, býr á Selfossi; Jón, f. 1931, býr á Sel- fossi, Helgi, f. 1934, býr í Þorláks- ára til sjóróðra til Grindavíkur. Tók vélstjórapróf upp úr tvítugu og gerðist vélstjóri á bátum. Þá tók við sjómannsferill við síldveiðar á sumrin og vetrarvertíðar. Sigur- steinn og Guðrún byrjuðu sinn bú- skap í Vestmannaeyjum 1940 en haustið 1941 fluttu þau til Stokks- eyrar og þá fór Sigursteinn að keyra á eigin vörubíl fyrir breska setuliðið við flugvallargerð í Kald- aðarnesi í Flóa. Þau hjónin fluttu á Selfoss 1943 og Sigursteinn réðst til Kaupfélags Árnesinga sem mjólkurbílstjóri og síðan við bíla- viðgerðir. Síðan starfaði hann í nokkur ár á Bifreiðastöð Steindórs í Reykjavík sem rútubílstjóri og hjá versluninni Höfn á Selfossi sem flutningabílstjóri milli Selfoss og Reykjavíkur. Frá 1954 starfaði hann á verkstæðum kaupfélagsins á Selfossi, lengst á bíla- og vara- hlutalager eða til ársins 1989, en þá lét hann af störfum, 75 ára að aldri. Eftir starfslok tók hann virk- an þátt í starfi aldraðra á Selfossi. Síðasta árið var hann á hjúkr- unarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi, þá farinn að líkamsburðum en hugurinn skýr. Útför Sigursteins fer fram frá Selfosskirkju í dag, 27. mars 2010, og hefst athöfnin kl. 11. Jarðsett verður í Laugardælakirkjugarði. höfn. Eiginkona Sig- ursteins var Guðrún Dagbjört Giss- urardóttir frá Vot- múla í Flóa, f. 30. nóvember 1910, d. 8. nóvember 1990. Þeirra sonur er Sæv- ar Sigursteinsson, f. 6. júlí 1941, rafvirki á Selfossi. Eiginkona hans er Sigrún Gerð- ur Bogadóttir, f. 20. apríl 1948, sjúkraliði. Þeirra börn eru: a) Sigurður Bogi, f. 1971, blaðamaður í Reykjavík. b) Sigursteinn Gunnar, f. 1974, flug- virki í Danmörku. Kona hans er Hrund Brynjólfsdóttir, f. 1974. Dætur þeirra eru, Alexandra Nadia, f. 1994, Ísabella Diljá, f. 2001, og Emilíana Eik, f. 2004. c) Ragnhildur Sævarsdóttir, f. 1982, nemi, búsett á Hjálmsstöðum í Laugardal. Maður hennar er Daní- el Pálsson, f. 1981. Sonur þeirra er Kári, f. 2007. Sigursteinn ólst upp við almenn sveitastörf. Fór sextán ára gamall á vertíð til Vestmannaeyja og 18 „Ertu kominn yfir dagskiptalín- una?“ spurði afi þegar ég hringdi í hann frá Ho Chi Min-borg í Víet- nam. Þetta sérstaka orð hafði ég aldrei heyrt áður, hvar er línan sem skiptir dögum? Og svona var hann, síspurull og fræðandi. Mikið hefði hann annars notið ferðar austur til Víetnams og þess að kynnast dugmikilli þjóð sem hefur á síðustu árum risið úr öskustó eymdar og fátæktar, rétt eins og íslenska þjóðin gerði á þeirri löngu ævi sem hann sjálfur lifði. Víet- nömum tókst að leggja mesta hernaðarveldi heimsins að velli með einstakri útsjónarsemi sem líkust var því að músin léki á kött- inn. Sá sigur féll vel að þeim póli- tísku viðhorfum sem hann hafði alla tíð. Ég skynjaði í þessu samtali okk- ar, eins og ég raunar vissi, að hon- um var brugðið og máttur fór þverrandi. Allt gat gerst. Ferðin heim var kappflug yfir hálfan hnöttinn um að hitta hann lifandi og því náði ég. Á sjúkrabeðnum spurði hann mig um ferðalagið. Áhugi hans á umhverfi sínu var jafnmikill og áður. Eftir þetta sam- tal kvöddumst við. Í síðasta sinn. „Segðu mér eitthvað frá Syðra- Velli,“ sagði ég við afa, þá kannski sex ára gamall. Mér þótti strax ævi hans vera forvitnilegt ævintýr. Frásagnir afa og ömmu – Guð- rúnar Dagbjartar Gissurardóttur – voru fróðlegar og gamlar myndir í snjáðum albúmum fylltu í eyður. Fljótlega var ég farinn að punkta eitt og annað niður eftir þeim og svo dró afi gamla ritvél fram. Því- líkt galdratæki hef ég aldrei vitað enda sat ég alla daga við vélina og pikkaði með tveimur puttum. Rit- vélin varð örlagavaldur í mínu lífi og ég ákvað tíu ára að verða blaða- maður. Frá degi til dags fylgdist afi ná- kvæmlega með því hvað við systk- inin þrjú værum að fást við, hvar við værum stödd og hvernig okkur vegnaði. Það kom líka af sjálfu sér, því við þurftum að hringja nánast daglega í afa sem okkur fannst svo skemmtilegur. Mér er næst að halda að hann hafi lesið velflest sem ég skrifaði og var einatt að benda mér á um- fjöllunarefni. Systkinin mín geta svipaða sögu sagt: það sem við tók- um okkur fyrir hendur var hans upplifun. Það var ævintýri þegar afi hélt bíósýningar. Gamlar slæds- myndir voru settar í sýningarvél- ina og svo fórum við í hringferð um landið og afi sýndi myndir úr ferðalögum, af flóðum í Ölfusá og fleiru. Nú er það bíó búið þó sýn- ing lífsins haldi áfram. Það er löng leið frá Íslandi til himnaríkis, sagði kerlingin í Gullna hliði Davíðs Stefánssonar þegar hún kom með sálina hans Jóns síns til Lykla-Péturs. Jú, þangað er sjálfsagt dágóður spölur en fljót- farinn. „Ungum fannst mér ég þurfa að flýta mér. Þetta hefur ekkert breyst. Hvert þangað sem för minni er heitið er hugurinn kominn þangað fyrr en varir. Ég hef því jafnan farið hratt yfir,“ seg- ir afi í óprentuðum endurminning- um sem ég skráði eftir honum. Stundum er sagt að líðan fram- liðinna ráðist að nokkru af því hvernig til þeirra er hugsað. Á kveðjustund þegar góðar minning- ar er mér efst í huga efast ég því ekki um eilíflega velferð afa míns, Sigursteins Ólafssonar, sem nú er okkur horfinn yfir dagskiptalínuna. Sigurður Bogi Sævarsson. Að eiga góðan vin er nokkuð sem enginn skyldi vanmeta. Í þér átti ég minn besta vin. Allt frá því ég svaf sem lítið barn undir hlýrri sæng þinni og þar til ég kvaddi þig góða nótt í hinsta sinn. Þú studdir mig með ráðum og dáð, þú gafst mér hlýtt faðmlag þegar ég þurfti þess og þú bauðst fram aðstoð þína á ögurstundu. Þegar ég strauk að heiman varst það þú sem ég leitaði til, þú tókst mér opnum örmum án þess að segja nokkurt orð, líkt og sönnum vini sæmir. Í minningunni höfðum við aldrei neitt annað en kálböggla í matinn, brauð með majónesi í kaffinu og síðan dönsuðum við Óla skans fyrir svefninn. Inni á milli spiluðum við svarta Pétur og þú fræddir mig á meðan um engjaslátt og verbúðarlíf. Saman grétum við yfir þeim ör- lögum að við yrðum ekki alltaf saman, að þú ættir einn daginn eft- ir að yfirgefa mig. Elsku afi minn, ég sakna þín við hvern andardrátt og hvert það tár sem ég felli er til minningar um þig. Hvíl í friði, ég hlakka til að hitta þig aftur. Ragnhildur Sævarsdóttir. Sigursteinn Ólafsson Gógó frænka mín og móðir æskuvin- konu minnar hefur kvatt þessa jarðvist, á 83 aldursári. Það sem einkenndi hana í mínum huga var hjartahlýja og fallegt bros. Minningabrot frá bernskuárun- um í Eyjum raðast upp. Margt var brallað og í huganum finnst mér alltaf hafa verið sól og blíða í Jóna Guðrún Ólafsdóttir ✝ Jóna GuðrúnÓlafsdóttir fædd- ist að Víðivöllum í Vestmannaeyjum 17. nóvember 1927. Hún lést á Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 12. mars 2010. Útför Jónu Guð- rúnar fór fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 20. mars 2010. Eyjum á þessum ár- um.Við börnin hlup- um um fagurgræn túnin og upp á Helgafell. Heyjuðum á Skottó. Klifruðum á snúrustaurunum. Lékum okkur í búð- arleik, í kofanum í Ólafshúsum, og fengum afnot að bíl- skúrnum hjá Edda og Gógó fyrir dúkkuleikina. Lífið var svo áhyggjulaust og afslappað. Oftast voru til heimabakaðar kökur fyrir okkur krakkana og eflaust hurfu lítrar af mjólk í tugatali ofan í krakkaskarann með kökunum góðu hjá Gógó. Ég var daglegur gestur á Víði- völlum fram á unglingsár, þar sem við Guðfinna vinkona mín vorum nær óaðskiljanlegar, og það breytti engu fyrir Gógó að bæta einni stelpu við hópinn. Stundum læddumst við líka heim til mín eða ömmu í Óló þegar við vildum vera í ró og næði og laus- ar við krakkaskarann. Lífið lék ekki alltaf við Gógó, þótt brosið væri oftast á sínum stað. Hún fékk sinn skammt af mótlæti og á örfáum árum þurfti hún að sjá á eftir eiginmanni sín- um, barnabarni og tveimur börn- um, sem öll féllu frá, langt um aldur fram. Gógó lét þó ekki bug- ast og stóð sem klettur í hafinu, enda alin upp í Eyjum við brim og öldurót. Hún vissi sem var að ekki þýddi að deila við dómarann. Gógó átti við heilsubrest að stríða síðustu árin og dvaldi á Hraunbúðum þar sem hún var umvafin ást og umhyggju barna sinna og starfsfólks Hraunbúða. Gógó hefur nú fengið hvíldina og efalaust hefur hún fengið góð- ar móttökur hjá eiginmanni, börnum og barnabarni við kom- una á æðra tilverustigið. Hvíl þú í friði, elsku Gógó. Erla Ólafía Gísladóttir. Elsku amma mín. Það er ótrúlega skrítið til þess að hugsa að þú sért far- in frá okkur. Einhvern veginn er maður svo sjálfselskur að manni þykir sjálfgefið og sjálfsagt að þeir sem manni þykir vænt um verði alltaf til staðar. Það er ekki langt síðan þú hélst upp á 80 ára afmælið þitt og það hefði aldrei hvarflað að mér að rúmum tveim- ur mánuðum síðar myndir þú kveðja þennan heim. En þrátt fyrir skyndileg veikindi þá er ég svo þakklát fyrir að hafa getað kvatt þig á spítalanum, setið við hliðina á þér, haldið í höndina þín og strokið þér um rauða fallega hárið þitt. Undir það síðasta varstu orðin mjög þreklítil og veik og þó þú hafir ekki getað tal- að mikið þá hélstu fast í höndina á þeim sem heimsóttu þig og svaraðir með augunum og með því að kinka kolli. Minningarnar eru margar, sandkökurnar þínar góðu, mömmukökurnar á jólunum með þykka kreminu og hunangskakan með ennþá þykkara kremi. Það verður skrítið að heimsækja mömmu og pabba í sumar og sjá þig ekki sitjandi með þeim úti á palli. Myndin í huga mínum er mjög skýr, þú með sólgleraugu, búin að bretta síðbuxurnar upp að hnjám í skyrtu eða peysu sitj- andi með fæturna dregna að þér í sólinni. Þú hafðir mikinn húmor enda mamma þín húmoristi með ein- dæmum. Það var alltaf mjög gam- an að segja þér sögur því þú lifðir þig svo inn í þær, sast kímin á svip og tókst þátt í umræðunni. Sérstaklega fannst mér gaman að segja þér sögur af elskulega litla Anna Guðmundsdóttir ✝ Anna Guðmunds-dóttir fæddist í Odda á Ísafirði hinn 30. desember 1929. Hún lést á gjörgæslu- deild Landspítalans við Hringbraut 8. mars sl. Útför Önnu fór fram frá Bústaða- kirkju 19. mars 2010. gaurnum mínum, honum Emil Darra. Þá varst þú í essinu þínu og gerðir grín og hlóst. Mér fannst líka mjög skemmti- legt og fyndið að heyra ykkur syst- urnar tala um per- sónur í sjónvarps- þáttum eins og um vini eða kunningja væri að ræða. Svo mikið lifðir þú þig inn í þættina. Þú varst smekkmann- eskja mikil, gekkst alltaf í fal- legum og fínum fötum, hélst fal- legt heimili og gafst fallegar og vandaðar gjafir. Þú varst dugleg að prjóna og sauma út og á ég fal- legt handverk eftir þig sem ég mun varðveita. Á yngri árum saumaðir þú einnig föt á börnin þín. Þessi myndarskapur virðist ekki hafa náð að erfast til mín, en þó finnst mér mjög gaman að baka. Þótt þú værir ekki há í loftinu varstu því stærri persónuleiki með ákveðnar skoðanir og lífssýn. Það var mér mikið kappsmál þegar ég var lítil að ná þér í hæð og mældum við okkur reglulega hvor við aðra. Ég man sérstak- lega þegar ég bauð þér í heim- sókn í fyrstu íbúðina mína í Háa- gerðinu í kaffi. Ég vildi gera vel við ömmu mína og hellti upp á kaffi og bakaði fyrir hana marm- araköku. Þá sagði amma mér sögu og að hún hefði heitið því að borða aldrei marmaraköku aftur um ævina, en mér til mikillar ánægju breytti hún út af þeirri ákvörðun og fékk sér kökusneið. Það verður skrítið að halda upp á næstu afmæli og hátíðisdaga án þess að þú sért með okkur. Elsku amma, söknuðurinn er mikill en einnig er ég svo þakklát fyrir að þú hafir verið hjá okkur í 80 ár og að þú varst umvafin um- hyggju þinna nánustu þína síð- ustu daga. Ég veit að þú vakir yf- ir okkur og ert í góðum félagsskap afa Helga. Guð geymi þig. Edda Björk og fjölskylda. Allar minningar á einum stað. ÍS L E N S K A S IA .I S M O R 48 70 7 01 /1 0 –– Meira fyrir lesendur Minningar er fallega innbundin bók sem hefur að geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is. Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni mbl.is/minningar Um leið og framleiðslu er lokið er bókin send í pósti. Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa frá árinu 2000 og til dagsins í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.