Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 44

Morgunblaðið - 27.03.2010, Síða 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 Sudoku Frumstig 5 9 3 8 4 9 6 4 2 8 3 5 6 8 8 3 5 9 6 7 4 7 2 9 5 5 2 6 5 2 5 3 2 1 6 7 1 5 9 5 3 7 6 9 1 1 6 4 5 1 6 5 3 4 7 8 2 1 9 6 5 2 8 3 6 5 2 9 8 7 3 1 7 3 8 6 1 7 9 3 6 9 1 4 3 8 5 2 7 5 7 3 6 1 2 8 9 4 2 8 4 9 5 7 1 6 3 7 5 9 3 6 1 4 8 2 4 1 2 8 9 5 3 7 6 3 6 8 2 7 4 9 5 1 9 4 7 1 8 6 2 3 5 8 2 6 5 4 3 7 1 9 1 3 5 7 2 9 6 4 8 2 5 6 4 7 1 3 9 8 9 1 7 6 3 8 5 2 4 4 8 3 5 9 2 1 7 6 5 7 1 8 2 4 6 3 9 3 4 9 7 6 5 2 8 1 6 2 8 3 1 9 7 4 5 7 9 5 2 8 6 4 1 3 8 6 2 1 4 3 9 5 7 1 3 4 9 5 7 8 6 2 7 5 4 9 2 1 3 8 6 8 3 9 5 4 6 1 2 7 2 6 1 7 8 3 9 5 4 4 1 8 2 6 9 5 7 3 5 7 2 3 1 4 6 9 8 3 9 6 8 7 5 2 4 1 1 2 7 6 5 8 4 3 9 6 8 3 4 9 2 7 1 5 9 4 5 1 3 7 8 6 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 27. mars, 86. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér. (Jh. 12, 50.) Rukkun kom frá bankanum ádögunum um ógreiddan reikn- ing upp á fáeina þúsundkalla vegna hraðsendingar. Viðskiptavinurinn var viss um að þetta væru einhver mistök því hann kannaðist ekki við að hafa nokkru sinni tekið við send- ingu án þess að greiða toll og annan kostnað áður. Því var þessu ekki ansað í fyrstu. Þegar ítrekuð hótun barst um að senda reikninginn í lög- fræðiinnheimtu varð að bregðast við. x x x Starfsmaður fyrirtækisins sagðiað svona væri þetta í bókhald- inu og gengu nokkur bréf á milli þar sem viðskiptavinurinn lagði sig fram um að upplýsa málið. Hann varð smám saman viss um að gerðir hefðu verið tveir reikningar fyrir sömu sendinguna þótt upphæðin væri af einhverjum ástæðum ekki nákvæm- lega sú sama. Til þess að ganga úr skugga um það þurfti að kanna gögn í bókhaldi fyrirtækisins. x x x Það hefur greinilega ekki veriðgert því það næsta sem gerðist var að enn ljótari hótun kom, nú frá innheimtufyrirtæki. Það þykknaði aðeins í viðskiptavininum en hann dró andann djúpt að sér áður en hann setti innheimtufyrirtækið, for- stjóra fyrirtækisins og viðkomandi starfsmann inn í málið með bréfi. Því var tekið vel og sagt að innheimtan yrði stöðvuð á meðan málið væri skoðað og rætt um áframhaldandi samband. x x x Síðan er liðinn rúmlega hálfurannar mánuður og ekkert hefur heyrst. Væntanlega hefur málið skýrst og reikningurinn verið færð- ur til baka. En viðskiptavinurinn hefur enga skýringu fengið og hvorki nýja rukkun né afsök- unarbeiðni. Hann er því ekki alveg rólegur því hugsanlegt er að hann eigi seinna viðskipti við þetta fyr- irtæki. Skyldi þá afgreiðsla sending- arinnar stöðvast vegna gamallar „skuldar“ í bókhaldinu? Vonandi ekki. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 auðveldur, 8 nötraði, 9 reiður, 10 greinir, 11 flýtirinn, 13 starfsvilji, 15 fjárrekst- urs, 18 lítil tunna, 21 blekking, 22 smávaxna, 23 óþekkt, 24 þyngd- areiningar. Lóðrétt | 2 óhreinkaði, 3 tilfinningalaus, 4 allmik- ill, 5 reyfið, 6 aldurs- skeið, 7 vaxa, 12 eykta- mark, 14 vafa, 15 látið af hendi, 16 snauð, 17 deil- ur, 18 slungnu, 19 gras- flötur, 20 duglega. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 flets, 4 þófar, 7 leggs, 8 örkin, 9 sýl, 11 skap, 13 saki, 14 eljan, 15 hörð, 17 Ægis, 20 æra, 22 lofað, 23 skúta, 24 sælir, 25 ausan. Lóðrétt: 1 fólks, 2 ergja, 3 sess, 4 þjöl, 5 fokka, 6 rændi, 10 ýkjur, 12 peð, 13 snæ, 15 hælis, 16 ræfil, 18 grúts, 19 skarn, 20 æður, 21 assa. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. c4 d5 3. cxd5 Dxd5 4. Rc3 Da5 5. Rf3 e6 6. Bd2 c6 7. e4 Dd8 8. e5 Rd5 9. Bd3 b5 10. O-O a6 11. Rg5 Rxc3 12. bxc3 Ha7 13. Rxh7 c5 14. Dg4 cxd4 15. cxd4 Hd7 16. Be3 Bb7 17. Rg5 Rc6 18. Be4 Db8 Staðan kom upp í 2. deild í seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir skömmu í Rimaskóla í Reykjavík. Danski skákmaðurinn Ja- cob Carstensen (2295) hafði hvítt gegn Jóni Þór Bergþórssyni (2155). 19. Rxf7! Hxf7 svartur hefði orðið mát eftir 19… Kxf7 20. Bg6+. 20. Bxc6+! og svartur gafst upp enda taflið gjörtapað eftir 20… Bxc6 21. Dxe6+. Íslandsmót barna hefst í dag í Vestmannaeyjum og lýkur því á morgun, sunnudaginn 28. mars. Nán- ari upplýsingar um mótið er að finna á www.skak.is. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 2330. Norður ♠ÁD953 ♥92 ♦9 ♣ÁG943 Vestur Austur ♠KG10764 ♠82 ♥D76 ♥Á108543 ♦6 ♦G4 ♣D52 ♣1076 Suður ♠– ♥K3 ♦ÁKD1087532 ♣K8 Suður spilar 7♦ doblaða. Fyrir 80 árum kom Theodore Lig- htner fram með þá hugmynd að dobl á slemmu væri best nýtt til leiðsagnar um útspil. Allar götur síðan hafa spil- arar gefið út þúsundir stiga með mis- ráðnum Lightner-doblum. En ekki er alltaf við Lightner sjálfan að sakast. Hann setti fram skýrar reglur. Ein segir að dobl biðji um útspil í sögðum lit blinds. Spilið að ofan er frá Íslandsmótinu. Suður vakti á sterku laufi og vestur hindraði með 2♠. Norður nennti ekki að eltast við sektina og meldaði 3♣. „Stopp! – fjórir spaðar,“ sagði suður. Meint sem ásaspurning fyrir utan spaðann, en skilið sem laufstuðningur. Norður sagði líka „stopp“ og stökk í 6♣. Suður breytti í 6♦, norður í 6G og suður í 7♦. Allt á leifturhraða. „Dobl,“ sagði austur – lauf út og 2330 í NS. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Láttu tímann vinna með þér í við- kvæmu fjölskyldumáli. Vertu opin/n fyrir ástinni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ekki falla í þá freistni að kaupa hluti bara af því að þú átt eitthvert fé handbært. Láttu smáóhapp ekki pirra þig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ekki búast við kraftaverkum, en ástvinur þinn virðist svo sannarlega leggja mikið á sig fyrir þig. Jafnvel þótt fólk meini vel er mögulegt að það sé ekki með allt á hreinu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Hægra heilahvel þitt er í yf- irvinnu. Slepptu hendinni af kvíðanum og taktu skref inn í óvissuna miklu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Vilji er allt sem þarf hvort heldur þig langar að ræða eitthvað eða leysa ein- hverja manndómsþraut. Reyndu að sýna þolinmæði og umburðarlyndi. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Farðu vel yfir allar peningafærslur í dag og gættu þess að týna hvorki vesk- inu né töskunni. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert ekki nógu harður/hörð í sam- skiptum við aðra og þyrftir að taka þig á og vera fastari fyrir. Þú þarft á öðru fólki að halda þótt þú viljir ekki viðurkenna það. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Nú þarftu að taka þér tak í fjármálunum. Mundu samt að það eru takmörk fyrir öllu, líka því sem hægt er að semja um. Þú færð símhringingu sem vekur þig til umhugsunar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Spennan sem þú finnur fyrir vegna nýrra kynna við einhvern er gagn- kvæm. Frumleiki þinn laðar að ein- staklinga sem þú getur verið stolt/ur af að kalla vini. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur haft mikið að gera að undanförnu og þarft því á hvíld að halda. Gott ráð er að leita skjóls hjá trún- aðarvini. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Verkir eru skilaboð frá líkama þínum til hugarins. Hafðu augun opin og ekki láta sárindi í fortíðinni hindra að þú nýtir tækifærið nú. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ættir að horfast í augu við það að þú þarfnast athygli. Sýndu skoðunum annarra virðingu og leitaðu samkomulags við þá. Stjörnuspá 27. mars 1918 Stjórnarráðið auglýsti að eina og sömu stafsetningu skyldi nota í skólum, skóla- bókum og öðrum bókum sem landssjóður gæfi út eða styrkti. Þá var meðal ann- ars ákveðið að rita skyldi je í stað é og s í stað z. Því var breytt rúmum áratug síðar. 27. mars 1943 Varðskipið Sæbjörg stóð breska togarann War Grey að ólöglegum veiðum við Stafnes. Togarinn sigldi áleiðis til Englands með stýrimann varðskipsins og stoppaði ekki fyrr en varð- skipið Ægir hafði elt togar- ann uppi og skotið þrjátíu skotum að honum. Farið var með togarann til Reykjavík- ur. 27. mars 1963 Skagafjarðarskjálftinn. Mik- ill jarðskjálfti, um 7 stig, fannst víða um land um kl. 23.15. Upptökin voru norður af mynni Skagafjarðar. Hús léku á reiðiskjálfi, fólk varð óttaslegið og sumir héldu sig utandyra alla nóttina. 27. mars 1967 Snjóflóð féll úr Bjólfi á Seyðisfirði á síldarverk- smiðju Hafsíldar. Fimmtán hundruð fermetra geymslu- hús lagðist saman. 27. mars 1998 Kristín Hermannsdóttir, sem fæddist 17. febrúar þetta ár, var heiðruð sem tuttugu þúsundasti Kópa- vogsbúinn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Ingvar Gýgjar Jónsson, fyrrver- andi byggingar- fulltrúi frá Gýgj- arhóli, er átt- ræður í dag. Hann er að heim- an. 80 ára GUNNAR Oddsson, fyrrverandi knattspyrnuþjálf- ari ætlar að taka það rólega á afmælisdaginn. „Fjöl- skyldan ætlar að eyða helginni saman í sumarbústað í Húsafelli,“ segir Gunnar. En bústaðardvölin var sérstaklega ákveðin með það í huga að hægt yrði að njóta afmælisdagsins í rólegheitum. „Við njótum þess að borða góðan mat og svona.“ Gunnar kveðst ekki vera mikið fyrir afmælishald. „Ég efndi til afmælisveislu með vinum og fjölskyldu er ég varð fertugur og fór svo til New York í kjöl- farið, sem var virkilega gaman. En annars hafa af- mælin verið á hóflegum nótum.“ Er hann horfi til baka sé þó eftir- minnilegt hve afmælisdaginn virtist oft bera upp á páska í æsku. „Ég man t.d. eftir nokkrum afmælisdögum sem bar upp á föstudaginn langa og það var lítið varið í það. Þá þurfti maður að hafa sig hægan og það voru fáir tilbúnir að mæta í afmæli á þeim degi,“ segir Gunnar. Afmæl- isfögnuðurinn hafi þá yfirleitt verið fluttur yfir á annan dag. Hann hefur undanfarið tekið sér hlé frá knattspyrnuþjálfun og nýtur þess. „Nú er ég í hvíld og er að upplifa nýja tíma án þess að vera of djúpt sokkinn í boltann og hef fyrir vikið meiri tíma til að sinna fjölskyldunni og öðrum áhugamálum.“ annaei@mbl.is Gunnar Oddsson, 45 ára Bar oft upp á páskana Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.