Morgunblaðið - 27.03.2010, Blaðsíða 45
Dagbók 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG SKAR MIG Á DÓSINNI UTAN
AF KATTAMATNUM ÞÍNUM Í DAG
ÉG VONA AÐ ÞÚ KUNNIR AÐ
META ÞAÐ SEM ÉG GERI FYRIR ÞIG
ÞAÐ ER EINS GOTT
AÐ ÞAÐ SÉ EKKI BLÓÐ
Í MATNUM MÍNUM
ÉG TALA
EKKI VIÐ
ÞIG FRAMAR
EFTIR ÞAÐ
SEM GERÐIST!
ÉG MYNDI EKKI TALA VIÐ ÞIG
ÞÓ VIÐ VÆRUM ÚTI Á HAFI,
Í LOFTINU EÐA Á TUNGLINU!
EN EF VIÐ HITTUMST
Í MIÐRI Á?
STJÓRNVÖLD SEGJA AÐ
REGLULEG HREYFING SÉ MJÖG
MIKILVÆG FYRIR FANGA
VILTU ÞÁ
EKKI SKIPULEGGJA
FÓTBOLTAMÓT FYRIR
OKKUR ÚTI Í GARÐI?
NEI,
BADA
BING
TEKUR ÞETTA
LANGAN TÍMA?
GRÍMUR, ER EINHVER
MEÐ LEIÐINDI ÚT Í ÞIG?
ÉG GÆTI SÉÐ UM
HANN. ÉG ÞEKKI
NÁUNGA SEM
ÞEKKIR NÁUNGA
SEM ÞEKKIR
NÁUNGA SEM...
VERTU RÓLEGUR,
ÉG Á BARA
ÞRJÁ NÁUNGA
EFTIR
ÉG VEIT EKKI, ADDA...
ER ÞESSI BÓK EKKI ALVEG
GAGNSLAUS. VARSTU EKKI
AÐ TALA VIÐ LÖGFRÆÐING?
JÚ, EN
ÞÓKNUNIN ER
50.000 kr.
KANNSKI ER
BÓKIN EKKI
SVO SLÆM
SJÁÐU, LALLI! FYRRVERANDI
LÖGGA SKRIFAÐI BÓK UM HVERNIG
HÆGT ER AÐ LOSNA UNDAN
HRAÐASEKTUM. ÉG GET FENGIÐ
HANA FYRIR 2.000 kr.
FRÁBÆRT!
ENGINN SÁ
MIG GRÍPA
ÞETTA VESKI
ÞETTA VAR
EKKI FALLEGA
SAGT...
ÉG ER
AUGLJÓSLEGA
EKKI
„ENGINN“
ÞETTA
ERT ÞÚ!
ÞETTA VESKI PASSAR
EKKI VIÐ SKÓNA ÞÍNA!
Bíllyklar töpuðust
BÍLLYKLAR, með
fjarstýringu í, töpuðust
í Frostafold í Grafar-
vogi í kringum 22.
mars, finnandi vinsam-
lega hringi í síma 564-
2099.
Þjófagengi
HVENÆR ætli komi
að því að Íslendingar
losni við þessi þjófa-
gengi sem virðast þríf-
ast hér á landi? Manni
finnst alltaf verið að
segja sömu fréttirnar:
,,Mennirnir eru þekktir
afbrotamenn, en eftir af þeir höfðu
játað, var þeim sleppt.“ Hvað er að?
Af hverju eru mennirnir ekki sendir
heim til sín? Er það virkilega svo að
réttarkerfið hér sé svo gallað að
glæpamenn megi brjóta af sér aftur
og aftur áður en þeir eru lokaðir
inni? Fólk er hvatt til að læsa húsum
sínu og loka gluggum en það virðist
nú ekki stoppa þessa menn að allt sé
læst. Öll fangelsi eru full er algeng
setning, er þá ekki upplagt að hafa
lögin þannig að það sé hægt að
skófla þessu liði heim til sín, 1, 2 og
3? Ég vil ekki trúa því að
Íslendingar hafi ekki þann rétt að
geta sent glæpamenn úr landi. Mér
sýnist við hafa duglegan dóms-
málaráðherra og vonandi tekur hann
á þessum málum.
Kristín.
Gleðistund
í Furugerði
TIL borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavik:
Mig langar að senda
kærar kveðjur og
þakkir fyrir gleði-
stundina sem þið veitt-
uð okkur sem búum í
Furugerði 1 nú í vik-
unni. Þetta skemmti-
lega fólk var komið til
að gleðja okkur íbúana.
Þarna söng Júlíus
Vífill gullfallega, Jón
Karl spilaði undir og
fór líka með ýmislegt
spaugilegt til að kitla svolítið hlát-
urtaugarnar.
Fleiri borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokkins voru mættir til að spjalla
við okkur, engar ræður, sögðu þau,
heldur bara að eiga skemmtilega
stund saman. Sannarlega tókst þeim
það, þessu góða fólki. Ég óska þeim
góðs gengis í komandi kosningum.
Svona dugmikið og jákvætt fólk á
stjórnmálasviðinu er gulls ígildi,
ekki síst á erfiðum tímum.
Endurtek þakkir fyrir mig og
kveðjur til ykkar allra.
Sigrún Elíasdóttir.
Ást er…
… stelpan þín með
gleraugu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Kvæðið Eyjafjallajökull birtist íöðru tölublaði Klaustur-
póstsins árið 1822 og stóð til skýr-
ingar: „Kvæði á fæðingardegi Frið-
riks konúngs sjötta, þann 28da
janúar árið 1822.“ Það á vel við nú:
Tindafjöll skjálfa, en titrar jörð,
tindrar um fagrahvels boga,
snjósteinninn brjáðnar, en björg klofna
hörð,
brýzt þar fyrst mökkur um hárlausan
svörð
og lýstur upp gullrauðum loga.
Hver þar svo brenni mjög, ef þú spyr
að,
Eyjafjalla skallinn gamli er það.
Spyrjir þú svo, hví hann hljómi svo hart
og hósti upp vikri og eldi,
að mökkur sjest eldslitur myrkrið um
svart,
svo miðnættið verður sem hádegið
bjart
og glóri í gulllögðum feldi,
gjörla jeg þori að greina þjer, að
gleðilog og fagnaðarsöngur er það.
Veit hann að skjöldunginn Ísland á
einn,
allra sem reyndist því beztur,
og sem til hjálpar því hvergi var seinn,
og haginn því sá hann ei vera þann
neinn,
að vildi’ ei því væri’ hann sem mestur.
Fæsta jeg þurfa hjer fræða mun, að
Friðrik sjötti Danakongur er það.
Gamall því Eyfjalla skallinn við ský
skekur hinn snjóhvíta feldinn,
og flytur svo lofdrápu fylki á ný,
sem fornaldar skáldin, en hörpu hans í
strengjunum stirnir á eldinn,
en hljómurinn dynur, svo allir vjer að
Eyjafjalla heyrum skáldið er það.
Allir vjer biðjum með eldjökli því
auðnu konungi til handa,
sem norðurljós fegursta norðrinu í
nái hans vegsemd ljóma’ yfir ský,
og lengur en logafjöll standa;
og fjallsins svo hrópandi fetum í spor:
Friðrik sjötti lifi, konungur vor!
Pétur Stefánsson langar ekki til
Mekka og skýrir það svo:
Ég frétti af fimmtugum Tékka
sem fékk sér í tána í Mekka.
Hann var laminn að bragði
af löggu sem sagði;
„Það er lögbrot að fá sér að drekka.“
Hólmfríður Bjartmarsdóttir sá
þetta í öðru ljósi:
Pétur er aumur, með ekka
hann ætlaði að fá sér að drekka
á bæjarins bar
en bardaman þar
þessi fallega, er farin til Mekka.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af eldgosi og Mekka
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.