Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 46
46 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010 FÖSTUDAGINN langa flytja einsöngvarar úr röðum kórs Langholtskirkju, strengja- kvartett og tenórsöngvarinn Þorbjörn Rúnarsson Jóhann- esarpassíuna eftir J.S. Bach. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Einsöngvararnir eru auk Þor- björns María Vigdís Kjart- ansdóttir, Vala Sigríður Guð- mundsdóttir Yates, Arnheiður Eiríksdóttir, Lilja Dögg Gunn- arsdóttir, Andri Björn Róbertsson og Magnús Guðmundsson. Ingvar E. Sigurðsson les písl- arsögu Jóhannesarguðspjallsins og hugleiðingar og útleggingar Bachs á píslarsögunni í kórum og aríum verða fluttar á þeim stöðum sem við á. Tónlist Jóhannesarpassían í Langholtskirkju Johann Sebastian Bach ÞRIÐJI og síðasti hluti Nót- unnar, uppskeruhátíðar tón- listarskóla, verður haldinn í Langholtskirkju í dag og hefst kl. 11:00 með grunnnáms- og miðnámstónleikum, en fram- haldsnámstónleikar verða kl. 13:00. Á þessum tónleikum verða flutt valin tónlistaratriði frá öllum fernum svæðis- bundnu tónleikunum á upp- skeruhátíðinni sem fram hafa farið undanfarið. Lokaathöfn fer síðan fram kl. 16:00 og þá verða veittir verðlaunagripir fyrir framúrskarandi tón- listaratriði og nemendur sem fá slíkar viðurkenn- ingar flytja sín verk. Menningarmálaráðherra og borgarstjóri verða viðstaddar. Tónlist Uppskeruhátíð tónlistarskólanna Langholtskirkja. DOUGLAS Brotchie flytur barokktónlist á nýtt Wegs- cheider-barokkorgel Hafnar- fjarðarkirkju á þriðjudag kl. 12:15-12:45. Douglas hefur sér- staklega valið efnisskrána með tilliti til hljóms hljóðfærisins sem er í upprunalegum þýsk- um mið-átjándu aldar stíl, og hyggst spila verk eftir Otto Olsson, Johann Pachelbel, Georg F. Kaufmann, Johann Caspar Kerll og Georg Muffat. Douglas Brotchie er fæddur í Skotlandi en hef- ur búið hér í aldarfjórðung og starfar sem org- anisti og kórstjóri Háteigskirkju. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Tónlist Barokktónlist á barokkorgel Douglas Brotchie Ég velti því alltaf fyrir mér af hverju öll þessi blúslög væru um konur og kynlíf 48 » Í KVÖLD verður frumsýnt leik- verkið Eilíf óham- ingja eftir Andra Snæ Magnason og Þorleif Örn Arnarsson á Litla sviði Borgarleik- hússins. Verkið gerist í óræðu herbergi þar sem fimm sögu- persónur eru saman komnar til að ræða málin. Dr. Matthildur er með fjóra mismunandi einstaklinga til meðferðar og allir tengjast þeir á ein- hvern hátt. Hún hefur sett skjólstæð- ingum sínum skýrar reglur. Útrás, Icesave, Ísland og Stjórnarskrá eru allt orð á bannlista hjá doktornum og krefst hún þess að allt verið lagt á borðið og ekkert skilið eftir inni í skápum til að safna ryki, engum verði hleypt út fyrr. Blaðamaður náði í Þorleif þar sem hann var á kaffihúsi í miðborginni á hraðri leið á æfingu og spurði hann út í verkið og hvernig það hefði verið að vinna með svona viðkvæmt og erfitt þjóðfélagslegt umfjöllunarefni. „Það var næstum því ómögulegt að skrifa þetta. Hvernig getur þú skrifað leikverk um eitthvað sem þú og aðrir eruð algjörlega komin með ógeð á, við vorum eiginlega að skrifa um atburði sem á að vera ómögulegt að skrifa um. Nú er unnið hörðum höndum við að gera upp síðastliðin 20 ár og und- irbúa næstu 30. Hvernig getur ein- hver umræða verið í gangi um hluti sem allir eru ónæmir fyrir?“ Andri Snær og Þorleifur Örn vildu gera sjálfstætt framhald af leikverk- inu Eilíf hamingja sem sett var upp 2008, þar sem þjóðfélagið er skoðað eftir hrun og reyna að halda því frá að verða að verki þar sem grínið væri tekið fram yfir alvöru málsins. „Hér eru öskurkórar úti um allt og þeir sem láta hæst í sér heyr eru hagsmunaaðilar, hvort sem það eru skuldarar eða peningamenn, þessir kórar hafa allir rétt fyrir sér sem ger- ir það að verkum að enginn hefur rangt fyrir sér og þar af leiðandi verða málin ekki leyst.“ Eða eins og Þorleifur segir hvernig getur átt sér stað umræða um mál sem allir eru orðnir ónæmir fyrir. Síðastliðin ár hafa hafa Andri Snær og Þorleifur Örn tekið viðtöl við þús- undir Íslendinga og má sjá erfiði þeirrar vinnu í verkinu á fjölum Borgarleikhússins. matthiasarni@mbl.is Leikverkið Eilíf óhamingja Umræða Sólveig Arnarsdóttir og Atli Rafn Sigurðarson í hlutverkum sínum í Elífri óhamingju sem frumsýnt verður á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld. Í HNOTSKURN » Leikverkið „Eilíf óham-ingja“ verður frumsýnt í kvöld í Borgarleikhúsin. » Í verkinu er bannað aðminnst á allt sem tengist efnahagsástandinu. » Verkið er sjálfstætt fram-hald leikritsins „Eilíf ham- ingja“ sem Andri Snær Magnason og Þorleifur Örn skrifuðu saman árið 2008. Bannað að segja Icesave! Þorleifur Örn Arnarsson SEGJA MÁ að þessi mánuður hafi óforvarandis orðið einskonar Schnittke-mánuður, því fjölmargir tónlistarmenn og -flokkar hafa glímt við verk rússneska tónskáldsins Alf- reds Schnittke á undanförnum vik- um. Kammersveit Reykjavíkur er þar á meðal því hún heldur tónleika í dag í Þjóðmenningarhúsinu kl. 17:00 undir yfirskriftinni Mozart ... plús Schnittke. Á efnisskrá tónleikanna er þó ekki bara Schnittke, því hún hefst með óbókvartett í F-dúr og píanókvartett í Es-dúr eftir Mozart. Þar næst verður Schnittke í boði því flutt verður verkið Moz-Art samið fyrir óbó, hörpu, sembal, fiðlu, selló og kontrabassa þar sem tónskáldið leikur sér með ýmis brot úr verkum Mozarts. Einnig verður fluttur píanókvart- ett sem Schnittke samdi eftir ófull- gerðri skissu frá æskuárum Gustavs Mahlers, en fyrsti þáttur úr þessum píanókvartett Mahlers hefur varð- veist og verður einnig leikinn á tón- leikunum. Sérstakur gestur Kammersveit- arinnar er píanóleikarinn Sebast- iano Brusco en Kammersveitin lék nýverið píanókvartett Mozarts með honum á tvennum tónleikum í Sag- restia del Borromini, skrúðhúsinu við kirkju heilagrar Agensar við Na- vona-torg í Róm. Kammersveitina skipa á þessum tónleikum Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari, Matthías Nardeau óbó- leikari, Guðrún Hrund Harðardóttir lágfiðluleikari, Sigurgeir Agnarsson og Margrét Árnadóttir sellóleikarar, Richard Korn kontrabassaleikari, Katie Buckley hörpuleikari, Guðrún Óskarsdóttir semballeikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari. arnim@mbl.is Tónleikar í Þjóðmenningarhúsinu Mozart ... plús Schnittke í boði Kammersveitarinnar Morgunblaðið/Ernir Vakning Kammersveit Reykjavíkur æfir Mozart og rússneska tónskáldið Schnittke í Þjóðmenningarhúsinu fyrir tónleikana sem fram fara í kvöld. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is LISTAHÁTÍÐ mun á annan í hvíta- sunnu, mánudaginn 24. maí kl. 20, standa fyrir tímamótatónleikum þar sem Megas, ásamt hljómsveit, strengjakvintett og barnakór, horfir fram á merkan feril sinn í bakssýnis- spegli á stórtónleikum. Eftir áratugaferil kemur Megas nú í fyrsta sinn fram á Listahátíð í Reykjavík, ásamt einvalaliði tónlist- armanna, og flytur meðal annars nýjar útsetningar tónskáldsins Þórðar Magnússonar, sonar Megas- ar á verkum föður síns og er þetta í fyrsta sinn sem feðgarnir vinna sam- an. Meðal tónlistarmanna sem koma fram á tónleikunum eru Ágústa Eva Erlendsdóttir, Birgir Baldursson, Birgir Bragason, Bryndís Halla Gylfadóttir, Eðvald Lárusson, Einar Melax, Guðlaugur Kristinn Óttars- son, Hávarður Tryggvason, Helga Þórarinsdóttir, Hjörleifur Valsson, Hörður Bragason, Sigrún Eðvalds- dóttir og Zbigniew Dubik. Þetta er sannarlega enn ein skrautfjöðurinn í hatt þessa merka listamanns sem er einn mikilvægasti dægurtónlist- armaður íslenskrar tónlistarsögu. Undanfarin misseri hefur Megas verið á mikilli listrænni siglingu og hafa nokkrar plötur hans með Senu- þjófunum þótt mikið afrek. Aðför að lögum  Megas heldur tónleika á Listahátíð  Sonur hans útsetur lög eftir hann Morgunblaðið/Heiddi Meistarinn Magnús Þór Jónsson eða Megas kemur fram á listahátíð. Kl. 10:30 Innreiðin í Jerúsalem. Skrúðganga með „pálmagrein- ar“ upp Skólavörðustíg að Hall- grímskirkju. Biskup Íslands helgar aðalhurð Hallgríms- kirkju. Kl. 11:00 Hátíðarmessa í Hall- grímskirkju með biskupi Ís- lands og prestum Hallgríms- kirkju. Frumflutningur: Introitus fyrir kór, 2 trompeta og orgel eftir Gunnar A. Krist- insson. Flytjendur: Mótettukór Hallgrímskirkju, stjórnandi Hörður Áskelsson, Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson trompetar, Oddur Björnsson og Sigurður Þor- bergsson básúnur, Björn Stein- ar Sólbergsson orgel. Leiðsla – Opnun myndlistarsýn- ingar Kirkjulistahátíðar við lok hátíðamessunnar. Ólöf Nordal myndlistarmaður sýnir verk í forkirkju og kirkjuskipi Hall- grímskirkju og að messu lok- inni verður frumflutt nýtt lag eftir Jón Nordal tónskáld, föður myndlistarmannsins, við sálm Hallgríms Péturssonar „Gefðu að móðurmálið mitt“. Sýningin er unnin í samvinnu við íbúa við Sjafnargötu í Reykjavík. Kl. 12:45 Ólöf Nordal talar um verk sitt í forkirkjunni Kl. 14:00 Ensk messa. Prestur er sr. Halldór Reynisson, verk- efnastjóri á Biskupsstofu. For- söngvari Guðrún Finnbjarnar- dóttir, Björn Steinar Sólbergsson orgel. Kl. 17:00 Amen höfuðskepn- anna fjögurra – Opnunar- tónleikar Kirkjulistahátíðar 2010. Messa fyrir orgel og segulband byggð á textum eftir Olov Hartman. Hans Ola Erics- son, organisti frá Svíþjóð, flytur eigið verk þar sem hann leikur á Klais-orgel Hallgrímskirku í bland við hljóm Schnittcker- orgela víða að. Tæknistjórnun: Ríkharður H. Friðriksson tón- skáld. Kirkjulistahátíð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.