Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 27.03.2010, Qupperneq 48
48 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MARS 2010  Nýtt íslenskt tískuvefrit hefur litið dagsins ljós, Nude magaz- ine, á slóðinni nudemagazine.is. Í tímaritinu verður tíska og hönn- un tekin fyrir í sinni víðustu mynd, íslensk sem erlend, og einnig verður myndbönd að finna á vefnum. Fyrsta tímaritið, eða vefritið, leit dagsins ljós í fyrra- dag en meðal efnis í því er tísku- vika í Kaupmannahöfn, hönnun Alexanders heitins McQueen, stíllinn fyrir vorið og Reykjavík Fashion Festival. „Þetta form býður upp á ýmsa möguleika, gagnvirkni, vídjó, tón- list o.s.frv. Svo geta auglýsendur séð nákvæmlega hve margir skoða auglýsinguna þeirra, í hve langan tíma og hvar sé helst ýtt á hana,“ segir í pósti um ritið en það er komið í úrslit Gulleggsins 2010, frumkvöðlakeppni Innovit. Íslenska tískuvefritið Nude magazine Fólk TÓNLISTARHÁTÍÐIN Við Djúpið, Rás 1 og Kraumur tónlistarsjóður standa saman að verk- efninu Leit að nýjum tónskáldum, í tengslum við hátíðina. Auglýst var eftir umsóknum frá nýj- um tónskáldum í byrjun árs og barst fjöldi um- sókna, þar af nokkrar frá erlendum tónskáldum sem telst nokkuð fréttnæmt. Dómnefnd valdi úr umsóknum, skipuð þeim Daníel Bjarnasyni tónskáldi og dómnefndarfor- manni og tónskáldunum Þuríði Jónsdóttur og Ólafi Óskari Axelssyni ásamt Dagnýju Arnalds, listrænum stjórnanda tónlistarhátíðarinnar, og Stefáni Jóni Bernharðssyni hornleikara. Þremur tónskáldum var boðin þátttaka á há- tíðinni en þau eru Finnur Karlsson, Hallvarður Ásgeirsson og Petter Ekman og fáu þau það verkefni að semja verk fyrir blásarakvintett. Verkinu þarf að skila í maí. Þá fær kvintettinn, sem samið er fyrir, verkin til æfinga og vinnslu, blásarakvintett skipaður félögum úr Nordic Chamber Soloists sem tekur þátt í verkefninu. Tónskáldin mæta svo hljóðfæraleikurunum á Ísafirði á tónlistarhátíðinni Við Djúpið og fá tækifæri við að fullvinna verkin með tónlistar- mönnunum. Greipur Gíslason, framkvæmdastjóri hátíðar- innar, segir að með þessu bjóðist nýjum tón- skáldum einstakt tækifæri. Hátíðin Við Djúpið verður haldin á Ísafirði dagana 22.-27. júní. Frekari upplýsingar um tón- listarhátíðina og dagskrá hennar má finna á viddjupid.is. helgisnaer@mbl.is Þrjú tónskáld valin á hátíðina Við Djúpið Við Djúpið Frá frumflutningi á verki tónskáld- anna þriggja sem valin voru í fyrra.  Í síðasta menningargrafi menn- ingardeildar Morgunblaðsins kom fram hugmynd um að stofnaður yrði fésbókarhópurinn „Alskeggs- apríl“. Menningarblaðamaður stofnaði slíkan hóp skömmu eftir birtingu og hafa margir skegg- elskandi Íslendingar slegist í hann. En nokkru eftir stofnun hópsins var annar stofnaður með sama nafni og texti menningarblaða- manns þar afritaður, án leyfis, til kynningar á hópnum. Þykir menn- ingardeild þetta nokkuð undarlegt og heldur langt gengið í að stela hugmyndum og textasmíðum ann- arra. Því er hér með komið áleiðis til hins seka. Alskeggs-apríl afrit- aður á Fésbókinni  Sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason fer með Jónínu Bene- diktsdóttur og Gunnari í Krossinum í brúðkaupsferð, ef marka má for- síðu helgarblaðs DV sem slær því upp með fyrirsögninni „Sölvi með í brúðkaupsferð“. „Ég gleðst yfir því að geta hjálp- að til við að selja DV í dag … Úr því að þeir ákváðu að slá mér upp hefði ég nú samt viljað sjá graðari fyrir- sögn. Til dæmis: „Sölvi kúrir á milli“ eða „Sölvi horfir á“. Góða helgi öll :)“ segir Sölvi um þennan uppslátt á Facebook. Annar laugar- vörður Djúpu laugarinnar, Tobba Marinósdóttir, stingur upp á betri fyrirsögn: „Sölvi er skinkan í sam- lokunni!“ Sölvi mun ætla að rita ævisögu Jónínu, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Gleðst yfir því að geta hjálpað DV að selja Eftir Hólmfríði Gísladóttur holmfridur@mbl.is EITT stærsta númer Blúshátíðar Reykjavíkur í ár er án efa Mississippi-blúsarinn Super Chikan. Hann kemur hingað ásamt bandi sínu The Fight- ing Cocks og mun spila á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 1. apríl. Super Chikan fæddist James Johnson 1951 í vöggu blústónlistarinnar í Mississippi. Hann fékk viðurnefnið sem ungur strákur og segist ekki svara öðru nafni í dag. „Ég hafði það verkefni að líta eftir hænsnunum heima þegar ég var strákur. Ég var of lítill til að elta ung- ana, þannig að ég varð að læra að kalla í þá með kjúklinga-kallinu. Og þá fór fólk að kalla mig kjúk- linga-strákinn (chicken-boy).“ Það var svo þegar hann fór að aka leigubíl og varð þekktur fyrir að koma viðskiptavinum fljótt og örugglega á milli staða að hann varð Super Chikan, því hann var súper fljótur. Hann hefur svarað því nafni í 35 ár. „Allir kalla mig því nafni, meira að segja fólkið í bankanum,“ segir hann og hlær. Illa farið með tónlistarfólk Super Chikan vann við að keyra átján hjóla trukka þegar hann byrjaði að semja tónlist. Hann langaði að þéna meiri peninga en hann fékk fyrir aksturinn og hann tók eftir því í tónlistarlífinu í kringum sig að lagahöfundarnir fengu miklu betur borgað en söngvararnir og hljóðfæraleikararnir. „Þá vantaði lög og ég sagði að ég gæti vel samið lög og texta. Ég ætlaði mér aldrei að syngja lögin sjálf- ur en þeir sögðu að í flutningi annara yrðu þetta bara orð, en að lögin væru partur af mínu lífi, væru mér hjartfólgin og að þau væru frásögn sem ég gæti betur komið til skila,“ segir hann. Helstu áhrifavaldar þegar hann var að byrja að semja voru Jimmy Reed, Muddy Waters, JohnLee Hooker en þó sérstaklega James Brown. „Ég hlustaði á tónlist þeirra þegar ég var að búa til mína tónlist; reyndi að búa til einhvers konar kjúk- lingasúpu úr þessu,“ segir hann og hlær. Super Chikan er þekktur fyrir að vera glaðlyndur og kát- ur en honum er ekki hlátur í huga þegar hann talar um hvernig farið er með tónlistarfólk heima í Miss- issippi. Hann grunaði aldrei að hann myndi slá í gegn en það leið langur tími milli þess að tónlist hans fór að gefa eitthvað í aðra hönd og að hann fór að njóta ávaxta erfiðis síns. „Það er til fólk sem not- ar svona fólk eins og mig, sem vissi ekkert um bransann þegar ég var að byrja. Þeir nota þig í langan tíma, lána þér peninga og steypa þér í skuldir en græða svo á þér þrisvar sinnum það sem þeir láta þig fá. Þeir græða helling af pening áður en þeir segja þér að þú sért að græða peninga. Þetta er alltaf að gerast í Mississippi.“ Super Chikan hefur aldrei lært á hljóðfæri en segist hafa verið fæddur blúsmaður. Hann kemur úr mjög fátækri fjölskyldu og segir að hann hafi verið að endurnýta löngu áður en hugtakið var fundið upp. „Alltaf þegar við hentum einhverju hugsuðum við okkur tvisvar um og reyndum að sjá möguleika í því sem við vorum að henda.“ Fyrstu gítararnir sem hann eignaðist voru rusl sem aðrir höfðu losað sig við og hann hefur alla tíð unnið með hljóðfæri sem hann hefur sjálfur búið til úr afgöng- um frá öðrum. Syngur um lífið Í dag selur hann endurunna gítara á heimasíðu sinni; hver og einn er búinn til úr hlutum eða brot- um af notuðum gíturum og hefur sitt eigið einstaka hljóð. Gítararnir eru fagurlega skreytt listaverk og kallar hann þá Chiktars. Super Chikan segir það ekki auðvelt að láta þá frá sér eftir að hafa lagt svo mikla alúð í þá. „Ég reyni að verðleggja þá þannig að enginn tími að kaupa þá. En þeir seljast samt,“ segir hann hálfdaufur en hlær svo við. Super Chikan hefur ferðast um allan heim og segist hafa farið mörgum sinnum póla á milli. Hann hefur spilað fyrir forseta og aðra þjóðhöfðingja og er einnig frægur fyrir að hafa túrað um Bretland með Steven Seagal og fyrir að vera uppáhalds- blúsari Morgans Freemans. Um þessar mundir ferðast hann með bandinu The Fighting Cocks en dóttir hans spilar í sveitinni og er Super Chikan raunar eini karlkyns meðlimur bandsins. Hann segir að sér hafi alltaf þótt auðveldara að umgang- ast konur, enda séu þær skilningsríkari en karl- menn og hafi stærra hjarta. „Lögin mín eru um það sem hefur gerst í mínu lífi og það sem ég sé gerast í lífi annara. Ég velti því alltaf fyrir mér af hverju öll þessi blúslög væru um konur og kynlíf. Lífið er svo margt annað. Því svo er alltaf verið að niðurlægja þær. Ég ólst upp án pabba og lærði fljótt að karl- menn hafa harðari hjörtu. Konur eru örlátari á tíma sinn, athygli og umhyggju.“ Blúsari af guðs náð  Mississippibúin Super Chikan spilar á Blúshátíðinni sem hefst í dag  Lærði aldrei á hljóðfæri og smíðar eiginn gítara Segir lífið meira en konur og kynlíf Fæddur í þetta Super Chikan leikur á heimasmíðaðan Chiktar. „Ég reyni að verðleggja þá þannig að enginn tími að kaupa þá. En þeir seljast samt,“ segir hann í gamansömum tón í viðtalinu. Kvennaveldi Jamiesa Turner, trymbillinn í The Fighting Cocks, sveit Super Chikan. Blús í miðbænum laugardaginn 27. mars Blúsgjörningur á Lækjartorgi kl. 13 The flying white Cadillac over the House of Blues. Akstur blúsvagna Krú- serklúbbs Reykjavíkur kl 13.15 og bílasýn- ing í bílakjallara Ráðhússins frá kl. 14. Setning í Ráðhúsi Reykjavíkur kl 14 og til- kynnt um heiðursfélaga Blúsfélags Íslands. Klúbbur Blúshátíðar á Café Rósen- berg 27. mars - 1. apríl Nánari dagskrá má nálgast á blues.is. Fjöldinn allur af inn- lendum og erlendum blúsurum mun troða upp. Sunnudagur 28. mars kl. 20 í Fríkirkj- unni Fjórar dívur; Deitra Farr, Kristjana Stefáns, Ragnheiður Gröndal og Brynhild- ur Björnsdóttir. Davíð Þór Jónsson leikur á flygil. Þriðjudagur 30. mars kl. 20 á Hilton Reykjavík Nordica Hotel Deitra Farr. Þessi stórkostlega blús- söngkona frá Chicago tryllir gesti Blúshá- tíðar. Einnig leikur Nordic All Stars Blues Band. Miðvikudagur 31. mars kl. 20 á Hilton Reykjavík Nordica Hotel Billy Branch. Goðsögn úr Chicago- blúsnum; fyrrverandi munnhörpuleikari Willie Dixon og Chicago Blues All Stars. Með honum leika Blue Ice band og Ragn- heiður Gröndal. Fimmtudagur 1. apríl, skírdag kl. 20 á Hilton Reykjavik Nordica Hotel Super Chikan and the Fighting Cocks. Miða má nálgast á midi.is. Dagskrá Blúshátíðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.